Morgunblaðið - 08.08.2020, Side 31

Morgunblaðið - 08.08.2020, Side 31
legasti maður sem ég hef þekkt um ævina. Það var sama hvað hann gerði, hann gat allt. Hann hafði ótrúlegt myndrænt minni og mundi hvernig gluggakítti leit út árið 1910 eða innihurðir í timburhúsi 1925. Hann gat sung- ið og ort gullfalleg kvæði en líka óborganlegar limrur. Við sátum einu sinni í lest frá Hannover til Stuttgart til að hitta sérfræðinga vegna dúks sem við strengdum utan á íslenska skálann á heims- sýningunni í Hannover árið 2000. Allan tímann runnu upp úr honum limrur svo flottar að ég hafði engan tíma til að íhuga öll tæknilegu vandamálin sem ég ætlaði að ræða við prófessor Schlaich sem var jafn góður verkfræðingur og Árni Páll hönnuður. Dúkurinn fór samt upp. Árni Páll hannaði síðan vís- indasýningu í París og ég fékk að hjálpa til. Þegar fulltrúar Science Museum í London sáu þessa sýningu óskuðu þeir eftir því að hún yrði flutt til London sem við gerðum. Þessi ósk Science Museum byggðist á snilldarhugmyndum Árna Páls í sýningartækni þar sem tölvur breyttust í leikara. Ég skammaði Árna Pál stund- um fyrir að vera of örlátur á hugmyndir sínar og fá ekkert fyrir þær. Við mættum stundum til viðræðna við verkkaupa og Árni Páll romsaði upp úr sér heilli lýsingu á viðkomandi sýn- ingu og verkkaupinn sagði takk og lét svo heimamenn byggja og það eru margar svona sýningar til. Ég skammaðist en Árni Páll sagði: „Ef einhver stelur hug- myndunum mínum hafa þær verið einhvers virði.“ Við fengumst við margar fleiri hugmyndir, t.d. brú yfir Sunda- braut, endurreisn Flateyrar, Friðarljós Lennons í Viðey, vís- indasýningu Danfoss í Dan- mörku, heimssýningu i Kína, sýningu fyrir OR uppi á Hellis- heiði, bátasýningu í Stykkis- hólmi og margt fleira. Sumt varð að veruleika, annað ekki. Það getur verið leiðinlegt að vinna sem verkfræðingur í heimi þar sem allir vilja fá allt fyrir ekkert. Samvinnan við Árna Pál lyfti vinnunni upp í aðrar hæðir og breytti leiðindum í gleðskap. Ríkharður Kristjánsson. Ég sá Árna Pál fyrst þegar hann mætti til ljósmyndakennslu í MHÍ 1976. Ég var þá að gera kvikmynd sem byggðist aðallega á gömlum ljósmyndum. Árni Páll kenndi mér undirstöður alls þess sem ég kann í dag varðandi myndatökur. Auk þess skapaðist með okkur góð vinátta. Á þess- um tíma voru flestar ljósmyndir svarthvítar og vinnsla litmynda erfið og flókin. Árni og félagar hans ráku fyrirtækið „Litljós- myndir“ fyrir þá sem þurftu fag- lega litvinnslu á myndum. Ég kom oft í Litljósmyndir og fékk að fylgjast með. Lærði þar grunnundirstöður litaleiðrétt- inga, sem átti eftir að reynast mér dýrmætt. Eftir að ég lauk námi byrjaði ég að vinna með Árna Páli í Rokki í Reykjavík, Börnum nátt- úrunnar og síðar í mörgum kvik- myndum. Upp úr þessu samstarfi rís Djöflaeyjan hæst. Mér, sem var framleiðslustjóri og stjórnandi kvikmyndatöku, var ljóst að trúverðugleiki myndarinnar myndi byggjast á því hvernig tækist að endurskapa andrúm þessa tímabils. Öll braggahverfi höfðu verið rifin og ekki var um annað að ræða en að byggja braggahverfi. Fljótlega kom í ljós að heilladrýgst myndi verða að fá Árna Pál til að hanna og byggja hverfið með litlum hópi einvalaliðs. Þannig yrði auðveld- ara að aðlaga hverfið þörfum sögunnar eftir því sem skotlist- inn þróaðist. Þetta voru mikil forréttindi fyrir mig sem var að vinna að skotlistanum. Að geta gengið um leikmyndina á meðan hún var að rísa, séð hvernig ljós og skuggar léku um hana; áttað mig á að umgjörðin um sum at- riði væri of þröng og önnur at- riði vantaði forgrunnsskraut breytir miklu fyrir kvikmynda- tökuna. Árni Páll var líka alltaf snöggur að færa til bragga og breyta öðrum í hálfgegnsæjar rústir sem sköpuðu nýja dýpt í leikmyndina. Það sem kórónaði svo verkið var hugmynd Árna Páls um að byggja blokk í hverfinu. Í fyrstu hljómaði þetta nánast ógerleg fífldirfska en þegar hann hafði útskýrt hvernig hann ætlaði að framkvæma þetta var ljóst að hér var á ferðinni snilldarhug- mynd. Blokkin yrði hlaðin úr gámum sem eru hannaðir til að staflast hver ofan á annan. Að utan yrðu þeir klæddir mótatimbri sem yrði penslað með sementsblöndu þannig að þetta liti út fyrir að vera blokk sem nýbúið væri að slá mótunum utan af. Þetta virk- aði fullkomlega. Þetta er besta leikmynd sem ég hef séð í ís- lenskri kvikmynd; meistaraverk. Árni Páll var góður drengur, heilsteyptur, frábær hönnuður, listamaður, veiðimaður og sér- fræðingur í meðferð skotvopna. Ég stjórnaði kvikmyndatöku á „Skyttunum“ þar sem Árni Páll sá um alla skothríð. Í myndinni er skotið meira en sex hundruð haglaskotum. Árni hlóð öll skot- in sjálfur. Þriðji hluti skotanna voru púðurskot sem leikararnir skutu í átt að myndavélinni. Kvikmyndatökuvélinni og mér var skýlt með þunnri krossvið- arplötu sem hlífði mér fyrir for- hlöðum og öðru hrati sem kom út um byssuhlaupið. Svo mikið traust bar ég til Árna Páls að það hvarflaði aldrei að mér að það væri fræðilegur möguleiki á því að hann gæti ruglast á skot- um og að í stað eldglæringa kæmi út um byssuhlaupið blý. Takk fyrir mig Árni Páll Jó- hannsson. Ari Kristinsson. Fólk sem við hittum á lífs- leiðinni hefur mismikil og mis- djúp áhrif á okkur. Nú er það ágæta orð „áhrifavaldur“ orðið svo útjaskað og ónýtt að það er ekki lengur hægt að bera sér í munn, en það er óhætt að full- yrða að Árni Páll Jóhannsson hafi haft mikil áhrif á umhverfi sitt og alla sem honum kynnt- ust. Hann var aðdáunarverður listamaður og hönnuður, hjálp- fús og gjöfull vinur, heimsmað- ur og heimamaður, margslung- inn og mögnuð persóna. Við stöllur tvær nutum þess að mega deila með honum vinnustofu úti á Granda um tíma og erum ævarandi þakk- látar fyrir örlæti hans og höfð- ingsskap. Við eigum margar skemmtilegar minningar um góðar stundir á kaffistofunni þar sem Árni sló út örmum með óborganlegum sögum og húm- or, skörpum skoðunum og greinandi sköpunargleði. Hann var stór maður með stórar hug- myndir. Og það sem meira var: þær urðu margar að veruleika. Hann var jafnan praktískur í lausnum og um leið fagurkeri fram í fingurgóma. Tilfinning hans fyrir efni og rými var ein- stök, hvort heldur sem var í nýrri list, landslagsmótun, hönnun eða húsagerð. Banvæn- um sjúkdómi bauð hann birginn og sköpunarkraftinum virtust engin takmörk sett, allt til enda. Verk hans í hönnun og listum munu lifa lengi. Við þökkum hönnuðinum ógleymanlegt samstarf, lista- manninum fyrir listina á löngum ferli og við þökkum fyr- ir að hafa kynnst Hólmaranum með stóra hjartað. Aðstandend- um öllum vottum við okkar dýpstu samúð. Áslaug Jónsdóttir Sigurborg Stefánsdóttir. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Elsku hjartans gullið okkar, eiginmaður minn, sonur, tengdasonur, bróðir, faðir og afi, SVERRIR ÞÓR EINARSSON SKARPAAS, Sverrir Tattoo, lést á Landspítalanum 26. júlí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 10. ágúst klukkan 13. Athöfninni verður streymt á Facebook-síðu „Jarðarför Sverris Tattoo“ Diljá Palmer Gerd Skarpaas Einarsson Olafina I. Palmer Einar Stefán Einarsson Stormur Þór Þorvarðarson systkini, börn og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUNNHILDUR ERLA ÞÓRMUNDSDÓTTIR, Minný, Ljósheimum, Selfossi, lést föstudaginn 24. júlí. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 12. ágúst klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin einungis fyrir allra nánustu. Athöfninni verður streymt frá www.facebook.com/hveragerdiskirkja. Jakob Skúlason Jóhanna Hallgrímsdóttir Þórmundur Skúlason Vilberg Skúlason Guðlaug Skúladóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, STURLA JÓHANN STEFÁNSSON, sem lést á Landspítalanum 2. ágúst, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 11. ágúst klukkan 14. Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin einungis fyrir nánustu aðstandendur, en henni verður streymt á slóðinni kvikborg.is. Ásgerður Pálsdóttir Stefán Már Sturluson Guðrún Jónsdóttir Guðmundur Páll Sturluson Birna Hlín Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Kær móðir mín, DÓRA S. BJARNASON, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, lést miðvikudaginn 5. ágúst. Fyrir mína hönd, vina og vandamanna, Benedikt H. Bjarnason Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANFRÍÐUR GÍSLADÓTTIR frá Arnarnesi í Dýrafirði, til heimilis í Fróðengi 11, lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn 5. júlí. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur þakka fyrir ómetanlega umönnun á hjartadeildinni. Sigrún Pálsdóttir Ingjaldur Eiðsson Eiríkur Örn Pálsson Arnheiður Ingimundardóttir Kolbrún Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru AÐALBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR kennara frá Harðbak á Melrakkasléttu. Sérstakar þakkir til Heru líknarheima- þjónustu fyrir einstaka aðstoð og umhyggju. Sæmundur Rögnvaldsson Ingibjörg Axelsdóttir Elín Rögnvaldsdóttir Björgvin Guðmundsson Margrét Rögnvaldsdóttir Magnús H. Ingþórsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÁSGEIR RAFN REYNISSON bifreiðasmiður, sem lést fimmtudaginn 30. júlí verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 12. ágúst klukkan 13. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu má takmarkaður fjöldi mæta í kirkjuna en einnig verður hægt að koma saman og horfa á streymi frá athöfninni í Félagsheimili Fáks og í Reiðhöllinni í Víðidal. Tengil á streymið má finna á samfélagsmiðlum fjölskyldumeðlima. Eygló Karlsdóttir Celin Unnur Gréta Ásgeirsdóttir Geir Harrysson Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Bjarney Ásgeirsdóttir Birna Ósk Ásgeirsdóttir Birkir Rafn Geirsson Kynni okkar Steinars hófust þegar hann var fimm ára, dugleg- ur, uppátækjasamur og skemmtilegur drenghnokki. Þá strax vann hann sér inn stórt pláss í hjarta mínu. Lengst af þekkti ég hann sem fullorðinn einstakling og hjartaplássið stækkaði með árunum. Hann var tíður gestur á heimili mínu síðustu árin sem amma hans lifði og bjó hjá mér. Hann var henni einstaklega góður. Hjartkæri frændi minn með opinn faðminn og fallegt brosið sitt. Steinar var mikill mann- kostamaður, hjartahlýr, ein- lægur, skemmtilegur og lífs- glaður. Einstaklega duglegur og svo laghentur að töfrum var líkast. Hann hafði ástríðu fyrir því sem hann tók sér fyrir hendur, snillingur af guðs náð. Hann var góðum gáfum gædd- ur og fróðleiksfús, mikill bóka- unnandi, sjálfmenntaður og vel að sér á svo mörgum sviðum. Steinar hafði ákveðnar skoð- anir en virti skoðanir þeirra Steinar Valberg ✝ Steinar Val-berg fæddist 12. mars 1962. Hann lést 8. júlí 2020. Útför Steinars fór fram í kyrrþey 18. júlí 2020. sem voru á önd- verðum meiði. Gaman var að eiga við hann spjall um allt milli himins og jarðar. Steinar hafði sterkan lífsvilja og það var aðdáunar- vert hve hart hann barðist fyrir því að komast til heilsu. Æðrulaus. Alltaf jákvæður og ljúfur við umönn- unaraðila og fólkið sitt allt sem stóð þétt við hlið hans í barátt- unni við illvígan sjúkdóm. Við áttum saman mörg og góð sam- töl á þessum erfiða og óraun- verulega tíma. Þegar ástvinur deyr þurfa þeir sem missa að vinna úr svo margvíslegum og erfiðum til- finningum. Nístandi sorg, söknuður, óöryggi og reiði. Hlúum að góðum minningum, þær eru margar um yndislegan og ljúfan dreng. Sá orðstír sem hann ávann sér er auður sem aldrei deyr. Steinar var kletturinn í lífi barnanna sinna, umhyggja hans fyrir þeim var óendanleg. Móður sinni var hann búinn að skapa skjól í ellinni. Elskuleg systir hans var honum afar ná- in. Ég samhryggist þeim og öðrum ástvinum hans. Hvíl í friði hjartkæri Stein- ar, frændi og vinur. Hrafnhildur Reynisdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.