Morgunblaðið - 08.09.2020, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Stólaleik-
fimi kl. 10. Bíó í miðrými kl. 13. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun byrj-
ar aftur þriðjudaginn 15. september kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari
upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir.
Árskógar 4 Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin
vinnustofa kl. 9-12. Botsía með Guðmundi kl. 10. Handavinnuhópur kl.
12-16. Línudans með Ingu kl. 13.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 411-2600.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10. Leikfimi
með Silju kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Qigong kl. 17-18, allir
velkomnir.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og
Arnhildar organista. Eftir stundina verður gillpartý, söngur og gleði.
Verið velkomin, hlökkum til að sjá ykkur.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall við hringborðið kl.
8.50. Skráning á þátttökulista er á skrifstofunni kl. 8.50-16. Myndlistar-
námskeið MZ kl. 9-11.30. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhóp-
urinn Kríurnar kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkom-
nir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti
með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45.
Gerðuberg 3-5 Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl.09-12 keramik-
málun (Grænagróf), kl. 10-10.20 leikfimi gönguhóps (Sólstofa), kl.
10.30 gönguhópur um hverfið, kl. 13-16 glervinnustofa með leiðbein-
anda (Grænagróf).
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Jóga
kl. 14.30–15.30.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Helgistund kl. 14, prestur frá Grensáskirkju þjónar.
Korpúlfar Botísa kl. 10 í dag og helgistund í Borgum kl. 10.30. Spjall-
hópur í Listasmiðju hittist kl. 13 í Borgum í dag. Sundleikfimi með
Brynjólfi í Grafarvogssundlaug kl. 14. Hádegisverður kl. 11.30-12.30 og
kaffitími kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir í Borgir, þar sem gleðin býr og
minnum á kynningarhátíðina á morgun kl. 13, vonumst til að sjá
ykkur sem flest.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist bútasaumshópur kl. 9-12.
Þá verður hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10.30-11.15. Bókband
verður á sínum stað í smiðju 1. hæðar milli kl. 13-17 og einnig Handa-
band milli kl. 13-15.30. Þá verður söngstund í matsal milli 13.30-14.30.
Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59!
Seltjarnarnes Vatnsleikfimii í sundlauginni kl. 7.10. Kvennakaffi í
safnaðarheimili kirkjunnar kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt á
Skólabraut kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Brids í
Eiðismýri kl. 13.30. Helgistund á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í
safnaðarheimilinu kl. 14. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath.
nk. fimmtudaginn verður bingó í salnum á Skólabraut kl. 13.30.
Allir velkomnir.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 13. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Veiði
* samkvæmt Gallup jan.-mars 2019
Sölufulltrúi Berglind Guðrún Bergmann,
berglindb@mbl.is, 569 1246
Ertu að leita að
FÓLKI?
75 til 90 þúsund
manns, 18 ára og
eldri, lesa blöð
Morgunblaðsins með
atvinnuauglýsingum
í hverri viku*
Þrjár birtingar á verði einnar
Birt í atvinnublaði
Morgunblaðsins í
aldreingu mmtudögum
Birt í atvinnublaði
Morgunblaðsins laugardegi.
Birt mbl.is
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn, laga
ryðbletti á þökum
og tek að mér
ýmis smærri verk-
efni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Húsviðhald
mbl.is
alltaf - allstaðar
Vegna flutninga
og skipulagsbreytinga
Seljum neoprene mittisvöðlur og skó til
strandveiða. Eining öndunarvöðlur og skó.
Flugustangir og fluguhjól, strandveiðistangir,
og hjól. Ásamt úrvali af spúnum til lax,
silungsveiða og strandveiða, ásamt ýmsu
veiðidóti til sportveiða.
Opið verður á miðviku- og fimmtudag frá kl.
13.00-17.00 og föstudag frá kl. 13.00-16.00.
I. Guðmundsson ehf.,
Nethyl 1,
110 Reykjavík, sími 533 1999
✝ Jón KristjánSigursteinsson
fæddist í Hlíð í
Höfðahverfi í
Grýtubakkahreppi
4. apríl 1947. Hann
lést í Keflavík 3.
ágúst 2020.
Foreldrar Jóns
voru Sigursteinn
Jónsson, vélstjóri
frá Grenivík, f. 12.
júlí 1911, d. 18.
ágúst 1949, og Þóra Kristjáns-
dóttir, ráðskona frá Eyrar-
húsum í Tálknafirði, f. 28. apríl
1913, d. 5. febrúar 2005.
Jón átti þrjár systur. 1) Hild-
ur Marý Sigursteinsdóttir, f. 18.
ágúst 1940 á Akureyri. Hún lést
25. apríl 1999. Eiginmaður
hennar var Níels Brimar Jóns-
son, þau eignuðust 3 börn. 2)
Þórunn Eydís, f. 12. maí 1944 á
Grenivík. Eiginmaður hennar er
Þór Þorvaldsson, þau eiga 5
dætur. 3) Steinunn, f. 18. sept-
ember 1949 á Grenivík, d. 20.
ágúst 1960.
Jón kvæntist Guðnýju Fjólu
Sigurðardóttur. Þau skildu.
Börn þeirra eru:
1. Guðmundur Þór, f. 25. apríl
1976, eiginkona hans er Helena
Kaldalóns, f. 27. nóvember 1978.
2. Sigursteinn Mar, f. 26. júní
1978, hans kona er Hilma Dögg,
f. 28. apríl 1981, þau eiga Guð-
mund, f. 2017. Hilma Dögg á
einnig Hávarð Mána, f. 2004, og
Hönnu Mist, f. 2012.
3. Eydís Marý, f.
2. maí 1981. Henn-
ar maður er Guð-
mundur Gunn-
arsson. Þau eiga
fjóra syni. Elstur er
Gunnar Örn, f.
2003, þá Helgi Þór,
f. 2008, og tvíbur-
arnir Fenrir Frosti
og Ýmir Eldjárn, f.
2013. 4. Andvana
drengur, f. 1987.
Jón hóf ungur að stunda sjó-
mennsku. Var rétt 15 ára gam-
all þegar hann réð sig fyrst á
togara, en hann var um ævina
við sjómennsku af öllu tagi, á
varðskipum, í fraktsiglingum, á
fiskiskipum og róðrarbátum.
Hann var um árabil á ýmsum
skipum Útgerðarfélags Akur-
eyringa. Eftir að hann flutti frá
Akureyri þar sem hann bjó lengi
var hann um árabil í Vest-
mannaeyjum og stundaði þar
sjómennsku á árunum 1999 og
fram til áranna 2004 til 2005.
Áður hafði hann um skeið búið í
Fellabæ og starfað við bílasölu.
Jón slasaðist illa við störf sín til
sjós og byggði upp nýjan starfs-
feril við bílasölu. Hann átti og
rak Bílasölu Norðurlands á
Akureyri um árabil.
Minningarathöfn um Jón fór
fram í Reykjavík 16. ágúst 2020
með nánustu ættingjum og vin-
um.
Jón, eða Nonni frændi eins
og hann var iðulega nefndur,
féll skyndilega frá. Þegar
dauðinn kemur algjörlega að
óvörum verður það nánustu
ættingjum og vinum mikið
áfall. Við gerðum ekki ráð fyrir
öðru en að hitta hann aftur.
Hann hafði nýlega verið á
ferðinni fyrir norðan, í sínum
gamla heimabæ. Einu sinni
sem oftar að flytja bíl milli
landshluta. Í Akureyrarferðum
sínum dvaldi hann jafnan hjá
systur sinni. Í þessari síðustu
ferð Nonna til Akureyrar áttu
þau systkinin góðar stundir yf-
ir kaffibolla á morgnana áður
en haldið var út í daginn. Þau
rifjuðu upp gamlar stundir frá
því þau voru að alast upp á
Grenivík og fóru yfir lífið og
tilveruna, en líkt og hjá flest-
um skiptust þar á skin og skúr-
ir.
Jón var vinur vina sinna,
traustur og vildi hvers manns
götu greiða. Þá var hann
rausnarlegur við sitt fólk og
hafði gaman af að gauka að því
einhverju sem gladdi.
Á yngri árum þegar hann
var á sjó leit hann iðulega í
inniverum til systra sinna og
kom þá gjarnan færandi hendi
með fisk meðferðis. Það kom
sér ágætlega fyrir heimilisbók-
haldið.
Stundum fékk hann systra-
dæturnar til að hlaupa fyrir sig
í búð að kaupa kók eða annað
smáræði og alltaf var sá háttur
hafður á að þær máttu eiga af-
ganginn. Sem oftar en ekki var
býsna drjúgur.
Minnisstætt er þegar Nonni
kom eitt sinn heim úr siglingu
með fimm stórar og fallegar
brúður sem hann færði systra-
dætrum sínum. Brúður af því
tagi höfðu ekki áður sést og
þóttu mikið undur, stórar og
glæsilegar. Þær voru árum
saman stórglæsilegt stofustáss
á heimilinu. Eins hafði hann
gjarnan í farteskinu framandi
útlent sælgæti sem enginn
hafði áður bragðað á. Og varð
fyrir vikið nokkuð vinsæll gaur
á Stór-Skarðshlíðarsvæðinu.
Samband okkar við Nonna
frænda var alla tíð gott, enda
ekki við öðru að búast af manni
með hans geðslag. Hann var
yfirleitt ekki að flækja hlutina.
Sagði sína meiningu og var
ekki að erfa neitt við nokkurn
mann. Það sem upp úr stendur
við leiðarlok er hversu einstak-
lega greiðvikinn hann var og al-
mennilegur, alla tíð boðinn og
búinn að rétta hjálparhönd og
aðstoða sitt fólk.
Æviskeið manns líkt mistri dag einn
sést,
að morgni síðan hverfur.
Fjarar það út, svo fljótt það getur
gerst
að fölnar lífsins skerfur.
Mun hinn látni þá lífið aftur fá?
Ljáðu eyra Drottins spá:
Raust hans ljúf þá látnu vekur,
aftur líf mun Guð þeim fá.
Því hann af hjartans löngun
mun þá handaverk sín þrá.
Höfum trú og undrumst ekki,
eyrum allra köll hans ná.
Og líf um alla eilífð
fær Guðs eigin sköpun þá.
Engan sinn vin Guð yfirgefur þann
sem armur dauðans tekur.
Í minni sér Guð sífellt geymir hann,
af svefni dauðans vekur.
Sá sem upp þá rís öðlast, ef hann
kýs,
eilíft líf í paradís.
(Jobsbók 14:13-15)
Þínar systradætur;
Margrét Þóra, Helga
Sigríður, Ingibjörg
Ebba, Hjördís Vala og
Steinunn María.
Jón Kristján
Sigursteinsson
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar