Morgunblaðið - 19.08.2020, Page 25

Morgunblaðið - 19.08.2020, Page 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is KAT I E HOLMES JOSH LUCAS Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe í aðalhlutverki. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI EIN ALBESTA GRÍN-TEIKNIMYND SEM KOMIÐ HEFUR! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI K O M N A R Í B Í Ó : Harry Potter and the Sorcere’s Stone Harry Potter and the Chamber of Secrets Harry Potter and the Prisoner of Azkaban K O M A Í B Í Ó 1 8 . Á G Ú S T : Harry Potter and the Goblet of Fire Harry Potter and the Order of Phoenix Harry Potter and the Half-Blood Prince K O M A Í B Í Ó 2 1 . Á G Ú S T : Harry Potter and the Deathly Hallows: Part 1 og 2 UPPÁHALDS GALDRASTRÁKUR OKKAR ALLRA AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Áfram (ísl. tal) * Tröll 2 (ísl. tal) * Hvolpasveitin (ísl. tal) * My Spy * The Postcard Killings * The Outpost * The Matrix * Mad Max : Fury Road AF LISTUM Þorgeir Tryggvason Það er einkenni hugmynda-drifinnar listar, „konsept-listar“ sem kölluð er, að oft bætir upplifun á listaverkinu sjálfu ekki svo miklu við áhrifin af því að heyra hugmyndina útlistaða. Þannig virkaði flutningur Malarastúlkunnar fögru, ljóðasöngvabálks Schuberts við ljóð Wilhelms Müller, á mig í flutningi tenórsöngvarans Sveins Dúa Hjörleifssonar við undirleik Tómasar Guðna Eggertssonar og dygga aðstoð Kristrúnar Hrafns- dóttur í Tjarnarbíói síðastliðinn laug- ardag. Ekki að það kæmi neitt að ráði að sök; hver er ekki til í að njóta þess- arar undursamlegu tónlistar, sér- staklega þegar sjálfur flutningur hennar er jafn fágaður og sannfær- andi og hér var raunin? En semsagt, hugmyndin er fjári snjöll, sérstaklega á blaðinu. Söngv- arinn, ljóðmælandinn, ástsjúki mal- aradrengurinn, finnur malarastúlk- una ómótstæðilegu innra með sjálfum sér og tekur smám saman á sig mynd hennar með hefðbundnum drag- drottningarmeðulum, meðan hann uppgötvar og veltir sér upp úr ást sinni á henni. Hugmynd sem um- svifalaust getur af sér allskyns frjó- anga með þeim sem hana hugleiðir: um ást sem endursameiningu í anda ræðu Aristófanesar í Samdrykkju Platóns. Um taumlausa unga – og óendurgoldna ást sem markmið og nautn í sjálfu sér, eins og Shake- speare tekur óviðjafnanlega til um- fjöllunar í Sem yður þóknast, og skopstælir í harmleiknum um Píra- mus og Þispu – Müller fer ansi ná- lægt þeim ósköpum með malara- drenginn sinn. Um samspil hins ytra gervis og þess sem undir því býr. Um sviðsetningu okkar á sjálfum okkur í lífinu sjálfu. Og svo auðvitað hefðbundna ljóða- söngstónleika sem sviðsetningu í sjálfum sér, með ströngum hefðum og ákveðinni stífni í framgöngu bæði listafólks og áhorfenda. Það opinber- aðist strax í upphafi sýningarinnar: þó áhorfendur væru þess örugglega allir fullvissir að hér var sviðsett leik- sýning að hefjast gengu þeir inn í hlutverk sín sem tónleikagestir og klöppuðu listamönnunum lof í lófa þegar þeir gengu inn á sviðið – nokk- uð sem hefur ekki tíðkast í leikhúsi áratugum saman, en er ófrávíkjan- legt í tónleikasölum. Smám saman byrjaði hinn leikræni þáttur sýningarinnar að kalla á at- hygli okkar, frá því að hugmyndin um kvengervið kviknar í samspili Sveins Dúa og nótnaflettarans Kristrúnar, þar til malarastúlka/dragdrottning stígur alsköpuð á svið upp úr miðbiki bálksins. Hinn leikræni hápunktur er þó aðeins fyrr, þegar Sveinn klæðist kvenskónum og heilsar ástmeynni í áttunda söng, Morgengruß. Þá finn- um við fyrir því að hún er mætt. Annar akkillesarhæll konseptdrif- inna sviðsetninga er síðan hve sjald- gæft er að hugmyndirnar gangi full- komlega upp í efniviðnum. Og óneit- anlega er erfitt að finna samhljóm milli vegferðar malaradrengsins og hinnar innri/ytri kvenmyndar söngv- arans eftir að keppinauturinn um ást- ir stúlkunnar birtist í ljóðunum. En þá er bara tímabært að segja skilið við vitsmunina og leyfa hinni heiðríku rödd Sveins að heilla sig með hinum dýrðlegu lögum, hvað sem öllum pallíettum og parrukkum líður. Það er vandalaust með öllu. Það er skynsamleg hófstilling í sviðsetningu Grétu Kristínar Ómars- dóttur á vegferð malaradrengs og stúlku. Enda setja tæknikröfur söng- listarinnar vafalaust ýmsar skorður, sem og leikfærni þátttakenda. Eftir á að hyggja sennilega hið besta mál að hugmyndinni er þrátt fyrir allt ekki gefið alræðisvald yfir flutningnum. Enda lifir hún sínu lífi í huga áhorf- andans, og hefði mögulega gert það þó hún væri bara orð á blaði. Tónlist- ina þurfum við á hinn bóginn að heyra, það er fyrir öllu. Í dulitlu dragi Ljósmynd/Andrés Schlanbusch Drag Sveinn Dúa Hjörleifsson tenórsöngvari í gervi dragdrottningarinnar Herðubreiðar. Ástralska leik- konan Elizabeth Debicki mun leika Díönu prinsessu í loka- seríum sjón- varpsþáttanna The Crown sem Netflix fram- leiðir en í þeim er rakin saga El- ísabetar II. Eng- landsdrottningar og fjölskyldu hennar. Debicki mun leika í fimmtu og sjöttu þáttaröð sem mun ná yfir tíunda áratug síðustu aldar og fyrsta áratug þeirrar 21. Verður því fjallað um skilnað Díönu og Karls Bretaprins og bílslysið í París þar sem Díana lést árið 1997. Debicki mun leysa af leikkonuna Emmu Corrin sem leikur Díönu unga að árum í fjórðu seríu þátt- anna sem sýningar hefjast á nú í haust. Imelda Staunton mun leika Elísabetu í þáttaröð fimm og sex og leysa af hólmi Oliviu Colman sem hefur leikið hana í tveimur seríum. Debicki leikur Díönu prinsessu Elizabeth Debicki Pavel Latusjko, leikhússtjóri Þjóð- leikhússins í Minsk í Hvíta-Rúss- landi, hefur verið rekinn úr starfi vegna þátttöku sinnar í mótmælum gegn Alexander Lúkasjenkó, for- seta landsins. Frá þessu greinir Sveriges Radio. Þar kemur fram að Latusjko hafi á árum áður gegnt starfi menningarmálaráðherra í stjórn Lúkasjenkó. Latusjko tók þátt í fjölmennum mótmælum stjórnarandstöðunnar í Minsk á sunnudag og tjáði sig við fjölmiðla þess efnis að fram væri komin krafa meðal almennings um djúp- stæðar breytingar í Hvíta- Rússlandi. Daginn eftir mætti fulltrúi frá menningarmálaráðu- neyti landsins í leikhúsið og afhenti honum uppsagnarbréfið. Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir framan leikhúsið þegar fréttist af uppsögn- inni. Latusjko ávarpaði viðstadda og sagði að allir borgarar landins yrðu að taka afstöðu til stjórnmála- ástandsins. Í framhaldinu ákváðu um 50 starfsmenn leikhússins að segja upp störfum í mótmælaskyni. Leikhússtjóri rek- inn vegna ummæla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.