Morgunblaðið - 23.09.2020, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020
HVER restaurant á Hótel Örk
er fyrsta flokks veitingastaður,
fullkominn fyrir notalegar
gæðastundir með vinum,
fjölskyldu eða vinnufélögum.
GIRNILEGUR
OG SPENNANDI
MATSEÐILL
Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is
Framkvæmdir eru nú hafnar við
gatnagerð og lagnir í Hamranes-
hverfi í Hafnarfirði. Þegar er búið
að úthluta og gefa vilyrði fyrir lóð-
um með um 1.000 íbúðum í hverfinu.
Þar með talið eru 152 íbúðir sem
Bjarg, húsnæðisfélag verkalýðs-
hreyfingarinnar, ætlar að reisa. Þá
hefjast framkvæmdir við fjölmörg
önnur fjölbýlishús í hverfinu á næst-
unni en lóðirnar eru eftirsóttar, seg-
ir Ágúst Bjarni Garðarsson, formað-
ur bæjarráðs Hafnarfjarðar.
Vellir, Skarðshlíð og Hamranes
eru syðst í Hafnarfirði; sunnan og
vestan við Ás-
fjallið. Valla-
hverfið er því
sem næst full-
byggt og byggð
og mannlíf í
Skarðshlíð dafn-
ar. Gert er ráð
fyrir um 1.500
íbúum í Skarðs-
hlíð, sem verður
fullbyggð innan
fárra ára. Því er
byrjað að brjóta land undir bygg-
ingar í Hamraneshverfi, þar sem
verða um 1.200-1.500 íbúðir og íbúar
í því fullbyggðu verða um 4.000 tals-
ins.
Að mörgu þurfti að huga áður en
jarðvegsframkvæmdir og úthlutun
lóða í Áslandshverfi hófst, s.s. að
færa háspennulínur til bráðabirgða.
Þá þurfti að ganga frá hönnun Ás-
vallabrautar, sem tengir saman
Vallahverfi og Ásland. Fram-
kvæmdir við vegagerðina hófust nú
síðsumars og á ljúka á næsta ári.
Með brautinni nýju verða byggðir
sitthvorumegin Ásfjalls tengdar
saman, þ.e. úr Hamrahlíð og Skarðs-
hlíð og af Völlum verður greið leið á
Kaldárselsvegi og Reykjanesbraut.
Ásvallabraut verður ein akrein í
hvora átt með möguleika á breikkun
í tvær akreinar í hvora átt. Börn úr
Hamraneshverfi munu sækja
Skarðshlíðarskóla, en reistur verður
skóli fyrir hverfið nýja þegar þörf og
aðstæður skapast í fyllingu tímans.
Þétting í grónum hverfum
„Við erum stöðugt að úhluta lóð-
um í Skarðshlíð og ánægjulegt að
sjá hve vel uppbyggingin þar geng-
ur. Segja má að allt hafi farið á fulla
ferð þegar raflínurnar voru loks
færðar og framkvæmdir við Ásvalla-
braut samþykktar,“ segir Ágúst
Bjarni Garðarsson. „Bæjarfélagið er
í þeirri góðu stöðu, eitt fárra sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu, að
eiga talsvert byggingarland til ná-
innar framtíðar. Samhliða þessu er-
um við í þéttingarverkefnum í grón-
um hverfum í bænum sem eru langt
komin í skipulagsferli. Það hefur
gengið vel að hjá okkur að skipu-
leggja byggð fyrir íbúa framtíðar-
innar það sem af er kjörtímabili.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ásvallabraut Hringtorgið er tilbúið en nú á að leggja veg yfir heiði sem
verður tenging við Kaldárselsveg, Ásland, Setberg og Reykjanesbraut
Úthluta lóðum
fyrir 1.000 íbúð-
ir í Hamranesi
Framkvæmdir í nýju hverfi Bygg-
ingarland til framtíðar í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skarðshlíð Góður gangur í fram-
kvæmdum og byggðin öðlast svip.
Ágúst Bjarni
Garðarsson
Lögreglan á sunnanverðum Vest-
fjörðum hefur tekið í notkun nýjan
og sérútbúinn lögreglubíl, sem kem-
ur í gegnum Brimborg og er af gerð-
inni Volvo XC90. Bíllinn verður stað-
settur á Patreksfirði en kemur til
með að þjóna víðfeðmu umdæmi lög-
reglunnar á sunnanverðum Vest-
fjörðum. Lögregluembætti landsins
hafa verið að endurnýja bílaflotann í
stórum stíl undanfarna mánuði.
Þannig fékk lögreglan á Vesturlandi
tvo Land Rover Discovery-jeppa í
notkun í sumar. Verða þeir jeppar á
Snæfellsnesi.
Nýr lögreglubíll
til Patreksfjarðar
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Lögregla Ágúst Gunnarsson varðstjóri og Véný Guðmundsdóttir.
Fyrirhuguðu málþingi um meist-
ara Jón Vídalín sem halda átti í
Þjóðarbókhlöðunni laugardaginn
26. september nk. hefur verið
frestað. Frá þessu er greint á
heimasíðu þjóðkirkjunnar.
„Nú hefur verið tekin upp
grímuskylda í Þjóðarbókhlöðunni
og var því talið nauðsynlegt að
bregðast við henni með því að
skjóta málþinginu á frest. Nánar
verður tilkynnt um það síðar.
Kórónuveirufaraldurinn truflar
margt í samfélaginu eins og fólki
er kunnugt um og er meistari
Vídalín ekki þar heldur undanskil-
inn,“ segir þar. Í
síðasta mánuði
kom út ævisaga
Jóns Vídalín í
einu bindi og rit-
verk hans í öðru.
Ævisöguna rit-
aði dr. Torfi K.
Stefánsson Hjal-
talín. Tilefni út-
gáfunnar er 300.
ártíð Jóns. Á
málþinginu átti að ræða um Jón
Vídalín og nýútkomna ævisögu.
Til stóð að flytja fjóra fyrirlestra á
þinginu.
Grímuskylda tekin upp í Þjóðarbókhlöð-
unni og því var meistari Vídalín settur á ís
Meistari Jón Vídal-
ín þrykktur í stein.