Morgunblaðið - 24.08.2020, Page 14

Morgunblaðið - 24.08.2020, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sjöundu við-ræðulotuBreta og Evrópusambands- ins um frí- verslunarsamning lauk á föstudaginn, eða öllu heldur rann út í sandinn líkt og þær sex sem á undan fóru. Viðræðunum er ætlað að finna samkomulag, sem muni setja niður viðskiptasamband Bret- lands við Evrópusambandið eftir útgöngu Breta úr sam- bandinu, en þeir eru nú á undanþágu fram til næstu ára- móta. Innan Evrópusambandsins hafa menn sem fyrr nálgast verkefnið með þeim hætti að rétt væri að reyna áfram að refsa Bretum fyrir að hafa yfirgefið sambandið, frekar en að leita lausna sem gætu hugnast báðum aðilum, líkt og venjan er þegar samninga- viðræður eru hafnar. Tónninn var gefinn strax í upphafi þeg- ar aðildarríkin 27 komu sér saman um samningsmarkmið, en þau litu meira út eins og óskalisti aðildarríkjanna um hin ýmsu óskyldu málefni, eins og afhendingu safngripa í British Museum til Grikklands og Spánverjar reyndu að nýta tækifærið til að tryggja sér Gí- braltar á ný. Flestum þessara óska hefur nú verið vikið til hliðar, enda höfðu þær ekkert með Brexit eða viðskipti Breta og ESB að gera, en ein ósk stendur eftir óhögguð: ósk franskra sjó- manna (og raunar fleiri) um að þeir geti hér eftir sem hingað til farið með landhelgi Breta eins og sína eigin. Þessi krafa er skiljanleg frá sjónarhóli Evrópusambandsins, sem hef- ur byggt allan sinn sjávar- útveg upp á stefnunni um að fiskimiðin séu sameiginleg. Vandinn er þó sá að sú stefna hefur reynst mörgum af þjóðunum illa, og líklega eng- um jafnilla og Bretum. Þeir hafa því enga löngun til þess að galopna landhelgi sína á ný fyrir erlendum útgerðum, en hafa reynst viljugir til þess að semja um takmarkaðan að- gang frá ári til árs líkt og önn- ur fullvalda ríki myndu gera. Hinn ásteitingarsteinn við- ræðnanna kemur sömuleiðis frá Evrópusambandinu, en þar á bæ krefjast menn þess að Bretar beygi sig áfram und- ir reglur sambandsins um rík- isaðstoð, sem á að koma í veg fyrir „óheilbrigða samkeppn- ishætti“ af hálfu Breta. Að auki krefst sambandið þess að það njóti heimavallarréttinda í öllum ágreiningsmálum sem komið gætu upp, þar sem Evr- ópudómstóllinn ætti að hafa æðstu lögsögu í þeim. Krafan er nán- ast móðgandi fyrir Breta af tveimur ástæðum, annars vegar þeirri að Bretar voru á meðal þeirra aðildarríkja sambandsins sem stóðu sig einna best, þegar kom að viðmiðum þess um að- stoð ríkisvaldsins við atvinnu- greinar, og hins vegar þeirri að eitt af meginmarkmiðum útgöngunnar var að rífa Breta undan því að vera ofurseldir Evrópudómstólnum, sem á sér fáa vini handan Ermar- sundsins. Michel Barnier, aðalsamn- ingamaður Evrópusambands- ins, kvartaði hástöfum yfir því fyrir helgi að viðræðurnar virtust frekar stefna afturá- bak en áfram, og að menn væru að sóa dýrmætum tíma. David Frost, samningamaður Breta, var fljótur að benda á það að Barnier sjálfur hafi lagt svo mikla ofuráherslu á þessi tvö efni, að hann hafi beinlínis hafnað því að ræða annað fyrr en búið væri að ná lendingu í þeim. Komið er fram yfir mitt ár, og það er löngu orðið ljóst, að Bretland sem fullvalda ríki getur ekki látið bjóða sér þá afarkosti sem Evrópusam- bandið býður. Enn er að vísu sá möguleiki fyrir hendi, að menn vilji bíða fram til síðustu stundar og reyna þá að leysa málin, en slík handarbaka- vinnubrögð eru regla frekar en undantekning í Brussel. Vandinn er þó líklega ekki síst sá, að Evrópusambandið hefur einfaldlega enga löngun til þess að semja við Breta sem jafningja en vill refsa þeim og senda öðrum sem láta sig dreyma um að sleppa út úr sambandinu skýr skilaboð. Þess vegna gætu það verið hagsmunir Breta að ganga nú þegar frá viðræðunum og hefja undirbúning að því að fríverslunarsamningur við ESB náist ekki að sinni. En um leið og þessi skilaboð til ríkja innan ESB eru skýr ættu þau einnig að skiljast hjá ríkjum utan sambandsins, ekki síst þeim sem hafa mikla fiskveiðihagsmuni. Þeir sem ráða för innan Evrópusam- bandsins líta ekki á aðildarríki þess sem fullvalda ríki. Þeir telja að aðildarríkin, jafnvel stór og öflug ríki á borð við Bretland, eigi að taka við fyrirmælum frá Brussel og eigi aldrei að voga sér að segja sig úr sambandinu. Þetta er mjög þýðingarmikið að hafa í huga. Óvíst er að Bretar og ESB nái saman fyrir árslok} Tíminn að renna út S uma skortir algjörlega raunsæið, fólk sem dettur í hug að gera hluti sem allir aðrir eru sammála um að gangi ekki upp. Þeir vaða áfram að sínu markmiði, stundum yfir allt og alla. Þegar upp er staðið gerðist svo hið ómögulega, þvert á heilbrigða skynsemi. Svo- leiðis kona var Dóra S. Bjarnason. Sem var mikil blessun. Dóra var fyrirferðarmikil, yfirþyrmandi fannst sumum. Hún var stór í bókstaflegri merkingu og eftir að hún var komin af stað var eins gott að verða ekki fyrir henni. Ekkert var fráleitt í hennar huga. Einu sinni hittum við hjónin Dóru úti í Kaupmannahöfn, nýkomna frá Afríku. Hún fékk skyndilega þá hugdettu að slást í för með nemendum upp á næsthæsta tind Keníu. Dóra hafði hvorki stundað fjallgöngur né heilbrigt líferni, en það fannst henni algjört aukaatriði, pakkaði niður lopa- peysunni og kartonum af sígarettum og arkaði upp fjall- ið. Hún eignaðist soninn Benedikt fyrir fjörutíu árum og þá breyttist lífið allt. Benni var frá fæðingu með marg- víslega fötlun, fötlun sem hefði orðið til þess að margt foreldrið hefði lagt árar í bát. En ekki Dóra. Þaðan í frá barðist hún af krafti fyrir því að sonur hennar nyti allra þeirra réttinda sem flest börn njóta. Hann skyldi ganga í skóla með öðrum sem jafningi, gera það sem jafnaldrar hans gerðu. Sonur minn og skólafélagar hans urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að vera í bekk með Benna. Þeir sögðu í minn- ingargrein: „Hún varð aðsópsmikil bar- áttukona fyrir bættum réttindum fatlaðra, drifin áfram af þeirri sannfæringu að fötlun sonar hennar skyldi aldrei hamla honum, hvort sem er í menntun, ferðalögum eða vin- áttu. Dóru tókst til dæmis að koma Benna í bekkinn okkar, þótt það væru engin fordæmi fyrir því að svo fjölfatlaður einstaklingur sæti þar. Guði sé lof fyrir þrautseigju hennar og ákveðni, því annars hefðum við aldrei kynnst honum eða henni. Síðar þegar við komumst á fullorðinsár og urðum einnig vinir Dóru átt- uðum við okkur betur á því hvers konar bar- áttukona og hugsjónamanneskja hún var.“ Ég var líka svo heppinn að kynnast Dóru. Hún velti því fyrir sér meira en nokkur sem ég hef kynnst hvað tæki við þegar hún félli frá. Ekki hjá henni, heldur syni hennar. Stundum spurði hún mig ráða í fjármálum, en allar spurningarnar tengdust nafna mínum og framtíð hans. Sumt af því sem Dóra barðist fyrir sem móðir og fræðimaður hefur nú þegar nýst fjölmörgu fólki með fötlun með svonefndri notendastýrðri persónulegri að- stoð, NPA. Segja má að þar hafi þau mæðgin rutt braut. Í útfararræðu sagði presturinn frá ónefndum embættis- manni sem sagði: „Gerið þið allt sem hún Dóra biður um. Og haldið henni frá mér.“ Stundum þarf fólk sem skortir raunsæið til þess að breyta samfélaginu. Fólk eins og Dóru. Stóru konuna með stóra hjartað. Benedikt Jóhannesson Pistill Vinir Dóru Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Bæjarráð Reykjanesbæjarhefur tekið jákvætt íbeiðni Carbfix,dótturfyrirtækis Orku- veitu Reykjavíkur, um aðstöðu til jarðfræðirannsókna og kolefnisförg- unartilrauna í nágrenni Helguvíkur. Verkefnið er liður í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Málið var rætt á fjarfundi ráðsins í fyrradag. Sá fyrirvari var settur við af- greiðslu erindisins að verkefnið væri í samræmi við landnotkun á iðnaðar- svæðinu í Helguvík að uppfylltum öllum skilyrðum sem gerð eru í lög- um, reglugerðum og skipulagi til slíkra rannsókna og framkvæmda. Fram kemur í erindi Carbfix til bæjarráðs að fyrirtækið ásamt Há- skóla Íslands, Íslenskum orkurann- sóknum og samstarfsaðilum í Bret- landi, Þýskalandi, Ítalíu, Noregi og Sviss, undirbúi nú nýtt vísindaverk- efni sem ber heitið CO2SOLID. Hugmyndin er að nota bestu fáan- lega tækni til að skilgreina niðurdæl- ingarsvæði sem stækka má eftir þörfum í framtíðinni. Hópurinn hefur unnið að jarðfræðirannsóknum und- anfarin ár til að skilgreina og finna ákjósanlega staði til niðurdælingar. Segir í bréfi Carbfix að Helguvík sé einn af ákjósanlegustu stöðum sem völ sé á á Íslandi. Til viðbótar hag- stæðum jarðfræðiskilyrðum sé góð hafnaraðstaða í Helguvík, sem opni möguleikann á innflutningi koldíox- íðs til niðurdælingar auk þess sem möguleiki sé á að taka við koldíoxíði frá stóriðju og öðrum iðnaði sem kunni að verða starfræktur í Helgu- vík í framtíðinni. Niðurstaða fáist 2024 Fram kemur í bréfi Carbfix að stefnt er að því að sækja um styrk fyrir verkefninu næsta haust í Hori- zon 2020 rammaáætlun Evrópusam- bandsins. Við það er miðað að verk- efnið hefjist formlega fyrri hluta næsta árs með jarðfræði- og jarðeðl- isfræðirannsóknum. Borun á einni tilraunaniðurdælingarholu og einni vöktunarholu er áætluð árið 2022 og tilraunaniðurdæling mun standa yfir 2022 til 2024. Stefnt er að því að rannsóknaverkefninu ljúki árið 2024 og gera áætlanir ráð fyrir að þá verði hægt að taka ákvörðun um var- anlegan rekstur niðurdælingarkerfis í Helguvík og að vegvísir að al- þjóðlegri notkun tækninnar með Helguvík að fyrirmynd verði tilbú- inn. Í bréfi Carbfix segir að varanlegur rekstur myndi í þessu tilfelli annað- hvort leiða til innviðauppbyggingar vegna móttöku koldíoxíðs úr frakt- skipum í Helguvík, móttöku á kol- díoxíði frá stóriðju og/ eða með því að setja upp búnað sem fangar koldíoxíð beint úr andrúmslofti. Bæjarráð tók undir bókun stjórn- ar Reykjaneshafnar frá 13. ágúst. Þar er verkefnið talið mjög áhuga- vert. Samþykkti stjórnin að heimila framkvæmd verkefnisins á hafnar- svæði Helguvíkurhafnar í samræmi við efni bréfsins á rannsóknartíma þess til ársins 2024 svo lengi sem framkvæmdin hafi ekki neikvæð áhrif á uppbyggingu Helguvíkur- hafnar. Kolefnisförgun áhrifarík Í bréfi Carbfix er kolefnisförgun lýst sem ferli sem fjarlægir koldíoxíð varanlega úr lofthjúpi jarðar og vinn- ur því gegn loftslagsbreytingum. Að- ferðin felst í að leysa koldíoxíð í vatni og dæla niður í jarðlög þar sem nátt- úruleg ferli umbreyta koldíoxíðinu í steindir. Steindin sem myndast helst er silfurberg sem er algeng í ís- lenskri náttúru. „Þar sem steind- irnar eru stöðugar í milljónir ára eru miklar líkur á að Carbfix-aðferðin geti orðið áhrifaríkt verkfæri í bar- áttu mannkyns gegn loftslagsbreyt- ingum næstu áratugina. Aðferðin hefur hlotið heimsathygli og er m.a. viðurkennd af Alþjóðaloftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna og hafa yfir 100 vísindagreinar verið birtar um þróun hennar og nýtingu. Aðferðinni hefur verið beitt með góðum árangri við Hellisheiðarvirkjun síðan 2014 og í undirbúningi er niðurdæling á Nesjavöllum, sem hefst á næsta ári, auk þess sem gerðar verða niðurdæl- ingartilraunir í Tyrklandi og Þýska- landi,“ segir í erindi Carbfix. Heimsmiðstöð? Í grein í vikuritinu Vísbendingu í síðustu viku fullyrða sérfræðingar á vegum Carbfix að Ísland gæti orðið miðstöð fyrir kolefnisförgun á heims- vísu í framtíðinni. Starfsemi fyrirtækisins hefur vak- ið mikla athygli og jákvæða umfjöll- un. Í lok júlí hlaut það hin alþjóðlegu Keeling Curve-verðlaun fyrir aðferð sína. Verðlaunin eru veitt árlega brautryðjendum sem hafa náð eft- irtektarverðum árangri í aðgerðum í þágu loftslagsmála. Fór verðlaunaaf- hendingin fram í beinni útsendingu á vef bandarísku sjónvarpsstöðv- arinnar PBS - Public Broadcasting Service. Kolefnisförgun í ná- grenni Helguvíkur Ljósmynd/Reykjaneshöfn. Helguvíkurhöfn Höfnin á þátt í því að svæðið er ákjósanlegur staður nið- urdælingar koldíoxíðs. Verkefnið gæti leitt til mikillar atvinnusköpunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.