Morgunblaðið - 08.09.2020, Side 2

Morgunblaðið - 08.09.2020, Side 2
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Greiddir hafa verið tæpir átta millj- arðar úr ríkissjóði eða samtals 7.990.664.930 kr. í fjárstuðning til fyr- irtækja og annarra rekstraraðila vegna hluta launakostnaðar á upp- sagnarfresti starfsmanna í mánuðun- um maí, júní og júlí. Embætti Ríkisskattstjóra birti í gær lista yfir hvaða atvinnurekendur hafa fengið fjárstuðning samkvæmt lögunum sem samþykkt voru í maí síðastliðnum um stuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á upp- sagnarfresti starfsfólks, fjárhæðir og fjölda launamanna sem eru á upp- sagnarfresti í þeim tilvikum þar sem þeir eru 20 eða fleiri. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Ríkisskattstjóra fengu alls 272 rekstraraðilar stuðning úr ríkissjóði vegna hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti í maí, júní og júlí. Icelandair ehf. sker sig úr en fyrir- tækið fékk tæpa 2,9 milljarða eða um 36% af heildarfjárhæðinni vegna upp- sagna 1.889 starfsmanna. Flugleiða- hótel hf. koma næst í röðinni, fengu rúmar 452 milljónir kr. vegna 480 starfsmanna, og Íslandshótel fengu þriðja hæsta stuðninginn, tæpar 436 milljónir, vegna 467 starfsmanna. Fyrirtæki á listanum starfa flest í ferðaþjónustu eða greinum sem tengjast henni. 8 milljarðar í stuðn- ing vegna uppsagna  272 fyrirtæki fengu greitt úr ríkissjóði vegna hluta launa 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Tímamót hafa orðið í sjúkraflutn- ingsþjónustu á Patreksfirði nú þeg- ar þangað er kominn glænýr sjúkrabíll. Síðast kom nýr sjúkra- bíll á staðinn fyrir rúmum tuttugu árum en annars hafa verið færðir þangað notaðir bílar úr Reykjavík og öðrum umdæmum. Bíllinn er einn af þeim 25 nýju sjúkrabílum sem Rauði kross Ís- lands hefur keypt til landsins í átaki til endurnýjunar sjúkrabíla- flota landsmanna. Siggeir Guðna- son, sem hefur umsjón með bílnum á Patreksfirði, segir að bíllinn sé öðruvísi innréttaður en gömlu bíl- arnir, til þæginda fyrir sjúklinga og þá sem þeim sinna í flutningum. Þá séu það tímamót að fá glænýjan bíl. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða rekur tvo sjúkrabíla á Patreksfirði. Hinn sjúkrabíllinn er fimmtán ára gamall. Þeir þjóna sunnanverðum Vestfjörðum, úr Arnarfirði og aust- ur að Klettshálsi. Þar taka sjúkra- flutningsmenn úr Búðardal við og sinna Reykhólum og nágrenni. Bíl- arnir eru notaðir 70 til 100 sinnum á ári. Sex starfsmenn sinna akstri sjúkrabílanna, allir í aukastarfi, eru á bakvöktum, og tveir til viðbótar geta komið til aðstoðar ef á þarf að halda. Siggeir fullyrðir að fólkið sé ekki að sinna þessum störfum fyrir launin heldur vegna áhuga á að þjóna samfélaginu. Vinnuveitendur þess þurfi að vera sérstaklega lið- legir til þess að hægt sé að skrá sig á bakvakt á sjúkrabílnum. Sjálfur er hann yfirmaður þjónustu- miðstöðvar Vesturbyggðar. helgi@mbl.is Fyrsti nýi sjúkra- bíllinn til Patreks- fjarðar í tuttugu ár  Flestir bílarnir til þessa hafa komið notaðir úr öðrum umdæmum Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Glænýr sjúkrabíll Vignir Bjarni Guðmundsson, Freydís Eva Hallsdóttir, Edda Fanney Jónsdóttir, Halldór Trausta- son, Siggeir Guðnason og Guðlaugur Jónsson skipta á milli sín vöktum á nýja sjúkrabílnum á Patreksfirði. Á Austurlandi er nú síðsumars búið að fella 940 hreindýr, sem er um 70% af þeim veiðikvóta sem Umhverfis- stofnun gefur út. Kýrnar sem náðst hafa eru 486 og tarfarnir 454. Margir veiðimenn hafa verið á ferðinni eystra að undanförnu og telst kunn- ugum til að um helgina hafi um 80 dýr verið skotin. Mest er veiðin á svæðinu frá Jökulsá á Dal norður til Bakkafjarðar og svo á Fljótsdals- heiðinni, það er svæði 1 og 2, enda er mikið af kvótanum merkt þeim svæð- um, að sögn Jóhanns Guttorms Gunnarssonar, sérfræðings hjá UST á Egilsstöðum. Heildarkvóti á hreindýraveiðunum í ár er 1.325 dýr. Veiðarnar hafa að mestu gengið vel, að sögn Jóns Há- varðs Jónssonar, formanns Félags leiðsögumanna með hreindýraveið- um. „Að veiðar gangi vel þýðir að veðrátta hefur haldist sæmileg og frátafir af þeim sökum litlar, auk þess sem dýr hafa yfirleitt verið finn- anleg á þeim slóðum þar sem veiði- og leiðsögumenn hafa farið um,“ seg- ir Jón Hávarður. Hann hefur í sumar gjarnan farið með veiðimenn á fyrr- nefnd svæði, 1 og 2, og svo á svæði 3, sem nær yfir Dyrfjöll, Borgarfjörð eystri og nærliggjandi slóðir. „Veðrátta ræður því hvort næst upp í veiðikvóta þessa árs. Enn lifir vika af því tímabili sem fella má tarfa og kýr má skjóta fram til 20. sept- ember. Veðráttan ræður þessu. Svo er alltaf eitthvað um að veiðimenn heltist úr lestinni, skili inn leyfum sem svo er endurúthlutað. Það eru margir um hituna og koma austur til veiða bjóðist leyfi, þótt fyrirvarinn sé oft skammur,“ segir Jóhann Gutt- ormur Gunnarsson. Í kvóta ársins eru meðtaldar 50 kýr sem fella má í nóvember á svæð- inu milli Lónsheiðar og Jökulsár á Breiðamerkursandi. „Hreindýraveiðarnar skila heil- miklu til samfélagsins hér á Austur- landi. Að fella dýr og koma því til byggða er líka heilmikil vinna og fyr- irhöfn. Leiðsögumennirnir sem því sinna eru um 100 talsins en misvirkir í starfinu,“ segir Jón Hávarður. sbs@mbl.is 940 hreindýr hafa verið felld  70% af kvóta ársins er nú náð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hreindýr Stofninn er stór og dýrin flakka víða um á Austurlandi. Húsnæði fangelsisins á Akureyri verður endurnýjað og breytt til að mæta vaxandi húsnæðisþörf lögregl- unnar eftir að því verður lokað 15. september næstkomandi. Fangelsis- málastofnun mun hafa fjárhagslega burði til að reka stærri fangelsi landsins með lokun fangelsisins á Akureyri. Greint var frá því í dag að fangels- inu á Akureyri yrði lokað í næstu viku. Lokunin átti að fara fram um mánaðamót júlí og ágúst en var síð- an frestað á meðan mat ríkislög- reglustjóra á hugsanlegum viðbótar- kostnaði fyrir lögregluna á Norður- landi eystra fór fram. Í tilkynningu frá dómsmálaráðu- neytinu segir að embætti lögreglu- stjórans á Norðurlandi eystra verði nú styrkt um fjórar stöður lögreglu- manna til að sinna almennri lög- gæslu í umdæminu. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir leiðinlegt að horfa á eftir sam- starfsfólki sínu í fangelsinu á Akur- eyri. Hann segir breytinguna þó í takt við þróun fangelsismála- kerfisins. „Það sem við getum gert núna þegar þessi hagræðing hefur náð fram að ganga er að við getum rekið tvö stór fangelsi á fullnægjandi af- köstum, bæði fangelsið á Hólmsheiði og Litla-Hraun,“ segir Páll. Að hans sögn eru margar ástæður fyrir breytingunni. Til dæmis afpláni fæstir fangar lengur stærstan hluta refsingar sinnar í lokuðu fangelsi, stóru fangelsin séu með mun hærra öryggisstig og þar sé auðveldara að bjóða upp á möguleika til náms og vinnu. lilja@mbl.is Fangelsinu lokað í næstu viku  Breytingin í takt við þróun kerfisins Morgunblaðið/Margrét Þóra Fangelsið á Akureyri Fangelsinu verður lokað 15. september nk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.