Morgunblaðið - 08.08.2020, Side 43

Morgunblaðið - 08.08.2020, Side 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is Hörkuspennandi þriller byggð á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson S P LÚNKUNÝ OG STÓRSKEMMT I L EG RÓMANT Í SK GAMANMYND. KAT I E HOLMES JOSH LUCAS ©2016 Disney Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe í aðalhlutverki. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI EIN ALBESTA GRÍN-TEIKNIMYND SEM KOMIÐ HEFUR! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég hafði heyrt um StudioSilo. Dauf minning um inn-slag í Landanum var í hausnum (mig gæti þó misminnt) en hef svo séð nafnið nokkuð stað- fastlega á samfélagsmiðlum að und- anförnu. Ég vissi þó líka, einhverra hluta vegna, að þarna væri rekið al- vöruhljóðver á alþjóðlegum staðli. Ég væri að ljúga ef það hefði ekki komið mér dálítið spánskt fyrir sjón- ir. Af hverju? Hverjir? Ég ákvað að klípa klukkustund af löngu fjöl- skyldutjaldferðalagi um landið, renna einfaldlega í hlað og kanna málið. Ákvað enn fremur að gera ekki boð á undan mér, mæta bara og sjá hvað myndi gerast. Ég ók sem leið lá niður á höfn- ina í Stöðvarfirði og við mér blasti stórt frystihús. Glaðleg og vel út- færð veggjalist staðfesti að ég var á réttum slóðum. Ég labbaði inn, klof- aði yfir gamlan ofn sem var fyrir hurðinni, og gekk því næst upp stiga (las einhvers staðar að hljóðverið væri á annarri hæð). Þar tók á móti mér hundurinn Tumi, glaður nokk, og þau Vincent „Vinny“ Wood og Una Sigurðardóttir. Vincent er yfir téðu hljóðveri en Una er einn af þremur umsjónarmönnum Sköp- unarmiðstöðvarinnar ásamt Vinny og Rósu Valtingojer. Sonur þeirra, Bassi, var og með í för. Allt heila gillið mætti mér þarna og ég átti enn eftir þrjár tröppur. Ég útskýrði óða- mála hver ég væri og af hverju ég væri hingað kominn og var mér tek- ið fagnandi. Áður en lengra er haldið er rétt að geta um tilurð Sköpunarmið- stöðvarinnar. Hún varð til árið 2011 er nokkrar stöðfirskar eldsálir og fleiri slíkar björguðu frystihúsinu frá tortímingu með því að kaupa það af bænum fyrir gjafverð. Blómleg lista- og menningarstarfsemi af afar fjölbreyttum toga fer þar fram nú (sjá nánar á www.inhere.is). Blaða- maður getur staðfest að sú stemning hefur smitast út í bæjarbraginn – maður einfaldlega fann fyrir stuðinu þegar maður ók yfir bæjarmörkin. Hljóðverið sjálft var svo opnað síðasta sumar. Þar er hægt að taka upp stafrænt („digital“) og hliðrænt („analog“) og um hönnun sá hin víð- frægi Texasbúi John H. Brandt. Fimm ára vinna liggur að baki og báru Vinny og Una hitann og þung- ann af því ásamt ótöldum hjálpar- meyjum og -sveinum. Þrettán plötur hafa nú verið hljóðritaðar í því og hafa listamenn eins og Mugison, Hjálmar og Gróa nýtt sér það á einn eða annan hátt, tekið upp hluta af plötum eða spilað í sérstökum „Silo- Sessions“. Færeyskir, bandarískir og þýskir tónlistarmenn hafa og tek- ið upp hjá Vinny sem lét gamlan draum rætast er hann flutti til Stöðvarfjarðar frá Írlandi ásamt Unu. „Ég var orðinn þreyttur á því að vinna fyrir stórfyrirtæki,“ segir hann, en hann er lærður rafmagns- verkfræðingur. „Við vissum strax að okkur langaði til að gera þetta hérna.“ Aðspurður hvort það væri ekki mögulega hentugra að hafa hljóðverið í Reykjavík svarar hann: „Það hefði aldrei gengið upp fyrir okkur fjárhagslega. Hér fengum við húsnæði fyrir málamyndafé og frjálsar hendur í raun við að byggja þetta upp eftir okkar höfði. Bærinn hefur þá sýnt þessu velvilja og stuðning alla tíð. Þetta allt hefur verið stór þáttur í þeirri sýn sem við höfum á verkefnið.“ Náttúrufegurðin í kring, stillan og möguleikinn á því að vinna verk- efni í friði, hratt og hnitmiðað, heilli þá líka. „Fólk hefur verið sérstak- lega ánægt með þann þátt,“ segir Vinny. „Þau hafa ekki bara lokið lofsorði á sjálft hljóðverið heldur skiptir staðsetningin sem slík líka miklu máli.“ Ég kveð þetta sómafólk með kurt við þetta. Bassi þarf að halla sér og Tuma kveð ég með söknuði en hann varð besti vinur minn á 0,1, þó að honum hafi orðið hverft við í fyrstu er óvæntan gest bar að garði. Ég hef síðan engar áhyggjur af Unu og Vinny. Þetta á eftir að fara gríðarvel allt saman. Ég finn það einfaldlega. Studio Silo er hljóðver sem er undir hatti Sköp- unarmiðstöðvarinnar á Stöðvarfirði. Þau Vinny Wood og Una Sigurðardóttir tóku á móti blaða- manni og fræddu hann um herlegheitin. Ljósmyndir/Arnar Eggert Thoroddsen » Þau hafa ekki baralokið lofsorði á sjálft hljóðverið, heldur skipt- ir staðsetningin sem slík líka miklu máli Án sköpunar kemstu hvorki lönd né strönd Fjölskylda Tumi, Vinny, Bassi og Una. Vélamaðurinn Vinny Wood er með skýra sýn á hlutina. Þeim fyrstu af fernum tón- leikum sem Björk Guð- mundsdóttir hugðist halda í mánuðinum í Eldborgarsal Hörpu, Björk Or- kestral, og áttu að hefjast á morgun, hefur verið frestað vegna hertra samkomutakmarkana. Þeg- ar líður á mánuðinn kemur í ljós hvernig takmörkunum verður hátt- að og hvort einhverjir þeirra geti farið fram á áætluðum tíma. Upp- selt er á alla tónleikana en þeir eiga að vera með ólíkum efnisskrám og flytjendum en með aðkomu fjölda íslenskra tónlistarmanna, sem hafa lítið sem ekkert getað komið fram síðan faraldur kórónuveirunnar brast á. Samkvæmt upplýsingum á facebooksíðu Bjarkar er unnið að því að færa tónleika fram í septem- ber, í von um að hægt verði að halda þá þá. Munu miðar sem keyptir voru á tónleikana nú gilda þá, ef hentar, en verða annars endurgreiddir. Hörputónleikum Bjarkar frestað Björk Farvegur er heiti sýningar Ólafar Svövu Guð- mundsdóttur sem verður opn- uð í menningar- húsinu Hann- esarholti við Grundarstíg í dag, laugardag, kl. 15 til 17. Ólöf er menntaður leikskóla- og listgreinakennari. Skapandi starf og þróunarverkefni í leikskólum hafa átt hug hennar síðastliðin 35 ár. Einnig kenndi Ólöf vatnslitamálum í Myndlistar- skóla Kópavogs síðastliðið ár. Ólöf segir vatnsliti vera upp- sprettu „hugmynda og ævintýra. Gegnsæi og eiginleiki vatnslitanna hvetja til sköpunar. Sköpunin finn- ur sér alltaf farveg. Farvegurinn er náttúran, birtan og sköpunin. Við erum ekkert án náttúrunnar. Hún er lífið sjálft“. Farvegur Ólafar í Hannesarholti Hluti eins vatns- litaverka Ólafar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.