Morgunblaðið - 08.08.2020, Page 48

Morgunblaðið - 08.08.2020, Page 48
39 ljósmyndir frá árlegri sýningu Blaðaljósmyndara- félags Íslands eru nú til sýnis meðfram Sæbrautinni og við Hörpu og verða þar til sumarloka. Á sýningunni má sjá úrval bestu blaðaljósmynda ársins 2019, að mati dómnefndar Blaðaljósmyndarafélagsins, og gefa þær innsýn í helstu fréttir og umfjöllunarefni fjölmiðla í fyrra. Stærri sýning var haldin í vor í Ljósmyndasafni Reykjavíkur en útisýningin er liður í að efla menningu, útivist og mannlíf í miðborginni undir merkjum Sumar- borgarinnar. Bestu blaðaljósmyndir síðasta árs sýndar við Sæbraut og Hörpu „Það er eitt ítalskt félag sem ég veit af sem hefur haft samband við Aalesund. Ég má ekki segja hvaða félag það er. Síðan eru einhver tilboð frá Úkraínu og Hvíta- Rússlandi en ekkert sem ég hef verið tilbúinn að skoða á þessum tímapunkti. Ég er orðinn 27 ára og ég þarf að velja vel og gera þetta rétt í þetta skiptið. Það liggur ekkert á og ég þarf að bíða og sjá,“ segir knattspyrnu- maðurinn Hólmbert Aron Friðjónsson meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag. Með góðri frammi- stöðu í Noregi er hann eftirsóttur. »41 Ítalskt félag hafði samband við Aalesund og sýnir Hólmbert áhuga „Mér finnst gaman að ganga um landið og hvergi skynja ég náttúr- una og kraft hennar betur en við fossana og gljúfur þeirra. Að heyra dryn fossanna, sjá úðann frá þeim og finna jörðina undir fótum sér titra er einstök upplifun,“ segir séra Svavar Alfreð Jónsson, sóknar- prestur við Akureyrarkirkju. Ný- lega kom út bókin Gljúfrabúar og giljadísir þar sem er að finna ljós- myndir af alls 50 fossum í Eyjafirði. Hverri mynd fylgir stuttur texti, bæði fróðleikur um staðhætti og ýmsar útleggingar þar sem guð- fræðin með sínum mikla boðskap er undirliggjandi. Sterk skírskotun Ljósmyndirnar í bókinni hefur Svavar tekið í ferðum með félaga sínum Gísla Gunnlaugssyni fast- eignasala á Akureyri. Báðir stóðu þeir á tímamótum fyrir um áratug og byrjuðu þá að stunda saman gönguferðir, sem þeir fundu að gerði þeim gott. Svavar segir megintilganginn með bók sinni annars þann að minna fólk á þau miklu gæði sem felast í því að búa og lifa nærri óspilltri náttúru. Vatn, gróður, gil og fjöll og göngur þar séu uppsprettur yndisstunda. „Ár og fossar eru síbreytileg fyr- irbæri og hafa um margt skírskotun til lífsins og tilverunnar. Til eru foss- ar hér í Eyjafirði sem hafa horfið, þá vegna þess að lindir þornuðu upp eða farvegir breyttust. Slíkt sjáum við svo oft gerast í mannlífinu; að hlutirnir taka nýja stefnu og þeim veruleika verður fólk að aðlagast. Þar má til dæmis nefna að nú er Gljúfrabúi upp af Steinsstöðum í Öxnadal horfinn nema kannski í leysingum; fossinn sem sumir segja að Jónas Hallgrímsson hafi haft í huga í ljóði sínu,“ segir Svavar. Guðsótti er hugtak sem oft heyr- ist nefnt. Þegar fólk finnur til smæð- ar sinnar andspænis kröftum sköp- unarverksins er þar ef til vill um sambærilegt fyrirbæri að ræða. Upplifi smæðina „Smæðina hef ég oft upplifað í fossaferðum, til dæmis þegar ég kom að Dettifossi fyrir nokkrum ár- um með börnunum mínum. Þá sem aldrei fyrr hélt ég fast í hönd þeirra,“ segir Svavar, sem finnst frábært að geta í bók þessari sam- einað áhugamál, það er gönguferðir, guðfræði og ljósmyndun. Guðfræði og fossar Ljósmynd/Hildur Emelía Svavarsdóttir Myndasmiður „Ár og fossar eru síbreytileg fyrirbæri,“ segir sr. Svavar Alfreð um efni nýrrar bókar sinnar.  Prestur með ljósmyndabók  Gljúfrabúar og giljadísir Ljósmynd/Svavar Alfreð Jónsson Foss Í bókinni eru myndir af 50 fossum í Eyjafirði. Sumir eru lítt þekktir. SÆKTU APPIÐ á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Með Hreyfils appinu er fljótlegt og einfalt að panta leigubíl. Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð þegar bíllinn er mættur á staðinn. Þú getur fylgst með hvar bíllinn er staddur hverju sinni. Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis getur þú valið viðskiptareikning og opnað aðgang. Hreyfils-appið er ókeypis. LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 221. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.