Morgunblaðið - 08.08.2020, Qupperneq 18
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þegar klukkan sló níu kvöld eitt í lið-
inni viku, og veiði dagsins í Haffjarð-
ará var þar með lokið, stóð breskur
veiðimaður orðlaus en skælbrosandi
efst við Sauðhyl. Hann hristi höfuðið,
eins og hann tryði ekki því sem hann
hafði lent í, fékk svo málið og fullyrti
að hann hefði í níutíu mínútur á und-
an lent í veiðiævintýri lífs síns. Á
þessum níutíu mínútum glímdi hann
við og landaði átta löxum, og setti í
þrjá til sem hann missti. Og allan tím-
ann veiddi hann bara efst í strengn-
um og veiddi sig ekkert niður eftir
löngum hylnum sem vægast sagt
kraumaði af laxi - oft voru nokkrir á
lofti samtímis. Blaðamaður, sem var
svo lánsamur að vera vitni að þessari
góðu veiði kunningja síns, háfaði lax-
ana og mældi áður en þeim var sleppt
aftur, flestir nýgengnir og allir vel
haldnir. Tveir fallegir tveggja ára
fiskar þar á meðal. Morgunvaktin við
sama hyl gaf tveimur veiðimönnum
13 laxa; 21 kom því úr honum þennan
dag. Sem er lýsandi fyrir gæðin sem
felast í veiðinni í þeirri perlu sem
Haffjarðará á Snæfellsnesi er. Þar er
veitt á sex stangir og meðalveiði á
stöng síðustu vikur hefur verið þrír
til þrír og hálfur lax á stöng á dag,
sem er vitaskuld afar gott.
Fjöldi að sýna sig
„Áin er í toppformi,“ segir Óttar
Yngvason eigandi Haffjarðarár þeg-
ar rætt er um veiðina í sumar. „Ég er
búinn að vera viðloðandi þarna í
meira en fjörutíu ár og held ég hafi
aldrei séð jafn mikið af fiski að sýna
sig í henni, nema mögulega metárið
okkar 2013.“ Hann bætir við að veiði-
tölurnar séu ekki þær sömu nú og þá
en veiðin samt mjög góð. „Mér sýnist
að við náum um meðalfjölda fiska,
svona þúsund til ellefu hundruð löx-
um, ef ekkert kemur upp á.
Auðvitað sveiflast veiðin eftir nátt-
úrunni,“ bætir Óttar við. Hann segir,
að að minnsta kosti síðustu hálfu öld-
ina, og í raun síðan Thor Jensen
keypti jarðirnar við ána og friðaði
hana fyrir veiði í tíu ár, milli 1910 og
20, hafi verið passað afar vel upp á
það að veiða hana alltaf hóflega. Hins
vegar hafi allir veiddir fiskar verið
drepnir fram yfir 1990 en eftir 1996
hafi verið farið að sleppa veiddum
laxi í stórum stíl og það hafi haft mikil
og góð áhrif.
„Það er ljóst að veiðin tók eftir það
alltaf sveiflu upp á við á fimm ára
fresti - en það er einmitt ein kynslóð
laxins. Gegnum áratugina fram að því
var meðalveiði í ánni ekki nema 5-600
fiskar, þótt hún hafi verið hóflega
veidd,“ segir Óttar, en frá 2003 hefur
veiðin í Haffjarðará aðeins einu sinni
farið undir 1.000 laxa.
Þorra laxa sleppt
Óttar segir 75 til 80 prósentum
laxa sem veiðast vera sleppt. Í mörg
ár var hluti veiddra laxa, sem var
sleppt, merktur og veiddust um 20
prósent þeirra aftur.
„Þetta góða ástand í ánni er ekki
vegna neirra nýrra ráðstafana, held-
ur byggist á margra áratuga nátt-
úruvernd, miklum sleppingum og
hóflegri veiðisókn – og enn þá
óspilltum náttúrulegum laxastofni af
völdum hins framandi norska eldis-
lax, sem stjórnmálamenn dagsins í
dag telja að geti bjargað atvinnu –
og kannski atkvæðum – í strjálum
byggðum landsins eins og mink-
urinn átti að gera forðum. Þar
gleymast hagsmunir þeirra þúsunda
sem vinna við veiðar náttúrulegra
laxastofna,“ segir Óttar.
Hörkugangur í Hofsá
Þegar rýnt er í veiðitölurnar í
aflahæstu ám landsins, teiknast upp
sú mynd að vel veiðist í hafbeitar-
ánum á Suður- og Austurlandi, sér-
staklega þó Eystri-Rangá og Affall-
inu. Þær öflugu smálaxagöngur
sem fiskifræðingar höfðu spáð að
myndu mæta í ár á Vesturlandi
hafa ekki reynst svo liðmargar, en
eftir hörmungarveiðina í fyrrasum-
ar virðast þær þó vera með ágæta
meðalveiði. Það er rólegt yfir hún-
vetnsku ánum; Blanda og Laxá á
Ásum skríða inn á listann yfir 15
gjöfulustu. Aðstæður eru vissulega
breyttar í Blöndu, þar sem í fyrsta
sinn er aðeins veitt á flugu, en á Ás-
unum er meðalveiði á stöng í síð-
ustu viku um 1,7 laxar á dag, sem
telst ekkert sérstakt þar. Víðidalsá
er síðan í 18. sæti listans, með 292
laxa veidda og 0,75 laxa á stöng á
dag. Vatnsdalsá er enn neðar á list-
anum, númer 26, með 200 laxa í bók
og sömu meðalveiði á stöng í síð-
ustu viku. Fínasta veiði er í Vopna-
fjarðaránum og vekur sérstaka at-
hygli að Hofsá virðist búin að jafna
sig eftir lægð síðustu ára; þar er
meðalveiði á stöng síðustu tvær vik-
ur yfir þrír laxar á dag, sem er afar
gott.
Haffjarðará „er í toppformi“
Morgunblaðið/Einar Falur
Ævintýri Breskur veiðimaður þreytir sprækan lax efst í Sauðhyl Haffjarðarár. Bretinn landaði átta þar á níutíu mínútum, og missti fleiri.
Afl ahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
0 1.000 2.000 3.000 4.000
Staðan 5. ágúst 2020
Veiðistaður
Stanga-
fjöldi Veiði
7. ágúst
2019
8. ágúst
2018
Eystri-Rangá 18 3.981 1.823 2.002
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 1.385 707 1.892
Miðfjarðará 10 920 767 1.682
Urriðafoss í Þjórsá 4 874 705 1.095
Norðurá 15 705 241 1.408
Affal í Landeyjum 4 679 116 233
Haffjarðará 6 669 348 1.204
Selá í Vopnafi rði 6 620 794 863
Þverá og Kjarrá 14 617 470 2.111
Hofsá og Sunnudalsá 6 546 392 444
Langá 12 494 235 1.090
Jökla (Jökulsá á Dal) 8 458 320 352
Laxá í Kjós 8 431 103 713
Blanda 14 410 541 832
Laxá á Ásum 4 363 358 467
Gott ástand í Haffjarðará byggist á „margra áratuga náttúruvernd, miklum sleppingum og hóf-
legri veiðisókn“ Mikið af laxi í ánni og veiðimenn í ævintýrum Góð meðalveiði á stöng í Hofsá
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020