Morgunblaðið - 19.08.2020, Síða 23
12. UMFERÐ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Daníel Hafsteinsson skoraði bæði
mörk FH sem gerði góða ferð á
heimavöll Íslandsmeistaranna í 12.
umferð Pepsi Max-deildarinnar í
knattspyrnu, vann KR 2:1 á föstu-
daginn. FH-ingar fóru þar með upp
að hlið KR, bæði lið eru með 17 stig,
eins og Breiðablik og jöfn í 3.-5.
sæti, en Vesturbæingar eiga leik til
góða.
Miðjumaðurinn, sem er hjá FH að
láni í sumar frá Helsingborg í Sví-
þjóð, fékk tvö M í Morgunblaðinu
fyrir frammistöðu sína gegn KR en
hann í raun réði úrslitunum í leik
þessara stórliða. Fyrst skoraði hann
af stuttu færi eftir fyrirgjöf Þóris
Jóhanns Helgasonar eftir að send-
ing Eggerts Gunnþórs Jónssonar,
sem var að leika sinn fyrsta leik fyr-
ir FH, opnaði vörnina hjá KR. Eftir
að heimamenn höfðu jafnað metin
var Daníel svo aftur á ferðinni um
stundarfjórðung fyrir leikslok, skor-
aði eftir vel tímasett hlaup inn í teig-
inn, aftur eftir hættulega fyrirgjöf
Þóris Jóhanns.Morgunblaðið sló því
á þráðinn til Akureyringsins tvítuga
sem var auðvitað ánægður með sig-
urinn gegn KR en heldur hnugginn
með 2:1 tapið gegn Stjörnunni á
Kaplakrikavelli í fyrradag, frest-
uðum leik úr fjórðu umferðinni.
„Það var fyrst og fremst geggjað
að ná sigri gegn KR og ekki síður
mikilvægt. Okkur finnst við hafa
verið að spila vel undanfarið, þó
þetta hafi ekki alveg fallið með okk-
ur gegn Stjörnunni svo í næsta leik.
Við erum allir að koma til, erum að
læra betur og betur inn á nýja leik-
kerfið og hver á annan,“ sagði Daní-
el við Morgunblaðið en hann er full-
viss um að FH-ingar eigi erindi í
toppbaráttuna.
Eigum að gera tilkall til titla
„Við höfum sýnt góðan fótbolta en
það þarf kannski að vera meira af
því. Við eigum fullt af góðum mín-
útum og núna þurfum við að tengja
þessa kafla betur saman. FH vill
alltaf vinna titla og ég vil endilega
vera með í því. Við eigum alla vega
að gera tilkall til þess.“
Daníel hefur skorað þrjú deildar-
mörk í tíu leikjum fyrir Hafnfirð-
inga í sumar en þar er hann að láni
frá Helsingborg. Hann gekk til liðs
við sænska liðið á miðju síðasta ári
frá KA, þar sem hann spilaði í efstu
deild frá 2017 til 2019. Hann hefur
spilað 60 leiki í meistaraflokki hér á
landi og skoraði í þeim tíu mörk. Í
Svíþjóð gekk honum erfiðlega að
vinna sér fast sæti í byrjunarliðinu,
lék sex leiki í seinni umferð sænsku
úrvalsdeildarinnar og aðeins einn
þeirra í byrjunarliðinu. Hjá FH hef-
ur hann hins vegar ekki átt í erfið-
leikum með að koma sér inn í hlut-
ina.
Líður vel í Krikanum
„Þetta hefur verið frábært í FH.
Ég komst fljótt inn í málin og hef
fengið að spila mikið, mér líður mjög
vel í Krikanum,“ sagði Daníel en
hann reiknar með að klára tímabilið,
jafnvel þótt það dragist á langinn.
Upprunalega átti leiktíðin að klárast
í október en mikið hefur þurft að
fresta leikjum vegna kórónuveir-
unnar. „Ég reikna nú með því að ég
klári tímabilið, mig minnir að samn-
ingurinn sé út október en ef tímabil-
ið lengist þá klára ég það örugglega
með FH.“
Þá bendir Daníel á að þó hann sé
ánægður með lífið í Kaplakrika þá
verði FH-ingar að gera enn betur en
hingað til, eru fimm stigum á eftir
toppliði Vals eftir tíu leiki. „Við vit-
um það sjálfir best, við hefðum get-
að verið búnir að skora fleiri mörk
gegn Stjörnunni til dæmis og það
vantar oft herslumuninn. Við þurf-
um að vera skarpari fyrir framan
markið en ég hef engar áhyggjur,
þetta mun koma.“
FH-ingar hafa sótt sér liðsstyrk í
félagaskiptaglugganum sem nú er
opinn. Eggert Gunnþór kom frá
SønderjyskE í síðasta mánuði þar
sem hann varð nýlega danskur
bikarmeistari en hann á að baki 21
landsleik fyrir Íslands hönd. Þá kom
sóknarmaðurinn Ólafur Karl Finsen
í FH frá Stjörnunni. Daníel segir þá
báða vera góða viðbót við liðið.
„Þetta eru tveir eldri leikmenn
með góð og mikil gæði, Eggert er
varðhundur inn á miðjunni og það er
gott að spila með honum. Óli Kalli er
svo nýkominn og á eftir að koma enn
betur inn í þetta, það er ekkert ann-
að en jákvætt að vera með góða
menn.“
Verður gaman að
spila Evrópuleik
Deildin er þess eðlis að öll lið virð-
ast fullfær um að taka stig af öllum
öðrum og verða FH-ingar að vera á
tánum um helgina þegar HK kemur
í heimsókn. Því næst tekur við öðru-
vísi verkefni er FH fær slóvakíska
liðið Dunajská Streda í heimsókn í
fyrstu umferð Evrópudeildar
UEFA þann 27. ágúst. Daníel hefur
sjálfur enn ekki spilað Evrópuleik
með félagsliði en hann bíður spennt-
ur eftir tækifærinu.
„Ég hef ekki enn gert það sjálfur
en ég trúi ekki öðru en að það sé
gaman að spila stóra leiki í Evrópu-
deildinni,“ sagði Daníel Haf-
steinsson við Morgunblaðið. Þó slík-
ir leikir hjálpi ekki endilega með það
mikla leikjaálag sem íslensku liðin
búa nú þegar við, þá vilja allir tæki-
færið til að máta sig við sterk lið frá
öðrum þjóðum.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Meistarabani Daníel Hafsteinsson sökkti Íslandsmeisturunum í Vesturbæ.
Getum spilað vel en þurf-
um að sýna meira af því
Tvö mörk Daníels tryggðu FH sigur gegn Íslandsmeisturunum á útivelli
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020
Fótboltinn gefur stundum.
Sumarið 2009 var ég duglegur
að mæta á völlinn að styðja við
mitt lið, Val. Tímabilið var ekki
merkilegt fyrir mína menn. Valur
endaði í áttunda sæti, 26 stigum
á eftir meisturum FH.
Þann 11. júlí það ár mætti Valur
erkifjendunum í KR í Frostaskjóli
á einum allra besta sumardegi
ársins. Var varla ský á himni,
logn og 25 stiga hiti. Leikurinn
sjálfur var æðislegur og endaði
4:3 fyrir Val eftir mikla skemmt-
un.
Bjarni Guðjónsson fékk rautt
spjald í stöðunni 2:2 á 54. mín-
útu og eftir það var ekki að
spyrja að leikslokum. Ekki einu
sinni innkoma Prince Rajcomar
hjá KR á 69. mínútu gat komið í
veg fyrir sigur minna manna.
Rúm ellefu ár eru liðin frá
leiknum og ég man eftir honum
eins og hann hafi verið spilaður í
gær. Fótboltinn gefur stundum.
Fótboltinn tekur stundum.
Átta mánuðum áður beið ég
spenntur eftir því að mínir menn
í Leeds spiluðu við utandeild-
arliðið Histon í enska bikarnum.
Bjóst ég auðvitað við auðveldum
sigri minna manna á móti áhuga-
mönnunum.
Að sjálfsögðu vann Histon
1:0-sigur, en liðið leikur nú í átt-
undu efstu deild Englands, H-
deild! Sigurinn er sá stærsti í
sögu Histon og tapið það versta í
sögu Leeds.
Stuðningsmaður Leeds
sem býr í Histon vaknaði morg-
uninn eftir og rakst á bréfberann
sem heilsaði honum við störf.
Var það eins og að snúa rýt-
ingnum í sárinu því bréfberinn
skoraði að sjálfsögðu sig-
urmarkið kvöldið áður. Ég man
eftir leiknum eins og hann hafi
verið spilaður í gær. Fótboltinn
tekur stundum.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Knattspyrnukon-
an Guðrún Kar-
ítas Sigurðar-
dóttir er gengin
til liðs við Fylki
en þetta kom
fram á Facebook-
síðu félagsins.
Guðrún, sem er
24 ára gömul,
kemur til félags-
ins frá Val og
skrifar hún undir tveggja ára samn-
ing við Árbæinga.
Guðrún Karítas er uppalin hjá ÍA
á Akranesi en hún á að baki 79 leiki í
efstu deild með ÍA, Stjörnunni og
Val þar sem hún hefur skorað 15
mörk. Þá á hún að baki 16 landsleiki
með yngri landsliðum Íslands þar
sem hún hefur skorað 6 mörk.
„Um leið og við bjóðum Guðrúnu
Karítas hjartanlega velkomna til fé-
lagsins þá þökkum við Val fyrir góð
samskipti og vinnubrögð í kringum
félagaskipti leikmannsins,“ segir
meðal annars í fréttatilkynningu
sem Árbæingar sendu frá sér í gær.
Fylkiskonur hafa byrjað tímabilið
af miklum krafti og eru með 15 stig í
þriðja sæti deildarinnar, 7 stigum
minna en Íslandsmeistarar Vals sem
eru í öðru sæti deildarinnar, en
Fylkir á leik til góða á Val.
Fylkir samdi
við öflugan
framherja
Guðrún Karítas
Sigurðardóttir
Franska stórliðið PSG leikur til úr-
slita í Meistaradeildinni í knatt-
spyrnu en liðið vann öruggan 3:0-
sigur gegn RB Leipzig í undan-
úrslitum keppninnar á Da
Luz-vellinum í Lissabon í Portúgal í
gær. PSG hefur aldrei fagnað sigri í
Meistaradeildinni og hefur það lengi
verið markmið félagsins. Franska
liðið mætir annaðhvort Lyon frá
Frakklandi eða Bayern München frá
Þýskalandi í úrslitum keppninnar en
úrslitaleikurinn fer fram 23. ágúst
næstkomandi í Lissabon.
Frakkarnir
leika til úrslita
AFP
Gleði Neymar og Leandro Paredes
féllust í faðma í Portúgal í gær.
Valur tryggði sér sæti í átta liða úr-
slitum bikarkeppni karla í knatt-
spyrnu, Mjólkurbikarnum, í gær
þegar liðið lagði ÍA að velli í sextán
liða úrslitum keppninnar á Origo-
vellinum á Hlíðarenda. Leiknum
lauk með 3:1-sigri Valsmanna og
mæta Valsmenn HK í átta liða úr-
slitum keppninnar þann 10. sept-
ember. KR hefur oftast orðið bik-
armeistari eða fjórtán sinnum og
Valur kemur þar á eftir með ellefu
sigra en Valsmenn urðu síðast
bikarmeistarar árið 2016.
Valsmenn í
átta liða úrslit
Morgunblaðið/Eggert
Sókn Birkir Már Sævarsson sækir
að marki Skagamanna í gærkvöldi.
Átta leikmenn eru í fyrsta skipti í úrvalsliði Morgunblaðsins fyrir 12. um-
ferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta. Skagamaðurinn Stefán Teitur
Þórðarson er í þriðja skipti í úrvalsliðinu og þeir Daníel Hafsteinsson úr
FH og Brynjólfur Willumsson í annað skipti.
Stefán Teitur fékk 2 M fyrir frammistöðu sína gegn Fylki í síðustu um-
ferð og er hann fyrsti leikmaður deildarinnar til að fá 10 M í sumar og er
hann því efstur í M-gjöf Morgunblaðsins.
Valdimar Þór Ingimundarson úr Fylki og Þórir Jóhann Helgason hjá FH
koma þar á eftir með 9 M og Steven Lennon, FH, Ágúst Eðvald Hlynsson,
Víkingi R, Valgeir Valgeirsson, HK, og Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍR, eru
allir með 8 M. johanningi@mbl.is
12. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-4-2
Árni Snær Ólafsson
ÍA
Martin
Rauschenberg
HK
Birnir Snær
Ingason
HK
Stefán Teitur
Þórðarson
ÍA
Hilmar Árni
Halldórsson
Stjörnunni
Daníel
Hafsteinsson
FH
Eiður Aron
Sigurbjörnsson
Val
Brynjólfur Willumsson
Breiðabliki
Karl Friðleifur Gunnarsson
Gróttu
Arnar Sveinn
Geirsson
Fylki
Guðmundur
Kristjánsson
FH
2
23
Átta nýliðar í úrvalsliðinu