Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 Við erum sérfræðingar í malbikun Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Bjóðist tækifæri til að skemmta sér, verða ástfangin(n), daðra, vera skapandi eða leika við börn, skaltu grípa það. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert óvenjufélagslyndur þessa dag- ana og átt auðvelt með að laða fólk að þér. Vertu kurteis og gefðu þér smátíma til að spjalla við samstarfsfólk í dag. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þörfin fyrir að gera sér glaðan dag er allsráðandi. Oftast heldur þú þig vita hvað gerist, en nú veistu það ekki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Fátt er dýrmætara í lífinu en að eiga góða vini svo leggðu þig fram um að halda þeim. Einhver mun koma þér skemmtilega á óvart í dag. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ef þú kemur auga á veikleika þína muntu forða þér frá því að gera sömu mis- tökin tvisvar. Íhugaðu hvað það er sem þú vilt og þá kemur hitt af sjálfu sér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft á öllum þínum sannfæring- arkrafti að halda til þess að samstarfsmenn þínir fallist á að fara þá leið sem þú vilt. Leyfðu rómantíkinni að blómstra í lífi þínu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að berjast fyrir sjálfstæði þínu bæði heima fyrir og í vinnunni. Gættu þess að vera ekki of gagnrýninn við fólk nema þú viljir endanlega losna við það. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Hugmyndir eru á hverju strái, vinnan er skemmtun og allt flæðir án hindr- ana. Vertu þolinmóður og hlustaðu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það getur eyðilagt góða vináttu ef menn reyna að þröngva sínu fram án nokkurs tillits til annarra. Persónuleg þján- ing er góð fyrir sköpunarkraftinn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ættir að nota daginn til að velta langtímamarkmiðum þínum fyrir þér. Eitthvað nýtt kemur í staðinn fyrir hið gamla. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú fer að líða að því að þú njótir árangurs erfiðis þíns. Verðlaunin verða veitt þeim sem þróar með sér eins mikla hæfi- leika og mögulegt er. 19. feb. - 20. mars Fiskar Svo virðist sem ákveðin persóna eigi erfitt með að þiggja aðstoð þína og þakka fyrir sig. Hafðu í huga að það er erfitt að heyra það sem aðrir segja meðan maður er sjálfur að tala. E rla Ósk fæddist í Reykjavík en flutti fljótlega eftir fæðingu til Grindavíkur. Hún bjó í Grindavík þar til hún fór í MR í menntaskóla að frá- töldu rúmu ári þegar hún var sex ára og fjölskyldan fluttist til Englands. Síðan tók við háskólanám í Banda- ríkjunum. Hún lauk BA-námi í hagfræði og tölvunarfræði með stærðfræði sem aukagrein frá Macalester College, í St. Paul í Minnesota með láði. Erla Ósk kunni mjög vel við sig í háskól- anum og og spilaði fótbolta og þekkti marga. „Fjórum árum síðar, 2004, ætlaði ég að flytja heim, en pabbi hafði alltaf sagt við mig að ég myndi ekki koma heim næstu tíu árin.“ Það varð jú raunin, því Erla Ósk kom ekki heim fyrr en níu árum eftir að hún fór fyrst til Bandaríkjanna. Hún ákvað að sækja um í vinnu á þjónustusviði hjá orkufyrirtækinu Avant Energy Inc. í Minneapolis, í Minnesota og segir að umsóknarferlið hafi verið mjög ólíkt því sem Íslendingar eru vanir. „Þetta var eiginlega eins og að taka þátt í American Idol, því það voru svo mörg stig við ráðningarferlið en ég endaði með að fá starfið.“ Hún segir að starfið hafi verið skemmti- legt og hún hafi íhugað að flytjast al- veg til Bandaríkjanna, en sá fljótt að hún vildi vera á Íslandi þegar til barn- eigna kæmi. „Það er bara mjög erfitt að láta fjölskyldulíf og krefjandi starf ganga upp við þessar aðstæður. Við erum svo heppin hvað það er hægt að gera mikið á Íslandi. Það vantar svo stuðningsnetið í Bandaríkjunum því fjarlægðirnar eru svo miklar. Grinda- vík er náttúrulega bara æðisleg og það er ástæðan fyrir að maður getur gert þetta allt er að maður á svo góða að.“ Eftir þrjú ár söðlaði Erla Ósk um og réð sig til Ocean Choice Inter- national L.P. þar sem hún hafði um- sjón með og hélt bókhald yfir upp- setningu saltfiskvinnslu í Fortune á Nýfundnalandi í Kanada. „Starfið var fínt og umhverfið mjög fallegt, en ég þekkti fáa og því gekk mér verr að að- lagast en í Bandaríkjunum. Svo þegar hrunið varð á Íslandi var ég búin að vera í rúmt ár í Kanada og ég fann það bara að það var tími til að fara heim.“ Erla segir að margar ástæður hafi legið að baki þeirri ákvörðun, en hún hafi líka viljað leggja sín lóð á vogarskálarnar hérna heima. Hún hóf störf hjá Vísi hf. í Grindavík sem verkefnastjóri í byrjun ársins 2009, varð síðar framkvæmdastjóri Cod- land ehf. í tvö ár en er nú aftur komin til Vísis hf., fyrst sem þróunarstjóri en núna sem mannauðsstjóri. Eins og áður kom fram hefur Erla Ósk alltaf verið í íþróttum. Eftir að hún hætti í fótboltanum hefur hún stundað langhlaup, hlaupið maraþon, tekið þátt í WOW Cyclothon, stundar crossfit og byrjaði í golfi núna í vor. „Já, ég veit að ég er mjög virk en þetta er bara svo gaman. Ég hljóp heilt maraþon í Minneapolis og svo hoppum við frænkurnar á hvaða tækifæri sem er til að hafa það skemmtilegt og eitt árið ákváðum við að hljópa hálft maraþon og skelltum okkur til New York og gerðum það.“ Síðan er Erla Ósk einnig með kennararétti sem kundalini-jóga- kennari. „Ég fór alltaf í meðgöngu- jóga til Auðar Bjarnadóttur og þegar Erla Ósk Pétursdóttir mannauðsstjóri Vísis hf. – 40 ára Ljósmyndir/Úr einkasafni Hálft maraþon í New York Frá vinstri: Aníta Ósk Ágústsdóttir, Þórkatla Albertsdóttir, Theodóra Káradóttir, Erla Ósk, Ólöf Daðey Pétursdótti og Margrét Pétursdóttir. Fremst er Valgerður Ágústsdóttir. Lífsgæði að búa á Íslandi Fjölskyldan Allt hægt að gera þegar mað- ur á svona góða að. Frá vinstri í kringum Erlu Ósk eru Tómas, Róbert, Andrew, eig- inmaður Erlu Óskar, og Jón Pétur. Til hamingju með daginn 50 ára Tryggvi fædd- ist í Reykjavík og býr þar enn. Hann er tölvunarfræðingur hjá Mannviti og hefur mik- inn áhuga á útivist, hreyfingu og skútu- siglingum. Maki: Steinunn Egilsdóttir, f. 1963 ís- lenskukennari. Börn: Berglind Erna myndlistamaður f. 1993, Vésteinn háskólanemi f. 1995 og Halldór Kossi Ange nemi f. 2012. Foreldrar: Stefán Scheving Thor- steinsson, var sérfræðingur í sauð- fjárrækt hjá RALA, f. 1931, d. 2011 og Erna Tryggvadóttir fv. bókari í Mos- fellsbæ f. 1938. Tryggvi Scheving Thorsteinsson 60 ára Stefanía ólst upp á Húsavík frá sex ára aldri en fluttist þaðan alfarin árið 1994 og býr núna í Hafnarfirði. Stefanía vinnur hjá Fóður- blöndunni og hefur áhuga á útivist, hjólreiðum og er ný- byrjuð í golfi. Maki: Óskar Aðalbjarnarson tölvunar- fræðingur, f. 1969. Börn: Jóna f. 1978, Viktor f. 1988, Erla f. 1997 og Atli f. 2000. Foreldrar: Gunnar Jónsson f. 1932, d. 2014, starfaði síðast sem verkstjóri og Jóna Jónsdóttir, f. 1932, fv. verslunar- maður. Hún býr í Reykjavík. Stefanía Gunnarsdóttir Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.