Morgunblaðið - 08.09.2020, Side 29

Morgunblaðið - 08.09.2020, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe í aðalhlutverki. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Harry Potter * Tröll 2 (ísl. tal) * Hvolpasveitin (ísl. tal) * The Secret : Dare to dream FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna.★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph » Hinar ýmsu og ólíku menningarstofnanir eru smám saman opn-aðar að nýju út um löndin en yfirleitt með stífum fjöldatakmörk- unum vegna smithættu í kórónuveirufaraldrinum. Listamenn, sem hafa upp til hópa verið atvinnu- og launalausir, leita jafnframt nýrra leiða til að miðla list sinni, eins og rokkararnir í Los Lobos sem léku fyrir gesti sem sátu í eða við bíla sína eins og hér má sjá. Fjölskrúðugt en hikandi menningarlíf víða um lönd í kórónuveirufaraldri AFP Sótthreinsun Verkamenn sótthreinsuðu Framtíð- arsafnið í Rio de Janeiro í Brasilíu hátt og lágt áð- ur en það var aftur opnað gestum um helgina. Rokk og ról Tónleikagestir fylgdust með tónleikum Los Lobos frá bílum sínum í Ventura í Kaliforníu en tónlekaröðin kallast „Tónleikar úr bílnum“. Bach-útgáfa Ein af ofurstjörnum klassíska píanósins, Lang Lang, kynnti fjölmiðlamönnum í Beijing nýjan disk sinn, með Goldberg-tilbrigðunum. Safnahundar Hundar biðu þolinmóðir fyrir utan Whitney-safnið í New York sem hefur nú verið opn- að að nýju, með stífum fjöldatakmörkunum. Ekki er vitað hvort eigendurnir hafi skoðað sýningar. Tékkneski kvik- myndaleikstjór- inn Jiri Menzel er látinn, 82 ára að aldri. Hann sló í gegn með sinni fyrstu kvikmynd árið 1967 og hlaut fyrir hana Óskarsverðlaun fyrir bestu „er- lendu kvikmyndina“. Myndin nefn- ist á ensku Closely Watched Trains – og byggist á skáldsögu Bohumils Hrabals Lestir undir smásjá en hún gerist í seinni heimsstyrjöldinni. Ásamt Milosi Forman var Menzel í framlínu tékkneska kvikmynda- vorsins á sjöunda áratug síðustu aldar. Önnur kvikmynd Menzels, Larks on a String, var einnig byggð á sögu eftir Hrabal. Hún var bönn- uð af stjórnvöldum og ekki sett í sýningar fyrr en 1989 en hún vann Gullbjörninn í Berlín ári síðar. Melnzel gerði allmargar fleiri kvik- myndir en glímdi við heilsuleysi síð- ustu ár. Leikstjórinn Menzel allur Jiri Menzel Fjöldi aðdáenda bandaríska tón- skáldsins Johns Cage (1912-1992) safnaðist saman við Saint Burch- ardi-kirkjuna í Halberstadt í Þýskalandi á sunnudag. Vildu þeir verða vitni að fyrstu breytingunni í tónverki Cage, As Slow As Possible, í sjö ár en þá tók nýr hljómur að óma. Flutningur verksins hófst í kirkj- unni í sérbyggðu orgeli fyrir 19 ár- um, með „stuttu hléi“ sem varði í 18 mánuði, en flutningur þess á að taka 639 ár. Cage samdi verkið á níunda ára- tugnum. Það er skrifað út á ein- ungis átta síður en á að flytja sér- lega hægt. Tiltölulega fljótlega verður næst skipt um hljóm í verk- inu, hinn 5. febrúar árið 2022. Vitni að nýj- um hljómi John Cage

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.