Morgunblaðið - 19.08.2020, Qupperneq 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020
Mjólkurbikar karla
16-liða úrslit:
Valur - ÍA.................................................. 3:1
Patrick Pedersen 12., Lasse Petry 69., Ein-
ar Karl Ingvarsson 90. - Steinar Þorsteins-
son 74.
Rautt spjald: Aron Kristófer Lárusson (ÍA)
65.
2. deild karla
Víðir – KF ................................................. 2:0
ÍR – Fjarðabyggð..................................... 0:1
Staðan:
Kórdrengir 9 6 2 1 19:5 20
Haukar 9 6 0 3 19:11 18
Fjarðabyggð 10 5 3 2 18:10 18
Njarðvík 9 5 2 2 14:10 17
Selfoss 9 5 1 3 14:11 16
Þróttur V. 9 4 4 1 11:8 16
KF 10 5 0 5 17:18 15
Kári 9 4 2 3 16:11 14
ÍR 10 3 1 6 16:18 10
Víðir 11 3 0 8 9:28 9
Dalvík/Reynir 9 1 2 6 10:19 5
Völsungur 10 1 1 8 15:29 4
Meistaradeild karla
1. umferð:
Dinamo Brest - Astana............................ 6:3
Rúnar Már Sigurjónsson var sat allan
tímann á varamannabekk Astana.
Qarabag - Sileks ....................................... 4:0
Legia Varsjá - Linfield............................. 1:0
Celtic - KR ................................................ 6:0
Rauða stjarnan - Europa ......................... 5:0
KNATTSPYRNA
Úrslitakeppni NBA
Milwaukee – Orlando ........................110:122
Staðan í einvíginu er 1:0-fyrir Orlando.
Indiana – Miami................................ 101:113
Staðan í einvíginu er 1:0-fyrir Miami.
KÖRFUBOLTI
Knattspyrna
Pepsi Max-deild kvenna:
Kópavogsvöllur: Breiðablik - Þór/KA ......18
Würth-völlurinn: Fylkir - ÍBV ..................18
Lengjudeild karla:
Framvöllur: Fram - Magni........................18
Nettóvöllurinn: Keflavík - Víkingur Ó. ....18
Þórsvöllur: Þór - Leiknir F. ......................18
Olísvöllurinn: Vestri - Leiknir R...............18
Hásteinsvöllur: ÍBV - Afturelding.......18.15
Laugardalur: Þróttur R. - Grindavík ..18.15
2. deild karla:
Ásvellir: Haukar - Völsungur....................18
Rafholtsvöllurinn: Njarðvík - Selfoss.......18
Dalvík: Dalvík/Reynir - Kórdrengir.........18
Akranes: Kári - Þróttur V. ........................18
Í KVÖLD!
10. UMFERÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Árbæingurinn og markvörðurinn Ce-
cilía Rán Rúnarsdóttir átti stórleik á
milli stanganna þegar lið hennar
Fylkir vann 1:0-sigur gegn Selfossi í
10. umferð úrvalsdeildar kvenna í
knattspyrnu, Pepsi Max-deild-
arinnar, á Jáverkvellinum á Selfossi á
sunnudaginn síðasta.
Cecilía Rán, sem varð 17 ára gömul
í lok júlí, er uppalin hjá Aftureldingu í
Mosfellsbæ en gekk til liðs við Fylki í
október 2018.
Þrátt fyrir ungan aldur á hún að
baki 23 leiki í efstu deild en hún fékk
þrjú M fyrir frammistöðu sína á Sel-
fossi.
„Það var mjög sterkt að leggja Sel-
fyssinga að velli á þeirra eigin heima-
velli,“ sagði Cecilía Rán í samtali við
Morgunblaðið. „Selfoss er með frá-
bært lið sem er afar vel mannað. Þær
eru þekktar fyrir mikla baráttu og
það er aldrei auðvelt að spila gegn
þannig liðum.
Það var því gríðarlega sætt að
vinna þær 1:0 og að halda hreinu í
þokkabót var skemmtilegur bónus.“
Fylkiskonur hafa komið á óvart í
sumar en liðið, sem var nýliði í efstu
deild á síðustu leiktíð, er í þriðja sæti
deildarinnar með 17 stig.
„Við vitum hvað við getum og mér
fannst við sýna það á undirbúnings-
tímabilinu. Við förum inn í hvern ein-
asta leik með það að markmiði að
vinna hann en mér finnst við samt
sem áður eiga helling inni og við eig-
um ennþá eftir að sýna okkar bestu
hliðar í sumar.
Við höfum verið að leggja mjög
hart að okkur á æfingasvæðinu að
undanförnu og vonandi tekst okkur
að sýna okkar rétta andlit á seinni
hluta keppnistímabilsins.“
Mikil samheldni í Árbænum
Cecilía var einungis 15 ára gömul
þegar hún var að stíga sín fyrstu
skref í efstu deild á síðustu leiktíð.
„Ég er virkilega þakklát Kjartani
[Stefánssyni], þjálfara Fylkis, fyrir
það traust sem hann hefur sýnt mér.
Ég var einu ári yngri í fyrra en fékk
samt traust sem aðalmarkvörður liðs-
ins þegar Fylkir var nýliði í efstu
deild.
Ég hef æft mjög vel og mark-
mannsþjálfari Fylkis, Þorsteinn
Magnússon, hefur hjálpað mér mikið
undanfarin tvö tímabil, sem og Kjart-
an auðvitað.
Þegar allt kemur til alls þá hefur
mér liðið mjög vel í Árbænum alveg
frá því að ég kom hingað fyrst og þeg-
ar manni líður vel þá spilar maður
vel.“
Árbæingar fengu til sín unga og
öfluga leikmenn fyrir tímabilið í ár og
það hefur svo sannarlega skilað sér.
„Það hefur verið mikil stígandi í
þessu hjá okkur og við erum alltaf að
bæta okkur sem lið. Hópurinn er
mjög samheldinn og við erum allar
góðar vinkonur. Þá hafa þeir leik-
menn sem komu til okkar fyrir sum-
arið komið mjög vel inn í þetta.
Ég spilaði með bæði Evu Rut og
Söru Dögg [Ásþórsdætrum] í Aftur-
eldingu og Írisi Unu og Kötlu Maríu
[Þórðardætrum] í U17 þannig að ég
vissi hvað þessir leikmenn gátu. Þær
komu inn með mikil gæði í hópinn og
þá eru þær allar sterkir karakterar
sem gerir okkur mjög gott í klef-
anum líka.“
Draumur að rætast
Cecilía Rán var valin í A-landsliðið
í fyrsta sinn í ágúst 2019 og þá lék
hún sinn fyrsta leik með liðinu á Pi-
natar-Cup æfingamótinu á Spáni
gegn Norður-Írlandi í byrjun mars á
þessu ári.
„Það var fyrst og fremst heiður að
vera valin í landsliðið og að fá að
spila sinn fyrsta leik var sannkall-
aður draumur. Að koma inn í hópinn
var frábær tilfinning og það var
virkilega gaman að taka þátt í þessu
öllu. Hvort sem það var að vera í
klefanum eða bara á æfingasvæðinu
enda eitthvað sem mann hefur
dreymt um frá því að maður var að
stíga sín fyrstu skref í fótboltanum.
Þegar allt kemur til alls er ég fyrst
og fremst þakklát fyrir tækifærið og
að hafa verið valin en í dag einbeiti
ég mér alfarið að Fylki því ef þú ætl-
ar að fá tækifæri með landsliðinu
þarftu fyrst og fremst að standa þig
vel með félagsliðinu þínu,“ bætti Ce-
cilía við.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Spútnikliðið á enn eftir að
sýna á sér sparihliðarnar
Cecilía Rán Rúnarsdóttir reyndist Selfyssingum óþægur ljár í þúfu
Gripinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur verið einn besti markvörður úrvalsdeildarinnar í sumar.
Allar líkur eru á því að Valsmenn
dragi sig úr Evrópudeildinni í
handknattleik vegna ferðatak-
markana í kringum kórónuveiru-
faraldurinn. Þetta staðfesti Gísli
Gunnlaugsson, formaður hand-
knattleiksdeildar Vals, í samtali við
Valtý Björn Valtýsson í útvarps-
þættinum Minni skoðun á Sport FM
í gær. Valsarar eiga að mæta Hol-
stebro frá Danmörku í fyrstu um-
ferðinni í lok ágústmánaðar og áttu
báðir leikirnir að fara fram í Dan-
mörku. kristoferk@mbl.is
Mikil óvissa á
Hlíðarenda
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfari Snorri Steinn Guðjónsson
hefur náð góðum árangri með Val.
Sveindís Jane Jónsdóttir er í fjórða skipti í úrvalsliði Morgunblaðsins í
Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta, en úrvalslið 10. umferðar má sjá hér fyr-
ir ofan. Sveindís átti afar góðan leik fyrir Breiðablik í 7:0-sigri á FH á
mánudag. Agla María Albertsdóttir, liðsfélagi hennar, er í úrvalsliðinu í
þriðja skipti en hún skoraði þrennu í sama leik. Gunnhildur Yrsa Jóns-
dóttir spilaði sinn fyrsta leik með Val gegn KR, stóð sig mjög vel og er því í
úrvalsliðinu. Er hún ein þriggja í liðinu í fyrsta skipti í sumar.
Sveindís Jane og Agla María eru efstar í M-gjöf Morgunblaðsins í sumar
með 10 M hvor. Þar á eftir koma Laura Hughes, Þrótti, Cecilía Rán Rún-
arsdóttir, Fylki, og Valskonurnar Elín Metta Jensen og Hlín Eiríksdóttir.
johanningi@mbl.is
10. umferð
í Pepsi Max-deild kvenna 2020
3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Fylki
Karlina Miksone
ÍBV
Sveindís Jane Jónsdóttir
Breiðabliki
Þórdís Elva
Ágústsdóttir
Fylki
Fatma Kara
ÍBV
Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir
Val
Hulda Ósk
Jónsdóttir
Þór/KA
Arna Dís
Arnþórsdóttir
Stjörnunni
Kristín Dís Árnadóttir
Breiðabliki
Agla María Albertsdóttir
Breiðabliki
Hallbera Guðný
Gísladóttir
Val
4 3
2
2
2
2
2
2
Sveindís í fjórða skipti
Knattspyrnudeild ÍA hefur gengið
frá samningi við Guðmund Tyrfings-
son. Kemur hann til félagsins frá Sel-
fossi og gerir tveggja ára samning.
Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára
hefur Guðmundur leikið 32 leiki með
meistaraflokki Selfoss og skorað
átta mörk. Gerði hann fernu í bik-
arleik gegn Snæfelli fyrr í sumar.
„Guðmundur er ungur og efnileg-
ur leikmaður sem passar vel inn í
okkar uppbyggingu. Hann er líka
með mikinn metnað til að ná langt í
fótbolta,“ sagði Jóhannes Karl Guð-
jónsson þjálfari ÍA.
ÍA fær ungan
Selfyssing til
liðs við sig
Handknattleiksmarkvörðurinn
Ólafur Rafn Gíslason hefur gengið
til liðs við ÍR frá Stjörnunni fyrir
komandi keppnistímabil en Breið-
holtsliðið sagði frá þessu á sam-
félagsmiðlum sínum í gær.
Ólafur spilaði 13 leiki fyrir
Stjörnuna á síðustu leiktíð áður en
Olísdeildinni var aflýst vegna kór-
ónuveirunnar en Stjarnan var þá í
áttunda sæti eftir 20 leiki, sjö stig-
um á eftir ÍR sem hafnaði í 6. sæti.
Næsta tímabil hefst 10. sept-
ember er ÍR mætir ÍBV.
Óðinn Sigurðsson og Sigurður
Ingiberg Ólafsson voru markmenn
ÍR á síðustu leiktíð.
ÍR semur við
markvörð
úr Garðabæ
Íslandsmeistarar KR í knattspyrnu
eru úr leik í Meistaradeildinni eftir
6:0-tap gegn Skotlandsmeisturum
Celtic í 1. umferð undankeppninnar
á Celtic Park í Glasgow í Skotlandi í
gær. Staðan að loknum fyrri hálfleik
var 3:0, Celtic í vil, en skoska liðið
var of stór biti fyrir íslenska liðið.
Celtic mætir annaðhvort Ferencv-
áros frá Ungverjalandi eða Djurg-
ården frá Svíþjóð í 2. umferðinni. Þá
er Evrópuævintýri KR ekki lokið því
liðið tekur þátt í annarri umferð
undankeppni Evrópudeildarinnar.
Meistararnir
töpuðu stórt
Ljósmynd/@CelticFC
Vörn Arnþór Ingi Kristinsson og
Ryan Christie eigast við í Glasgow.