Morgunblaðið - 19.08.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020
AKRÝLSTEINN
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
• Viðhaldsfrítt efni með mikla endingu
og endalausa möguleika í hönnun
• Sérsmíðum eftir máli
• Margrir litir í boði
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Við höfum verið og erum að skoða
hvort fella eigi niður flug. Það á við
um allar ferðir hjá okkur,“ segir
Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úr-
vals-Útsýnar.
Vísar hún í máli sínu til breytts
fyrirkomulags á landamærunum.
Frá og með deginum í dag verður
komufarþegum hingað til lands gert
að fara í tvær sýnatökur. Á milli
sýnataka verður umræddum far-
þegum gert að sæta fjögurra til sex
daga sóttkví.
Ljóst er að nýtt fyrirkomulag
mun hafa áhrif á rekstur fjölda
ferðaskrifstofa hér á landi. Líkur
eru á því að fella þurfi niður ferðir
auk þess sem afbókanir munu fær-
ast í aukana. Aðspurð segir Þórunn
að nýtt fyrirkomulag hafi áhrif á
reksturinn. Það tengist þó ekki ein-
göngu nýju fyrirkomulagi á landa-
mærunum.
„Þetta var byrjað að koma hægt
og rólega og í raun bara um leið
þegar smit jókst. Fólk fer þá að
hugsa,“ segir Þórunn og bætir við
að ekki sé mælt með því að halda í
ferðir erlendis. „Sóttvarnalæknir og
þríeykið hefur hvatt Íslendinga til
að vera ekki að ferðast. Það hefur
að sjálfsögðu mjög mikil áhrif,“ seg-
ir Þórunn.
Þó að fyrirkomulagið á landa-
mærunum sé nýtt af nálinni hefur
Úrval-Útsýn verið með sambæri-
legar ráðstafanir í gildi. „Við erum
auðvitað að meta núna hverju þess-
ar nýju reglur breyta. Svo því sé
hins vegar haldið til haga höfum við
verið með þessa skilmála fyrir þá
sem hafa verið að koma heim frá
Spáni.“
Salan byrjaði ágætlega
Í júlí greindi Morgunblaðið frá
því að fjöldi Spánarferða væri á
dagskrá í haust. Að sögn Þórunnar
gekk vel að selja ferðir út þegar far-
aldurinn var í rénun víðast hvar.
„Þetta byrjaði ágætlega á þessum
tíma þó að ég sé ekki alveg með töl-
una á því hversu margir fóru út. Við
erum ekki bara með sólarstaði held-
ur hefur þetta líka áhrif á borgar-,
viðskipta- og gofferðir,“ segir Þór-
unn sem tekur fram að ástandið ein-
skorðist ekki við Ísland. Þannig
leika aðstæður á umræddum
áfangastöðum stórt hlutverk. „Það
hafa verið settar þröngar skorður á
fjölda áfangastaða, til dæmis er
skylda að vera með grímu á Ali-
cante. Allar svona breytingar hafa
að sjálfsögðu áhrif á söluna.“
AFP
Strönd Til skoðunar er að fella niður ferðir á vegum ferðaskrifstofa. Nýtt
fyrirkomulag við landamæri Íslands hefur nú þegar haft mikil áhrif.
Skoða hvort fella
eigi niður flug
Breyttu fyrirkomulagi um að kenna
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Hertar aðgerðir á landamærum Ís-
lands hafa takmörkuð áhrif á rekstur
Sigló hótels á Siglufirði. Bókunar-
staða næstu mánaða lítur vel út og svo
virðist sem ekkert lát sé á fjölgun
bókana. Þetta segir Kristbjörg Edda
Jóhannsdóttir, framkvæmdastóri
hótelsins, í samtali við Morgunblaðið.
Að hennar sögn gekk sumarið von-
um framar. „Sumarið hefur verið
mjög gott og nýtingin var í raun svip-
uð og í fyrra. Þetta var jafnvel betra í
júlí núna en á síðasta ári“ segir Krist-
björg og bætir við að reynt hafi verið
að beina markaðssetningu að Íslend-
ingum. Þá segir hún ákvörðun stjórn-
valda um hertar aðgerðir á landa-
mærum rétta. „Við erum að treysta á
Íslendingana núna. Ég held að þetta
hafi verið rétt ákvörðun fyrir okkur
að gera þetta með þessum hætti. Ef
við værum að fá aðra bylgju myndi
enginn koma hingað,“ segir Krist-
björg.
Aðspurð segir hún að nýtingin í
sumar hafi verið mjög góð. Af þeim
sökum má gera ráð fyrir að afkoman
haldist nær óbreytt frá síðasta ári.
„Nýtingin var sennilega aðeins betra
en að sama skapi vorum við að lækka
verðið. Afkoman verður því mjög
svipuð,“ segir Kristbjörg sem kveðst
bjartsýn á að hægt verði að halda nú-
verandi starfsfólki. „Við erum að gera
ráð fyrir að vera með sama mannafla
og í fyrra yfir veturinn.“
Ljóst er að veturinn verður mjög
þungur fyrir fjölda ferðaþjónustuað-
ila. Segir Kristbjörg að það eigi ekki
við um Sigló hótel. „Það er í raun að
bætast inn bókanir fyrir september-
mánuð. Auðvitað hefur þessi ákvörð-
un áhrif á virku dagana, en helgarnar
eru mjög vel bókaðar.“
Bókanir halda
áfram að berast
Aðgerðirnar hafa
takmörkuð áhrif á
Sigló hótel
Morgunblaðið/Mikael
Siglufjörður Sigló hótel hefur notið
vinsælda meðal Íslendinga.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það er verið að kippa undan okkur
fótunum. Við þurfum bara að skella í
lás,“ segir Þráinn Lárusson, eigandi
og rekstraraðili Hótels Hallorms-
staðar og Hótels Valaskjálfs. Rekur
Þráinn aukinheldur veitingastaðina
Salt og Skálann Diner á Egilsstöð-
um.
Segir hann að ákvörðun stjórn-
valda um hertar aðgerðir á landa-
mærunum þýði í raun lokun ferða-
þjónustunnar. Frá og með deginum í
dag muni engir erlendir ferðamenn
koma til landsins. „Það er alveg ljóst
að það er enginn ferðamaður erlend-
is frá að fara að koma hingað. Maður
skilur ekki alveg þessa umræðu um
að bæta þurfi í þjónustu við landa-
mærin því álagið muni aukast. Það er
enginn að fara að koma. Ég skil ekki
í hvaða heimi menn eru,“ segir Þrá-
inn og bætir við að aldrei hafi ferða-
þjónustan orðið fyrir eins miklu
höggi. „Menn verða að gera sér grein
fyrir því að skellurinn er stærri núna
en í vor því það er allt í bullandi
gangi núna. Það er fullt af bókunum í
gangi og miklu fleiri en voru í mars-
og aprílmánuði,“ segir Þráinn.
Mörg hundruð afbókanir
Aðspurður segir hann að afbókan-
ir síðustu daga hlaupi á hundruðum.
Þá er sömuleiðis ljóst að fjöldi ein-
staklinga mun missa vinnuna.
„Við erum að missa mjög mikið
núna. Ég get ekki fest tölu á það, en
það er í raun allt afbókað eftir
helgina. Þetta hleypur á mörg
hundruð afbókunum. Næstu vikur
vorum við með tugi bókana á dag og
það er búið að afbóka það allt. Auk
þess vorum við að fara að fá 20 til 30
manna ferðahópa á dag á Hallorms-
stað,“ segir Þráinn sem kveðst lítið
botna í ákvörðun stjórnvalda. Áhrif
framangreindrar ákvörðunar séu í
raun miklu meiri og alvarlegri en
margir telja.
„Ég er ekki viss um að menn geri
sér grein fyrir hversu grafalvarlegt
þetta er. Það er allt í björtu báli í
ferðaþjónustunni,“ segir Þráinn sem
gerir ráð fyrir að loka hótelunum á
næstu dögum eða vikum.
Tugir missa vinnuna
Spurður hversu margir koma til
með að missa vinnuna segir Þráinn
að yfir fimmtíu manns verði án
starfs. Þá verði hluti starfsfólksins
fluttur milli staða. „Það verður ein-
hver tilfærsla á fólki en fjöldi þeirra
sem missir vinnuna verður ekki und-
ir fimmtíu. Ég vona að þetta haldist
undir sextíu manns. Við erum að
segja upp fólki sem hefur verið mjög
lengi með okkur og nú er engin
hlutabótaleið sem hægt er að nýta.
Það er erfitt að segja upp fólki en það
er enn erfiðara að þurfa að velja
hverjir halda starfinu og hverjir
ekki,“ segir Þráinn og bætir við að
veturinn snúist fyrst og fremst um
að þreyja þorrann.
„Við erum að stóla á lánafrystingu
og svo þarf maður að lágmarka tap-
reksturinn eins og hægt er. Nú snýst
þetta um að fara í algjöra vörn og
reyna þannig að lágmarka þann
skaða sem við verðum fyrir.“
Hótel Gríðarlegur fjöldi fólks hefur afbókað gistingu og flug sökum hertra aðgerða við landamæri Íslands.
Hafa tekið á móti
hundruðum afbókana
Á sjötta tug starfsfólks missir vinnuna Hótelum lokað