Morgunblaðið - 19.08.2020, Page 16

Morgunblaðið - 19.08.2020, Page 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020 ✝ Áslaug BryldSteingríms- dóttir fæddist í Reykjavík 21. apríl 1932. Hún lést á Gentofte-sjúkra- húsi í Danmörku 28. júní 2020 eftir stutt veikindi. Foreldrar henn- ar voru Steingrím- ur Gunnarsson, f. 2. ágúst 1895, d. 4. september 1966, og Þuríður Guðjónsdóttir, f. 12. júlí 1896, Börn þeirra eru: 1) Lisa Þuríður Poulsen (fædd Bryld), f. 21. apríl 1959, gift Jacob Poulsen, f. 1953, son- ur þeirra er Jonathan, f. 1993, og 2) Lars Erik Bryld, f. 30. október 1964, kvæntur Stellu Bryld (fædd Mortensen), f. 1965. Börn þeirra eru Emilie, f. 2000, og Marcus, f. 2002. Áslaug var jarðsungin frá kapellu Gentofte-sjúkrahúss þann 3. júlí 2020 í návist fjöl- dskyldu og vina í Danmörku. Bálför hennar var gerð á Bispebjerg Krematorium í Dan- mörku þann 9. júlí 2020. Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju í dag, 19. ágúst 2020, klukkan 15. Hún verður jarðsett í Gufuneskirkjugarði. d. 12. nóvember 1960. Systkini Ás- laugar voru Guð- jón, f. 1917, d. 1996, Jórunn Ásta, f. 1920, d. 1998, Gunnhildur Ásta, f. 1925, d. 2006, Guðni, f. 1927, d. 1928, Ásdís, f. 1931, d. 2018, og Margrét Unnur, f. 1933, d. 2016. Maki: Erik Bryld, f. 1933, yf- irlögregluþjónn. Þau skildu. Móðir mín, Áslaug Steingríms- dóttir, var næstyngst í 7 barna fjölskyldu. Foreldrar hennar voru bæði frá Eyrarbakka en höfðu flust til Reykjavíkur árið 1926 þar sem faðir hennar, sem var afi minn, starfaði sem bíl- stjóri og ökukennari. Hún ólst upp í Reykjavík, fór í Kvennaskólann og lauk Verslunarskólaprófi. Systkina- hópurinn var stór, þar var einn drengur og 5 stúlkur en það var ömmu og afa mikilvægt að gefa stelpunum sínum jafn góða menntun og syninum til að tryggja að þær gætu líka staðið á eigin fótum og framfleytt sér og sínum börnum ef þess yrði þörf. Vakandi áhugi mömmu, for- vitni og nýjungagirni færðu hana til Danmerkur. Árið 1956 fór hún til Kaupmannahafnar á hús- stjórnarskóla ásamt vinkonu sinni. Það átti bara að vera eins árs dvöl en þá bauðst henni starf á söluskrifstofu sem Icelandair var að opna í Kaupmannahöfn. Foreldrar mínir gengu í hjóna- band þ. 3. apríl 1958 í Strø-kirkju á Norður-Sjálandi í Danmörku. Bæði kirkjan og staðsetningin voru langt frá þeirra heimili en presturinn, Finn Tulinius, var dansk-íslenskur, talaði bæði dönsku og íslensku og gat því gefið þau saman á bæði dönsku og íslensku og fjölskyldur beggja gátu fylgst með. Mamma starfaði hjá Iceland- air í Kaupmannahöfn í 9 ár eða þar til fjöldskyldan flutti út fyrir bæinn og hún átti langan feril við skrifstofustörf í Danmörku eftir það. Hennar ferill hófst löngu áð- ur en mannauðsdeildir, starfsþróunarsamtöl og símennt- un komu til sögunnar. Það var þannig í hennar kynslóð að ef maður stóð sig vel og var sam- viskusamur og vinnuveitandinn var ánægður með frammistöðuna þá opnuðust allar dyr og maður fékk góð verkefni og tækifæri. Síðustu 20 ár starfsævinnar vann hún við Kaupmannahafn- arháskóla, fyrst á slavisk institut og síðustu 10 ár starfsferilsins á Stofnun Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn og hún naut þess að tala móðurmálið daglega við starfsfólk og námsmenn. Pabbi og mamma skildu eftir rúmlega 30 ára hjónaband og um svipað leiti hætti hún störfum og fór á eftirlaun. Fjölskyldan var henni mikil- væg og þá fyrst og fremst börn og barnabörn og svo íslenska fjöl- dskyldan. Ef henni fannst hún einmana síðustu ár ævi sinnar var það að mestu vegna þess að hún gat ekki farið sinna ferða jafn auðveldlega og áður. Því eins og hún oft sagði við mig: „Þú verður að muna að ég er úr mjög stórri fjölskyldu.“ Það var að sjálfsögðu fjölskyldan heima á Ís- landi sem hún var að meina. Í bókahillu hennar voru auð- vitað skáldsögur og orðabækur en líka bækur um ýmis tölvufor- rit og iPad og snjallsíma. Hún las bæði dönsk og íslensk dagblöð á iPadinum daglega og notaði hann til að horfa á sjónvarpið. Mamma var það sem kallað var háttprúð manneskja sem kom fram við alla af sömu alúð og virðingu og hún vænti að aðrir sýndu henni. Hún lagði metnað sinn í að hafa allt sitt í röð og reglu og hún sinnti eigin málum af fagmennsku langrar starfsævi. Maður gleymdi því oft hvað hún var gömul vegna þess að hún var svo sjálfstæð og fær um að sjá um allt. Það var ósk hennar að vera jarðsett á Íslandi því – eins og hún sagði – þá gæti hún legið þar og „horft upp á íslensku stjörn- urnar“. Fyrir okkur börnin sem erum búsett í Danmörku verður þetta kærkomið tækifæri til að gera sér margar ferðir til Íslands til að vitja hennar á hennar heimavelli í faðmi stórrar fjöldskyldu. Hennar verður sárt saknað – blessuð sé minning hennar. Lisa Þuríður Poulsen. Ég man fyrst eftir Áslaugu þegar við, Gyða systir mín og ég, fluttum í Bergstaðarstræti 65 í Reykjavík. Á þeim tíma vorum við um 5-6 ára. Áslaug bjó þar í sama húsi með föður sínum og móður og fimm systkinum. Við fórum fljótt að leika okkur saman og ég sé fyrir mér kjallaratröpp- ur þar sem við höfðum sett upp matvöruverslun. Við Gyða lékum okkur við „þríburana“ Ásdísi, Ás- laugu og Mæðu á hverjum degi. Á sumrin fórum við í boltaleiki auð- vitað með öðrum börnum í göt- unni. Á hverjum sunnudegi fór- um við í sunnudagaskólann hjá KFUM og stundum í barnaguðs- þjónustuna seinna um daginn. Við elskuðum að syngja og þá sátum við saman uppi og sungum fullum hálsi. Við höfðum líka gaman af að passa börn, það er að segja fara í göngutúra með smábörn í barna- vagni. Við Gyða fluttum frá Berg- staðastræti þegar við vorum um 12 ára og fórum þá líka í annan skóla og eftir það hittumst við ekki jafn oft. Við héldum þó sam- bandi hvor við aðra og seinna meir þegar við vorum örlítið eldri kom okkur Áslaugu saman um að það gæti verið gaman að fara til Danmerkur og heimsækja Gyðu, sem þá var flutt til Danmerkur og hafði giftst dönskum manni. Við fórum saman í danskan hús- mæðraskóla í Kaupmannahöfn og í kjölfar skólavistarinnar hitt- um við báðar þá drengi sem síðar áttu eftir að verða eiginmenn okkar – og við settumst að í Dan- mörku. Nana Kristensen. Áslaug Bryld Steingrímsdóttir ✝ Erna Ein-arsdóttir Vartia fæddist í Keflavík 22. mars 1953. Hún lést á heimili sínu í Hels- inki 20. júlí 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Einar Guðmundsson flug- vélstjóri, f. 19.4. 1924, d. 20.12. 2005, og Jóhanna Péturs- dóttir húsmóðir, f. 10.3. 1925, d. 31.1. 2015. Systkini Ernu: 1) Róbert Guðni, f. 2.2. 1946, d. 21.9. 1947. 2) Elísabet, f. 25.8. 1948, maki Sigurður (látinn), börn þeirra eru Guðrún og Einar. Eiga þau 4 barnabörn. 3) Róbert Guðni, f. 3.2. 1951, maki Steinunn Hrefna, börn þeirra eru Regína, Rík- arður og Rakel. Eiga þau 6 barnabörn. 4) Edda Jóhanna, f. 5.12. 1958, maki Ævar (skilin), börn þeirra eru Lísa Jóhanna og Daníel Vilberg. Maki Eddu er að sér ýmis störf hér á landi, meðal annars fiskvinnslu og sýn- ingarstörf. Leið hennar lá í flug- iðnaðinn eins og fleiri í fjölskyld- unni. Þar starfaði hún sem hlaðfreyja og flugfreyja. Með- fram flugfreyjustörfum lék hún í sjónvarpsþáttum með Halla og Ladda. Í pílagrímsflugi kynnist Erna manni sínum Esko 1977 og flutti til hans heimalands árið 1979. Þau giftust í maí 1980 og eignuðust þrjú börn, Antero, Noru og Lottu. Fjölskyldan bjó í úthverfi Helsinki en leiðir Ernu og Esko skildu 1989. Í Finnlandi tók Erna sér margt fyrir hendur, rak hún fatabúðirnar Buddy og Cotton House og vann sem stöðv- arstjóri fyrir Flugleiðir og síðar hjá Tellabs. Antero sonur Ernu átti rekstur á markaðstorgi í Helsinki þar sem Erna tók til starfa 2005 og eignaðist hún reksturinn 2015. Í desember 2019 fæddist Aron, fyrsta barna- barn hennar. Útför Ernu verður gerð frá Garðakirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13. At- höfnin er einungis fyrir börn og systkini hinnar látnu vegna sam- komutakmarkana en henni verð- ur streymt frá Facebook-síðu Ví- dalínskirkju. Jan. Börn hans eru Brian og Jonas. Þau eiga eitt barnabarn. 5) Pétur Arnar, f. 8.4. 1960, maki Katrín (skilin), börn þeirra eru Ólafur Þór, Einar Orri og Jóhann Pétur. Maki Péturs er Vala Björg. Börn Völu eru Guðmundur Borgar og Hrafn- hildur. Eiga þau 4 barnabörn. Erna giftist Esko Vartia 11. maí 1980, þau skildu árið 1989. Börn þeirra eru: 1) Antero, f. 22.8. 1980. 2) Elinora, f. 14.2. 1984, maki Cheyne Fowler, barn þeirra er Aron Arvo, f. 16.12. 2019. 3) Lisa-Lotta, f. 14.2. 1984. Erna fæddist í Keflavík, flutti stuttu síðar með foreldrum og systkinum til Noregs og síðar Þýskalands. Eftir þriggja ára dvöl erlendis fluttu þau heim í Silfurtún í Garðabæ og síðar Aratún í sama hverfi. Erna tók Elsku hjartagullið mitt. Þótt við hittumst eða heyrðumst ekki oft þá var ávallt eins og við hefð- um heyrst eða hist í gær. Ég tengi á svo margan hátt við þig, elsku besta frænka mín, hrútarn- ir tveir. Flissið allt og klaufaskapurinn. Ég heimsótti þig ein fyrir nokkr- um árum og man ég enn hvað það var fyrirhafnarlaus, skemmtileg og hlýleg samvera. Hugsaði ég oft um að endurtaka leikinn en svona er lífið. Einnig man ég vel eftir ferðinni þegar við Edda heimsóttum þig, þar var sko enn meira flissað. Minning mín um þig er brosið þitt og ástin þín til barna þinna og nú litla „pungs- ans“ hennar ömmu sinnar. Þitt skarð verður aldrei fyllt en við lofum að halda minningu þinni á lofti og góðum tengslum við börnin þín og barnabarn þótt eitt stykki haf liggi á milli okkar. Hvíl í friði. Elska þig. Þín frænka, Guðrún. Við Erna vorum 22ja ára, skellihlæjandi flugfreyjur á frí- miðaferðalagi, komnar alla leið til Havaí á fyrsta klassa í Boeing 747, hafandi ekki áhyggjur af neinu í veröldinni, nema hvar við ættum að gista í kvöld. Allt var fullt á háannatíma. Af öllu sem við hefðum getað gert, fórum við til spákonu. Þetta var alvöru spákona, með kristalskúlu og marglitar slæður og hún spáði því að við ættum eft- ir að eignast sjö börn. Við vorum að kafna úr hlátri. En kerlingin bætti um betur: Hún horfði á þessa dökku og brúneygðu konu fyrir framan sig og sagði: „Þú átt eftir að giftast manni, frá landi sem er kaldara en það sem þið komið frá og eitt af börnum þínum verður mjög hávaxinn drengur með hvítt hár og himinblá augu, sem á eftir að hafa mikil áhrif í sínu landi.“ Ég spurði hana reglulega síðar þegar hún hafði farið eitthvað: „Var Grænlendingur?“ Erna fór í pílagrímaflug, kynntist Esko Vartia og sonur þeirra, Antero, er tæpir tveir metrar á hæð, bláeygður með ljóst hár, landsþekktur fjölmiðla- maður í Finnlandi, athafnamað- ur, fv. þingmaður og átti sæti á Evrópuþinginu um tíma. Tvíburastelpurnar Lotta og Nora voru í landsliði Finna í fótbolta og eru nú einkaþjálfarar. Þar sem við sátum á ferðatösk- unum á ströndinni og hlógum að spádómnum, fór að verða aðkall- andi að finna gistingu. Þá vék sér að okkur fullorðinn maður, sem við könnuðumst við. Vegalausum flugfreyjum frá Íslandi yrði hann að bjarga, sem hann gerði og við bjuggum í íbúð á hans vegum næstu tvær vikurnar. Þetta reyndist svo vera bandarískur leikari sem lék afahlutverkið í vinsælum sjónvarpsþáttum. Þetta atvik var bara eitt af mörgum sem voru svo einkenn- andi fyrir brall okkar Ernu alla tíð og órjúfanlega vináttu. Við kynntumst þegar hún kom úr Garðabænum í Hlíðaskóla og við vorum ellefu ára. Síðan hefur líf okkar hægt og sígandi tekið á sig myndir úr spádómnum frá Havaí fyrir 45 árum. Finnland af öllum löndum. En fjarlægðin kom ekkert í veg fyrir náin samskipti okkar og ævilangt samtal í endalausum löngum sím- tölum og svo mörgum heimsókn- um til Helsinki með alla stroll- una. Erna var brilliant, vel gefin, hörkuduglegur hösslari. Alla tíð að finna viðskiptatækifæri. Sjarmeraði alla upp úr skónum með hlátri og kátínu og gat talað við alla. Alveg frá því að hún vann á Grándinni í KEF, sem flug- freyja, rak tískuverslanir, vinna fyrir Flugleiðir á flugvellinum í Helsinki og síðan minjagripasölu. Ömmuhlutverkið var rétt að byrja. Í desember sl. kom Aron og mikið var hún stolt amma. Honum fær hún að fylgjast með annars staðar frá. Um tvítugt missti Erna annað nýrað vegna veikinda og hún gerði mikið grín að því að það samræmdist ekki hennar lifnað- arháttum. Fyrir tuttugu árum tókst að komast fyrir krabbamein í henni með mikilli aðgerð. En hún var ekki veik. Það ítrekaði hún í einu af okkar löngu samtölum, einum og hálfum sólarhring áður en hún varð bráðkvödd. Við tökum upp þráðinn þegar þar að kemur. Við Helgi og börnin okkar fær- um allri fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Birna Pálsdóttir. Erna Einarsdóttir VartiaInnilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför MARGRÉTAR S. EINARSDÓTTUR. Fyrir hönd aðstandenda, Atli Pálsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORBJÖRN ÁRMANN FRIÐRIKSSON, Vörðu á Rangárvöllum, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 5. ágúst. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju föstudaginn 21. ágúst klukkan 14. Steingrímur Þorbjarnarson Þorgeir Þorbjarnarson Höskuldur Þorbjarnarson og fjölskyldur Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.