Morgunblaðið - 08.09.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 08.09.2020, Síða 1
Sky Lagoon Það styttist í að gestir geti baðað sig í Sky Lagoon á Kársnesi. Vonir standa til þess að Sky Lag- oon, baðlón vestast á Kársnesi, verði opnað næsta vor en fram- kvæmdir hafa gengið hraðar en gert var ráð fyrir. Starfsmenn baðlónsins verða á annað hundrað. „Framkvæmdir ganga mjög vel og í raun má segja að sökum kórónuveirunnar gangi þær hraðar en við áætluðum. Núna erum við í kappi við tímann að reyna að klára sem mest af útivinnunni,“ segir Dagný Hrönn Pétursdóttir, fram- kvæmdastjóri Sky Lagoon. „Næsta vor er teygjanlegt hug- tak og við sjáum til hvort við opn- um snemma eða seint á því tíma- bili. Það verður að taka mið af umhverfinu. Við erum hins vegar hvergi bangin og erum með fótinn á bensíngjöfinni en þó þannig að við séum skynsöm,“ segir Dagný. Hún hefur talsverða reynslu af rekstri baðlóna en hún var fram- kvæmdastjóri Bláa lónsins í um tíu ár. Að hennar sögn er gríðarlega mikilvægt að horfa til lengri tíma þegar ráðist er í fjárfrekar fram- kvæmdir. »12 Opna vonandi í vor  Framkvæmdir við Sky Lagoon á Kársnesi ganga vonum framar Þ R I Ð J U D A G U R 8. S E P T E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  211. tölublað  108. árgangur  Ó́SÁTTUR MEÐ 20 METRA HÁA ÖSP Í GARÐINUM GLÆNÝR SJÚKRABÍLL KOSTIR OG GALLAR VIÐ AÐ SEMJA SKAUP Í FARALDRI SÁ FYRSTI Í 20 ÁR 2 SEX HÖFUNDAR 28TIL VANDRÆÐA 6 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Um 1.200 umsóknir um atvinnuleys- isbætur hafa borist Vinnumálastofn- un (VMST) frá nýliðnum mánaðamót- um eða á einni viku. „Okkur hafa borist um 1.200 umsóknir frá mánaða- mótum. Þetta er svipað og við höfðum spáð þannig að við erum þokkalega viðbúin þessu,“ segir Unnur Sverris- dóttir, forstjóri VMST. Hún segir of snemmt að segja til um hvort spá stofnunarinnar um þróun atvinnu- leysis í septembermánuði muni ganga eftir. Gert hefur verið ráð fyrir að al- mennt atvinnuleysi hafi farið í um 8,6% í ágúst og muni aukast lítið eitt í september. Ekki er búist við umsókn- um vegna fjöldauppsagna um sein- ustu mánaðamót fyrr en að loknum uppsagnarfresti síðar á árinu. Í ágúst var 284 starfsmönnum sagt upp störf- um í fjórum hópuppsögnum. ,,Við höfum gert og gerum enn ráð fyrir um 3.000 umsóknum að meðal- tali á mánuði fram að áramótum,“ segir Unnur. Yfir þrjú þúsund á hlutabótum Að sögn hennar eru þeir sem sótt hafa um bætur á seinustu dögum að öllum líkindum að mestu leyti fólk sem missti vinnuna um mánaðamótin maí/júní. Alþingi samþykkti í síðustu viku að framlengja hlutabótaleiðina um fjóra mánuði eða til áramóta. Að sögn Unn- ar lítur út fyrir að um 300 nýjar um- sóknir hafi borist um hlutabætur það sem af er september en fyrir voru um 2.750 manns í hlutabótakerfinu um síðustu mánaðamót. 1.200 umsóknir í einni viku  Fjölgar á atvinnuleysisskrá  VMST býst við um 3.000 umsóknum í hverjum mánuði til áramóta  Um 300 nýjar umsóknir um hlutabætur frá mánaðamótum Sólsetrið við Gróttu var fagurt í gærkvöldi eins og það gjarnan er á þeim slóðum. Þetta par naut fallegrar birtu á Seltjarnarnesi og fór um hönd í hönd á fjórum jafnfljótum undir bláum himni og daufri birtu frá sólinni sem var við það að hverfa ofan í hafið þegar ljósmyndara bar að garði. Gengið undir himinbláma á Seltjarnarnesi Morgunblaðið/Eggert  Fyrirtækið Swipeclub, sem býður upp á net- námskeið sem taka á andlegri og líkamlegri heilsu, velti ríf- lega 100 millj- ónum í fyrra. Nökkvi Fjalar Orrason, fram- kvæmdastjóri Swipeclub, segir að þrátt fyrir mik- ið framboð á því sem kallað er „sjálfshjálparefni“ hafi hann komið auga á glufu í markaðnum. Flest af því sem framleitt er hérlendis miði að því að byggja upp færni sem nýt- ist við vinnu eða áhugamál en heils- an sé að einhverju leyti óplægður akur. »12 Swipeclub velti 100 milljónum í fyrra Nökkvi Fjalar Orrason  Fyrirtækið Íslandsþari vinnur að undirbúningi vinnslu á stórþara eða tröllaþara á Húsavík. Snæbjörn Sigurðarson, sem hef- ur unnið að verkefninu síðustu mánuði, segir að hugmyndin sé að afla þara, þá einkum stórþara, úti fyrir Norðurlandi og nýta jarðhita á Húsavík til að þurrka hráefnið. Varan verði síðan flutt út til frekari vinnslu í matvæla-, heilsu- og lyfja- iðnaði. Um stórt fyrirtæki yrði að ræða á húsvískan mælikvarða og gætu allt að 80 stöðugildi í landi og 20 á sjó fylgt starfseminni. »4 Áform um þör- ungaverksmiðju  Á tíu ára tímabili fjölgaði störfum í ferðaþjónustu um 634% í Mýrdals- hreppi. Rúmlega helmingur allra starfa í sveitarfélaginu er við ferða- þjónustu en hlutfallið var um 15% fyrir tíu árum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í greiningu sem Samtök sunnlenskra sveitar- félaga hafa látið taka saman um stöðu og þróun atvinnulífs á Suður- landi. Störfum í ferðaþjónustu á Suður- landi hefur fjölgað um 1.937 frá 2012 til 2019 en það er 55% af fjölg- un starfa á Suðurlandi á því tíma- bili. Laun í ferðaþjónustu á Suður- landi eru 15% lægri en meðallaun í fjórðungnum. Meðallaun fyrir allar atvinnugreinar voru 498 þúsund á mánuði en 423 þúsund í ferðaþjón- ustu. »10 Morgunblaðið/Eggert Hestaferð við Reynisdranga Vík í Mýrdal er afar vinsæll ferðamannastaður. Störfum fjölgaði um 634% á tíu árum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.