Morgunblaðið - 08.08.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 08.08.2020, Síða 20
Morgunblaðið/Golli Svarthöfði á ferð Sögupersónunni bregður oft fyrir í höfuðborginni, ekki síst þegar nýjar stjörnustríðsmyndir eru frumsýndar. Það vakti mikla athygli þegar Svarthöfði laumaði sér í röðina þegar gengið var til prestastefnu 2008. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Reykjavíkurborg mun á næstunni ráðast í stígagerð til að bæta göngu- tengingu milli Höfðahverfis og Bryggjuhverfis. Sótt hefur verið um framkvæmdaleyfi og nýlega voru opnuð tilboð í verkið. Framkvæmdin felst í að útbúa göngustíg meðfram Sævarhöfða við Bryggjuhverfi og að Svarthöfða. Einnig tröppustíg á milli stígshluta, gönguþverun yfir frárein við Gullin- brú til móts við Naustabryggju, stígs- lýsingu og fullnaðarfrágang á lagna- stæði yfir háspennulögn. Í umsögn skipulagsfulltrúa Reykjavíkur kemur fram að fram- kvæmdina sé í meðallagi umfangs- mikil en bæti til muna aðgengi þeirra sem sækja vinnu í Höfðahverfið og að almenningssamgöngum og þar með öryggi gangandi vegfarenda frá nú- verandi horfi sem hafa fetað „óska- stíg“ eftir bakkanum, eins og það er orðað. Skipulagsfulltrúi bendir jafn- framt á að gæta skuli varúðar á fram- kvæmdatíma, þannig að hún valdi sem minnstu raski og að gengið verði snyrtilega frá svæðinu að fram- kvæmdum loknum. Verklok eru áætl- uð í haust. Fimm tilboð bárust í verkið Alls bárust fimm tilboð í verkið. Lægst bauð Stálborg ehf./Ljósþing ehf. eða krónur 37.366.000. Er það 92% af kostnaðaáætlun sem var 40,6 milljónir. Verið er að yfirfara tilboðin hjá borginni. Ekki eru nema rétt fimm ár síðan gatan Svarthöfði fékk þetta nafn. Gatan, sem liggur milli Stórhöfða og Sævarhöfða, hét áður Bratthöfði. Til- laga um nefna götu í höfuðið á per- sónu úr Stjörnustríðsmyndunum barst á hugmynda- og lýðræðisvefinn Betri Reykjavík og var send um- hverfis- og skipulagsráði til með- höndlunar. Ráðið samþykkti breyt- inguna í ágúst 2015. Tillaga byggingarfulltrúans í Reykjavík var svohljóðandi: „Lagt er til að samþykkt verði að breyta heiti Bratthöfða, sem liggur milli Sævarhöfða og Stórhöfða, í Svarthöfða. Engin fasteign er skráð við Bratthöfða en skoða mætti hvort festa megi næstu hús, sem teljast nú til Stórhöfða, til heimilis við hina ný- nefndu götu.“ Með tillögu byggingarfulltrúa fylgdi eftirfarandi umsögn: „Það get- ur verið við hæfi að nefna hluti í um- hverfinu eftir nafntoguðum fyr- irbærum hvers tímabils í sögu mannkyns, hvort sem er uppdikt- uðum eða raunverulegum. Mörg dæmi eru um það í nafngiftum gatna í Reykjavík að þær séu nefndar eftir skáldsagnapersónum og er því ekki úr vegi að nefna götu í Höfðahverfinu Svarthöfða. Það er þó ekki mælt með því að nafni Bíldshöfða verði breytt með þessum hætti þar sem mikil starfsemi fer fram við götuna og kost- aði því mikla og langdregna vinnu að koma nýju nafni til skila.“ Fyrstu húsin í Bryggjuhverfinu risu árið 1998 og síðan byggðist hverfið upp hægt og rólega. Nú telst Bryggjuhverfi austur fullbyggt, en þar eru um 600 íbúðir. Mikil uppbygging stendur fyrir dyrum í Bryggjuhverfi vestur. Þar er gert ráð fyrir allt að 850 íbúðum á fyrrum athafnasvæði Björgunar ehf. og að hluta til á landfyllingum. Göngustígur að Svarthöfða  Ráðist verður í stígagerðina til að bæta göngutengingar milli Höfðahverfis og Bryggjuhverfis  Er ætlað að auka öryggi vegfarenda  Nafni Bratthöfða var breytt í Svarthöfða fyrir fimm árum Morgunblaðið/sisi Sævarhöfði Hér má sjá hlíðina þar sem stígurinn mun liggja upp að Svart- höfða. Hæðarmunur er nokkur. Stígurinn verður samgöngubót á svæðinu. illi Sævarhöfða og Svarthöfða Höfða- og Bryggjuhverfi s í Reykjavík Kortagrunnur: OpenStreetMap Heimild: Reykjavíkurborg Grafar- vogur Elliðaár- vogur BRYGGJUHVERFI H Ö F Ð A R FOLDIR HAMRAR Stækkað svæði Stígur m Tenging milli SævarhöfðiSvarthöfði Göngu- og hjólastígur Tröppustígur 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu „Við erum talsvert betur undirbúin núna en við vorum í mars,“ segir Kristófer Júlíus Leifsson, fram- kvæmdastjóri Eldum rétt. Fyrir- tækið býður upp á matarpakka sem innihalda hráefni og uppskriftir að ákveðnum réttum. Þegar heimsfaraldur kórónuveiru stóð sem hæst fyrr á þessu ári seld- ust umræddir matarpakkar upp hjá Eldum rétt. Að sögn Kristófers er ólíklegt að svo verði nú raungerist önnur bylgja kórónuveirusmits hér á landi. „Allir verkferlar eru fyrir hendi en auk þess erum við enn að styðjast við grunninn í því kerfi sem sett var af stað í faraldrinum. Við er- um því í talsvert betri stöðu núna,“ segir Kristófer. Aðspurður segir hann að pöntun- um hafi fjölgað svo um munar síð- ustu vikur. Ekki sé þó hægt að stað- festa hvort það sé sökum nýrra smita eða af hefðbundnum ástæðum. „Þetta er svipað mynstur og verið hefur síðustu ár. Í ár héldum við reyndar dampi aðeins lengur inn í sumarið en svo dettur salan niður þegar fólk fer í frí eins og eðlilegt er. Nú er hins vegar umferðin að aukast mjög mikið.“ aronthordur@mbl.is Morgunblaðið/Hari Eldum rétt Fyrirtækið er vel undirbúið raungerist önnur bylgja kór- ónuveirusmits. Viðskiptavinum hefur fjölgað undanfarnar vikur. Vel undirbúin fyrir aðra bylgju smits  Verkferlar fyrir hendi hjá Eldum rétt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.