Morgunblaðið - 08.08.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020
Bjarni Jónsson rafmagnsverk-fræðingur skrifar um lífeyr-
issjóðina á blog.is og segir: „Það
hefur verið óviðkunnanlegt, jafn-
vel hráslagalegt, að fylgjast með
gjamminu í sumum
verkalýðsleiðtogum
landsins gagnvart
t.d. Icelandair, sem
er hryggjarstykkið
í íslenzkri ferða-
þjónustu. Þar róa
stjórnendur og
starfsfólk nú líf-
róður. Heyrist þá ekki það hljóð úr
horni, að verkalýðsleiðtogar muni
beita áhrifum sínum til að refsa
Icelandair fyrir aðgerðir sínar á
vinnumarkaði með því að lífeyr-
issjóðir, t.d. Lífeyrissjóður verzl-
unarmanna, muni ekki fjárfesta
meira í Icelandair?
Þessi málflutningur er fyrir neð-an allar hellur, er brot á
stjórnarháttayfirlýsingu lífeyris-
sjóðsins, og slíkt athæfi varðar
sennilega við lög. Sumir verkalýðs-
leiðtogar nútímans virðast vera úti
á þekju og ekki skilja núverandi
stöðu íslenzka hagkerfisins. Þeir
virðast enn fremur telja sig hafna
yfir lög og rétt eða geta tekið geð-
þóttaákvörðun um það, hvenær
þeim þóknast að hunza laga-
fyrirmæli og aðrar leikreglur þjóð-
félagsins. Slíkt vitnar um alvarlega
persónuleikabresti, sem eru lítt til
forystu fallnir.
Þá nefnir hann að seðlabanka-stjóri sé með fingurinn á þjóð-
arpúlsinum og hafi bent á „að til-
burðir verkalýðsforkólfa til að
skuggastjórna lífeyrissjóðunum
séu fullkomlega óboðlegir og að
girða verði með lögum fyrir mögu-
leika þeirra til ógnarstjórnar, en
þeir hafa hótað nú og áður látið
verða af hótun sinni um að afnema
umboð stjórnarmanna í lífeyris-
sjóðum, af því að gjörðir þeirra
væru verkalýðsforkólfum ekki
þóknanlegar.“
Bjarni Jónsson
Óboðlegir tilburðir
verkalýðsforystu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Meiriháttar ehf.
er vel tækjum búið alhliða
jarðverktakafyrirtæki
Allar nánari upplýsingar eru á, meiriháttar.is
í síma S:821 3200 eða með tölvupósti í info@meirihattar.is
Við höfum mikla reynslu og erum lausnamiðaðir
þegar kemur að húsgrunnum sama hvort sem er
í auðveldu moldarlagið eða klöpp sem þarf að
fleyga.
Við útvegum einnig allskyns jarðvegsefni.
Dóra S. Bjarnason,
prófessor emerita við
Háskóla Íslands, er
látin, 73 ára að aldri.
Dóra fæddist 20. júlí
1947, foreldrar hennar
voru Steinunn Ágústa
Bjarnason gjaldkeri og
Ingi Hákon Bjarnason
efnaverkfræðingur.
Eftirlifandi sonur
Dóru er Benedikt Há-
kon Bjarnason. Hann
fæddist árið 1980 og er
fatlaður. Árið 1996
sendi Dóra frá sér bók-
ina Undir huliðshjálmi
– Sagan af Benedikt, sem fjallaði
um lífshlaup þeirra mæðgina.
Dóra lauk stúdentsprófi frá MR
árið 1967, BA-prófi í félagsfræði frá
Manchester-háskóla 1971 og MA-
prófi í félagsfræði frá Keele-háskóla
1974. Þá lauk hún doktorsprófi frá
Oslóarháskóla í fötlunarfræðum árið
2003.
Dóra var stundakennari við
Kennaraháskóla Íslands 1971 til
1981 og lektor og síðan dósent í fé-
lagsfræði við sama skóla 1981 til
2004, prófessor við KHÍ, síðar
menntavísindasvið Háskóla Íslands,
frá 2004 og prófessor emerita frá
2014. Þá starfaði hún sem gistipró-
fessor við háskóla víða um heim og
hélt fyrirlestra.
Rannsóknir Dóru
voru einkum á sviði fé-
lagsfræðimenntunar,
fötlunarfræði og skóla-
stefnunnar skóla án
aðgreiningar, sögu og
afraksturs sérkennslu
og jaðarsetningar fatl-
aðs fólks. Verk Dóru
endurspegla reynslu
þriggja kynslóða fatl-
aðra ungmenna af
skóla og samfélagi.
Þau áttu mikilvægan
þátt í viðhorfsbreyt-
ingu til fatlaðs fólks og
til þátttöku allra í sam-
félaginu. Dóra sagði við Morgun-
blaðið árið 2017 að hún hefði einkum
fjallað um hvernig skólinn gæti
mætt öllum nemendum og veitt
þeim gæðamenntun, tryggt félags-
legt réttlæti og virka þátttöku allra,
bæði nemenda og starfsfólks.
Eftir Dóru liggur fjöldi fræðibóka
og fræðigreina, á íslensku, ensku og
fleiri tungumálum. Hún sinnti rit-
stjórn og var m.a. einn ritstjóra bók-
arinnar Skóli margbreytileikans –
Menntun og manngildi í kjölfar
Salamanca sem kom út árið 2017. Á
síðasta ári sendi Dóra frá sér bókina
Brot – Konur sem þorðu, sem
fjallaði um lífshlaup þriggja kyn-
slóða kvenna á tímabilinu 1867 til
2004.
Andlát
Dóra S. Bjarnason
Félagsmenn þriggja aðildarfélaga Kennara-
sambands Íslands hafa samþykkt kjarasaminga,
sem gerðir voru við Samband íslenskra sveitar-
félaga í júlí. Atkvæðagreiðslu um samningana
lauk í gær.
Í atkvæðagreiðslu Félags stjórnenda leikskóla
voru 417 á kjörskrá en 319 greiddu atkvæði eða
76,5%. Já sögðu 280 eða 87,77% en nei 36 eða
11,2%. Þrír seðlar voru auðir.
Í atkvæðagreiðslu Félags leikskólakennara
voru 1.764 á kjörskrá og greiddu 1.236 atkvæði
eða 70,07%. Já sögðu 1008 eða 81,55% en nei 204
eða 16,51. Auðir seðlar voru 24.
Þá voru 656 á kjörskrá í atkvæðagreiðslu Skóla-
stjórafélags Íslands. 507 greiddu atkvæði eða
77,29%, já sögðu 473 eða 93,29% en nei 31 eða
6,12%. Þrír seðlar voru auðir.
Fram kemur á heimasíðu Kennarasambandsins
að gildistími samninganna þriggja er sá sami, eða
frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2021.
Enn er ósamið við Félag grunnskólakennara og
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.
Viðræðuáætlun var endurnýjuð í liðnum mánuði
og eru í viðræður í gangi.
Verkalýðshús Kennarasambandið er til húsa í
Borgartúni 30 eins og fleiri verkalýðsfélög.
Samþykktu samning
Mikill meirihluti fyrir samþykkt Enn er ósamið
við tvö félög innan Kennarasambands Íslands