Morgunblaðið - 23.09.2020, Qupperneq 1
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur fengið frá
Reykjavíkurborg eru samtals 320
nemendur í sex grunnskólum í
sóttkví, þar af um 98 á yngsta stigi,
155 nemendur í 7. bekk og 46 á
unglingastigi. Þá eru 43 starfsmenn
á grunnskólastigi í sóttkví.
„Við reynum sífellt að lesa í að-
stæður í samráði við sóttvarna-
yfirvöld hverju sinni og ákveðum út
frá því hvaða form aðgerðir eigi að
taka,“ segir Helgi Grímsson, sviðs-
stjóri skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar. Met var slegið
í fjölda sýnataka hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins í gær. »4
Morgunblaðið/Eggert
Nemendur Samtals eru 155 börn í 7. bekk
í borginni í sóttkví og 98 á yngsta stigi.
Börn í sóttkví úr
sex grunnskólum
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 223. tölublað 108. árgangur
TJÁNING OG
MIKIÐ DRAMA
Í MENGI
MIKIÐ LÍF Á
FASTEIGNA-
MARKAÐI
HOLLT FYRIR
FÓLK AÐ
SYNGJA
VIÐSKIPTAMOGGINN HÓLMFRÍÐUR SJÖTUG 20NÝ VERK STEINUNNAR 24
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu velgdi bronsliði síð-
asta heimsmeistaramóts, Svíum, hressilega undir uggum á
Laugardalsvellinum í gærkvöld þegar liðin skildu jöfn, 1:1, í
undankeppni Evrópumótsins. Svíar voru marki yfir í hálfleik
en Elín Metta Jensen fagnar hér jöfnunarmarki sínu í seinni
hálfleiknum ásamt Sveindísi Jane Jónsdóttur, Gunnhildi Yrsu
Jónsdóttur og Alexöndru Jóhannsdóttur.
Úrslitin þýða að Ísland á áfram góða möguleika á að kom-
ast beint í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer á Eng-
landi sumarið 2022 án þess að þurfa að fara í umspil. Liðin
mætast aftur í Svíþjóð eftir rúman mánuð og Ísland á einnig
eftir útileiki við Ungverjaland og Slóvakíu. »23
Morgunblaðið/Eggert
Bronslið HM slapp með eitt stig af Laugardalsvellinum
Ómar Friðriksson
Margrét Þóra Þórsdóttir
„Við erum í miklum samskiptum við
ríkisvaldið um með hvaða hætti við
getum í sameiningu séð til lands,“
segir Aldís Hafsteinsdóttir, formað-
ur Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, en mikill umsnúningur til verri
vegar hefur átt sér stað í rekstri
sveitarfélaga. „Við erum að horfa til
margra hluta, almenns framlags til
að mæta tekjufalli eins og t.d. af út-
svarinu en þar sýnist mér að sveit-
arfélögin séu að missa 10 til 15 millj-
arða,“ segir Aldís.
Mikið tekjufall blasir því við sveit-
arfélögum á árinu á sama tíma og
veruleg aukning útgjalda á sér stað.
Samband íslenskra sveitarfélaga
birti í gær uppgjör fjögurra af fimm
stærstu sveitarfélögum landsins á
fyrri hluta ársins, þar sem í ljós kem-
ur að afkoma þeirra hefur snúist til
hins verra upp á tæplega sex millj-
arða króna. 2,3 milljarða kr. rekstr-
arafgangur á fyrri hluta seinasta árs
hefur snúist í halla upp á 3,6 millj-
arða króna í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði og á Akureyri. Skuldir
þessara sveitarfélaga hækkuðu um
10,2 milljarða frá áramótum.
Ljúka þarf yfirstandandi viðræð-
um við ríkisstjórnina og ganga frá
samkomulagi milli ríkis og sveitarfé-
laga fyrir næstu mánaðamót. „Ég lít
þannig á að við höfum þessa viku og
mögulega næstu til þess að ná lend-
ingu um með hvaða hætti ríkisstjórn-
in ætlar að vernda þessa þjónustu
sem sveitarfélögin eru að sinna,“
segir Aldís.
Akureyri er meðal þeirra sveitar-
félaga sem glíma við slæma fjárhags-
stöðu. Þar hafa meiri- og minnihluti í
bæjarstjórn ákveðið að sameinast til
að takast saman á við stöðuna.
MVandi sveitarfélaga »2 og 10
Eru að missa 10 til 15
milljarða af útsvarinu
Meirihluti og minnihluti á Akureyri snúa bökum saman
Breytingar Í bæjarstjórn Akureyr-
ar starfa nú allir flokkar saman.
Jóhannes Geir
Guðmundsson,
forstjóri hug-
búnaðarfyrir-
tækisins Inecta,
sem er með höf-
uðstöðvar í Tri-
beca í New York,
segir að tekjur
fyrirtækisins
hafi aukist frek-
ar en hitt í kór-
ónuveirufaraldrinum. „Við stund-
uðum ráðstefnur og sýningar eins
og gengur og gerist, en það hætti
skyndilega þegar faraldurinn skall
á. Fólk flutti sig í staðinn á netið og
notaði Zoom, Teams og annan fjar-
fundabúnað. Það er áhugavert að
salan hjá okkur datt ekkert niður
þrátt fyrir þetta,“ segir Jóhannes
Geir í samtali við ViðskiptaMogg-
ann, en 50 starfa hjá Inecta.
Spurður hvort þetta fyrirkomu-
lag, að notast frekar við netið en að
fara á ráðstefnur víða um heim, sé
komið til að vera, er Jóhannes á því
að svo sé ekki.
Tekjuaukning hjá
Inecta þótt faraldur
geisi í New York
Jóhannes Geir
Guðmundsson