Morgunblaðið - 08.08.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.08.2020, Blaðsíða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI 21 2 1 2 1 2 11 1 1 1 1 1 1 1 1 100 1 1 1 12 2 4 3 2 2 2 3 6 6 2 1 5 2 5 1 6 9 2 10 13 1 3 1 2 2 2 1 3 3 3 32 2 5 4 2 1 2 1 1 3 1 36 1 8 1 7 1 11 2 1 4 Kórónuveirusmit á Íslandi Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní til 6. ágúst 152.694 sýni hafa verið tekin Þar af í landamæraskimun 75.389 sýni914 einstaklingar eru í sóttkví 1.952 staðfest smit 109 er með virkt smit Heimild: covid.is Innanlands Landamæraskimun: Virk smit Með mótefni Beðið eftir mótefnamælingu 26,5 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa Nýgengi smita innanlands: júní júlí ágúst 9 11 2 2 4 1 17 Ragnhildur Þrastardóttir Jóhann Ólafsson Sautján kórónuveirusmit greindust innanlands á fimmtudag en að auki greindust fjögur smit á landamær- unum og eru þrír af þeim smituðu sem greindust á landamærunum smitandi. Mótefnamælingar er beð- ið fyrir þriðja smitið og því óljóst hvort sá aðili sé smitandi eður ei. Þrettán innanlandssmitanna greindust hjá sýkla- og veirufræði- deild Landspítalans og fjögur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Jafn mörg smit hafa ekki greinst á einum degi hér á landi síðan 9. apríl en þá greindust 27 smit. Sjö af þeim sautján sem greind- ust voru í sóttkví þegar smitin komu upp. 759 sýni voru tekin hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, 318 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 1.924 á landamærunum. 109 eru í einangrun með virk smit og 914 eru í sóttkví. Þá er ein- staklingur á fertugsaldri í öndun- arvél á Landspítala smitaður af kórónuveirunni. „Stýrihópur verkefnis fundaði í morgun og fór yfir þessa stöðu sem okkur þykja ákveðin tíðindi,“ sagði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn í samtali við blaðamann stuttu eftir að þessi mikli smitfjöldi var til- kynntur. Víðir segir að á fundi morguns- ins hafi verið rætt hvort herða ætti aðgerðir og farið hafi verið yfir til- felli sem greinst hafa undanfarna daga. „Við sjáum að það er ekki í neinu tilfelli þar sem nálægt 100 manns á einum stað tengjast þess- um málum. Því höfum við ekki séð sérstaka ástæðu til að fækka þeim sem koma saman,“ segir Víðir en samkvæmt hertum reglum sem tóku gildi fyrir viku mega að há- marki 100 manns koma saman. „Aftur á móti virðast öll þessi smit eiga það sameiginlegt að fólk hafi ekki virt tveggja metra regl- una. Það eru nokkuð margir hópar í þessum rúmlega 100 sem eru í einangrun,“ segir Víðir. Hann segir að staðfest tilfelli fimmtudagsins séu mörg hver frá fólki sem fór ansi víða um síðustu helgi, verslunarmannahelgina, og hitti marga. Hópurinn sem al- mannavarnir ræða við og er í, eða á leið í, sóttkví er ansi stór. Í gær var tilkynnt að skipa ætti fimm manna verkefnateymi sem annast á framkvæmd aðgerða vegna kórónuveirunnar. Sóttvarna- læknir mun leiða teymið og á það að starfa út árið 2021. Eins og áður segir er einn í önd- unarvél smitaður af veirunni. Þór- ólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagðist á upplýsingafundi almanna- varna í gær sjá merki um frekari veikindi, alvarleg veikindi, líkt og síðasta vetur. Ekki væru sjáanleg merki um að veiran væri veikari en áður. Til alvarlegrar skoðunar er að herða samkomutakmarkanir vegna faraldursins enn frekar á næstu dögum. Ákvörðun hvað það varðar verður tekin um helgina eða eftir helgi, að sögn Þórólfs. „Gríðarlegt áfall fyrir marga“ Þórólfur sagði að ef aðgerðir yrðu hertar hefði hann fulla trú á því að þær takmarkanir myndu standa skemur en þær gerðu á vor- mánuðum. Sóttvarnalæknir ítrekaði að það þyrfti að skerpa á smitvörnum og fólk þyrfti að virða tveggja metra regluna og aðrar þær reglur sem eru í gildi. Hann benti á að dæmi séu um að fólk fari ekki eftir reglum, fari jafnvel veikt í vinnu og skilji eftir sig slóð veikinda. „Það eru vonbrigði að standa í þessum sporum en við getum horft til reynslunnar frá því í vor,“ sagði Þórólfur. Þá hafi aðgerðir skilað árangri og engin ástæða sé til þess að ætla annað en að við getum náð böndum á faraldrinum. „Ég held að það hafi aldrei verið sannara en núna að næstu dagar munu skera úr um það hvort við þurfum að fara niður í 50 eða 20 eins og við gerðum í vetur,“ sagði Þórólfur. „Ég held að það verði gríðarlegt áfall fyrir mjög marga,“ bætti Þór- ólfur við. Hann sagðist telja að ekki yrði gripið til slíkra aðgerða nema það væri algjör nauðsyn. Sóttvarnalæknir sagði að við værum á svipuðum stað núna og í vetur og veldisvöxtur veirunnar væri svipaður. Þrátt fyrir það er ýmislegt öðruvísi en í mars en þá vorum við að fá mikið flæði af veir- unni inn í landið á sama tíma. Núna er þetta ein veira sem farið hefur víða og Þórólfur reiknar með að það taki lengri tíma að stöðva hana. Mesti fjöldi smita í annarri bylgju  17 ný innanlandssmit og 4 smit á landamærum  Tekur lengri tíma að stöðva þessa undirtegund, að sögn sóttvarnalæknis  Til alvarlegrar skoðunar að herða aðgerðir  Næstu dagar ráða úrslitum Ljósmynd/Lögreglan Fundur Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna. 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Sérfræðingar í sölu fyrirtækja • Eitt besta fyrirtækið á landinu á sviði „street food“. Velta yfir 200 milljónir. Góð afkoma. • Ferðabílaleiga með yfir 50 bíla í rekstri, tækifæri þegar túristinn kemur aftur. • Gott tækifæri í hótelrekstri á Vesturlandi, leiga eða sala. • Eitt glæsilegasti bistro í Reykjavík á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. • Við vinnum að nokkrum góðum tækifærum í veitingastarfsemi í Reykjavík. • Kvenfataverslun í Kringlunni, velta 100 milljónir + góð framlegð og hagnaður. • Ísbúð, grill dagvara í Reykjanesbæ, góð velta og afkoma. • Stimplager og framleiðsla á merkingum, lítið en gott fyrirtæki. Við vinnum meðal annars að eftirtöldum verkefnum Við erum með marga kaupendur að smærri fyrirtækjum að kaupverði 20 til 50 milljónum. Þeir sem eru með slík fyrirtæki endilega hafa samband við okkur. Við vinnum að sölu á nokkrum stórum og öflugum fyrirtækum með veltu + 1000 milljónir að 3000 milljónum. Tækifæri fyrir fjársterka kaupendur. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Sýkla- og veirufræðideild Landspítala þarf að bíða í nokkra mánuði til við- bótar eftir nauðsynlegu greiningar- tæki. Slíkt tæki kostar rétt um 100 milljónir króna og getur greint fjögur þúsund sýni á dag. Þetta segir Karl G. Kristinsson, yf- irlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Von er á tækinu í byrj- un nóvember, en það mun auka af- kastagetu deildarinnar svo um munar. „Þetta er einangrunar- og grein- ingartæki, sem er gríðarlega afkasta- mikið. Það er mikil eftirspurn eftir svona tækjum og við erum sögð vera heppin að fá tækið á þessum tíma. Þetta er aðaltækið sem við erum að bíða eftir,“ segir Karl og bætir við að farið hafi verið af stað með pöntun í apríl. „Við vorum sett í röðina og form- leg pöntun var því ekki gerð strax. Auðvitað hefði verið best ef við hefðum verið með umframgetu frá upphafi,“ segir Karl. Nýtt tæki í næstu viku Í næstu viku er von á nýju ein- angrunartæki sem kemur til með að auka afkastagetuna. Óljóst er þó hversu mikið hún mun aukast. Að sögn Karls er um öryggisatriði að ræða. „Við höfum verið að keyra á einu tæki og erum í vondum málum ef það bilar. Þetta gerir vinnuna öruggari og eykur afkastagetuna þótt óljóst sé hversu mikið. Þetta er eins tæki og við feng- um síðast,“ segir Karl sem telur að tæki sem þetta kosti um 12 milljónir króna. Auk þessa tækis á deildin nú von á þremur minni einangrunar- tækjum. Hvert tæki getur tekið allt að 32 sýni í hverri keyrslu. „Við fundum umboðsaðila í Dan- mörku sem er að útvega tæki fyrir Dani sem eru framleidd í Kína. Slík tæki hafa verið sett upp í Danmörku, Færeyjum og í Grænlandi. Við erum því með alla anga úti,“ segir Karl. Fer allt eftir fjölda sýna Eins og áður hefur komið fram hefur Íslensk erfðagreining þurft að hlaupa undir bagga með Landspít- alanum. Þannig hefur fyrirtækið létt á veirufræðideildinni og sinnt nauðsyn- legri skimun við landamærin. Spurður hvort treysta þurfi á Íslenska erfða- greiningu þar til „aðaltækið“ kemur til landsins í nóvember segir Karl að það fari allt eftir fjölda sýna. „Þegar sjúklingasýnum fjölgar þá skerðist afkastagetan fyrir sýni við landamærin. Miðað við hvert við stefnum verðum við komin í ásættan- lega afkastagetu þegar við fáum stóra tækið. Við vitum ekki hvort við erum með fullnægjandi afkastagetu þangað til enda fer það eftir því hversu mikið við erum beðin um að skima á landa- mærunum og fjölda sjúklinga.“ Mikilvægasta tækið kemur ekki fyrr en í byrjun nóvember  Greinir fjögur þúsund sýni á dag  Kostar 100 milljónir Karl G. Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.