Morgunblaðið - 08.09.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 08.09.2020, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 ✝ Ingólfur Krist-ófer Sigur- geirsson fæddist í Reykjavík 13. ágúst 1936. Hann lést á Hrafnistu Skóg- arbæ 23. ágúst 2020. Foreldrar Ingólfs voru Jóna Ingibjörg Ágústs- dóttir, f. 22.8. 1914, d. 27.2. 1993, og Sigurgeir Jóhanns- son, f. 13.1. 1911, d. 9.9. 1943. Ingólfur var næstelstur í hópi fimm alsystkina, sá elsti var Jó- hann, f. 1935, þá Ásthildur, f. 1937, Erla, f. 1939, þau eru öll látin, en yngst er Soffía, f. 1941, og hálfbróðir Hreggviður S. Sverrisson, f. 1952. Þegar Sigurgeir faðir Ingólfs féll frá haustið 1943 stóð Jóna Ingibjörg ein uppi með börnin fimm og voru elstu börnin þeir Jóhann og Ingólfur sendir í fóst- ur. Þá voru þeir bræður aðeins sjö og átta ára gamlir. Þeir fóru fyrst í fóstur á Vatnsleysuströnd, en staðirnir urðu fleiri og dvaldi Ing- ólfur víða um land, meðal annars í Landeyjasveit. Ing- ólfur saknaði móður sinnar mjög og var æskan að hans sögn ekki alltaf auðveld. Móðir hans kynntist svo seinni manni sínum Sverri G. Mey- vantssyni 1950 og átti með hon- um soninn Hreggvið. Ingólfur, eða Ingi) fór snemma til sjós og vann margvísleg störf bæði til sjós og lands. Sjómennsk- an átti þó alltaf stóran sess í huga hans. Hann vann m.a. um tíma sem bílstjóri bæði á trukkum og á leigubílum. Ungur kynntist hann unnustu sinni Önnu Snjó- laugu Þorvaldsdóttur, f. 17.3. 1939, d. 5.11. 1967. Það varð hon- um mikið áfall að missa Önnu, hún var stóra ástin í lífi hans. Síð- ar kynntist hann eiginkonu sinni Gerde sem kom frá Þýskalandi, en hún tók síðar nafnið Gerða Irena Pálsdóttir, f. 2.6. 1923, d. 10.1. 1999. Þau bjuggu í Reykja- vík og víðar. Það var Inga að vonum mikið áfall að missa Gerde og má segja að líf hans hafi farið á hliðina við það. Móðir hans féll frá í febrúar 1993 og var það honum þungbært. Bakk- us kom því oftar við og urðu þeir félagar heldur nánir um tíma. Ingi varð heimilislaus nokkr- um árum eftir fráfall eiginkon- unnar og var um tíma í gistiskýli í gamla Farsóttarhúsinu og víðar en flutti svo á Njálsgötu 74 árið 2011 og var þar með búsetu þar til hann fluttist á hjúkrunarheim- ili. Eftir um sex mánaða dvöl á sjúkrahúsum varð ljóst að hann myndi ekki flytjast aftur heim. Eftir dvöl á öldrunardeild á Landakoti flutti hann fyrst á Hjúkrunarheimilið Hjallatún í Vík í Mýrdal og síðan í varanlega vistun á Hrafnistu Skógarbæ í apríl sl. Útför Ingólfs fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík 8. sept- ember 2020 kl. 15. Ingólfur vinur minn kvaddi þessa jarðvist 10 dögum eftir 84 ára afmælið. Mér þótti við hæfi að færa honum góðan penna og krossgátublað á afmælisdaginn en hann var hrifinn af fínum pennum og marga krossgátuna hefur hann ráðið. Vegna veðurs og hrakandi heilsu Inga frest- uðum við kaffihúsaferð en hún verður víst ekki farin úr þessu. Ingi var heimilislaus um tíma og gisti þá meðal annars í gisti- skýlinu sem var í Þingholts- stræti. Erna Kaaber tók gott viðtal við hann og fleiri gesti skýlisins árið 2005 fyrir rit Geð- hjálpar. Skemmtileg tilsvör hans gáfu til kynna hversu stutt var í kímnina og líka hversu þakklát- ur hann var fyrir skjól. Hann fluttist svo á Njálsgötu 74 sem er búsetuúrræði á vegum Reykjavíkurborgar. Þar kynnt- ist ég Inga þegar ég réð mig í sumarafleysingar 2018. Hann sagði okkur starfsmönnum margar sögur sem stundum var erfitt að fylgja eftir því sögurnar gátu spannað áratugi. Ingi var stálminnugur fram á síðasta dag. Hann glímdi við veikindi meðal annars vegna afleiðinga slysa o.fl. og þurfti því að fara oft á spítala og síðar á hjúkr- unarheimili. Ég fylgdi honum gjarnan í þessar sjúkrahúsferðir og heimsótti hann. Hann var ekki í miklum tengslum við fjöl- skyldu sína á þeim tíma og varð úr að ég ákvað að halda því áfram. Við urðum góðir vinir enda gátum við spjallað um heima og geima. Það er oft sagt að kötturinn eigi níu líf en ég tel að Ingi hafi átt mun fleiri. Það var með ólík- indum hvernig hann reis upp aftur og aftur úr lungnabólgu og öðrum erfiðum veikindum. Alltaf hresstist Ingi og fór aftur að reykja og óska eftir bíltúrum. Við höfðum nýlega farið í banka- ferð en það voru heilagar stund- ir að fara í banka og kaffihús á eftir. Ingi var mikill miðbæjar- maður og fórum við því oft í gleraugnaverslunina hjá Rüdig- er á Laugavegi og til Gilberts úrsmiðs. Hann þekkti Reykjavík vel og mundi eftir flestum ef ekki öllum gömlum húsum og fyrirtækjum. Eftir að hann flutt- ist á Skógarbæ urðu Arionbanki á Bíldshöfða og Bakarameistar- ann nýju áfangastaðirnir. Kaffi og birkirúnstykki með smjöri og svo reykti Ingi nokkrar síga- rettur til að fullkomna ferðina. Einstaka sinnum var komið við í „mjólkurbúðinni“ og varð þá agnarlítil Baileys fyrir valinu, þannig að Bakkus var ekki til vandræða í seinni tíð. Ingi bað mig oft að skutla sér í Sindra og þar birgði hann sig vel upp af níðsterkum vinnufatnaði og í þannig klæðnaði kveður hann. Ég minnist Ingólfs sem örláts manns sem oft gaf þeim sem minna áttu. Hann var líka hjálp- samur og barngóður og minntist oft frændsystkina sinna sem honum þótti afar vænt um. Ing- ólfur var glettinn og stundum kaldhæðinn, hann var stoltur og sjálfstæður, líka þrjóskur og þver. Með þessa eiginleika í far- teskinu hefur hann eflaust kom- ist í gegnum óblíða ævi oft á köflum. Ingólfur fékk friðsælt andlát eftir enn eina lungnabólg- una. Nú var hann búinn með líf- in, hann kláraði síðasta borðið. Hvíldu í friði kæri vinur. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Ragnheiður J. Sverrisdóttir (Jonna). Ingólfur Kristófer Sigurgeirsson ✝ Lovísa MaríaErlendsdóttir (Jolanta Maria Za- wacka, Jola) fædd- ist 12. febrúar 1949 í Szcecin í Póllandi. Hún and- aðist á Landspít- alanum við Hring- braut þann 22. ágúst 2020. Foreldrar henn- ar voru Szczensny Zawacki stýrimaður, f. 4.11. 1926, d. 2010, og Krzysztora Maria Pouch snyrtifræðingur, f. 23.3. 1930, d. 2015. Jola á fjóra bræður sam- mæðra. Þar af er einn albróðir sem heitir Janus Zawacki. Hann býr í Svíþjóð en þau höfðu alla tíð töluvert sam- band, hina þekkti hún ekki mikið. Hún lærði til þjóns á sínum unglingsárum og vann eitthvað við það í Póllandi. Einnig lærði hún og dansaði ballett frá barn- æsku. Jola kom til Ís- lands í desember 1969, 20 ára og fékk fyrst vinnu við að passa börn. Hún vann síðan ýmiss önnur störf, m.a. var hún mat- sveinn á Guðrúnu GK um tíma og var í eldhúsinu á Brúarfossi sem aðstoðarmanneskja. 1972 giftist hún Víglundi Þorsteinssyni. Þeim varð ekki barna auðið. Þau skildu. 2001 flutti Jola á Sólheima í Grímsnesi og bjó þar og starf- aði til dánardægurs. Útför Jolu fer fram í dag, 8. september 2020, klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verður ein- ungis nánustu aðstandendum og vinum boðið að vera við- staddir útförina. Jóla kom til landsins árið 1969. Fylgdi hún í fótspor móður sinnar og byrjaði hún á að vinna við að passa börn. Síðan réð hún sig í vinnu í eldhúsinu á Landakoti og fór svo þaðan á elliheimilið Grund. Þar fannst henni gott að vinna, enda var starfsfólkið þá samhent eins og ein stór fjöl- skylda. Þar var hún að vinna þegar ég kynntist henni. Þessari litlu, brosmildu stúlku sem ég varð ást- fanginn af. Við gengum í hjóna- band 8. september 1972. Við flutt- um til Stokkhólms skömmu síðar til að freista gæfunnar. Jóla fékk vinnu við stjórnun í ræstingum við stórt hótel en ég fór í skóla. Tveimur árum seinna kom heimþrá í okkur og við fluttum aftur heim. Jóla fór að vinna hjá Helga í Góu og líkaði mjög vel að vera þar. Hún fór með mér á sjó sem kokkur á fiskibát (Guðrúnu GK) og seinna á Brúarfossi, skipi Eimskipafélagsins þar sem hún vann einnig í eldhúsinu. Það var á þeim tíma sem hún var að byrja að veikjast. Veikindi sem áttu eft- ir að verða hennar hlutskipti það sem eftir var ævi hennar og hún náði aldrei fullum bata af, þó að hún ætti betri tímabil inn á milli. Smá saman náðu veikindin þó yf- irhöndinni og ollu þau m.a. mjög miklum persónuleikabreytingum hjá henni. Það var mikil gæfa fyrir Jólu þegar hún flutti á Sólheima í Grímsnesi. Þar blómstraði hún og hæfileikar hennar til listsköpunar fengu að njóta sín. Hún málaði og saumaði út myndir og hélt sýn- ingar og seldi verk sín. Hún tók þátt í leiklistarstafi með Leik- félagi Sólheima framan af og það var alltaf nóg að gera hjá henni. Þó að við slitum hjónabandi okkar vorum við alla tíð vinir og í miklu sambandi og það leið ekki sá dag- ur að Jóla hringdi ekki a.m.k. einu sinni í mig, yfirleitt mun oftar. Nú hringir hún ekki meir. Ég vil þakka Jólu samfylgdina í þessi hartnær 50 ár, þar af rúm 30 í hjónabandi og bið guð um að varðveita hana þar sem hún er núna og vona að hún sé frjáls úr veikindafjötrunum sem voru henni oft þungbærir. Víglundur Þorsteinsson. Það komu margar ljúfar minn- ingar í hugann þegar ég fékk að vita af andláti Jolönda Maríu eða Jólu eins og hún var kölluð. Mér kom strax í huga orð Jesú „Sælla er að gefa en þiggja.“ Hún vildi gefa öðrum fallegar gjafir og gleðja aðra. Þegar hún kom í guðsþjónust- ur í Sólheimakirkju stoppaði hún við baukinn og gaf til kirkjunnar. Ég man fyrst eftir Jólu þegar hún bjó í Hafnarfirði. Þessi lág- vaxna kona sem sendi frá sér fal- legt bros þegar ég mætti henni. Þegar ég vann sem prestur á Sólheimum urðum við góðir vinir. Það voru margar stundir þar sem við sátum saman. Við sungum saman og enduðum á því að draga vers úr Biblíunni og biðja saman. Ég keypti fyrir hana þráðlaus- an hátalara og við fengum aðgang að tónlistaforritinu Spotify. Lagið Hallelúja eftir Leonard Cohen var í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Þú gafst mér Jesús gleði og frið Ég gat sem barn þig talað við Og sorgin aldrei ýfði sálu mína Tilveran var traust og hlý Tært var loftið hvergi ský Og tilvalið að hrópa halelúja. Hallelúja, hallelúja. Nú leiðst við högum langar veg ljúfi Jesú þú og ég .... Þetta sungum við oft saman og Jóla hrópaði með hárri raust við- lagið Hallelúja. Jólanda var mikið fyrir að punta sig og eignast fallega kjóla. Þegar ég kom til hennar varð hún að sýna mér fötin sem hún hafði keypt sér. Hún var stolt og glöð. Jóla var listakona sem málaði og saumaði listaverk. Hún fór sín- ar leiðir og naut þess að skapa. Útsaumuð mynd eftir Jólu prýðir eitt af jólakortum Sólheima. Jóla átti fallega og einlæga trú á Jesú Krist frelsara sinn. Við ræddum oft trúarleg málefni og bænin var henni kær. Okkar síðasta stund var á Landspítalanum þar sem hún lá. Við ræddum um trúna og eilífð- ina. Eins og oftast þegar við hitt- umst fengum við okkur orð úr Biblíunni og báðum saman. Það var falleg kveðjustund sem er mér afar kær. Takk fyrir vináttu þína elsku Jóla. Takk fyrir allar góða minn- ingarnar og þann kærleika sem þú sýndir mér og öðrum í kring- um þig. Hann var sannur og hreinn. Mig langar að enda á sálmi um trúna á frelsarann Jesú Krist sem var Jólu kær og við sungum svo oft í Sólheimakirkju. Ég leit eina lilju í holti, hún lifði hjá steinum á mel. Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk en blettinn sinn prýddi hún vel. Ég veit það er úti um engin mörg önnur sem glitrar og skín. Ég þræti ekki um litinn né ljómann en liljan í holtinu er mín! Þessi lilja er mín lifandi trú, þessi lilja er mín lifandi trú. Hún er ljós mitt og von mín og yndi. Þessi lilja er mín lifandi trú! (Þorsteinn Gíslason) Hvíl þú í friði í faðmi frelsarans kæra vinkona. En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mest- ur. (1. Kor. 13: 13) Sr. Sveinn Alfreðsson og Valdís Ólöf Jónsdóttir. Lovísa María Erlendsdóttir ✝ Hildur Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 4. janúar 1963. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 15. apríl 2020. Foreldrar Hildar eru Jón Jónsson, f. 8. mars 1924, og Hjördís Guðmunds- dóttir, f. 11. apríl 1927, d. 16. október 2016. Bræður Hildar eru: 1) Valdimar Jónsson, f. 22. júní 1953. Börn hans eru: a) Ásta Hjördís, f. 15. feb. 1973, gift Guðmundi Sigurðssyni, f. 22. október 1973, börn þeirra eru Tanja Dögg, f. 1997, Eydís Erna, f. 2002, og Atli Dagur, f. 2006. b) Jón Ágúst, f. 6. ágúst 1978, giftur Sigurbjörgu Dóru Ragnarsdóttur, f. 27. apríl 1980. Börn þeirra eru Anton Darri, f. 2000, Telma Dröfn, f. 2002, og Karen Brá, f. 2003. c) Brynjar, f. 15. október 1987, d. 4. desember 2014. d) Sölvi Mar, f. 9. ágúst 1996, unnusta Aníta Ýr Strange, f. 8. nóvember 1996. Börn þeirra eru Brynjar Leó, f. 2017, og Oliver Dagur, f. 2018. 2) Sverrir Helgi Jónsson, fæddur 30. september 1956. Börn hans eru: a) Jón Þröstur, f. 31. desember 1980. Börn hans eru Marielle, f. 2007, og Sebast- ian, f. 2009. b) El- ísa, f. 28. ágúst 1989. c) Emil, f. 10. janúar 2001. Hildur ólst upp í Heiðargerði og gekk í Hvassaleit- isskóla. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1984. Hún vann við skrifstofustörf fyrstu árin eftir stúdentspróf en útskrifaðist sem nuddari frá Heilbrigðisskólanum í Ármúla 1996 og fékk meistarabréf árið 2000 og vann við það ásamt and- legum málefnum sem áttu hug hennar allan til síðasta dags. Hildur kláraði BSc í við- skiptafræði frá HR 2014 og tók ýmis námskeið bæði sem tengd- ust viðskiptum, bókhaldi, nuddi og andlegum málefnum. Síðast- liðin ár rak hún nuddstofuna Óskaljós og einnig bókhalds- stofuna Ásbókun. Hildur var dugleg að ferðast innanlands sem utan og oftar en ekki bauð hún öldruðum for- eldrum sínum með í ferðir. Minningarathöfn um Hildi fer fram í Lindakirkju í dag, 8. september 2020, klukkan 11. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða fjöldatakmarkanir í kirkj- unni. Þegar við heyrðum af andláti vinkonu okkar reikaði hugurinn til haustsins 1984. London var borgin sem leiddi okkur saman. Við vorum sjö íslenskar stelpur sem bundumst þar ævilöngum vináttuböndum. Nú er ein af okk- ur fallin frá, elsku Hildur okkar. Það er erfitt að trúa því að við eigum ekki eftir að hittast allar saman aftur aupair-skvísurnar. Það hefur lengi verið draumur okkar að fara saman til London og rifja upp gamla tíma. Hildur var ekki sú okkar sem tók mesta plássið í hópnum, hún var sú sem hlustaði á okkur hinar og kom með góð snjöll ráð. Þegar við hinar eyddum peningum okk- ar í föt, skemmtanir og ferðir til útlanda keypti Hildur hlutabréf. Hún var sú sem maður gat leit- að til, bæði til að létta af hjartanu og líka til að fá gott nudd, en við nutum góðs af því þegar elsku vinkona okkar lærði til nuddara. Hildur fór alltaf sínar eigin leiðir, það var ekki hægt að fá hana ofan af því að gera eitthvað annað en hún var búin að ákveða. Hildur auðgaði líf okkar, það var hún sem kynnti okkur andleg málefni, orkusteina og að til væri annað líf eftir jarðlífið. Góða ferð elsku Hildur. Við viljum senda okkar inni- legustu samúðarkveðjur til fjöl- skyldu Hildar. Ásdís, Erla, Svava, Kristín Á., Ragnhildur og Kristín Þ. Hildur Jónsdóttir Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, ELENORA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, Reykjafold 20, lést á heimili sínu fimmtudaginn 27. ágúst. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 10. september klukkan 13. Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug. Sighvatur Sigurðsson Sigurður H. Sighvatsson Róbert Þór Sighvatsson Jóhanna Jónsdóttir Anna María Sighvatsdóttir Jón Atli Kjartansson og barnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.