Morgunblaðið - 08.08.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
339.000 kr.
Tilboðsverð
518.000 kr.
Tilboðsverð
389.000 kr.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
SUMARTILBOÐÁGARÐHÚSUM!
Afar einfalt er að
reisa húsin okka
r
Uppsetning teku
r aðeins einn da
g
BREKKA 34 - 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tuttugu ár voru í gær liðin frá flugslysi í Skerjafirði þar sem allir fimm far-
þegar flugvélar létust sem og flugmaður vélarinnar. Ástvinir þeirra komu
saman í gær við minnisvarða um slysið og minntust hinna látnu. Tónlistar-
maðurinn Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, flutti lagið „Engl-
ar himins grétu í dag“ við athöfnina en hann samdi lagið um slysið. Þá hélt
Guðni Már Harðarson prestur tölu um sorgina, þakklætið og missinn.
Minntust hinna látnu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tuttugu ár frá flugslysinu í Skerjafirði
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Fjöldi nýrra kórónuveirusmita hér á
landi er áhyggjuefni fyrir ferðaþjón-
ustuna bæði hvað varðar komur er-
lendra ferðamanna hingað til lands
sem og ferðalög Íslendinga innan-
lands segir Jóhannes Þór Skúlason,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar, í samtali við Morgun-
blaðið. Víðir Reynisson yfirlögreglu-
þjónn sagði á upplýsingafundi
almannavarna í gær að það væri
hægt að tala um faraldur hér á landi
á nýjan leik í stað þess að tala um
hópsmit. Nýgengi smita hér á landi
hefur meðal annars haft þau áhrif að
Ísland er komið á rauðan lista Lett-
lands og Eistlands og Íslendingar fá
ekki að ferðast til Litháens.
Jóhannes segir slæmt að kúrfan
hér á landi geri það að verkum að Ís-
land sé orðið land
sem varað er við
ferðum til. Nú ríði
mest á að allir fari
eftir tilmælum og
fyrirmælum heil-
brigðisyfirvalda
með það að mark-
miði að koma í
veg fyrir frekari
útbreiðslu. „Svo
leiðir það beint af
þeim árangri sem við náum hvort Ís-
lendingar geti ferðast utan eða hvort
erlendir ferðamenn geti komið hing-
að,“ segir hann.
„Ég held að við höfum náð betri
niðurstöðu úr júlí og almennt sumr-
inu en við áttum von á enda bjugg-
umst við við algjöru tekjuleysi í
greininni. En þegar smitin fara að
aukast þá minnkar ferðaviljinn hjá
fólki þannig að það er viðbúið að ein-
hverjir sem höfðu hugsað sér að
ferðast hingað endurskoði þær
ákvarðanir,“ segir Jóhannes einnig
og bætir við að Íslendingar hafi tekið
mjög vel við sér. „Það hefur verið
frábært hvað Íslendingar hafa tekið
vel við sér í sumar og ég held að á
endanum séu íslenskir ferðamenn
búnir að skila því sem við mátti búast
og í rauninni gott betur en það inn í
íslenska ferðahagkerfið. Það er
þakkarvert og í rauninni alveg frá-
bært að það skuli hafa náðst.“
Eftir að hópsýkingar komu hér
upp aftur í júlí og heilbrigðisyfirvöld
hertu sóttvarnaaðgerðir aftur var
ferðaþjónustan gagnrýnd fyrir að
hafa sett þrýsting á stjórnvöld um að
opna landið fyrir ferðamönnum.
„Mér finnst sú gagnrýni mikil ein-
földun á málinu. Staðreyndin er sú
að það hefur komið fram bæði hjá
Víði Reynissyni og Þórólfi Guðna-
syni að ferðaþjónustan sem slík hef-
ur ekki sett neinn sérstakan þrýst-
ing á að það sé horfið frá sóttvarna-
aðgerðum. Það er ekki hægt fyrir
atvinnugrein að stjórna með neinum
hætti hvort landamæri eru opin eða
lokuð. Það er ákvörðun stjórnvalda,“
segir hann.
Nýgengi smita er áhyggjuefni
Jóhannes Þór
Skúlason
Morgunblaðið/Eggert
Við Strokk Búast má við afbókunum vegna nýrrar bylgju faraldursins.
Afbókanir eru viðbúnar Gagnrýni á ferðaþjónustuna mikil einföldun Íslendingar verið frábærir
„Við finnum fyrir auknum fyrir-
spurnum og auknum beiðnum,“ seg-
ir Bjarni Gíslason, framkvæmda-
stjóri Hjálparstarfs kirkjunnar.
Hann segist taka eftir erfiðri
stöðu innflytjenda á Íslandi eftir að
kórónuveirufaraldurinn skall á.
„Þeir sem ekki hafa rétta
tengslanetið eru í erfiðri stöðu hvað
varðar upplýsingar um ástandið á
Íslandi,“ segir hann, enda búi inn-
flytjendur ekki að sama stuðnings-
neti og Íslendingar.
„Innflytjendur koma til okkar og
spyrja okkur út í stöðuna, um hvað
sé leyfilegt og hvað ekki. Þeir
þekkja kannski stöðuna betur í sínu
heimalandi,“ seg-
ir hann.
Skjólstæðingar
Hjálpræðishers-
ins gefa upp fjár-
hagsyfirlit svo
unnt sé að meta
stöðu þeirra, að
sögn Bjarna. Séu
þeir undir vissum
fátæktarmörkum
fái þeir inneign-
arkort í matvöruverslanir. Einnig
sé aðstoðað við önnur útgjöld sem
mæta fjölskyldufólki, til dæmis
kostnað vegna skólagöngu barna.
„Haustið er náttúrlega fram und-
an og þá reynum við að styðja fjöl-
skyldur með kostnað vegna skóla.
Við reynum að tryggja að börnin
finni sem minnst fyrir erfiðri stöðu
með því að veita stuðning. Það geta
verið skólaföt, skólatöskur eða slík-
ur kostnaður sem sumir eiga erfitt
með að mæta,“ segir hann.
Aðspurður hvort aðsókn hafi
minnkað yfir sumarið, þegar áhrif
faraldursins urðu minni, segir
Bjarni: „Þetta hefur verið stöðugt
hjá okkur allan tímann. Það er ekki
eins og við höfum fundið sveiflu í
því, enda voru strax margir komnir
í erfiða stöðu í byrjun faraldurs-
ins.“
Fleiri leita stuðnings
hjá Hjálpræðishernum
Búast við meiri aðsókn þegar uppsagnarfrestir renna út
Bjarni
Gíslason
Íbúafjöldi í Reykjanesbæ nálgast
óðum 20 þúsund. Íbúar þar eru
núna 19.598 og hefur fjölgað um
175 frá áramótum. Reykjanesbær
er fjórða fjölmennasta sveitarfélag
landsins eftir að íbúar þar urðu
fleiri en á Akureyri í febrúar á
síðasta ári. Í tilkynningu frá
Markaðsstofu Reykjaness kemur
fram að íbúum á Reykjanesskaga
hafi fjölgað hratt að undanförnu.
Hlutfallslega var mesta fjölg-
unin í sveitarfélaginu Vogum þar
sem íbúum fjölgaði um 29, sem
jafngildir 2,2%, og þar eru íbúar
nú 1.337. Er gert ráð fyrir því að
um það bil 800 íbúðir rísi á svæð-
inu á næstu 10 árum.
Íbúum í Grindavík hefur fjölgað
um 41 einstakling frá áramótum
og eru þeir nú 3.549 talsins.
Suðurnesjabær bætir við sig 62
nýjum íbúum og þar búa nú 3.648
manns.
Íbúum fjölgar
hratt suður með sjó
Banaslys varð í Reyðarfirði á
fimmtudagskvöld er ökumaður sex-
hjóls lést þegar hjólið valt yfir hann
í fjalllendi.
Lögreglan á Austurlandi greindi
frá þessu í tilkynningu. Þar kom
jafnframt fram að unnið væri að
rannsókn málsins og að ekki yrðu
frekari upplýsingar veittar um það
að svo stöddu.
Ökumaður sexhjóls
lést í Reyðarfirði