Morgunblaðið - 08.09.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu
og lífsgæðum. Honeywell loft-
hreinsitæki eru góð viðmyglu-
gróum, bakteríum, frjókornum,
svifryki, lykt og fjarlægir allt að
99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
Verð kr.
59.100
Verð kr.
37.560
Verð kr.
16.890
Birgir Þórarinsson, þingmaður Mið-
flokksins, er ræðukóngur 150. lög-
gjafarþings Alþingis, sem lauk sl.
föstudag með „þingstubbnum“ svo-
nefnda, er Alþingi kom saman í rúma
viku. Birgir talaði einnig mest á 149.
löggjafarþingi. Samanlagt talaði
Birgir nú í 1.840 mínútur, eða sem
svarar hátt í 31 klukkustund, þegar
bæði ræður og athugasemdir hafa
verið teknar saman.
Eftir að þinghaldi var frestað í lok
júní sl. var birtur topp 10 listi í Morg-
unblaðinu (2. júlí) yfir mestu ræðu-
menn Alþingis. Röð efstu þingmanna
breytist ekki með þingstubbnum,
með þeirri undantekningu að Willum
Þór Þórsson, Framsóknarflokki,
kemst inn á listann, er í 9. sæti með
rúma 13 klukkustundir í pontu.
Annars er röð tíu efstu þessi eftir
150. löggjafarþingið, klukkustundir í
sviga: Birgir Þórarinsson (30,8), Guð-
mundur I. Krist-
insson, Flokki
fólksins (25),
Björn Leví Gunn-
arsson Pírati (24),
Bjarni Benedikts-
son, Sjálfstæð-
isflokki (20,5),
Helgi Hrafn
Gunnarsson Pír-
ati (19,3), Karl
Gauti Hjaltason
(17,4), Þorsteinn Sæmundsson, Mið-
flokki (17), Helga Vala Helgadóttir,
Samfylkingu (15,5), Willum Þór Þórs-
son (13,4) og Ólafur Þór Gunnarsson,
VG (13,2).
Ef þingstubburinn, sem stóð frá 27.
ágúst til 4. september, er skoðaður
sérstaklega þá talaði Björn Leví
lengst allra í þingsölum, eða í 132
mínútur, þar af 81 mínútu í ræðum.
Næstir koma Willum Þór með 117
mínútur, Guðmundur I. Kristinsson,
116 mínútur, Ágúst Ólafur Ágústs-
son, Samfylkingu, í 110 mínútur og
Bjarni Benediktsson talaði í 102 mín-
útur. Ræðukóngurinn Birgir talaði
„aðeins“ í 80 mínútur í þingstubbnum
en álíka lengi og allir aðrir Miðflokks-
menn til samans.
Lengsti fundur í 16 tíma
Þingfundir á 150. löggjafarþingi
voru samtals 141 og stóðu í tæpar 715
klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst.
og fjórar mínútur. Lengsti þingfund-
urinn stóð í 16 klst. og sjö mín.
Lengsta umræðan var um sam-
gönguáætlun sem stóð samtals í um
45 klst. Þingfundadagar voru alls 109,
að því er fram kemur í yfirliti frá Al-
þingi. Af 253 frumvörpum urðu alls
138 að lögum, 120 voru óútrædd,
tveimur var vísað til ríkis-
stjórnarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Vegna sóttvarnareglna var lengra bil á milli þingsæta og hliðarsalir notaðir til að koma þingmönnum fyrir.
Birgir er ræðukóngur
Alþingis annað árið í röð
Björn Leví Gunnarsson talaði mest í „þingstubbnum“
Birgir
Þórarinsson
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Þrír greindust með kórónuveiruna á
sameiginlegri deild sýkla- og veiru-
fræðideildar Landspítalans og Ís-
lenskrar erfðagreiningar í fyrradag.
Einn er nú inniliggjandi á Landspít-
ala vegna veirunnar með væg ein-
kenni. Alls hafa sex verið lagðir inn á
sjúkrahús í annarri bylgju faraldurs-
ins, þar af var einn í öndunarvél um
tíma. Þetta kom fram á upplýsinga-
fundi almannavarna í gær.
Þar sagði Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir á fundinum að frá því að
nýjar reglur tóku gildi á landamær-
unum 19. ágúst hefði 31 greinst með
veiruna, þar af 10 í síðari sýnatöku.
Undanfarna daga hafa í kringum
1.000 sýni verið tekin daglega við
landamæraskimun, en samkvæmt
upplýsingum frá almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra nær sú tala bæði
yfir fyrri og síðari sýnatöku.
80 sentimetrar „út í hött“
Þórólfur sagði að tilgangurinn með
þeim reglum sem eru í gildi innan-
lands og tóku gildi í gær, til dæmis
eins metra nálægðartakmarki og því
að ekki megi fleiri en 200 koma sam-
an, væri að koma í veg fyrir út-
breiðslu faraldursins hér á landi.
Hann segir það „út í hött“ að breyta
eins metra reglunni í 80 sentimetra
reglu spurður hvort til greina kæmi
að taka 20 cm af metrareglunni.
„Þetta er ekki spurning um leik að
sentimetrum,“ sagði Þórólfur. Hann
bætti því við að með þeim aðgerðum
sem gripið hefur verið til hefði tekist
að fletja kúrfuna og fækka innan-
landssmitum. Þá sagði Þórólfur að
mál ensku landsliðsmannanna Phils
Fodens og Masons Greenwoods væri
klárt brot á reglum um sóttkví, en
leikmennirnir fengu til sín íslenskar
stúlkur og gerðust þar með sekir um
brot á sóttvarnalögum. Málið var
rannsakað hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu og voru leikmennirn-
ir sektaðir um 250 þúsund krónur
hvor.
Greint var frá því í gær að Heilsu-
gæslan á höfuðborgarsvæðinu myndi
nú halda úti töku einkennasýna inn-
andyra. Hingað til hafa sýnin verið
tekin inn um bílglugga í sýnatöku-
tjaldi fyrir utan gamla Orkuhúsið við
Suðurlandsbraut. Óskar Reykdals-
son, forstjóri Heilsugæslunnar, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að
nú þegar „veðrið er orðið rysjótt þá
er praktískara fyrir okkar fólk að
þetta sé gert í húsi“. Gangaverðir
verða á svæðinu og vísa fólki veginn
þegar gengið er til sýnatöku að sögn
Óskars. Hann segir að ýtrustu sótt-
varnaráðstöfunum sé fylgt og því fel-
ist engin áhætta í sýnatöku.
Einn á sjúkrahúsi með
væg einkenni veirunnar
Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi Þrjú ný innanlandssmit
Ljósmynd/Almannavarnir
Tveir Rögnvaldur Ólafsson og Þórólfur Guðnason á fundi almannavarna.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Fyrirtækið Íslandsþari vinnur að
undirbúningi að vinnslu á stórþara
eða tröllaþara á Húsavík. Snæbjörn
Sigurðarson, sem hefur unnið að
verkefninu síðustu mánuði, segir að
hugmyndin sé að afla þara, þá
einkum stórþara, úti fyrir Norður-
landi og nýta jarðhita á Húsavík til
að þurrka hráefnið. Varan verði
síðan flutt út til frekari vinnslu í
matvæla-, heilsu- og lyfjaiðnaði.
Uppbygging í vetur
Verkefnið var tekið fyrir í
byggðarráði Norðurþings í síðustu
viku þar sem óskað var eftir aðstoð
og samstarfi sveitarfélagsins við
ákvörðun endanlegrar staðsetn-
ingar og skipulagningu þeirra þátta
sem nauðsynlegir eru til að byggja
upp starfsemina á Húsavík. Byggð-
arráð tók jákvætt í erindið.
Fram kom í Fiskifréttum í sum-
ar að verkefnið kallaði á fjárfest-
ingu upp á rúma tvo milljarða
króna.
Snæbjörn segir að nokkrir einka-
aðilar standi að fyrirtækinu og að
viðræður séu í gangi við fjárfesta.
Fjármögnun verkefnisins skýrist á
næstu dögum. Ef allt gangi upp
verði hægt að hefja uppbyggingu
útgerðar og vinnslu á Húsavík í
vetur.
Starfsemin verði svipuð og er hjá
Þörungaverksmiðjunni á Reykhól-
um nema hvað áhersla verði lögð á
tröllaþara og fullvinnslu. Um stórt
fyrirtæki yrði að ræða á húsvískan
mælikvarða og gætu allt að 80
stöðugildi í landi og 20 á sjó fylgt
starfseminni.
Verðmæti unnin
úr stórþara
Yrði stórt fyrirtæki á húsvískan
mælikvarða Áhersla á fullvinnslu
Stórþari Byggðarráð Norðurþings
tók vel í hugmyndir um vinnslu.
Krabbameinsfélagið óskaði eftir því
að gögn sem styddu fullyrðingar
fulltrúa Sjúkratrygginga Íslands
um starfsemi félagsins yrðu send
félaginu fyrir hádegi í gær. Slík
gögn bárust ekki en Sjúkratrygg-
ingar svöruðu þó erindinu og ósk-
uðu eftir staðfestingu frá Krabba-
meinsfélaginu á því að kröfur til
starfseminnar væru uppfylltar. Það
staðfesti Krabbameinsfélagið.
Tryggvi Björn Stefánsson, læknir
og fyrrverandi fulltrúi Sjúkratrygg-
inga, sagði í Kastljósi í síðustu viku
að gæðaeftirliti og gæðaskráningu í
leitarstarfi félagsins hefði verið
verulega ábótavant.
María Heimisdóttir, forstjóri
Sjúkratrygginga sagði í gær að hún
hefði ekki séð nein gögn sem gætu
staðið undir þeirri fullyrðingu en
sagði þó að nýtt skjal hefði komið
fram sem Sjúkratryggingar myndu
fara yfir með landlækni í dag. Skjal-
ið, sem er frá áramótum 2017/2018,
hefur þegar verið afhent Krabba-
meinsfélaginu. Skjalið var útbúið af
Sjúkratryggingum og fjallar um ár-
angur af þjónustusamningi þeirra
við Krabbameinsfélagið.
Krabbameinsfélagið gaf það út á
sunnudag að ef gögn kæmu fram
sem styddu fullyrðingar Tryggva
myndi félagið ekki komast hjá því
að „loka starfsemi Leitarstöðvar-
innar umsvifalaust“. Þá sagði félag-
ið einnig að ef Sjúkratryggingar
gætu ekki framvísað slíkum gögn-
um fyrir frest liti Krabbameins-
félagið svo á að þau væru ekki til og
að ummæli Tryggva væru „stað-
lausir stafir“.
Engin gögn bárust
Krabbameinsfélaginu
Án gagna séu ummælin staðlausir stafir