Morgunblaðið - 19.08.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020
Hraunbær 103 (a, b, c)
110 REYKJAVÍK
Einstaklings-, 2ja og 3ja herbergja íbúðir
Vandaðar innréttingar og tæki frá
Bræðrunum Ormsson
Steinborðplötur
Votrými flísalögð
Mynddyrasímar
Stæði í bílakjallara fylgir flestum íbúðum
Glæsilegt útsýni og stutt í útivist og alls
kyns þjónustu
STÆRÐIR FRÁ 44,7FM / FJÖLBÝLI 1-2-3 HERB
Verð frá 42.500.000
Heyrumst
Lára Þyri Eggertsdóttir
Löggiltur fasteignasali
899 3335
lara@fastlind.is
Heyrumst
Stefanía Björg Eggertsdóttir
Viðskiptafræðingur
aðstoðamaður fasteignasala
895 0903
stefania@fastlind.is
OPIÐ HÚS FIMMTUDAGINN 20. ÁGÚST FRÁ KL. 12:15-12:45
60 ÁRA OG ELDRI
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Framkvæmdir hófust nú í vikubyrjun
við hækkun og endurbætur á sjó-
varnargarði á Skarðseyri, sem er
nyrst á hafnarsvæðinu á Sauðárkróki.
Garðurinn er hækkaður í fimm metra
og fyllt í skörð, en mannvirkið lask-
aðist verulega í aftakaveðri á norð-
anverðu landinu í desember á síðasta
ári. Þá gekk sjór og flæddi inn á eyr-
ina sunnan við garðinn þar sem er
starfsemi Fisk Seafood og fleiri fyrir-
tækja.
Kalli var svarað
Tvívegis eftir áramót flæddi svo
aftur yfir á þessum slóðum, en þá
hafði verið leitað til samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytisins um fjár-
framlög til úrbóta. Því kalli var svarað
jákvætt, enda mikil umræða og góður
skilningur á því eftir hamfarir vetr-
arins að víða þyrfti að endurbæta inn-
viði úti um land, segir Sigfús Ingi Sig-
fússon, sveitarstjóri í Skagafirði.
Sjóvarnargarðurinn sem nú er
unnið við er alls 450 metrar. Þá er
sandfangari á þessum slóðum, grjót-
garður sem þarna liggur út í sjóinn
lengdur um helming, eða úr 30 metr-
um í 60 metra. Til alls þessa þarf alls
13.600 rúmmetra af grjóti sem tekið
er úr námi – aukinheldur sem 1.300
rúmmetrar af hleðsluefni eru færðir
til og þeim endurraðað. Þessar fram-
kvæmdir sem hófust á mánudaginn
eru í höndum Víðimelsbræðra ehf. í
Varmahlíð, en tilboð þeirra í verkið
var upp á 77,3 milljónir króna. Það
var 89,8% af kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar sem var upp á 86,1 millj-
ón króna. – Þörf er svo á frekari fram-
kvæmdum á þessum slóðum, svo sem
að byggja betur upp sjóvarnargarð
sem liggur samsíða Strandvegi sem
er sunnan Skarðsheiðar.
Aflahöfn og miklir flutningar
„Þessi framkvæmd er afar þörf og
mikilvæg. Hafnarsvæðið verður á eft-
ir, fari allt að vonum, miklu öruggara
og með lengri sandfangara sem ætti
að draga úr þeim miklu efnisflutn-
ingum sem hafa verið hér við fjör-
una,“ segir Dagur Þór Baldvinsson
hafnarstjóri Skagafjarðarhafna.
Umsvif við höfnina á Sauðárkróki
eru mikil og hafa aukist mikið síðustu
ár. Þar var landað um 30 þúsund
tonnum af fiski á síðasta ári - afla
meðal annars frá skipum Fish Sea-
fodd, Vísis og Brims. Hefur vaxandi
umferð við höfnina leitt til þess að nú
er þörf á meira viðleguplássi við höfn-
ina og frekari úrbótum á aðstöðu allri.
Það snýr einnig að stórflutningum um
Sauðárkrókshöfn, en komur flutn-
ingaskipa þangað á síðasta ári voru
alls um 80. Voru það skip sem m.a.
komu til að sækja sjávarafurðir, kjöt
og steinull - en aðflutningur var meðal
annars áburður til bænda í héraði.
Endurbæta sjóvarnargarð
Stórframkvæmd á Sauðárkróki Garður hækkaður og fyllt í skörð Víðimelsbræður
sjá um verkið Innviðaverkefni eftir óveðrið í desember Vaxandi umsvif við höfnina
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sauðárkrókur Dagur Þór Baldursson hafnarstjóri Skagafjarðarhafna hér á Skarðseyri þar sem framkvæmdir hóf-
ust í vikunni. Búsifjar urðu á þessum slóðum í aftakaveðri í desember á síðasta ári, eins og víða á Norðurlandi.
„Ég fékk hringingu klukkan 18:24
en hafði bara kortér til að gera
eitthvað,“ segir Steingrímur Garð-
arsson, eigandi línubátsins Jökuls
SK-16 sem sökk við bryggju í
Hafnarfjarðarhöfn síðastliðinn
mánudag.
Steingrímur segir að um talsvert
tjón sé að ræða en vill ekki geta sér
til um orsakir þess að báturinn
sökk. „það verður að koma í ljós
þegar hann kemur upp.“
Jökull er skráður á Sauðárkróki
þaðan sem hann var síðast við
rækjuveiðar, en báturinn hefur
staðið óhreyfður í Hafnarfirði síð-
astliðin fjögur ár. Tilkynning barst
frá vegfaranda um að Jökull væri
farinn að hallast verulega við
bryggju og var Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðis fyrst á vettvang. Að
sögn varðstjóra „var hann sokkinn
þegar við mættum, þetta hefur
greinilega gerst mjög hratt“.
Lúðvík Geirsson hafnarstjóri
segir að þar á bæ hafi menn
brugðist strax við. Aðrir bátar
lágu bundnir við Jökul og „voru
farnir að sökkva töluvert“. Næsta
verk var að girða bátinn af með
flotgirðingu til að koma böndum á
mögulegan olíuleka. Lúðvík segist
vona að gengið verði hratt og
örugglega til verka við að koma
bátnum á flot, því ekki gangi að
hafa hann þarna til lengdar. Af
því hljótist „mengun og slysa-
hætta“.
Hinrik Hinriksson hjá Köfunar-
þjónustunni staðfestir að fyrir-
tækið hafi fengið það verkefni að
lyfta bátnum og segir að farið
verði í verkið á háfjöru á fimmtu-
dag.
Spurður um tryggingar á bátn-
um segir eigandinn að „það þurfi
að fara yfir það mál“.
sighvaturb@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sokkinn Jökull SF-16 sökk við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn sl. mánudag.
Undirbúningur við
að koma Jökli á flot
Sökk við bryggju í Hafnarfirði Bar
brátt að Orsakir óljósar að svo stöddu
Hrefnuveiðar við Noreg hafa gengið
betur í ár heldur en fjögur síðustu
sumur. Nú er búið að veiða 462
hrefnur af 1.272 dýra kvóta. Í fyrra
veiddust 429 dýr og var vertíðin sú
lélegasta í 20 ár. Byrja mátti veið-
arnar 1. apríl og stunduðu tólf bátar
hrefnuveiðar í sumar. Enn eru tveir
bátar að veiðum, en vertíðinni er um
það bil að ljúka.
Fram kemur á vefsíðu norska
Ríkisútvarpsins, NRK Nordland, að
verð fyrir hrefnukjöt hafi aðeins
hækkað frá síðasta ári og eftirspurn
aukist. Áhersla hafi verið lögð á
markaðssetningu og gæði vörunnar
og það hafi skilað sér.
Í fréttinni kemur fram að Norð-
menn hafi verið á faraldsfæti innan-
lands í sumar og margir lagt leið
sína norður á bóginn. Margir sem
hafi heimsótt veitingahús í Norður-
Noregi hafi bragðað hvalkjöt í fyrsta
skipti.
Hvalveiðar eru ekki stundaðar við
Ísland í ár, hvorki veiðar á stór-
hvelum né hrefnu.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Veiðar Komið með hrefnu til lönd-
unar á Ísafirði fyrir nokkrum árum.
Góður gang-
ur í hrefnu-
veiðum
Norðmanna