Morgunblaðið - 19.08.2020, Síða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020
60 ára Kristín ólst upp
í Borgarnesi en býr í
Reykjavík. Hún er sér-
fræðingur á þjónustu-
borði hjá Brimborg.
Kristín er formaður
Foreldraráðs MH.
Börn: Tvíburarnir Ingv-
ar Arndal Kristjánsson og Ómar Arndal
Kristjánsson, f. 1978, Anna Ólöf Krist-
jánsdóttir, f. 1983, og Jóhanna Katrín
Stefánsdóttir, f. 2001. Barnabörnin eru
orðin sjö.
Foreldrar: Jón Magnús Finnsson, f.
1927, d. 2001, veghefilsstjóri í Borgar-
nesi og hlunnindabóndi í Dagverðarnesi í
Dalasýslu, og Sólveig Guttormsdóttir, f.
1927, d. 2012, húsmóðir og hlunninda-
bóndi.
Kristín Finndís
Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er engin ástæða til að láta
stundarerfiðleika draga úr sér allan mátt.
Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
20. apríl - 20. maí
Naut Mundu að ekki verður tekið mark á
orðum þínum, nema þú eigir inneign fyrir
slíku trausti. Mundu að rósemi ýtir yfirleitt
undir hamingju.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er ekkert hlaupið að því að
raða lífsbrotunum saman svo vel fari til
framtíðar. Reyndu að ljúka öllum þeim
verkefnum sem þú hefur tekið að þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er stutt í einhvern stóratburð
sem þú þarft að vera reiðubúinn fyrir hvað
sem það kostar. Þolinmæði gæti skilað
þér stöðuhækkun á árinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þeim mun meira sem þú seilist eftir
heiminum öllum, þeim mun hamingjusam-
ari verður þú.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur sterkar skoðanir og er
meira en sama hvort aðrir deila þeim með
þér eða ekki. Gefðu þér tíma til að ræða
málin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Staldraðu við og hugleiddu hvort þú
vanrækir þína nánustu vegna vinnu. Fjöl-
skylda og vinir þurfa smávegis aðlögunar-
tíma.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einbeittu þér að þeim verk-
efnum sem fyrir liggja áður en þú tekur að
þér önnur og ný. Gefðu þér góðan tíma til
þeirra því annars áttu á hættu að þér mis-
takist.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Að vera góður hlustandi þarfn-
ast bæði þroska og aga, og þú hefur nóg
af hvoru tveggja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu þér ekki bregða þótt þú
uppgötvir einhver mistök. Einhver á heim-
ilinu þarf athygli þína núna en þú hefur
hugsanlega þörf fyrir einveru.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Notaðu daginn til þess að fara
yfir fjármálin og tékka á bankareikningum.
Einhvern misskilning þarf að leiðrétta
strax svo ekki hljótist af skaði.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Stundum eru það aðeins smáatriði
sem standa í veginum fyrir því að árangur
náist. Hlustaðu og hugleiddu svo hvort
það sé eitthvað til í því sem sagt er.
Nýlega afhentum við Mosfellsbæ
fjölnota íþróttahús sem hannað og
byggt var í svonefndum alverktöku-
samningi, sem snýr bæði að hönnun
og framkvæmd mannvirkis. Á þétt-
ingarreit við Stakkahlíð erum við að
byggja 60 íbúðir fyrir Samtök aldr-
aðra og nýlega erum við farnir af stað
með 100 íbúðir í alverktöku fyrir
„Það hafa verið næg framkvæmda-
verkefni á höfuðborgarsvæðinu hjá
Alverki síðustu misserin og verk-
efnastaðan er góð næstu árin mætti
segja. Þessa dagana erum við m.a. að
skila af okkur stóru verkefni til hús-
næðissamvinnufélagsins Búseta, en
byggingu 78 íbúða á Keilugranda í
Vesturbæ Reykjavíkur er að ljúka.
A
ðalgeir Hólmsteinsson er
fæddur 19. ágúst 1970 á
Akureyri og ólst þar
upp í Fjörunni og Inn-
bænum. „Fram eftir
aldri var ég mikið í Mývatnssveit á
sumrin hjá frændfólki mínu pabba
megin. Ég fékk þar strax mikinn
áhuga á veiði ýmiss konar,“ segir Að-
algeir.
Aðalgeir gekk í Barnaskóla Akur-
eyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar
en eftir 9. bekk varð hlé á skólagöngu
hans og fór hann til sjós í u.þ.b. þrjú
ár. „Ég stundaði vertíðarsjó-
mennsku, m.a. frá Hauganesi við
Eyjafjörð, Ólafsfirði, Grindavík og
Þorlákshöfn.“ Aðalgeir innritaðist að
því loknu eða 1989 í Verkmenntaskól-
ann á Akureyri á tæknisvið og lærði
samhliða framhaldsskólanáminu
múraraiðn og fór á samning hjá Sig-
urði Hannessyni, byggingameistara
á Akureyri. Hann vann við múrverk-
ið í nokkur ár, eða þar til sumarið
1997 að hann hélt utan ásamt fjöl-
skyldu sinni til Danmerkur í frekara
nám. Hann lærði iðnfræði (diploma)
og byggingafræði (B.Sc.) við Vitus
Bering tækniháskólann sem er í Hor-
sens á Jótlandi. „Ég lagði áherslu á
framkvæmdafræði mannvirkjagerð-
ar í náminu og útskrifaðist af fram-
kvæmda- og rekstrarsviði um ára-
mótin 2000/2001.“
Í sumarfríum meðfram námi hafði
Aðalgeir unnið á verkfræðistofunni.
Staðalhús sf. í Reykjavík og eftir að
námi lauk fluttist fjölskyldan til
Akureyrar þar sem hann starfaði á
arkitektastofunni Arkitektur.is í lið-
lega tvö ár. „Við söðluðum um árið
2003 og fluttum búferlum til Reykja-
víkur, þar sem ég hafði fengið starf á
mínu sérsviði hjá gamalgrónu bygg-
ingafyrirtæki, Sveinbirni Sigurðs-
syni hf. Þar starfaði ég óslitið og
lengst af sem framkvæmdastjóri til
ársloka 2007, en þá sagði ég skilið við
mína lærifeður.“ Aðalgeir hafði þá
stofnað bygginga- og verkfræði-
fyrirtækið Alverk ehf. sem hefur
hægt og rólega vaxið og dafnað og er
í dag á meðal stærri fyrirtækja í
mannvirkjagerð á landsvísu. Að-
algeir er enn aðaleigandi félagsins og
starfar í dag sem framkvæmdastjóri
þess.
Byggingafélag námsmanna. Við
Bergþórugötu erum við með í bygg-
ingu nýtt áfangaheimili fyrir
Kvennaathvarfið svo eitthvað sé
nefnt. Auk þessa eru nokkur verkefni
í þróun og undirbúningi, þannig að ég
get ekki annað en horft björtum aug-
um til framtíðar varðandi rekstur
fyrirtækisins með því klára og
atorkusama fólki sem ég hef í kring-
um mig.“
Aðalgeir er mikill áhugamaður um
stangveiði. „Ég stunda fluguveiði af
nokkurs konar ástríðu. Ég á mér at-
hvarf norður á Ströndum, nánar til-
tekið í Bitrufirði, þar sem ég hef ver-
ið með litla laxveiðiá í fóstri og er að
rækta hana upp ásamt landeigendum
þar.“ Aðalgeir er einnig félagi í
Stangveiðifélagi Reykjavíkur
(SVFR) og sinnir þar nefndar-
störfum, í dag sem árnefndarmaður í
Straumfjarðará á Snæfellsnesi.
„Að auki skipar tónlist stóran sess
í mínu lífi, ég er tónlistaráhugamað-
ur, spila misvel á nokkur hljóðfæri og
vinn af og til í tónlist/tónsmíðum með
góðu fólki. Ég hef yndi af því að
ferðast erlendis, kynnast ólíkum
menningarheimum, og ekki síður
áhuga á ferðalögum innanlands, að
Aðalgeir Hólmsteinsson, framkvæmdastjóri Alverks – 50 ára
Fjölskyldan Aðalgeir, Stefanía, Jóhanna Guðrún og fyrir framan er Silja með labrador-hundinn Jökul.
Stýrir vaxandi byggingafyrirtæki
Fluguveiðimaðurinn Aðalgeir í
Bitrufirði á Ströndum á dögunum.
Feðgar Aðalgeir tveggja ára á
hestbaki með aðstoð föður síns.
40 ára Ágúst ólst upp
í Kópavogi en býr í
Reykjavík. Hann er
viðskiptafræðingur að
mennt frá Háskól-
anum í Reykjavík og
er stjórnunarráðgjafi
hjá Viti ráðgjöf og tón-
listarmaður. Ágúst gaf út sjálfsævisög-
una Riddarar hringavitleysunnar.
Maki: Margrét Vignisdóttir, f. 1990, nemi
í HR.
Börn: Hekla Petronella, f. 2007, og
Steinunn Lóa, f. 2019. Stjúpsonur er
Birkir Freyr, f. 2014.
Foreldrar: Steinarr Steinarrsson, f. 1957,
bifvélavirki, og Ásta Gunna Kristjáns-
dóttir, f. 1958, bókari. Þau eru búsett í
Hafnarfirði.
Ágúst Kristján
Steinarrsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is