Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 13

Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020 Haust Gufan steig upp úr borholunni á Syðri-Reykjum og bar við himininn yfir Miðfellinu. Í gær voru jafndægur að hausti en þá er dagurinn um það bil jafnlangur nóttinni hvar sem er á jörðinni. Kristinn Magnússon Sagan kennir að stundum næst árangur með því að endurtaka staðhæfingar aftur og aftur, líkt og um stað- reyndir sé að ræða. Árangurinn ræðst ekki síst af því hversu vilj- ugir fjölmiðlar eru til að draga hið rétta fram í dagsljósið, hvernig fræðimenn takast á við síbylju hinna sann- trúuðu og hvort stjórnmálamenn hafa burði til að spyrna við fótum. Í október 2012 fór fram þjóðar- atkvæðagreiðsla um tillögur stjórn- lagaráðs (hér verður tilurð þess lát- in liggja á milli hluta) að frumvarpi til stjórnskipunarlaga – stjórn- arskrá. Samkvæmt skýrslum yfir- kjörstjórna voru 236.903 kjósendur á kjörskrá og greiddu 115.980 manns atkvæði en þar af voru 1.493 atkvæði ógild. Kjörsókn var tæplega 49%. Þetta er minnsta þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu í lýðveldis- sögunni. Til samanburðar var þátt- taka í þjóðaratkvæðagreiðslu 1944 liðlega 98% og samþykktu 98,5% nýja stjórnarskrá lýðveldisins. Í atkvæðagreiðslunni 2012 voru sex spurningar lagðar fyrir kjós- endur. Fyrsta spurningin: „Vilt þú að til- lögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá?“ Rétt rúmlega 62% (um 31% þeirra sem voru á kjörskrá) svöruðu ját- andi. Það var sem sagt ekki verið að greiða atkvæði eða taka afstöðu til „nýrrar stjórnarskrár“ sem stjórn- lagaþing hafði samið, heldur leita eftir afstöðu kjósenda til þess hvort tillögurnar ættu að liggja til grundvallar þeirri vinnu, sem Al- þingi ber skylda til að sinna samkvæmt stjórnarskrá, þ.e. að móta og taka afstöðu til hugsanlegra breyt- inga á grunnlögum landsins. Þeirri skyldu geta þingmenn ekki út- vistað eða komið sér undan. „Ný stjórnarskrá“ ekki til „Ný stjórnarskrá“ hefur því aldr- ei verið samþykkt í þjóðaratkvæða- greiðslu. Hún er því ekki til. Að halda því fram að þjóðin hafi „valið“ sér nýja stjórnarskrá er blekking sem vonandi á ekki rætur í öðru en misskilningi. Leiða má rök að því að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar hefði orðið önnur ef spurt hefði verið: „Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga (stjórnarskrá) verði samþykktar?“ Hér er ekki hægt að fara ítarlega yfir það hversu illa var staðið að verki hjá ríkisstjórn sem vildi nýta efnahagslegar þrengingar í kjölfar bankahrunsins til að umbylta stjórn- arskránni og ná fram pólitískum markmiðum. „Tæpitungulaust snerist at- kvæðagreiðslan því ekki um neitt,“ skrifaði Sigurður Líndal, prófessor í lögum, í Fréttablaðið tveimur dög- um eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hann hélt því fram að atkvæða- greiðslan hefði verið atkvæða- greiðsla um „ófullburða plagg“ sem unnið hefði verið í anda sýndar- lýðræðis „sem er vísastur vegur til að rækta jarðveg fyrir pólitíska spillingu“. Sigurður var á því að um væri að ræða tilraun til að draga athyglina frá raunverulegum vandamálum enda stutt til kosninga: „Forsætisráðherra lýsti því í Silfri Egils í gær að afgreiðsla endurskoð- aðs stjórnarskrárfrumvarps yrði lát- in hafa algeran forgang á Alþingi og önnur mál látin bíða ef tími reynist ónógur. Þeirri hugsun verður nú varla varizt að með þessu sé verið að draga athyglina frá raunverulegum vandamálum, einkum atvinnumálum og skuldamálum heimila og fyrir- tækja, enda skammt til kosninga. Og þá er spurningin hvort Alþingi standi í hlýðni við forsætisráðherra eða taki sjálft frumkvæði að því að taka á þeim vanda sem helzt brenn- ur á þjóðinni.“ Dæmi um misnotkun Gunnar Helgi Kristinsson, pró- fessor í stjórnmálafræði, var þung- orður á fundi 9. nóvember 2012 í Há- skóla Íslands um stöðuna í stjórnarskrárvinnunni: „Þjóðaratkvæðagreiðslan, í þessu tilviki, er að mínu viti gott dæmi um misnotkun á þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þú heldur þjóðaratkvæða- greiðslu áður en hin efnislega um- ræða hefur farið fram og reynir síð- an að nota niðurstöðurnar til að þagga niður umræðuna.“ Í erindi sínu hélt Gunnar Helgi því fram að vel unnin skoðana- könnun hefði getað reynst gagnlegri en þjóðaratkvæðagreiðslan: „Ef það sem menn vildu fá fram voru skýrar upplýsingar um hvað kjósendur væru að hugsa þá hefði í báðum þessum tilvikum góð og vönduð skoðanakönnun verið mun árangursríkari aðferð til þess að afla þeirra upplýsinga.“ Á sama fundi var Björg Thor- arensen, prófessor í stjórnskip- unarrétti við lagadeild Háskóla Ís- lands, skýr: „Það er ekki búið að fara efnislega yfir tillögurnar hjá löggjafanum og þingmenn hafa þá skyldu sam- kvæmt stjórnarskrá að ræða þær efnislega. Síðan er rétti stjórn- skipulegi farvegurinn að bera þetta undir þjóðina þegar búið er að vinna málið á þinginu.“ Tilraunastarfsemi með stjórnarskrá Viku eftir fundinn í Háskóla Ís- lands lagði meirihluti stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar fram frum- varp stjórnlagaráðs með nokkrum breytingum. Atli Gíslason, hæsta- réttarlögmaður og þá þingmaður sem hafði sagt skilið við ríkisstjórn- ina, gaf frumvarpinu falleinkunn í nefndaráliti. Frumvarpið væri „ófullburða plagg sem er langt frá því að vera tækt til 2. umræðu á Al- þingi“. Ekki væri tekið tillit til „varnaðarorða sérfræðinga á sviði stjórnskipunarréttar“ og ekkert heildarmat hefði farið fram „þótt ítrekað hafi verið eftir því kallað af hálfu minni hluta nefndarinnar og fjölda sérfræðinga sem um málið hafa fjallað, bæði á nefndarfundum og úti í samfélaginu“. Atli benti á að fjöldamörg „stór álitamál“ blöstu við og hefðu síst skýrst í vinnu nefnd- arinnar. Hann hafnaði „algjörlega þessum vinnubrögðum meiri hlut- ans“ og sagði „löngu tímabært að látið verði af þessari tilraunastarf- semi með stjórnarskrá lýðveldisins“. Dómur Atla líkt og margra ann- arra var skýr en þungur. Frum- varpið strandaði og kom ekki til at- kvæðagreiðslu við 2. umræðu. Breytingar í sátt Formenn þeirra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi hafa átt fundi frá upphafi árs 2018 um hugs- anlegar stjórnarskrárbreytingar. Verkstjórnin er í höndum forsætis- ráðherra sem í lok júní sl. birti í samráðsgátt drög að frumvarpi. Alls bárust 215 umsagnir um frumvarps- drögin en tekið er fram að formenn- irnir hafi ekki undirgengist skuld- bindingu í þessum efnum. Með þessu vinnulagi hefur for- sætisráðherra lagt drög að því að tryggja að breið sátt náist um breyt- ingar á æðstu réttarheimild þjóð- arinnar sem er yfir önnur lög hafin. Þannig er viðurkennt hve nauðsyn- legt það er að umgangast stjórnar- skrá af virðingu, vinna að nauðsyn- legum breytingum af yfirvegun og tryggja almennan stuðning. Með slíkum vinnubrögðum hefur stjórn- arskrá lýðveldisins fengið að þróast, ekki í takt við dægurflugur ein- stakra hagsmunahópa eða stjórn- málaflokka, heldur eftir yfirlegu og ítarlegar umræður. Af 79 efnis- greinum stjórnarskrárinnar hefur 45 verið breytt eða þeim bætt við. Og stjórnarskráin hefur lagt traust- an grunn undir ríkisstjórn laga en ekki manna, þar sem grunngildi mannréttinda og einstaklingsfrelsis eru tryggð. Eftir Óla Björn Kárason » Stjórnarskráin hefur fengið að þróast, ekki í takt við dægur- flugur hagsmunahópa eða stjórnmálaflokka, heldur eftir yfirlegu og ítarlegar umræður. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Endurteknar staðhæfingar og staðreyndir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.