Morgunblaðið - 08.08.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.08.2020, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 Hvaða litur er þinn draumalitur? www.flugger.is 8. ágúst 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 135.21 Sterlingspund 178.24 Kanadadalur 101.75 Dönsk króna 21.504 Norsk króna 15.052 Sænsk króna 15.533 Svissn. franki 148.88 Japanskt jen 1.2812 SDR 191.08 Evra 160.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 189.0384 Hrávöruverð Gull 2049.15 ($/únsa) Ál 1739.0 ($/tonn) LME Hráolía 45.32 ($/fatið) Brent ● Gullforði Seðlabanka Ís- lands hefur aldrei verið verðmætari en í lok júlí- mánaðar. Var hann þá metinn á tæpa 17 millj- arða króna og hafði verðmæti hans aukist um ríflega 1,3 millj- arða frá fyrri mánuði. Frá ára- mótum hefur forðinn hækkað um ríflega 5,2 millj- arða króna. Skýringanna á hinu aukna verðmæti gullforðans má rekja til verðhækkana á gullverði á heimsmark- aði. Samfara aukinni óvissu á fjár- málamörkuðum vegna kórónuveir- unnar hafa sífellt fleiri fjárfestar leitað í skjól með eignir sínar og er gull ein þekktasta leiðin til þess. Frá áramótum hefur heimsmark- aðsverð málmsins hækkað um 27% og rauf únsan í fyrsta sinn 2.000 dollara múrinn fyrr í þessari viku.Stærsti eig- andi gulls í heiminum er Seðlabanki Bandaríkjanna og er forði hans í málminum yfir 8.000 tonn. Næst- stærsti eigandinn, sem er ekki hálf- drættingur, er Seðlabanki Þýskalands. Gullforði Seðlabankans aldrei verðmætari en nú Stöng Eitt kíló af gulli kostar nú um 8,9 milljónir króna. STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Talsverður gangur hefur verið í sölu notaðra bíla það sem af er sumri. Þetta staðfesta bæði tölur sem Bílgreinasambandið tekur sam- an og samtöl Morgunblaðsins við bílasala sem þekkja markaðinn vel. Í tölum Bílgreinasambandsins (BGS), sem unnar eru upp úr gögn- um frá Samgöngustofu, kemur fram að skráð eigenda- og umráðaskipti á fólksbílum hafi verið 14.618 í júlí síðastliðnum samanborið við 12.064 skipti í sama mánuði í fyrra. Þá hafi 15.131 tilvik verið skráð í júnímán- uði, samanborið við 11.795 í sama mánuði síðasta árs. Óðinn Valdimarsson, verkefna- stjóri hjá BGS, segir í samtali við Morgunblaðið að taka verði tillit til þess við mat á fyrrnefndum tölum að þær hafa einnig að geyma uppí- tökur og tilfærslu bíla til og frá fjár- mögnunarfyrirtækjum, t.d. þegar umráð færast frá fyrirtækjunum til viðskiptavina og annars slíks. „Þetta hefur áhrif á þessar tölur en gera má ráð fyrir að áhrifin séu sambærileg milli mánaða og því gefa tölurnar ákveðna mynd af þeirri þróun sem á sér stað,“ segir Óðinn. Hin mikla aukning sem varð á sölu notaðra bíla í júní og júlí felur í sér talsverð umskipti frá þróuninni á fyrri hluta ársins. Kemur það ekki síst fram þegar litið er til heildar- fjölda eigenda- og umráðaskipta á fyrstu sjö mánuðum ársins. Þau voru 78.889 á yfirstandandi ári en 78.166 á árinu 2019. Hafði mark- aðurinn þá þegar gefið nokkuð eftir frá árinu 2018 þegar eigenda- og umráðaskipti voru 89.156 talsins á fyrstu sjö mánuðum ársins. Sú mikla aukning sem varð í júní og júlí vó því í raun upp fremur slapp- ar sölutölur mánuðina á undan. Sigurður Ófeigsson er fram- kvæmdastjóri Bílalands, sem held- ur utan um sölu notaðra bíla hjá BL. Hann segir að mjög hafi lifnað yfir markaðnum í vor. „Þetta tók kipp strax upp úr páskum eftir mjög lítinn gang í vet- ur. Það voru auðvitað mjög nei- kvæðar fréttir í mars og apríl en svo virðist fólk hafa tekið ákvörðun um að ferðast innanlands, enda lítið um tækifæri til þess að fara út.“ Hann segir að söluaukningin hafi komið fram í ferðabílum ýmiss konar. Þannig hafi margir skipt úr minni jeppling- um í stærri jepp- linga og úr hefð- bundnum jeppum í stærri jeppa. „Salan varð svo mikil að á tímabili áttum við hreinilega ekki bíla af þessu tagi á söluskrá og ég hef aldr- ei lent í þessu áður á löngum ferli.“ Í sama streng tekur Haraldur Þ. Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota Kauptúni. „Salan hjá okkur í notuðum bílum frá því í apríl og út júlí hefur verið um það bil tvöföld miðað við sama tíma í fyrra. „Þetta byrjaði í jeppunum og gerðist á sama tíma og fréttist af því að allt ferðatengt, ferðavagnar og slíkt, væri að seljast mjög vel. Raun- ar má segja að allt með dráttarkrók hafi selst vel. Fyrst voru það jeppar á borð við Land Cruiser en þessi mikli áhugi hefur svo smitast niður í minni bíla, Rav4, CH-R og slíkt.“ Segir hann að staðan hafi verið með svipuðu móti og Sigurður lýsir, framboðið hafi verið með minna móti sem sé óvanalegt hjá jafn stóru umboði og Toyota er. Blönduð fjármögnun Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að mikill vöxtur væri í bíla- fjármögnun hjá Arion banka. Spurð- ur út í hvernig kaupendur eru að fjármagna kaup á notuðum bílum segir Sigurður erfitt að átta sig fylli- lega á því. „Ætli þetta sé ekki um helmingur sem tekur lán fyrir kaupunum og hinn helmingurinn staðgreiðir. Hins vegar vitum við auðvitað ekki hvern- ig henni er háttað. Í einhverjum til- vikum getur fólk verið að nýta end- urfjármögnun á húsnæðislánum til þess að endurnýja bílinn en það er ekkert sem við höfum yfirsýn yfir.“ Þróttmikil sala í notuðum bílum á miklu ferðasumri Fjöldi eigendaskipta á fólksbílum Þriggja mánaða hlaupandi meðaltal frá mars 2018 til júlí 2020 16.000 14.000 12.000 8.000 6.000 2018 2019 2020* * Bráðabirgðatölur fyrir júlí 2020 Heimild: Bílgreinasambandið og Samgöngustofa jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Lítið framboð » Á heimasíðu Bílalands BL er aðeins að finna tvo Landrover Discovery-jeppa. » Á heimasíðu notaðra bíla hjá Toyota eru aðeins 23 Land- Cruiser-jeppar á skrá. » Á söluskrá Heklu var engan notaðan Mitsubishi Pajero að finna og aðeins fimm Out- lander. » Hjá Brimborg eru aðeins þrír Volvo XC90-jeppar á söluskrá.  Stórar bílasölur hafa orðið nær uppiskroppa með jeppa og aðra ferðabíla Óðinn Valdimarsson Haraldur Þ. Stefánsson Sigurður Ófeigsson Ný útlán lífeyrissjóðanna til sjóð- félaga drógust saman um 333 millj- ónir króna í nýliðnum júnímánuði. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Seðlabankans. Þær ná allt aftur til ársins 2009 og aldrei fyrr hafa útlán sjóðanna dregist saman milli mánaða. Séu tölur júnímánaðar bornar sam- an við sama tíma fyrir ári sést mikill viðsnúningur því þá námu ný útlán sjóðanna að frádregnum upp- og um- framgreiðslum 7,7 milljörðum króna. Síðustu mánuði hefur orðið vart minni spurnar eftir lánum hjá sjóð- unum og er það m.a. tengt því að við- skiptabankarnir hafa lækkað útlána- vexti sína talsvert meira en sjóðirnir samhliða miklum stýrivaxtalækkun- um Seðlabankans. Með því hefur snú- ist við þróun sem mjög tók að bera á um mitt ár 2016 þegar sífellt fleiri sáu kost í því að taka húsnæðislán hjá líf- eyrissjóðunum. Frá marsmánuði 2016 til loka marsmánaðar 2020 fóru ný útlán sjóð- anna aldrei undir 4 milljarða króna í hverjum mánuði og hæst fóru þau í tæpa 14 milljarða í október síðastliðn- um. Á fyrrgreindu tímabili námu ný útlán sjóðanna 386 milljörðum króna eða 7,9 milljörðum að meðaltali í mán- uði. Þrátt fyrir að sjóðirnir hafi gefið mjög eftir á lánamarkaðnum frá því í mars er enn nokkur sókn eftir óverð- tryggðum lánum hjá sjóðunum. Þannig námu ný útlán í þeim flokki, að teknu tilliti til upp- og umfram- greiðslna 563 milljónum í júní. það voru hins vegar mjög umfangsmiklar uppgreiðslur á verðtryggðum lánum sem trompuðu óverðtryggðu lánin og vel það. Upp- og umframgreiðslur verðtryggðra lána námu 896 milljón- um umfram ný útlán. ses@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Umpólun Af er sem áður var þegar lífeyrissjóðirnir réðu lögum og lof- um á húsnæðislánamarkaðinum. Útlánasafn sjóð- anna minnkar  Miklar upp- greiðslur hjá líf- eyrissjóðum í júní

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.