Morgunblaðið - 08.09.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.09.2020, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 Æðsta stofnun þjóðkirkjunnar, kirkjuþing, kemur saman 10. september nk. til að samþykkja nýja skipan kirkjumála í framhaldi af viðbót- arsamningi ríkisins og kirkjunnar frá 6. sept- ember 2019. Af því tilefni skora ég á þingfulltrúa að taka til afgreiðslu með afbrigðum á þingsköpum þá ós- mekkvísi og trúarbrenglun, sem fræðslunefnd þjóðkirkjunnar á biskupsstofu hefur sett fram sem nýtt efni sunnudagaskólans, með forsíðu- mynd af Kristi í litum regnbogans, sem varalit- aðri konu með brjóst! Ekkert getur bætt þessa framkomu Biskups- stofu og fræðslunefndar kirkjunnar nema af- dráttarlaust samþykki kirkjuþings um að aftur- kalla þetta efni sunnudagaskóla kirkjunnar og veita biskupi Íslands áminningu um þessa fram- kvæmd, með ósk um að fræðslunefnd þjóðkirkj- unnar og samskiptastjóra hennar, sem í fjölmiðl- um hefur rökstutt ákvörðunina, verði sagt upp. Áskorun til kirkjuþings Eftir Halldór Gunnarsson Halldór Gunnarsson »…nema sam- þykki kirkju- þings um að afturkalla þetta efni og veita biskupi Íslands áminningu. Höfundur er fyrrverandi sóknarprestur í Holti. Að undanförnu hefur nýtt aðalskipulag, sem gerir ráð fyrir því að hringvegurinn liggi sunnan þéttbýlisins í Vík, í stuttum jarð- göngum undir Reyn- isfjall, ekki verið í frétt- um á hverjum degi. Best hefði verið ef fyrr- verandi þingmenn Suð- urlands hefðu fyrir löngu staðið saman og flutt tillögu um að flýta útboði gang- anna sem leysa af hólmi núverandi veg á snjóþungu og illviðrasömu svæði milli Reynishverfis og Víkur- þorps. Þessi veggöng undir Reyn- isfjall, sem deilt hefur verið um alltof lengi, koma öllum landsmönnum til góða. Þau hefði átt að ákveða mörg- um árum á undan Vaðlaheiðar- og Héðinsfjarðargöngum. Veglínurnar, sem deiluaðilar geta ekki samið um, gera ráð fyrir hefðbundnum láglend- isvegi. Öllu máli skiptir að þessi veg- ur standist hertar öryggiskröfur ESB og losni við brekkur og blind- hæðir sem skapa vandræði. Skamm- arlegt er að þingmenn Suður- kjördæmis skuli aldrei hafa tekið þetta mál upp í samgöngunefnd Al- þingis áður en blekkingum var beitt til að fá Vaðlaheiðargöng samþykkt. Á núverandi hluta hringvegarins vestan Víkurþorps og um Reynis- hverfi er ástandið til háborinnar skammar og engum bjóðandi. Við þessu skulu allir þingmenn Suður- kjördæmis og ráðherra samgöngu- mála bregðast. Honum er skylt að svara því hvort það sé heppilegt að þjóðvegurinn, með öllum sínum um- ferðarþunga, liggi um ókomin ár þvert yfir neysluvatnsból Víkurbúa. Óþolandi er að engin svör skuli fást þegar þingmenn Sunnlendinga eru spurðir hvort nú sé tímabært að þeir standi saman og flytji á Alþingi frumvarp um að ríkisstjórnin taki á þessu vandamáli í eitt skipti fyrir öll. Allir þingmenn Suðurkjördæmis skulu svara því hvort þetta vandamál og tvöföldun Suðurlandsvegar skuli hafa forgang áður en tími Vest- mannaeyjaganga kemur. Skamm- arlegt er að fyrrverandi innanrík- isráðherra skyldi alltaf færast undan í flæmingi þegar vonsviknir heima- menn í Víkurþorpi sendu honum skýr skilaboð um að það væri óþol- andi að sjá slysahættuna aukast á hverjum degi, sem sívaxandi umferð flutningabifreiða í gegnum íbúðar- hverfið skapar. Þetta skulu ábú- endur í Reynishverfi kynna sér vandlega, í stað þess að berjast gegn stuttum veggöngum undir Reynis- fjall og nýrri veglínu. Vestan Vík- urþorps er tilgangs- laust fyrir þá að halda í núverandi veg, sem sleppur aldrei við 70-80 m veðurhæð á sekúndu og 6-10 metra snjó- dýpt. Það gengur ekki öllu lengur að þing- menn Sunnlendinga komi sér undan því að svara réttmætum spurningum heima- manna, sem hafa alltof lengi mátt þola þetta óréttlæti. Heimamenn í Reynishverfi geta ekki krafist þess að Vegagerðin byggi upp hindr- unarlausan heilsársveg á illviðra- sömu og snjóþungu svæði vestan Víkurþorps sem verður aldrei öruggt fyrir snjóflóðahættum. Á hringveginum er Reynisfjall eina verulega misfellan. Þar hafa snjó- þyngsli, illviðri og hálka oft skapað vandræði. Vegurinn upp á fjallið að vestanverðu um Gatnabrún, sem uppfyllir ekki hertar öryggiskröfur, lendir alltaf í klóm náttúruaflanna þegar starfsmenn Vegagerðarinnar treysta ekki veðurspánum. Fyrir þetta þræta heimamenn vestan Reynisfjalls, sem sigla undir fölsku flaggi þegar þeir ítreka hvað eftir annað andstöðu sína gegn færslu hringvegarins til suðurs og stuttum jarðgöngum undir Reynisfjall. Vest- an Víkurþorps geta snjóflóð lokað núverandi vegi án þess að ábúendur í Reynishverfi viðurkenni þessar staðreyndir, sem tala sínu máli. Nú- verandi vegir, sem tryggja aldrei öruggar vegasamgöngur, bjóða frek- ar upp á mikla slysahættu þegar fár- viðri kemst í fréttirnar þvert á allar veðurspár. Um miðjan febrúar árið 2000 kynnti Sturla Böðvarsson, þá- verandi samgönguráðherra, jarð- gangaáætlun Vegagerðarinnar sem eitt forgangsverkefni fyrir Vestfirði, Norður- og Austurland. Í viðtölum við fyrrverandi ráðherra kom fram að þessar samgöngubætur yrðu fjár- magnaðar með sölu ríkiseigna. Eng- in svör fengust þegar fyrrverandi þingmenn Suðurlands voru spurðir hvers vegna það mátti ekki koma samgöngumálum Víkurþorps, Mýr- dals og Reynishverfis í viðunandi ástand með þessari sölu sem snerist upp í pólitískan skrípaleik. Flýtum framkvæmdum við stutt veggöng undir Reynisfjall. Eftir Guðmund Karl Jónsson » Vestan Víkurþorps og um Reynis- hverfi er ástandið til skammar. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. Ný veglína sunnan Víkurþorps Íslendingar hafa nú búið við takmarkanir á samkomufrelsi, ferða- frelsi og atvinnufrelsi í um hálft ár í tilraunum stjórnvalda innanlands og utan til að hefta út- breiðslu nýrrar, bráð- smitandi, en tiltölulega hættulítillar veiru, SARS-CoV-2, sem fyrst varð vart í borg- inni Wuhan í Kína í nóvember eða desember 2019. Skammstöfun Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á heimsfaraldrinum er COVID-19. Allar sóttvarnaráðstafanir grípa inn í persónulega hagi fólks og þær eru dýrkeyptar. Sóttvarnaráðstaf- anir síðasta misserið hafa gengið mjög nærri hagkerfum flestra landa, ekki síst Íslands, vegna mikils vægis ferðaþjónustu í vergri landsfram- leiðslu (VLF). Þess vegna er nauð- synlegt, áður en sóttvarnaráðstaf- anir eru ákveðnar, að vega og meta ólíka valkosti í því augnamiði að lág- marka tjónið. Einvörðungu að há- marka sóttvarnaáhrifin er ekki endi- lega besta lausnin. Lagaleg réttindi í húfi Hin gullna regla, sem við á um sóttvarnaráðstafanir, er að stjórn- völd gæti meðalhófs. Hún kemur að góðu haldi, þegar leitað er lausna sem lágmarka tjónið. Það verður að hafa uppi smitvarnir gegn heimsfar- aldri, en ef þær keyra úr hófi fram m.v. afleiðingar sýkingar verða þær dýrari en nemur ávinninginum af að fækka smitum. Það er vel þekkt við- fangsefni innan verkfræðinnar að lágmarka tjón eða hámarka ávinn- ing, þar sem ólíkir kraftar togast á, og kallast aðferðafræðin bestun (e. optimisation). Á Íslandi og annars staðar í Evr- ópu er tekið að gæta þreytu almenn- ings gagnvart langdregnum sótt- varnaaðgerðum. Í Berlín og víðar hafa tugþúsundir hópast saman til að mótmæla frelsisskerðingu yf- irvalda, en hafa um leið stóraukið smithættu. Hérlendis hafa lögfræð- ingar, góðu heilli, tjáð sig opinber- lega um réttindaskerðinguna, sem í sóttvörnunum hefur falist. Sigríður Á. And- ersen þingmaður tjáði sig í útvarpsþætti 15.8. 2020, daginn eftir að forsætisráðherra kynnti ákvörðun rík- isstjórnarinnar um tvö- falda skimun komuf- arþega og fimm daga sóttkví. Þessi ákvörðun orkar mjög tvímælis, lagalega og efnahags- lega, þótt hún þyki sóttvarnalega best. Reimar Pétursson lögmaður ritaði skelegga gagnrýni á stjórnvöld á vef Fréttablaðsins 29.8. 2020. Niðurlag greinarinnar hljóðaði þannig, og er engu við lögfræðiþáttinn að bæta úr þessum ranni hér: „Nú er svo komið, að íslenskt sam- félag hefur verið rekið án tillits til stjórnarskrár og laga um margra mánaða skeið. Fátt bendir til, að rofa muni snarlega til og að þessu ástandi sloti fljótlega. Réttlæting þessara ráðstafana getur því vart verið sú, að þær séu skammvinnar. Sú krafa er því brýn, að stjórnarskrá og lög séu virt.“ Stjórnvöld telja sig vera í fullum rétti með sínar íþyngjandi aðgerðir, en lögmaðurinn hefur mikið til síns máls. Það er dómstólanna að skera úr þessum lagalega ágreiningi, en eftir stendur, að stjórnvöld virðast hafa farið offari í sóttvarnamálum og brotið meðalhófsreglu stjórnsýslu- laga, sem fullt tilefni var þó til að virða í baráttunni við þessa veiru. Meðalhófsins ber að leita Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla, ritaði grein í Morgunblaðið 29.8. 2020 und- ir heitinu: „Hinn vandrataði meðal- vegur veirunnar“. Hann bendir þar á lágt dánarhlutfall hérlendis af völd- um téðrar veiru, eða um 1/500 af sýktum, en dánarlíkur af völdum hjarta- og æðasjúkdóma sé 1/7, af völdum bílslysa 1/114 og af völdum slysa á gangandi vegfarendum 1/647. Til samanburðar var dánartíðnin af völdum hinnar skæðu ebólu-veiru, sem geisaði í Vestur-Afríku á fyrsta áratug þessarar aldar, u.þ.b. 1/1,7. Grein sinni lauk Jón Ívar þannig og skal taka undir þau orð: „Það er óraunhæf útópía að búa í veirufríu landi, því að það er ekki hægt að loka veiruna úti til lengdar, eins og nýleg dæmi frá Færeyjum og Nýja-Sjálandi sanna. Það er skynsamlegra að gæta meðalhófs og vernda lýðheilsu, og þá sérstaklega vernda viðkvæma hópa, en jafnframt að hlúa að frelsi einstaklinga og finna leiðir til að lágmarka skaðann fyrir alla.“ Tvöföld skimun og sóttkví Sú aðgerð stjórnvalda í sóttvarna- málum, sem mesta gagnrýni hefur hlotið, er að skipa öllum farþegum til landsins að fara í skimun fyrir kór- ónuveirunni við komuna og, sé niðurstaða hennar neikvæð, að fara samt í aðra skimun eftir um fimm sólarhringa og í sóttkví, þar til niðurstaða hennar er ljós. Þetta er mjög íþyngjandi fyrir komufarþeg- ana, þar sem töfin spannar lungann úr dvalarlengd flestra, enda hefur þetta reynst valda ferðaþjónustunni og þar með efnahag landsins stór- tjóni. Spurningin er sú, hvort þessi sóttvarnaaðgerð sé réttlætanleg þrátt fyrir ógæfuna, sem henni fylgir. Hver sýktur veldur sér og öðrum (samfélaginu) miklum kostnaði, og með sóttkvíarkostnaði verður hér reiknað með meðalkostnaði 3,1 MISK/sýktan. Nettótap af hverjum ferðamanni, sem hættir við að koma, er áætlað 100 kISK/farþ. Reiknað er með, að 1/1500 reynist jákvæður í seinna skiptið, en neikvæður í fyrra skiptið. Samt fæst, að það er 30-40 sinnum meiri kostnaður en sparn- aður af þessu fyrirkomulagi. Frum- hlaup virðist hafa átt sér stað. Eftir Bjarna Jónsson » Besta lausnin virðist vera að skima alla farþega við komuna og viðhafa smitgát, þar til niðurstaða hennar verð- ur ljós. Seinni skimun er of dýrkeypt. Bjarni Jónsson Höfundur er verkfræðingur á eftirlaunum. bjarnijons1949@gmail.com Fálm út í loftið? Óvissan sem einkennir þá krefjandi tíma sem við lifum á í dag getur haft í för með sér áhyggjur og kvíða. „Mun ég eða einhver af mínum nánustu veikjast?“, „Mun ég halda vinnunni?“, „Hversu lengi mun faraldurinn standa yfir?“. Kvíði og áhyggjur eru eðlileg viðbrögð við þeim fáheyrðu að- stæðum sem við finnum okkur í. Þeg- ar áhyggjurnar verða hins vegar óraunhæfar eða ágengar geta þær haft skaðleg áhrif á líkamlega og and- lega heilsu okkar. Við fáum hnút í magann og blóðþrýstingur hækkar, við verðum orkulaus og finnst við vera hjálparvana. Eða við sofum illa og glímum við einbeitingarskort. Vanda- málið er að áhyggjur eiga það til að stigmagnast og leiða til meiri áhyggna. Þegar áhyggjur sækja að okkur erum við ekki í núinu – við lát- um annaðhvort sogast niður í kvik- syndi fortíðarinnar („Hvers vegna fór ég í þessa fermingarveislu í síðustu viku?“) eða óttumst það sem framtíðin muni færa okkur („Hvað ef mér verð- ur sagt upp?“). Við þurfum að átta okkur á því að óvissa er óhjákvæmi- legur hluti af lífinu, burtséð frá kór- ónuveirunni. Veit einhver raunveru- lega hvað muni gerast á morgun, í næsta mánuði, á næsta ári eða jafnvel bara á næstu 10 mínútum? Drögum athyglina að líðandi stund Við erum hönnuð til að vera í núinu og takast á við áskor- anir lífsins. Tökum íþróttir sem dæmi: Ef við værum ekki hönnuð til að takast á við óvissu myndu íþróttamenn aldrei fara út á völl, hoppa í sundlaugina eða skíða niður bratta brekku. Íþróttamenn takast á við óvissu á hverju augnabliki. Þeir spila leikinn. Alveg eins og íþróttamönnum er okkur ætlað að taka þátt í og láta ber- ast með ánni með tilheyrandi ófyr- irsjáanleika og óvissu. Annars yrðum við kyrr, föst á bökkum árinnar, og hefðum áhyggjur af því sem við vær- um að fara að gera. Til að geta tekist á við óvissuna sem fylgir áskorunum eins og kórónuveir- unni þurfum við tæki og tól. Hér fyrir neðan eru þrjár gagnlegar aðferðir: 1. Komdu þér upp aðferð til að hætta að hafa áhyggjur Næst þegar þú tekur eftir því að áhyggjur sækja að þér er gott að sjá fyrir þér stoppmerki eða heyra við- vörunarbjöllu í huganum. Veltu síðan fyrir sér hvort áhyggj- urnar skili einhverju. Svarið verður að öllum líkindum nei. 2. Komdu þér aftur í núið Áhyggjur varða yfir- leitt fortíð eða framtíð: „Hvers vegna keypti ég ekki nóg af grímum í síðustu viku?“ eða „Hvað mun gerast ef ég verð ekki komin/n með vinnu eftir mánuð?“ Til að koma þér aftur í núið er gott að anda djúpt niður í maga, jarðtengja þig og taka eftir hvernig þér líður í stað þess að vera upptekinn af flæði hugsana þinna. 3. Hugleiddu hvað þú getur gert fyrir aðra Eitt af því mest gefandi sem við getum gert er að hjálpa öðrum. Lok- aðu augunum og sjáðu fyrir þér vin, ættingja, vinnufélaga eða einhvern sem þú hefur ekki hitt lengi. Veltu síðan fyrir þér hvað þú gætir gert fyr- ir viðkomandi sem myndi auðvelda líf hans eða draga úr streitu. Það er gagnlegt að einbeita sér að öðrum. Þegar við stöldrum við, kyrrum hugann og einbeitum okkur að öðrum verða áhyggjurnar að engu. Að takast á við óvissu Eftir Ingrid Kuhlman Ingrid Kuhlman Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar og með meistara- gráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði. ingrid@thekkingarmidlun.is » Þegar við stöldrum við, kyrrum hugann og einbeitum okkur að öðrum verða áhyggj- urnar að engu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.