Bæjarins besta - 17.08.1988, Blaðsíða 12
12
BÆJARINS BESTA
Viktor, sem fylgdi blaðamönnum um skipið.
Það er ávallt talið fréttnæmt
þegar stór, erlend skemmtiferða-
skip leggja leið sína að ströndum
íslands. Núna um daginn kom
einmitt eitt slíkt til Isafjarðar.
Blaðamenn BB gripu gæsina
meðan hún gafst, og fengu leyfi til
þess að fara um borð á meðan
farþegarnir voru i landi að skoða
sig um.
Skipið er rússneskt, en í þess-
| ari ferð voru nánast allir farþeg-
I arnir þýskir, og sama er að segja
I um starfsfólkið. Yfirmenn virt-
ust þó upp til hópa vera rúss-
neskir. Alls voru um 370 farþeg-
ar, en hátt í fjörutíu manns eru í
áhöfn.
Þegar leyfi hafði fengist fyrir
blaðamenn, var farið í hraðbát
um borð í skipið, sem lá töluvert
Þjóðverjarnir voru áhugasamir um íslenska sjávarhætti, ef
dæma má af fjölda þeirra sem komu á sjóminjasafnið.
okkur um. Frakkaklæddur rúss-
neskur maður, sem virtist vera
afar hátt settur, gaf skipanir á
rússnesku, og fylgdi okkur til
samlanda síns, sem talaði
skemmtilega skrýtna ensku.
Þetta var Viktor, sem leiddi okk-
ur um salarkynnin, og sagði okk-
ur frá því helsta.
Skipið er byggt árið 1975, en
var endurbyggt nú fyrir tveimur
árum. Það er um þessar mundir
notað fyrir evrópska ferðamenn,
en í haust verður það notað ein-
göngu fyrir rússneskt ferðafólk.
Mörg skip eru í notkun frá
þessu sama fyrirtæki, og eru not-
Á hverju kvöldi er eitthvað
um að vera á skipinu. Þar eru
ýmist danssýningar eða sirkus,
leiksýningar eða kvikmyndasýn-
ingar. Þegar blaðamenn voru
um borð, var verið að æfa rúss-
neska þjóðdansasýningu á ein-
um næturklúbbnum. Mikil á-
hersla virðist vera lögð á allt sem
heitir rússneskt á skipinu, jafn-
vel þó það sigli ekki alltaf til
Sovétríkjanna með evrópsku
farþegana. Þar eru seldir rúss-
neskir handunnir munir og kort
af Sovétríkunum prýða stóra
veggi.
Að lokinni skoðunarferðinni
um skipið bauð Viktor blaða-
mönnum upp á kaffi og djús á
kaffiteríunni.
Þegar komið var í land að
nýju, var stór hópur farþeganna
að skoða sjóminjasafnið niðri í
Neðstakaupstað. Fenginn hafði
verið auka þýksumælandi mann-
afli á safnið til þess að taka á
móti þessum stóra hóp. Það var
að heyra og sjá á Þjóðverjunum
að þeir væru mjög áhugasamir
um íslenska sjávarhætti fyrr og
nú.
uð sitt á hvað fyrir Rússa og Evr-
ópubúa.
Skipið rúmar í allt um 550
manns. í því eru tveir stórir mat-
salir, en að sögn Viktors eiga all-
ir farþegar skipsins að geta borð-
að á sama tíma ef því er að
skipta. Auk matsalanna er kaffi-
tería um borð, tveir næturklúbb-
Ir, bar og verslanir af öllu tagi.
Þar er kvikmyndasalur, sem
var komið fyrir þegar skipinu
var breytt árið 1986. Þar var
áður bílalest. Salurinn tekur um
150 manns í sæti.
Nú er hagur farþeganna hafð-
ur meira í fyrirrúmi en fyrir
breytingarnar. Eins og Viktor
sagði; „Skipið var áður fyrir bíla
og farþega, en er nú fyrir far-
þega og bíla“.
LÆKKIÐ HITAKOSTNAÐINN!
BLÁSIÐ STEINULL
ERUM AÐ SKIPULEGGJA
FERÐ UM VESTFIRÐI
HÚSAEINANGRUN HF
SÍMI 91-22866
Þeir sem vilja láta
skoða eða einangra
hús sín, hafið sam-
band sem fyrst við
umboðsmann okkar á
Suðureyri, Elvar Frið-
bertsson, í símum 94-
6265 eða 94-6206.
dTKKVTHC
FERÐASKRIFSTOFA
(SAFJARÐARUMBOÐ
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR
SÍMAR4111 & 3818
Ferðamál:
Rússneskt skemmti-
ferðaskip á ísafirði
langt úti vegna stærðar sinnar.
Okkur hafði verið sagt að tala
við einn þýsku fararstjóranna,
þegar um borð kæmi. Það gerð-
um við, en einhverra hluta
vegna, mátti hún ekki fylgja