Morgunblaðið - 19.08.2020, Page 14

Morgunblaðið - 19.08.2020, Page 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020 Nú stöndum við frammi fyrir að veiran Covid-19 vill ekki gefa eftir og læðist um í samfélaginu. Hvað er þá til ráða fyrir okkur eldra fólkið? Við vilj- um standa okkur og erum að gera það. Samkvæmt öllu sem okkar færustu aðilar í sóttvörnum segja eru varnir til, s.s. hand- þvottur, sprittun, hanskar og grím- ur, og ef farið er eftir reglum um nánd þá ættum við að geta lifað með þessu um einhvern tíma. Það er mikilvægt að við stöndum saman og þannig munum við komast í gegnum nokkra skafla þar til bólu- setning verður raunhæfur mögu- leiki. Á næsta leyti er svo hefð- bundin flensa sem mun koma síðar í vetur en bóluefni er á leiðinni og er það sérstaklega ætlað heilbrigð- isfólki, framlínufólki og svo eldra fólki. Verið því á verði og látið bólusetja ykkur fyrir hinni árlegu flensu. Samstaðan mun sigra í þessu eins og öðru. Vinnum líka að því að styðja fólkið okkar sem þess þarf, t.d. vegna einmanaleika og óöryggis. Margar lausnir eru til, s.s. símavinir, heimsóknarvinir og göngufélagar. Hreyf- ingin er alveg ómiss- andi og alls ekki hætta henni. Nota allt sem býðst bæði innan- og utanhúss svo og morg- unleikfimi í útvarpi sem hjálpar mörgum. Við skorum á RÚV að koma líka með leikfim- ina í sjónvarp. Nýr bæklingur um hvað er til ráða í einmanaleika er til og hægt að fá hann hjá LEB og fé- lögum eldri borgara um allt land. Unnið verður að því á næstunni að finna eldra fólk af erlendum uppruna sem talið er vera fé- lagslega einangrað. Mörg önnur verkefni eru í vinnslu og mun þar reyna á gang veirunnar líka. Þau verkefni snúa að mismunandi þáttum í okkar daglega lífi, s.s. akstri á efri árum til að skoða hvað fólk vill gera þeg- ar akstur verður of erfiður eða veikindi hindra. Unnið verður í samvinnu við Samgöngustofu en þar erum við að skoða nýjar leiðir sem vert er að skoða vel. Þá er mikilvægt að minna á spjaldtölvukennslu og kennslu- bæklinga sem voru unnir á vegum LEB til að efla tölvufærni eldra fólks. Nú er sérstök þörf á að efla færni þeirra sem hafa misst af raf- rænu breytingunni, s.s. að geta sótt um allt mögulegt á netinu, skilað gögnum eða farið í netbanka. Þetta eflir sjálfstæði eldra fólks auk þess sem samskipti við hina nánustu efl- ast. Þessi rafræna færni er gríðar- lega mikilvæg í dag því margar skrifstofur eru illa mannaðar vegna áhættu um smit. Áskorun til fólks og aðstandenda er að hjálpast að við að fjölga notendum rafrænna leiða. Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin er nú að hvetja fólk til að vernda andlegu heilsuna m.a. með því að hlusta ekki á marga frétta- tíma á dag um þessi veikindi um allan heim og gang þeirra því það geti leitt til þunglyndis og mikillar vanlíðunar. Jafnframt skorar stofn- unin á fólk að hreyfa sig oft og reglulega. Við þetta má bæta að það að nota jákvæða hugsun og uppbyggjandi samtöl er gott og gagnlegt okkur öllum. Fólk er hvatt til að leita læknis ef minnsti grunur leikur á ein- hverjum veikindum. Allt aðgengi að læknaþjónustu hefur stórbatnað og kemur Heilsuvera.is sterk inn. Kynning á Heilsuvera.is á að vera til á vef okkar. Heilsuvera.is er enn eitt dæmið um mikilvægi þess að geta verið virkur á netinu fram eft- ir aldri. Sú nýja leið sem er að opnast um sálfræðiþjónustu er afar brýn, ein- mitt við þessar aðstæður sem nú eru. Kynningu á hvernig og hversu oft hver getur sótt sér slíka hjálp munum við birta sem fyrst. Hvatning okkar í stjórn LEB til allra eldri borgara er að huga að hollustu næringar daglega. Holl rétt næring eflir mótstöðuafl hverrar manneskju. Mótstöðuaflið er máttur líkamans til að bregðast við áföllum og veikindum og eiga gott líf. Munum líka eftir lýsinu sem gefur okkur alltaf styrk. Sam- eiginlega munum við öll berjast fyrir því að eiga góð efri ár alla daga fram undan. Við getum öll hjálpast að við að ná góðum ár- angri gegn veirunni. Annar hluti veirunnar og hvað svo? Eftir Þórunni Sveinbjörnsdóttur » Þá er mikilvægt að minna á spjaldtölvu- kennslu og kennslu- bæklinga sem eru til hjá LEB á skrifstofunni í Sigtúni Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir Höfundur er formaður Lands- sambands eldri borgara formadur@leb.is Í Morgunblaðinu þann 31. júlí er rætt við Harald Benediktsson, alþingismann og vara- formann fjár- laganefndar Alþingis. Þar er erfitt að greina á milli þess hvað haft er eftir alþingismanninum og hvað eru hugleið- ingar blaðamannsins. Þingmaðurinn talar Beint er haft eftir alþingismann- inum: „Spítalinn er með gríðarlega möguleika til forgangsröðunar fjár- muna og ráðuneytið hefur verið að reyna að herða að útgjaldavexti síð- ustu ára. Svo þarf einnig að fara í önnur mikilvæg verkefni eins og til dæmis rekstur hjúkrunarheimila“. Svo segir einnig, „Sökum lakrar fjár- málastjórnunar Landspítala und- anfarin ár hefur verið kallað eftir leið- um til hagræðingar.“ Nú er það svo að Alþingi og heil- brigðisráðherra hafa sett hagræðing- arkröfur á Landspítalann á hverju ári. Að ekki sé talað um kröfur um forgangsröðun verkefna. Lök fjármálastjórn Ekki getur það talist lök fjár- málastjórn hjá Landspítalanum að kjarasamningar ríkisins við heilbrigð- isstéttir séu ekki í takt við áætlanir fjárlaganefndar. Ekki getur það talist lök fjármálastjórn að sókn eftir heil- brigðisþjónustu er umfram áætlanir og vilja fjárlaganefndar. Í hverju liggur lök fjármálastjón Landspít- alans? Nú kann að vera svo komið að kraf- an á forgangsröðun í heilbrigðiskerf- inu sé fallin á stjórnmálamenn. Stjórnmálamenn þurfa þá að fara að ákveða hvaða sjúklingar eiga að lifa og hverjir eiga að deyja. Það er í raun pólitísk ákvörðun. Biðtími ráðherra Stjórnmálamenn hafa nú þegar ákveðið hvað er eðlilegur bið- og kvalatími eftir lið- skiptaaðgerðum. Stjórn- málamenn hafa einnig ákveðið hvað er eðlileg- ur sjónleysistími í bið eftir augasteinsaðgerð- um. Þessar aðgerðir eru mjög vel fallnar til útboða til þess að fá hagstætt verð í veitta þjónustu. Af einhverjum ástæðum hefur heilbrigð- isráðherra ekki verið fáanlegur til þess að stytta biðtíma fyrir þessar að- gerðir með því að fara út fyrir Land- spítalann til að kaupa slíka þjónustu, sem oft og tíðum er alls ekki spít- alaþjónusta heldur stofuþjónusta. Fyrirbyggjandi Hvað sem þessu líður er þó alltaf brýnt að leggja áherslu á fyrirbyggj- andi heilbrigðisþjónustu, sem borg- ararnir taki þátt í frá upphafi lífsfer- ilsins, með því að þeir stundi heilbrigt líferni, í mataræði, hreyfingu, stand- ist tóbaksnautnina og forgangsraði sjálfir. Þá minnkar kvöl og völ stjórn- málamannanna. Þá minnkar sök um laka fjár- málastjórn hjá Landspítalanum. „Sökum lakrar fjár- málastjórnunar“ Eftir Vilhjálm Bjarnason Vilhjálmur Bjarnason » Stjórnmálamenn þurfa þá að fara að ákveða hvaða sjúklingar eiga að lifa og hverjir eiga að deyja. Það er í raun pólitísk ákvörðun. Höfundur var alþingismaður. Á tímum Jörundar hundadagakon- ungs og Napóleonsstyrjalda var ekki mikið um veisluhöld á Íslandi, enda viðvarandi fátækt og óáran. Þó hafa geymst frásagnir útlend- inga af matarboðum þar sem vel var veitt, eins og þegar breskir aðals- menn sóttu Ólaf Stephensen heim í Viðey. Þar var borið fram steikt lamb, sagósúpa, sykraðar pönnukök- ur, sagóbúðingur í hnausþykkum rjóma og vínflaska hjá hverjum diski til að skola niður matnum. Að end- ingu heitt púns og þá voru gestir að niðurlotum komnir og báðu Guð sér til hjálpar. Á hundadögum núna þýðir lítið að fara í stórmarkað til að kaupa hvunndagsmat. Þessa dagana er allt upp á grill og grafið. Þar er mikið úrval og hægt að efna í garðveislu ekki síðri en hjá stiftamtmanninum forðum. Það má fá tomahawk-steik, krydd- legnar hunangsgljáðar kótilettur, einiberjagrafinn lambavöðva og tan- doori-kjúklingalæri. Líka grillaðar salsanautalundir, en best leist mér samt á glóandi snobbborgara. End- aði þó í fiskbúðinni og bað um þver- skorna ýsu. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Kryddlegnir hundadagar Fiskbúð Bréfritari er hrifnari af fiski en kjöti. Fasteignir Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is Bókhald & ráðgjöf - Eignaskiptayfirlýsingar & skráningartöflur Numerus – bókhald og ráðgjöf / Suðurlandsbraut 22 / S. 896 4040

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.