Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020
Þeir sem „hafa ríka réttlætis-kennd“ og vita betur í þeim efn-
um og öðrum en aðrir vilja tak-
marka málfrelsi annarra og gera
það af góðum hug. Páll Vilhjálmsson
skrifar um það:
Dagblöðum meðranga skoðun á
meintum loftslags-
breytingum af
mannavöldum var
lokað af öfgahópi er
kennir sig við út-
rýmingu og uppreisn.
Gerðist í höfuðborg Bretlands.
Douglas Murray í Telegraph vek-ur athygli á tvennu:
Dagblöðin sem voru skotmörkineru öll til hægri í pólitíska lit-
rófinu.
Í öðru lagi er stórt hlutfallaðgerðasinna í útrýmingu og
uppreisn miðaldra fólk í þokka-
legum efnum.
Þessu fólki leiðist, segir Murray,og finnur tilgang í lífinu í öfga-
hópi með trúarívafi.
Líffræðin virkar þannig að upp úrmiðjum aldri dofnar kynhvötin.
Tilgangur lífsins verður óskýrariþegar fólk hættir barneignum.
Óstabílir einstaklingar, yfirleittvinstrimenn, finna sér tilgang í
trúarkreddum, einkum ef hún felur í
sér heimsendi.
Í einni setningu: glötuð greddaverður kredda.“
Páll Vilhjálmsson
Er viagra svarið?
STAKSTEINAR
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest
samning milli Sjúkratrygginga Ís-
lands og LaserSjónar ehf. um auga-
steinsaðgerðir fyrir sjúkratryggða
einstaklinga.
Einstaklingar sem fá þjónustu
samkvæmt samningnum þurfa að
uppfylla sömu skilyrði fyrir aðgerð
og giltu í fyrri samningi um auga-
steinsaðgerðir. Samningurinn er
gerður til eins árs og tók gildi um
mánaðamótin. Fram kemur á vef
Sjúkratrygginga að samningurinn
sé gerður í kjölfar verðfyrirspurnar
þar sem óskað var tilboða í fram-
kvæmd 600 augasteinsaðgerða á 12
mánaða tímabili. Í ljósi hagstæðs
tilboðs skapist svigrúm til að fjölga
aðgerðum á árinu um allt að 10-
15%.
Með staðfestingu ráðherra hefur
samningurinn öðlast gildi og eru þá
þrír aðilar sem framkvæma auga-
steinsaðgerðir með greiðsluþátt-
töku hins opinbera, þ.e. Landspítali,
Sjúkrahúsið á Akureyri og Laser-
Sjón.
Samkvæmt síðustu skýrslu um
biðlista frá embætti landlæknis var
beðið eftir 1.114 augasteinsaðgerð-
um í október á síðasta ári.
Samið um augasteinsaðgerðir
Samningur við LaserSjón framlengdur
um ár Svigrúm til að fjölga aðgerðum
Ljósmynd/Ólafur Már Björnsson
Aðgerð Augnlæknir á einkastofu
framkvæmir aðgerð á sjúklingi.
Brottkast á bæði þorski og ýsu
jókst í botnvörpu árið 2017 og var
um töluverða aukningu að ræða í
báðum tegundum. Metið brottkast
á þorski var það hæsta sem mælst
hefur í það veiðarfæri.
Í niðurstöðum Hafrannsókna-
stofnunar á mælingum á lengdar-
háðu brottkasti þorsks 2017 kem-
ur fram að reiknað brottkast
þorsks í línuveiðum jókst frá árinu
áður, og var um 608 þúsund fiskar
eða 384 tonn, sem samsvarar 2,9%
af heildarfjölda landaðs afla ársins
eða um 0,5% af heildarþyngd.
Reiknað brottkast þorsks í
botnvörpuveiðum jókst að sama
skapi töluvert frá síðasta mati, og
var um 3.353 þús. fiskar eða 5.274
tonn, sem gerir um 12,2% af
heildarfjölda eða 3,9% af heild-
arþyngd landaðs afla í botnvörpu.
Reiknað brottkast fyrir árið
2017 í þessum tveimur veiðarfær-
um var því nokkuð hátt, eða 8,2%
af heildarfjölda landaðs afla, og
2,6% af heildarþyngd landaðs afla.
Brottkast úr línu og botnvörpu
var meira en þegar þessi veið-
arfæri voru síðast skoðuð árið
2015.
Brottkast á þorski í netum var
svipað og undanfarin ár, en þó var
metið brottkast 2018 hærra en
langtímameðaltal. Árið 2018 dró úr
brottkasti bæði þorsks og ýsu á
línuveiðum miðað við árið á undan.
Brottkast er mælt við línuveiðar
á hverju ári, en í botnvörpu- og
netaveiðum annað hvert ár á víxl.
Lengdarmælingar
Meginaðferðin sem beitt er til
að meta brottkastið er háð því að
til séu lengdarmælingar á afla upp
úr sjó annarsvegar (sjósýni), þ.e.
áður en hugsanlegt brottkast á sér
stað, og hinsvegar lengdarmæling-
ar á lönduðum afla (landsýni), þ.e.
eftir að brottkast hefur farið fram.
Með samanburði á slíkum lengd-
ardreifingum, og með tilteknum
útreikningum, er unnt að meta
brottkast, þar sem mismunur
lengdardreifinganna er mælikvarði
á brottkast, segir í skýringum á
aðferðum.
Forsenda útreikninganna er að
ekkert brottkast eigi sér stað eftir
að tiltekinni lengd er náð. Aðferðin
byggist þannig á því að brottkast
sé lengdarháð og fiski (smáfiski) á
tilteknu lengdarbili sé hent en
stærri fiskur hirtur. aij@mbl.is
Aukið brottkast á
botnvörpuveiðum
Var 3,9% af þyngd landaðs afla 2017