Morgunblaðið - 24.08.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020
Við erum sérfræðingar
í malbikun
50 ára Ásdís er fædd
og uppalin á Vogum á
Vatnsleysuströnd og
býr þar. Hún er við-
skiptafræðingur að
mennt frá HA og rekur
eigin bókhaldsþjón-
ustu, sem ber heitið
Snerill ehf.
Maki: Hafþór Guðbjartsson, f. 1966.
Dóttir: Svana Kristný, f. 2020.
Foreldrar: Hlöðver Kristinsson, f. 1938,
vélvirki, búsettur á Borg á Vatnsleysu-
strönd, og Unnur Svanhildur Ragn-
arsdóttir, f. 1940, d. 1994, húsmóðir.
Ásdís Hlöðversdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að hrista af þér slenið og
gakktu glaður til leiks. Hugsaðu þig tvisvar
um áður en þú talar.
20. apríl - 20. maí
Naut Hláturinn lengir lífið svo það er
nauðsynlegt að hlæja öðru hvoru. Minntu
þig á að þú getur ekki gert öllum til geðs
og að það skiptir mestu máli að þú haldir
sjálfsvirðingu þinni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er alltaf hægt að læra eitt-
hvað af öðrum hvort sem það eru nú hlutir
sem gott er að nota eða ber að forðast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Óvænt daður eða annað slíkt
kryddar daginn. Vertu raunsær og varastu
að láta óskhyggjuna taka öll völd.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vertu ekki að streða við hlutina einn í
þínu horni því nú er það hópstarfið sem
gildir. Farðu út á meðal fólks og njótu þess
að vera til.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt eftir að reka þig á það næstu
vikurnar hvað það er mikil ást í nánasta
umhverfi þínu. Stilltu þig og segðu ekkert
að vanhugsuðu máli.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú skalt fylgja eðlisávísun þinni og
nýta krafta þína til að hjálpa öðrum. En
ekki eru allir þess reiðubúnir að leggja
eyrun við. Einhver gæti tekið upp á því að
nýta sér góðmennsku þína.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert ástfanginn upp fyrir
haus og það er eina ríkidæmið sem skiptir
máli. Allir leggja spilin á borðið og and-
rúmsloftið er hreinna fyrir vikið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er brjálaður kraftur í þér -
alveg ótrúlegur - þegar kemur að því að
taka við verðlaununum þínum. En sýndu
þolinmæði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú munt fara í vinnuferð eða
kynnast nýjum og spennandi hugmyndum
sem geta nýst þér í starfi. Lestu í tilfinn-
ingalega þýðingu samskipta í stað þess að
rýna í orðin.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Tækifærin eru allt í kringum
þig og allt sem þú þarft að gera er að
grípa þau. Láttu allan meting við aðra lönd
og leið og hugsaðu bara um eigin afkomu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú getur ekki hamið eftirvæntingu
þína og þitt góða skap smitar út frá sér.
byggðin verða æ vinsælli til byggðar,
ekki bara vegna þess að hér er stór-
kostlegt að ala upp börn heldur ekki
síður vegna þess að hér er stórkost-
legt að ala sjálfan sig upp. Allt sem
vantar er innan seilingar, fjölbreytt
menningarlíf og stutt í vinnu og alla
þjónustu.“
Kári fór að vinna við Safnahús
Vestmannaeyja, sá um bókasafnið
þar og varð síðar forstöðumaður
hússins. „Smám saman áttaði ég mig
á því hversu víðáttumikill
menningararfur Eyjanna er. Lista-
menn eru og hafa verið hér í hrönn-
um enda náttúrufegurðin engu öðru
lík. Skáld og rithöfundar eru héðan
og aðrir hafa búið hér skamma eða
langa stund. Allt þetta og miklu
meira viljum við sem vinnum í Safna-
húsinu og þeim söfnum sem þar er
að finna miðla með bæjarbúum. Það
var brotið í blað árið 2011 er svo-
nefnd Einarsstofa var opnuð, rými
sem hýsir allt upp í 100 manns í einu.
fessor að því að taka saman úrval úr
kveðskap skálds sem nú er löngu
gleymdur en var ákaflega vinsæll á
fyrri tíð, séra Ólafur Jónsson á Sönd-
um í Dýrafirði. Þá leiddi ég vinnu við
að draga fram íslenskan tónlistararf
í handriti árin 1995-2005 ásamt
Helgu Ingólfsdóttur semballeikara.
Einnig vann ég um árabil með Sig-
urði Gylfa Magnússyni að ýmsum út-
gáfum hans og annarra undir merkj-
um Sýnisbókar íslenskrar alþýðu.
Árið 2007 ákvað fjölskyldan að
flytja til Vestmannaeyja og það var
án efa mesta gæfusporið í mínu lífi.
Hér er yndislegt að búa, stutt í allar
áttir og himinn og haf blasa jafnan
við augum ólíkt því sem var er ég bjó
í Reykjavík. Ég er sannfærður um
að á komandi árum mun lands-
Þ
orsteinn Kári Bjarnason
er fæddur 24. ágúst 1960
í Reykjavík og ólst þar
upp. „Sem barn bjó ég í
fáein ár hjá góðu fólki en
fór einnig í heimavist að Reykjanesi
við Ísafjarðardjúp 14 ára og var þar í
þrjá vetur. Ég hef oft undrast þá um-
ræðu, sem algengust er, að við sem
hröktumst til vandalausra á einum
eða öðrum tíma ævinnar af marg-
víslegum ástæðum höfum ævinlega
lent hjá vondu fólki. Slík er ekki mín
reynsla heldur þvert á móti. Í Krist-
mundi Hannessyni skólastjóra og
kennurunum sem með honum voru
kynntist ég aldrei öðru en mann-
gæsku og -mildi sem ég vil þakka
hjartanlega fyrir og vona að ég tali
fyrir hönd margra einstaklinga sem
hafa verið í mínum sporum á lífsleið-
inni.“
Kári er magister í íslenskum fræð-
um að mennt auk þess sem hann
lauk samhliða B.A.-prófi í heimspeki
og ýmsum námskeiðum við Háskóla
Íslands. Hann starfaði sem hand-
ritavörður á Landsbókasafni Íslands
samfellt í 16 ár, á tímabilinu 1989-
2005. Á þeim árum sótti hann heim
handritasöfn víðsvegar, m.a. í Vatík-
aninu, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi,
Uppsala, Lundi, Osló, Helsinki,
London, Oxford, Harvard og Íþöku.
Hann hefur setið í fjölmörgum
stjórnum, þ. á m. í stjórn Félags um
átjándu aldar fræði 1994-1998, Bóka-
varðafélags Íslands 1995-1998,
Menningarsjóðs 1996-2007, Reykja-
víkurAkademíunnar 2003-2008 og
situr nú í stjórn Stafkirkjunnar og
skólanefnd Framhaldsskóla Vest-
mannaeyja. Þá hefur hann átt sæti í
stjórn Söguseturs 1627 frá 2006.
Kári hefur gefið út fjölmargar bæk-
ur ýmist einn eða í samstarfi við
aðra.
„Ég hef verið afar upptekinn af
því lengi að reyna að taka þátt í að
draga fram þann ótrúlega fjöl-
breytta menningararf sem fólginn er
í íslenskum handritum. Árið 2006
gáfum við Ásgeir Jónsson, nú seðla-
bankastjóri, út bók með kvæðum
Jóns Arasonar biskups. Á svipuðum
tíma vann ég með Matthíasi Johann-
essen skáldi og Pétri Péturssyni pró-
Við erum með dagskrár og viðburði,
ráðstefnur og kynningar, lista- og
ljósmyndasýningar enda þótt við
þurfum að stoppa núna vegna hinna
döpru aðstæðna með kórónuveiruna
sem vonandi hverfur á þessu ári.
Það sem er mest spennandi fram-
undan tengist vinnunni og áhuga-
málum þó vitaskuld vona ég að ég
geti verið ævinleg stoð börnum mín-
um. Hið fyrra sem ég hlakka til eru
útgáfur sem við erum að fást við
þessa dagana. Annars vegar stendur
Sögusetur 1627 í Vestmannaeyjum
fyrir löngu tímabærri útgáfu á Reisu-
bók Ólafs Egilssonar, um Tyrkjarán-
ið 1627, sem ég og Már Jónsson pró-
fessor önnumst og Bjarni Harðarson
gefur út af sinni kunnu smekkvísi.
Hins vegar gefur bókasafnið út sér-
prent eftir Svan Jóhannesson um
prentsögu Vestmannaeyja, sem
byggist á hinni veglegu útgáfu hans
um prentsögu Íslands sem nú er ný-
komin út.
Hitt stóra verkefnið er að nú hillir
loksins, loksins undir það að fágæt-
isbókasafni verði fundinn staður á
Bókasafni Vestmannaeyja. Fyrir
þremur árum gaf Ágúst Einarsson
Vestmannaeyjabæ ótrúlegt safn á
annað þúsund bóka þar sem saman
eru komnar margar af fágætustu út-
gáfum okkar, m.a. allar útgáfur Bibl-
íunnar frá Guðbrandsbiblíu (1584),
Þorláksbiblíu (1644) og Steinsbiblíu
(1728) að telja. Þá eru bækur sem
annaðhvort eru ekki til í neinu bóka-
safni eða aðeins til á Landsbókasafni
samkvæmt Gegni og má taka sem
dæmi guðspjallabók frá 1725, lat-
ínurit frá 1556 og stafrófskver frá
1753. Mikið úrval fágætra höfuðrita
íslenskrar bókmennta er þarna einn-
ig að finna, m.a. Crymogea Arngríms
lærða (1610), Kristni sagan (1688),
Íslendingabók Ara fróða (einnig
1688), Atli Björns í Sauðlauksdal
(1780) og Heimskringla í 6 bindum
(1777-1826). Mikið úrval er þar einnig
af frumútgáfum fyrstu bóka helstu
höfuðskálda Íslands og flest helstu
tímarit, öll í frumútgáfum og í heild
sinni. Ef vel tekst til verður þessum
gersemum öllum og fleirum til fund-
inn veglegur staður í safninu, sem
verður þar með eitt af merkari
Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahúss Vestmannaeyja – 60 ára
Einarsstofa Dagskrá á vegum félagsskaparins Eyjahjartans í fyrra.
Miðlar menningararfinum
Dæturnar Stuttu eftir að sú yngri
kom frá Kína.
Safnvörðurinn Tekið til á bóka-
safninu, sem geymir 100.000 bækur.
40 ára Rabbi ólst upp
í Kópavogi en býr í
Grafarvogi. Hann er
húsasmiður að mennt
frá Iðnskólanum í
Reykjavík og er bygg-
ingaverktaki. Hann er
dyggur stuðnings-
maður HK.
Maki: Ósk Ágústsdóttir, f. 1983, snyrti-
fræðingur.
Foreldrar: Sóley Gyða Jörundsdóttir, f.
1960, leikskólastjóri á Dal í Kópavogi, og
Grétar Steinn Leifsson, f. 1959, pípulagn-
ingameistari á Long Island í New York.
Rafn Ari Grétarsson
Til hamingju með daginn
Kópavogur Ares Þór fæddist
fimmtudaginn 15. ágúst 2019 kl.
10.01 í Reykjavík Hann vó 4.412 g
og var 52 cm langur. Foreldrar
hans eru Ásta Rós Sigtryggsdóttir
og Haraldur Garðarsson.
Nýr borgari