Morgunblaðið - 24.08.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020
Hvaða litur er þinn
draumalitur?
www.flugger.is
fágætissöfnum landsins. Sjálfur get
ég vart beðið eftir að komast á þann
dýrðarstað.“
Fjölskylda
Dætur Kára með fyrrverandi
eiginkonu sinni, Ágústínu Gunn-
arsdóttur, f. 14.4. 1960, eru Jóna
María nemi, f. 1.4. 1998, í sambúð
með Sævari Vilberg Halldórssyni
nema, f. 27.8. 1991, og Anna Fríða, f.
25.1. 2006.
Systkini Kára sammæðra eru
Guðrún Kristín Erlingsdóttir, dag-
foreldri í Reykjavík, f. 13.4. 1956, og
Linda Ósk Jónsdóttir, húsmóðir í
Þorlákshöfn, f. 5.7. 1969.
Foreldrar Kára: Jórunn Lóa
Melax, skrifstofumaður í Reykjavík,
f. 9.12. 1935, d. 4.11. 2003, og Bjarni
Þorsteinsson, fv. verslunar- og fram-
kvæmdastjóri á Seyðisfirði og í
Reykjavík, f. 10.6. 1939, búsettur á
Seltjarnarnesi.
Kári
Bjarnason
Elísabet Þorbjörg Þorleifsdóttir
húsfreyja á Móbergi
Jóhannes Halldórsson
húsmaður á Móbergi í
Langadal
Ingiríður Jóhannesdóttir
Húsfreyja á Undirfelli og Ási, síðar á Akranesi
Þorsteinn Björn Bjarnason
bóndi á Undirfelli og Ási í Vatnsdal,A-Hún.
Bjarni Þorsteinsson
fv. verslunar- og framkvæmdastjóri á
Seyðisfirði og í Reykjavík
KristínGuðmundsdóttir
húsfreyja á Ormsstöðum
og í Stykkishólmi
Bjarni Magnússon
bóndi og smiður á Ormsstöðum á Skarðsströnd,
síðar járnsmiður í Stykkishólmi
Axel Jóhannesson húsgagnasmíðameistari á
Akureyri, varð 102 ára
Svavar Jóhannesson bóndi á Hrútsstöðum í
Laxárdal,Dal. og trésmiður í Kópavogi
Bragi Melax kennari og skólastjóri
Haukur Melax prófessor í
Edmonton í Kanada
Halldór Jóhannesson bókasafnari og -grúskari
Jórunn Stefánsdóttir
húsfreyja í Haganesi
Ólafur Jónsson
bóndi og oddviti í Haganesi í
Fljótum.
Guðrún Ólafsdóttir Melax
húsfreyja á Barði,
Breiðabólsstað og í Rvík
Stanley Guðmundsson Melax
rithöfundur og prestur á Barði í Fljótum og á
Breiðabólsstað í Vesturhópi, síðar bús. í Rvík
Guðrún Oddný Guðjónsdóttir
húsfreyja á Laugalandi
Guðmundur Jónsson
búfræðingur á Laugalandi á Þelamörk
Úr frændgarði Kára Bjarnasonar
Jórunn Lóa Melax
skrifstofumaður í Reykjavík
„ÉG REYNDI AÐ KENNA MÖMMU MINNI
UM ÞETTA. HÚN MÚTAÐI DÓMARA OG
KÆRAN VAR FELLD NIÐUR.”
„ÞÚ MÁTT SITJA HÉRNA Á MEÐAN ÉG FINN
ÚT HVAR ÞÚ FALDIR GLERAUGUN MÍN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... koddahjal.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ
REYNA AÐ BÆTA MIG
DJÓK! HVERNIG VÆRI ÞAÐ
MÖGULEGT?
HELGA, GERIR SNIÐIÐ Á
SKYRTUNNI MIG FEITAN? ALLS
EKKI!
FITAN Á ÞÉR GERIR
ÞIG FEITAN!
Sigrún Ásta Haraldsdóttir skrif-aði í Leirinn á fimmtudag:
„Það kemur fyrir flesta að þurfa að
tilkynna veikindi í vinnunni. Mér
datt í hug að setja saman nokkrar
tilkynningar fyrir fólk að nota.
Gott að eiga svona vísur á lager,
maður er ekki endilega upplagður
til að yrkja að morgni veik-
indadags:
Þetta er algeng ástæða fyrir því
að vera heima:
Ligg í bæli leið og þreytt
lasin eins og hundur,
rammt úr nefi rennur greitt
rauðleitt viðbjóðsglundur.
Í þessu tilviki er beinlínis skylda
að vera heima:
Voðalega er strangt mitt streð,
stend í harðri brýnu,
sveitt á dollu sit ég með
svaka magapínu.
Hér gæti verið alvara á ferð:
Höfuð mitt úr vondum verk
við það er að springa.
Vissast er að kalla á klerk,
krossi í hönd mér stinga.
Hér verður yfirmaður að auð-
sýna samúð:
Soldið við mig sjálfa gremst,
súr er heilsa og bölvuð
til vinnu minnar varla kemst
af víni er talsvert ölvuð.
Áfallahjálp?:
Heima verð ég helst að vera,
herjar á mig píning skæð,
á mér fann ég illa og svera
íturvaxna gyllinæð.
Bíddu nú við, varstu ekki búin
með þessa afsökun?:
Með beinverki ég býsna hás,
bölsótast og hnerra,
í mér heyrist ófrítt más,
eldrautt trýnið þerra.
Það eru ekki líkur á að ég lendi í
þessu:
Ég hitti nýja gellu í gær
í gylltri móðu sveima,
varla er ég vinnufær,
verð að dvelja heima.
Hvað á að segja þegar maður er í
vondum málum:
Undir sæng mig alveg gref,
úrvinda er hreint og beint,
víða um kroppinn verki hef
(usss …) ég vaknaði bara allt of seint!
Til eru þeir sem fara ákaflega
varlega þegar heilsan er annars
vegar:
Í hendingskasti heim ég skýst
að heilsu minni gái
um tíuleytið tel ég víst
að tannpínu ég fái.
Framhald á morgun.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Veikindi í vinnunni