Morgunblaðið - 08.08.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.08.2020, Blaðsíða 18
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þegar klukkan sló níu kvöld eitt í lið- inni viku, og veiði dagsins í Haffjarð- ará var þar með lokið, stóð breskur veiðimaður orðlaus en skælbrosandi efst við Sauðhyl. Hann hristi höfuðið, eins og hann tryði ekki því sem hann hafði lent í, fékk svo málið og fullyrti að hann hefði í níutíu mínútur á und- an lent í veiðiævintýri lífs síns. Á þessum níutíu mínútum glímdi hann við og landaði átta löxum, og setti í þrjá til sem hann missti. Og allan tím- ann veiddi hann bara efst í strengn- um og veiddi sig ekkert niður eftir löngum hylnum sem vægast sagt kraumaði af laxi - oft voru nokkrir á lofti samtímis. Blaðamaður, sem var svo lánsamur að vera vitni að þessari góðu veiði kunningja síns, háfaði lax- ana og mældi áður en þeim var sleppt aftur, flestir nýgengnir og allir vel haldnir. Tveir fallegir tveggja ára fiskar þar á meðal. Morgunvaktin við sama hyl gaf tveimur veiðimönnum 13 laxa; 21 kom því úr honum þennan dag. Sem er lýsandi fyrir gæðin sem felast í veiðinni í þeirri perlu sem Haffjarðará á Snæfellsnesi er. Þar er veitt á sex stangir og meðalveiði á stöng síðustu vikur hefur verið þrír til þrír og hálfur lax á stöng á dag, sem er vitaskuld afar gott. Fjöldi að sýna sig „Áin er í toppformi,“ segir Óttar Yngvason eigandi Haffjarðarár þeg- ar rætt er um veiðina í sumar. „Ég er búinn að vera viðloðandi þarna í meira en fjörutíu ár og held ég hafi aldrei séð jafn mikið af fiski að sýna sig í henni, nema mögulega metárið okkar 2013.“ Hann bætir við að veiði- tölurnar séu ekki þær sömu nú og þá en veiðin samt mjög góð. „Mér sýnist að við náum um meðalfjölda fiska, svona þúsund til ellefu hundruð löx- um, ef ekkert kemur upp á. Auðvitað sveiflast veiðin eftir nátt- úrunni,“ bætir Óttar við. Hann segir, að að minnsta kosti síðustu hálfu öld- ina, og í raun síðan Thor Jensen keypti jarðirnar við ána og friðaði hana fyrir veiði í tíu ár, milli 1910 og 20, hafi verið passað afar vel upp á það að veiða hana alltaf hóflega. Hins vegar hafi allir veiddir fiskar verið drepnir fram yfir 1990 en eftir 1996 hafi verið farið að sleppa veiddum laxi í stórum stíl og það hafi haft mikil og góð áhrif. „Það er ljóst að veiðin tók eftir það alltaf sveiflu upp á við á fimm ára fresti - en það er einmitt ein kynslóð laxins. Gegnum áratugina fram að því var meðalveiði í ánni ekki nema 5-600 fiskar, þótt hún hafi verið hóflega veidd,“ segir Óttar, en frá 2003 hefur veiðin í Haffjarðará aðeins einu sinni farið undir 1.000 laxa. Þorra laxa sleppt Óttar segir 75 til 80 prósentum laxa sem veiðast vera sleppt. Í mörg ár var hluti veiddra laxa, sem var sleppt, merktur og veiddust um 20 prósent þeirra aftur. „Þetta góða ástand í ánni er ekki vegna neirra nýrra ráðstafana, held- ur byggist á margra áratuga nátt- úruvernd, miklum sleppingum og hóflegri veiðisókn – og enn þá óspilltum náttúrulegum laxastofni af völdum hins framandi norska eldis- lax, sem stjórnmálamenn dagsins í dag telja að geti bjargað atvinnu – og kannski atkvæðum – í strjálum byggðum landsins eins og mink- urinn átti að gera forðum. Þar gleymast hagsmunir þeirra þúsunda sem vinna við veiðar náttúrulegra laxastofna,“ segir Óttar. Hörkugangur í Hofsá Þegar rýnt er í veiðitölurnar í aflahæstu ám landsins, teiknast upp sú mynd að vel veiðist í hafbeitar- ánum á Suður- og Austurlandi, sér- staklega þó Eystri-Rangá og Affall- inu. Þær öflugu smálaxagöngur sem fiskifræðingar höfðu spáð að myndu mæta í ár á Vesturlandi hafa ekki reynst svo liðmargar, en eftir hörmungarveiðina í fyrrasum- ar virðast þær þó vera með ágæta meðalveiði. Það er rólegt yfir hún- vetnsku ánum; Blanda og Laxá á Ásum skríða inn á listann yfir 15 gjöfulustu. Aðstæður eru vissulega breyttar í Blöndu, þar sem í fyrsta sinn er aðeins veitt á flugu, en á Ás- unum er meðalveiði á stöng í síð- ustu viku um 1,7 laxar á dag, sem telst ekkert sérstakt þar. Víðidalsá er síðan í 18. sæti listans, með 292 laxa veidda og 0,75 laxa á stöng á dag. Vatnsdalsá er enn neðar á list- anum, númer 26, með 200 laxa í bók og sömu meðalveiði á stöng í síð- ustu viku. Fínasta veiði er í Vopna- fjarðaránum og vekur sérstaka at- hygli að Hofsá virðist búin að jafna sig eftir lægð síðustu ára; þar er meðalveiði á stöng síðustu tvær vik- ur yfir þrír laxar á dag, sem er afar gott. Haffjarðará „er í toppformi“ Morgunblaðið/Einar Falur Ævintýri Breskur veiðimaður þreytir sprækan lax efst í Sauðhyl Haffjarðarár. Bretinn landaði átta þar á níutíu mínútum, og missti fleiri. Afl ahæstu árnar Heimild: www.angling.is 0 1.000 2.000 3.000 4.000 Staðan 5. ágúst 2020 Veiðistaður Stanga- fjöldi Veiði 7. ágúst 2019 8. ágúst 2018 Eystri-Rangá 18 3.981 1.823 2.002 Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 1.385 707 1.892 Miðfjarðará 10 920 767 1.682 Urriðafoss í Þjórsá 4 874 705 1.095 Norðurá 15 705 241 1.408 Affal í Landeyjum 4 679 116 233 Haffjarðará 6 669 348 1.204 Selá í Vopnafi rði 6 620 794 863 Þverá og Kjarrá 14 617 470 2.111 Hofsá og Sunnudalsá 6 546 392 444 Langá 12 494 235 1.090 Jökla (Jökulsá á Dal) 8 458 320 352 Laxá í Kjós 8 431 103 713 Blanda 14 410 541 832 Laxá á Ásum 4 363 358 467  Gott ástand í Haffjarðará byggist á „margra áratuga náttúruvernd, miklum sleppingum og hóf- legri veiðisókn“  Mikið af laxi í ánni og veiðimenn í ævintýrum  Góð meðalveiði á stöng í Hofsá 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.