Morgunblaðið - 19.08.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020
Fiskistofa tilkynnti í gær að síðasti
dagur strandveiða á þessu ári yrði í
dag, miðvikudag. Þar sagði að von
væri á auglýsingu í Stjórnartíð-
indum þar sem tilkynnt yrði að frá
og með fimmtudeginum 20. ágúst
yrðu strandveiðar bannaðar.
Eftir hækkun á viðmiðum um
þorskafla á strandveiðum um 720
tonn síðari hluta júlí voru aflaheim-
ildir í þorski alls 10.720 tonn. Á
mánudagskvöld var búið að nýta
97,48% heimildanna, tæplega 271
tonn var ónotað og tveir veiðidagar
eftir. Undanfarið hefur ekki verið
óalgengt að strandveiðibátar hafi
komið með alls um 150 tonn af
þorski að landi eftir daginn, sem
ræðst þó eðlilega af aflabrögðum og
gæftum.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hafði Landssamband smábátaeig-
enda vonast eftir auknum heimildum
til strandveiða í ár. Á heimasíðu
sambandsins er greint frá bókun
sem samþykkt var á fundi sveitar-
stjórnar Skagastrandar síðasta
föstudag.
Þar er skorað á sjávarútvegs-
ráðherra að grípa til aðgerða til þess
að tryggja öllum strandveiðibátum
tólf leyfilega veiðidaga í ágúst.
Stöðvun veiða muni hafa neikvæð
áhrif á tekjur fólks, fyrirtækja og
sveitarfélaga vítt og breitt um landið
á sama tíma og stjórnvöld keppist
við með beinum og óbeinum aðgerð-
um að halda hjólum atvinnulífsins
gangandi á tímum heimsfaraldurs
vegna kórónuveirunnar. aij@mbl.is
Lokadagur á
strandveiðum
Búið að nýta 97,48% heimilda í þorski
Morgunblaðið/Alfons
Strandveiðar Meðalbáturinn hefur landað tæpum 17 tonnum í sumar.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Nú stendur yfir lokaundirbúningur
Hvammsvirkjunar í Þjórsá, en ekki
hefur verið tekin ákvörðun um hve-
nær framkvæmdir hefjast. Verði
ákveðið að hefjast handa um útboð
og framkvæmdir munu líða um þrjú
og hálft ár þar til hægt verður að
gangsetja virkjunina. Gert er ráð
fyrir að Hvammsvirkjun verði 93
MW og geti framleitt um 729 GWst
árlega.
Þetta segir Ragnhildur Sverris-
dóttir, upplýsingafulltrúi Lands-
virkjunar. Málefni virkjunarinnar
voru til umfjöllunar á fundi sveitar-
stjórnar Skeiða- og Gnjúpverja-
hrepps í vikunni sem leið. Samþykkt
var með meirihluta atkvæða að veita
heimild til skipulagsgerðar að nýju
með þeim breytingum sem orðið
hafa á aðalskipulagi sveitarfélagsins
frá því síðasta tillaga var kynnt fyrir
nokkrum árum.
Nýju mati hafnað
Fulltrúi Gróskulistans í sveitar-
stjórninni taldi að forsendur hefðu
breyst og ekki væri lengur hægt að
byggja á matsskýrslu frá 2003. Til-
laga um að hefja ný rannsóknir á
áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda
hlaut hins vegar ekki hljómgrunn.
Ragnhildur Sverrisdóttir segir að
Hvammsvirkjun sé í orkunýtingar-
flokki rammaáætlunar og hafi verið
frá 2015 þegar þingsályktunartillaga
um það var samþykkt. Sveitarfélögin
beggja vegna Þjórsár, Rangárþing
ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepp-
ur, hafi unnið að skipulagi undanfar-
ið.
Lokaundirbúningurinn felst m.a. í
vandaðri útlitshönnun mannvirkja,
landslagshönnun, rýni á veigamikl-
um þáttum hönnunar og útfærslu á
mótvægisaðgerðum til að lágmarka
umhverfisáhrif.
Fyrirhuguð Hvammsvirkjun mun
nýta fall Þjórsár neðan Búrfells-
virkjunar, frá svokölluðu Yrjaskeri
rétt ofan við bæinn Haga og niður
fyrir Ölmóðsey austan við Þjórsár-
holt.
Hvammsvirkjun í undirbúningi
Fer á ný í skipulagsgerð Enn ekki
ákveðið hvenær framkvæmdir hefjast
Hvammsvirkjun Tölvugerð mynd af fyrirhugaðri virkjun í Þjórsá.
Reginn hf. / 512 8900 / reginn@reginn.is / reginn.is
HLUTHAFAFUNDUR
9.SEPTEMBERÍHÖRPU
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Heimild til handa stjórn til hækkunar hlutafjár.
Stjórn Regins hf. leggur til breytingar á 4. gr. samþykkta
félagsins þess efnis að við greinina bætist heimild til
handa stjórn félagsins til að auka hlutafé þess um allt
að kr. 40.000.000 að nafnverði. Hluthafar skulu hafa
forgangsrétt að öllum nýjum hlutum í hlutfalli við skráða
hlutafjáreign sína.Heimildin skal falla niður þann 10.mars
2021.
2. Önnurmál.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir
sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða
rafrænt umboð og skal það dagsett. Óskað er eftir að umboð
berist Regin fyrir dagsetningu hluthafafundar á reginn@
reginn.is og skal það vera undirritað af hluthafa eða prókúru-
hafa. Einnig er fundarmanni heimilt að framvísa umboði
viðmætingu á hluthafafund en þá skal þess gætt aðmæta
tímanlega til að hægt sé að yfirfara umboðm.t.t. gildis þess.
Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu
eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundar-
gagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðiðmál tekið til meðferðar á
hluthafafundinum, ef hann gerir skriflega kröfu umþað til
stjórnar áður en ein vika er til hluthafafundarins. Nánar um
heimildir hluthafa til að fámál tekin til meðferðar á fundinum
vísast til 18. gr. samþykkta félagsins sem finnamá á heimasíðu
þess, www.reginn.is/fjarfestavefur.
Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á
heimasíðu félagsins www.reginn.is.
Hluthafafundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án
tillits til þess hversumargir sækja hann, sbr. 16. gr. samþykkta
félagsins.
Gögn vegna fundarins eru aðgengileg á skrifstofu félagsins í
Smáralind, 1. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi og á vefsvæði
tengt hluthafafundi á heimasíðu félagsinswww.reginn.is/
fjarfestavefur en endanleg dagskrá og tillögur verða að-
gengileg a.m.k. viku fyrir hluthafafund, sbr. 18. gr. samþykkta
félagsins. Hluthafafundur félagsins verður án pappírsgagna.
Kópavogur, 19. ágúst 2020.
Stjórn Regins hf.
Stjórn Regins hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn í Rímu
fundarsal, í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, Austurbakka 2, 101 Reykjavík,
miðvikudaginn 9. september 2020 og hefst stundvíslega kl. 16:00
Malbikun stendur nú yfir á þjóðvegi númer eitt á milli
Hlíðarbæjar á Akureyri og Dalvíkurafleggjara. Verkið
hófst á mánudag og til stendur að leggja allar nætur
fram á aðfaranótt föstudags. Aðeins ein akrein er mal-
bikuð í einu og því er umferð um veginn stýrt. Þetta er
stærsta verkefni Malbikunar Akureyrar hingað til.
Morgunblaðið/Þorgeir
Þjóðvegurinn endurbættur
Ríkissaksóknari hefur nú birt fyrir-
mæli á heimasíðu embættisins, þar
sem fram kemur að brot gegn nú-
gildandi sóttvarnareglum gætu
varðað sektum á bilinu 100 til 500
þúsund krónur. Leysa fyrirmælin af
hólmi fyrri fyrirmæli ríkissaksókn-
ara sem tóku gildi 27. mars, sam-
kvæmt þágildandi sóttvarnareglum.
Brot gegn skyldu til að tryggja að
hægt sé að hafa í það minnsta tvo
metra á milli einstaklinga sem ekki
deila heimili, getur varðað 100 til 500
þúsund króna sekt, sem skal ákvarð-
ast eftir alvarleika brots. Sektina
greiðir sá „forsvarsmaður/skipu-
leggjandi þeirrar starfsemi eða sam-
komu sem um ræðir“.
Brot á reglum um notkun andlits-
grímu varða sekt að sömu upphæð
og fyrrgreint brot, að teknu tilliti til
alvarleika þess, en sektarheimildin
nær til þess einstaklings sem virðir
ekki reglur um notkun andlitsgrímu.
Sem fyrr er mælt fyrir sektum
fyrir brot á reglum um lokun sam-
komustaða og starfsemi vegna sér-
stakrar smithættu. Sektin yrði á
bilinu 100 til 500 þúsund krónur en
ákvarðast af alvarleika brots.
Áfram verður sektað fyrir brot
gegn skyldu til að fara eða vera í
sóttkví og brot gegn skyldum þeirra
sem eru í sóttkví, sem geta verið á
bilinu 50 til 250 þúsund krónur. Að
lokum haldast fyrirmæli um sektir
við brotum á reglum um einangrun
óbreytt; þau varði 150 til 500 þúsund
krónum, eftir alvarleika brots. Sú
sektarheimild nær þó einungis til
fyrsta brots, sem fyrr.
veronika@mbl.is
Sektað vegna
grímuskyldu
Ríkissaksóknari gefur út ný fyrirmæli