Morgunblaðið - 08.08.2020, Side 10

Morgunblaðið - 08.08.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 Efling-stéttarfélag • Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík • Sími 510 7500 Þann 18. ágúst nk. verður opnað fyrir bókanir frá 28. ágúst fram að jólum. Bókanir fyrir jól og áramót hefjast 10. september. Þann 2. nóvember verður opnað fyrir bókanir eftir áramót, frá 5. janúar til 28. maí, að undanskildum páskum. Hægt er að bóka hús inn á bókunarvefnum, á skrif- stofu Eflingar í síma 510 7500 eða senda fyrirspurnir á orlof@efling.is Nánari upplýsingar á www.efling.is Félagsmenn Eflingar minnum á haust- og vetrarbókanir orlofshúsa Haust- og vetrarbókanir Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Fjölmargir Íslendingar freista gæf- unnar erlendis við nám og störf og er þar ekkert heimshorn undanskilið. Eins og gengur bankar ástin upp og er þá hvorki spurt um stétt né stöðu. Fyrr en varir er kominn hringur á fingur og litlir fætur tiplandi um. Fyr- ir flesta er þetta hamingjuspor, en skugga getur brugðið á skjóti ástin niður fæti utan Schengen eða ESB. Margir íslenskir ríkisborgarar sem eignast maka utan þessara svæða lenda í miklum erfiðleikum með bú- setu fjölskyldu sinnar og rekast á marga veggi. Það ferðafrelsi sem rak fólk utan lifir með því og mörg pör starfa á alþjóðlegum vettvangi, þar sem annar eða báðir aðilar þurfa vinnu sinnar vegna að ferðast mikið og víða. Takmarkandi dvalarreglur Erlendir ríkisborgarar utan Schengen/ESB hafa nokkur úrræði til að heimsækja landið og dvelja hér í lengri eða skemmri tíma. Grundvall- arúrræði er vegabréfsáritun sem veit- ir rétt til dvalar í þrjá mánuði í senn. Til þess að búa hér og starfa þarf dval- arleyfi sem er ýmsum skilyrðum háð, m.a. má viðkomandi ekki dvelja meira en 90 daga erlendis á ári, ellegar eiga á hættu að missa leyfið. Til að öðlast íslenskt ríkisfang þarf viðkomandi m.a. að hafa haft lögheimili í fjögur ár, sé um hjónaband að ræða, eða fimm í tilfelli sambúðar. Fjölmargir Íslendingar eru í þeirri stöðu að vilja búa hér á landi með er- lendum maka sínum eða vilja búa er- lendis en njóta þess réttar að geta með auðveldu móti komið heim með maka sinn. Margir rekast á veggi í viðleitni sinni og segja farir sínar ekki sléttar. Blaðamaður átti samtal við nokkra þeirra. Vegabréfsáritun í hvert sinn Einar Már Jóhannesson hefur búið í Katar síðastliðin fjögur ár þar sem hann rekur fyrirtæki sem sérhæfir sig í eldvörnum og öryggismálum. Hann hefur verið giftur palestínskri konu í tvö ár og á tvö börn á Íslandi úr fyrra sambandi. Hann leggur mik- ið upp úr því að heimsækja Ísland til að rækta og efla tengsl milli konu sinnar og barna. Einar lýsir því hversu flókið og erfitt það geti reynst að fá vegabréfsáritun fyrir konu sína fyrir hverja ferð til Íslands. Sækja þurfi um Schengen-áritun í franska sendiráðinu í Katar, sem sé bæði flókið og kostnaðarsamt. Ekki bæti úr skák að hún sé frá Palestínu og því ekki með eiginlegt vegabréf. Í eitt skipti hafi henni verið neitað um árit- un án sýnilegra ástæðna og hafi hann þurft að byrsta sig verulega fyrir hennar hönd. Einar segir að þessi þrautaganga dragi mjög úr þeim máttinn við að koma heim til Íslands og óttast að tengslin rofni með tím- anum. Niðurlægjandi ferli Birta Árdal Nóra Bergsteinsdóttir hefur verið gift marokkóskum manni í tæp sex ár og á með honum fjórar stúlkur: tvenna tvíbura. Hann hafi í upphafi þeirra sambands verið með dvalarleyfi hér á landi og saman ráku þau verslun með vörur frá Marokkó. Hún segir að starfsins vegna og tengsla við bæði lönd hafi þau flakkað talsvert á milli, en svo fór að hann missti dvalarleyfið eftir of langa dvöl ytra, þrátt fyrir að hann hafi verið þátttakandi í íslensku samfélagi og greitt skyldur og skatta árum saman. Hann sótti um íslenskan ríkisborg- ararétt en var synjað nú í vor. Birta segir að það hafi verið mikil vonbrigði og að óformleg svör væru að „hann þyrfti þess ekki, heldur gæti notað dvalarleyfi“. Hann er því aftur á byrjunarreit í því að sækja um dval- arleyfi með tilheyrandi kostnaði og snúningum. Meðal annars þarf hann að skila blóð- og saursýnum, sem hún lýsir sem niðurlægjandi ferli fyrir mann sem talar góða íslensku og vill eingöngu fá að búa með fjölskyldu sinni. Birta segir að þau vilji vera hluti af íslensku samfélagi en á sama tíma njóta ferðafrelsis. Kröfur um landvistarleyfi geri þeim það ókleift og þau séu þannig tilneydd til að velja á milli Íslands og Marokkós. Óttast um afdrif barna sinna Höfðaborg í Suður-Afríku hefur verið heimili Lilju Marteinsdóttur síðastliðin átta ár. Hún býr þar með heimamanni og saman eiga þau tvö börn sem bæði eru íslenskir ríkis- borgarar. Hún segir að í kjölfar kór- ónuveirufaraldursins hafi þau í fyrsta sinn látið á það reyna að koma til Ís- lands saman en hann hafi ekki fengið vegabréfsáritun. Þau hafa ekki sóst eftir því að flytja til Íslands, en hún hafi kannað málið og komist að raun um að það væri ekki gerlegt nema flytja alfarið til margra ára. Hún seg- ir það auðveldara fyrir þau að stofna heimili í Svíþjóð en hér á landi. Áhyggjur Lilju snúast fyrst og fremst um börn þeirra. Veikist hún eða falli frá hafi faðir þeirra lítil sem engin úrræði til að viðhalda tengingu þeirra við Ísland og að rof gæti mynd- ast. Fékk ríkisborgararétt Fyrir fjórum árum starfaði Vera Knútsdóttir í Líbanon og kynntist þar manni sínum, sem er íraskur Kúrdi. Þau unnu bæði fyrir alþjóðleg samtök þegar þau felldu hugi saman og hafa eignast tvö börn. Þau hófu búsetu hér á landi, en vegna sérhæfðrar mennt- unar sinnar og reynslu bauðst honum starf hjá Sameinuðu þjóðunum, með starfsstöð í Sómalíu. Með öllum ferðalögum sem því tengdust reynd- ist honum erfitt að viðhalda dval- arleyfi á Íslandi, sem hann að lokum missti. Hann var því háður vega- bréfaáritun til að komast til síns heima og lýsir Vera þeim flækjum sem fylgja því að vera með íraskt vegabréf og öllu því „veseni og stressi“ sem því fylgir. Auk þess tak- markaði það dvöl hans við þrjá mán- uði í senn. Hún segir að þau hafi dott- ið í lukkupottinn þegar hann fékk íslenskan ríkisborgararétt nú í vor sem gjörbreyti þeirra stöðu. Án þess segir hún að þau hafi verið tilneydd til að taka sig upp og flytja utan til þess að geta haldið sameiginlegt heimili með börnum sínum. Sveigjanleiki en ekki sérþarfir Allir viðmælendur leggja áherslu á að ekki sé farið fram á sérþarfir og skilningur ríkir á því að utan um jafn flókin mál þurfi að vera þéttur rammi. Rauði þráðurinn er sá að of mikið er horft til búsetu í stað raunverulegrar stöðu á sambandi fólks eða fjöl- skylduaðstæðna. Það eitt að búa hér og starfa krefjist dvalarleyfis, en í því felist veruleg skerðing á ferðafrelsi, sem geri mörgum ómögulegt að lifa og starfa á alþjóðavettvangi, hvort sem er vegna vinnu eða til þess eins að rækta samband sitt við heimaland og fjölskyldu sína ytra. Á svipaðan hátt eru erlendir makar Íslendinga, sem búa erlendis, háðir skilyrðum til að ferðast hingað og eru líklegri til að hörfa undan þeim flækj- um sem því fylgja. Ákallið er að fólki, þar sem ekki er tjaldað til einnar nætur og börn hafa orðið að lími fjölskyldunnar, verði gert kleift að búa saman, hvort sem er hérlendis eða ytra. Hættan er sú að þegar regluveggirnir þrengja að neyðist fólk í þessari aðstöðu sjálf- krafa til þess að velja á milli landa. Slíkt geti kallað fram rof milli heima- lands og fjölskyldna sem erfitt geti reynst að brúa. Flækjustig alþjóðlegrar ástar  Íslendingar giftir erlendum ríkisborgurum rekast víða á veggi  Óttast að þurfa að velja á milli heimalands og sambands við maka  Flækjur og hindranir torvelda heimkomu í mörgum tilvikum Ljósmynd/Birta Árdal Fjölskylda Birta Árdal og eiginmaður hennar ásamt tvennum tvíburadætrum sínum. Ljósmynd/Birta Árdal Heimili Othman og börn halda upp á afmæli á heimili sínu. Ljósmynd/Vera Knútsdóttir Kósí Hjónin í þægilegum stellingum með börnum sínum. Ljósmynd/Vera Knútsdóttir Hjón Vera Knútsdóttir og Seerwan á brúðkaupsdegi sínum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.