Morgunblaðið - 08.08.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 08.08.2020, Qupperneq 24
SVIÐSLJÓS Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Von er á að neyslurými írekstri sveitarfélagannalíti dagsins ljós á allranæstu mánuðum sam- kvæmt áætlun heilbrigðisráðherra en allar umsagnir hafa borist vegna reglugerðardraga sem nú liggja í samráðsgátt. Markmið þeirra er að setja ramma um rekstur og starf- semi neyslurýma, sem skuli rekin með skaðaminnkun að leiðarljósi. Embætti landlæknis og Sam- band íslenskra sveitarfélaga voru á meðal þeirra sem gagnrýndu reglu- gerðardrögin, sem heimila rekstur rýmanna og kveða á um skyldur og takmörk sveitarfélaga í þeim efn- um. „Það væri mjög bagalegt ef þetta mál festist í því að vera á gráu svæði milli ríkis og sveitar- félaga vegna þess að hlutverk sveit- arfélaganna er ekki nógu skýrt,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, formað- ur Sambands íslenskra sveitar- félaga. Í umsögn sinni varpar Sam- bandið þeirri spurningu fram hvort nýtt grátt svæði sé í uppsiglingu, þar sem heilbrigðisþjónusta eigi að vera á hendi ríkisins samkvæmt lögum. Gagnrýna að neyslurýmin einskorðist við sprautunotkun Þá er fjármögnun rýmanna gagnrýnd í umsögn Sambandsins, þar sem 50 milljónir verða tryggðar til verkefnisins en annars verði gerðir samningar milli sveitar- félaga og ráðuneytisins um kostn- aðarskiptingu vegna úrræðisins. „Þá skal ennfremur minnt á að sveitarfélögin hafa ekki góða reynslu af því að verkefni með fremur óskýrri sameiginlegri ábyrgð séu fjármögnuð með „skúffupeningum“ eða í gegnum tímabundin tilraunaverkefni,“ segir í niðurlagi umsagnarinnar. „Við óttumst að kröfur [um neyslurými] í öðrum sveitarfélögum komi fram, þar sem við sjáum fram á að það séu ekki fjármunir frá rík- inu til reksturs neyslurýma sem þar eru þá staðsett. Við óttumst þetta þrátt fyrir að 50 milljónir hafi verið lagðar til, sem virðast reynd- ar vera eyrnamerktar verkefninu í Reykjavík,“ segir Aldís. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulagsráðs Reykja- víkurborgar, segir borgaryfirvöld hafa kallað eftir heimild til að reisa neyslurými. „Við höfum verið að þrýsta á þetta. Þetta er mikilvægt lýðheilsu- mál,“ segir hún. Aðspurð segist hún kannast við þá vankanta sem Sam- band íslenskra sveitarfélaga hefur bent á í umsögn sinni, sem snúa að fjármögnun verkefnisins. Embætti landlæknis vakti þá athygli í umsögn sinni á að embætt- inu sé falið að veita rekstrarleyfi fyrir neyslurýmum, sem feli í sér Óttast að neyslurými lendi á gráu svæði Morgunblaðið/Hari Neyslurými Rýmin verða lagalega verndað umhverfi þar sem 18 ára og eldri geta fengið hjálp við að sprauta ávana- og fíkniefnum í æð. kostnað fyrir embættið sem ekki hafi verið gert ráð fyrir. Embættið gagnrýndi einnig heimild heilbrigðisstarfsmanna í neyslurýmum til að aðstoða við inn- dælingu efna í æð. „Miðað er við að efnunum sé dælt inn í æð og útilokar það því aðrar leiðir til inntöku þeirra. Þetta takmarkar að mati embættisins þá skaðaminnkun sem lögunum er ætl- að að stuðla að,“ sagði í umsögninni undir athugasemdum við 2.gr.a. laga um ávana- og fíkniefni, sem gefur reglugerðarheimild fyrir neyslurýmum. Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur hjá lögfræði- og velferðarsviði Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, telur að lög nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni ættu að vera skýrari. Í maí var samþykkt á Alþingi frumvarp heil- brigðisráðherra um neyslurými, sem fól í sér að 2. grein yrði bætt við, sem felur í sér heimild embættis landlæknis til að veita sveitarfélögum leyfi til að stofna og reka neyslurými. „Við hjá Sambandinu teljum að löggjöfin hefði þurft að vera skýrari og taka af skarið um það hvort og þá að hvaða marki sveitarfélögunum er ætlað að veita heilbrigðisþjónustu í neyslurýmum,“ segir hann og heldur áfram: „Reglugerðardrögin eru loðin hvað þetta varðar og alls ekki ljóst hvort þeir sem sækja þjónustuna njóti sjúkratryggingar í neyslurýmunum, svo dæmi sé nefnt,“ segir hann. Of víðtækt valdaframsal? LÖG UM NEYSLURÝMI 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eyþór Arn-alds, oddvitisjálfstæð- ismanna í borgar- stjórn, vakti athygli á því í færslu á Face- book á dögunum að á sama tíma og fyrirtækin í borg- inni þyrftu að segja upp fjölda starfsmanna væri borgin sjálf að auglýsa eftir starfsmönnum. Í samtali við fréttastofu ríkisins um þetta mál sagði Eyþór að Reykjavíkurborg auglýsti hlut- fallslega fleiri laus stöðugildi en nágrannasveitarfélögin. „Fyrir- tækin glíma við að þurfa að segja upp fólki og ég er að benda á að borgin er að bólgna út frekar en hitt,“ var haft eftir honum. Hann benti á að þessi útþensla borgar- innar þýddi að ekki væri verið að hagræða og að á endanum væri þetta kostnaður fyrir borgina. Fréttastofa ríkisins spurði Ey- þór þá hvort ekki mætti fagna því að borgin fjölgaði starfsfólki þeg- ar aðrir héldu að sér höndum, sem er spurning sem þarf ekki að koma á óvart úr þeirri átt. Eyþór benti hins vegar á að borgin ætti að létta undir með fyrir- tækjunum: „Númer eitt er að verja störfin sem eru til og skapa tekjurnar í borginni. Því borgin lifir á skatttekjum fyrirtækja. Útsvarsskatturinn er hæstur í Reykjavík.“ Í þessu sambandi má vekja at- hygli á frétt í Morgunblaðinu í gær þar sem fram kom að tekjur Reykjavíkurborgar af stað- greiðslu útsvars hefðu aðeins lækkað um 0,2% á milli ára á tímabilinu febrúar til júlí, sem sýnir að borgin hefur ekki orðið fyrir veruleg- um skakkaföllum vegna kórónuveir- unnar í samanburði við flest fyrirtæki í borginni. Sú hugsun að hið opinbera eigi að grípa inn í og ráða fólk til starfa þegar einkafyrirtæki neyðast til að segja upp fólki gengur vitaskuld ekki upp. Hið opinbera er rekið fyrir skattfé frá einstaklingum og einka- fyrirtækjum og hagur lands- manna batnar ekki ef hið opin- bera er látið þenjast út. Við það skapast minni verðmæti og minna svigrúm er til að greiða fyrir nauðsynlega þjónustu hins opinbera. Þegar harðnar á daln- um er enn minna svigrúm en ella og þá skiptir enn frekar máli að hið opinbera, ríki og sveitarfélög, skapi skilyrði fyrir einka- fyrirtæki svo að þau komist sem best í gegnum erfiðleikana og þurfi að grípa sem minnst til þess óyndisúrræðis að segja upp starfsfólki sínu. Þetta er nokkuð sem ríkis- valdið þarf að hafa í huga við und- irbúning næstu aðgerða vegna kórónuveirufaraldursins og við undirbúning fjárlaga. En sveitar- félögin, einkum það langstærsta, þurfa einnig að hafa þetta í huga. Þau verða nú að skapa þær að- stæður að fyrirtækin verði ekki fyrir meiri skakkaföllum en óhjá- kvæmilegt er. Léttari álögur á fyrirtæki myndu hjálpa verulega í þeim efnum. Hið opinbera á ekki að ráða til sín fólk heldur hjálpa fyrirtækjunum að verja störfin} Léttari álögur, ekki fleiri opinber störf Alexander Luk-ashenko hefur verið forseti Hvíta- Rússlands í rúman aldarfjórðung og býður sig fram til endurkjörs á morgun. Áður en hann hóf langan forsetaferil var hann í Rauða her Sovétríkjanna og stýrði svo samyrkjubúi og segja má að hann hafi nýtt þá reynslu óþarflega vel í forseta- embættinu. Hann hefur verið hallur undir mikil ríkisafskipti og afleiðingarnar hafa verið þær sömu og annars staðar sem sú tilraun er gerð; ónýtur efna- hagur og lífskjör sem eru fjarri því að vera viðunandi. Þá hefur umgengni við lýðræði og mann- réttindi verið vafasöm. Lukashenko hefur, eins og sjá má á þaulsetunni, staðið vel af sér allar atlögur keppinauta og talið er líklegt að hann geri það einnig nú, með öllum þeim ráð- um sem duga. Er þá ekki alveg víst að kosningalögum verði fylgt í ystu æsar. Að þessu sinni etur hann þó kappi við óvæntan en erfiðan andstæðing, Svetl- önu Tikhanovskayu, unga konu sem hef- ur enga pólitíska reynslu. Hún fór í slaginn þegar eigin- maður hennar, sem var í fram- boði, lenti í fangelsi fyrir þann glæp, að því er virðist, að gagn- rýna Lukashenko. Og eiginmað- urinn er ekki eini frambjóðand- inn sem hefur helst úr lestinni af svipuðum ástæðum, sem ætti að auðvelda forsetanum baráttuna. En þrátt fyrir firnasterk tök forsetans verður að teljast ákveðin óvissa um úrslitin og því verður fróðlegt að sjá hvaða töl- ur koma upp úr kössunum – eða öllu heldur út úr talningunni. Enn fróðlegra verður að fylgjast með því hver viðbrögðin verða fari svo að Lukasjenko fagni sigri. Helsti keppinauturinn hef- ur þrátt fyrir kórónuveirufarald- urinn haldið fjöldafundi með tugum þúsunda ákafra stuðn- ingsmanna. Telja má afar ólík- legt að hún eða þeir taki því þegjandi ef forsetinn lýsir sig sigurvegara enn á ný. Það vottar loks fyrir spennu eftir 26 ára forsetatíð} Kosið í Hvíta-Rússlandi S íðan í lok febrúar á þessu ári höf- um við á Íslandi glímt við Cov- id-19. Glíman hefur falið í sér áskoranir fyrir samfélagið allt, þar á meðal heilbrigðiskerfið og efnahagskerfið, og hefur haft í för með sér miklar breytingar á daglegu lífi okkar allra. Meta þarf stöðuna á hverjum degi og sótt- varnalæknir og heilbrigðisyfirvöld eru sífellt að meta ástandið, bregðast við, upplýsa og fræða almenning. Því munum við þurfa að halda áfram enn um sinn því íslenskt sam- félag er nú að hefja annan kafla í glímunni við Covid-19. Líklegt er að beita þurfi aðgerðum bæði innanlands og á landamærum um langt skeið til að hefta útbreiðslu veirunnar. Ljóst er að veiran mun ekki hverfa á næstunni og við sem samfélag, og í raun heimurinn allur, þurfum að finna leið til þess að lifa með henni en á sama tíma halda smitum í lágmarki. Veiran er enn í vexti víða um lönd og sums staðar er verið að herða reglur aftur eins og hérlendis, eftir að slakað hafði verið á þeim, í þeim tilgangi að takmarka útbreiðslu veirunnar. Sóttvarnalæknir hefur lagt áherslu á að halda beri áfram skimunum á landamærum auk þess sem nú eru í gildi umtalsverðar takmarkanir á samkomuhaldi í sam- félaginu. Við erum að beita skimunum, sýnatökum, smitrakningu, einangrun og sóttkví líkt og gert hefur verið allt frá upphafi faraldursins. Sú nálgun gafst vel í fyrstu bylgju faraldursins og við munum beita þeirri nálgun áfram. Með vísan til þess hversu stórt samfélags- verkefni er um að ræða liggur fyrir að það þarf að efna til samráðs helstu lykilaðila um stefnu til lengri tíma varðandi áframhald- andi aðgerðir gegn Covid-19. Því hef ég ákveðið að boða til samráðsvettvangs í formi vinnustofu hinn 20. ágúst nk. Þar verður rætt hvernig móta megi aðgerðir og stefnu til lengri tíma litið í glímu okkar við veiruna. Heilbrigðisráðuneytið vinnur nú að und- irbúningi vinnustofunnar og mun bjóða til þessa vettvangs innan skamms í samstarfi við önnur ráðuneyti og stjórnvöld. Í fram- haldi af vinnustofunni verður komið á fót fimm manna verkefnateymi til að annast framkvæmd aðgerða vegna Covid-19. Teym- ið mun starfa undir stjórn sóttvarnalæknis út árið 2021. Ef við ætlum að lifa með veirunni um ókomna fram- tíð verðum við að grípa til aðgerða sem taka tillit til sóttvarnasjónarmiða, en líka lýðheilsuþátta, heilsufars- legra þátta og efnahagslegra þátta og það verður að vera gerlegt að halda þessum aðgerðum til streitu til langs tíma. Stóra spurningin er sú hvernig best sé að gera það, og samráðsvettvangurinn sem fram undan er er einn liður í því að við sem samfélag komumst að niðurstöðu um það. Svandís Svavarsdóttir Pistill Lifum með veirunni Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.