Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 17

Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020 ar. Hann gat verið hrjúfur á yf- irborðinu og stundum kaldhæðinn en undir niðri var hann hlýr og mikill húmoristi. Hann lagði sig fram um að kynnast samstarfs- fólki sínu, sama hvaða starfi við- komandi gegndi. Allir voru mik- ilvægir í hans augum, hver einstaklingur í samhentu teymi okkar skipti hann máli og hann veitti öllum athygli. Gunnar leit ekki stórt á sig og gerði sér far um að falla í hópinn og naut þess að sitja með starfsmönnum á kaffi- stofunni, tók þátt í galsanum og spjallinu þar og veitti jafnframt innsýn í líf sitt og tilveru. Hvern laugardagsmorgun sem hann átti helgarvakt kom hann með brak- andi ferskt bakkelsi fyrir starfs- fólkið á vakt og ef tími gafst sat hann með hópnum og spjallaði um heima og geima. Þessar stundir voru dýrmætar og gleymast seint, enda voru þær uppbyggilegar, stuðluðu að góðum starfsanda og gagnkvæmri virðingu. Það er stórt skarð höggvið í raðir okkar á hjarta- og lungna- skurðdeildinni sem ekki verður fyllt. Missir fjölskyldunnar er þó meiri og hugur okkar er hjá Ingi- björgu, börnum, barnabarni, móð- ur, systkinum og öðrum aðstand- endum Gunnars. Við vottum ykkur samúð okkar um leið og við kveðjum kæran vin og félaga með þökk fyrir góða samfylgd. Fyrir hönd starfsfólks hjarta- og lungnaskurðdeildar, Bjarni Torfason og Heiða Steinunn Ólafsdóttir. Það var mikið áfall að frétta af fráfalli samstarfsfélaga míns og vinar, Gunnars Mýrdals, yfir- læknis á hjarta- og lungnaskurð- deild Landspítala, enda Gunnar á besta aldri og á hátindi ferils síns. Báðir vorum við í hópi hátt í 200 nema sem þreyttu samkeppnis- próf, numerus clausus, við lækna- deild Háskóla Íslands árið 1985. Aðeins 30 komust áfram og var árgangurinn því óvenju fámenn- ur. Það þétti þó hópinn og átti sinn þátt í að byggja upp góða stemn- ingu sem hélst í gegnum sex ára læknanám og vinabönd sem hafa haldist fram á þennan dag. Á þeim tæpu þrjátíu árum sem liðin eru frá brautskráningu hópsins árið 1991 höfum við oft hist og gert okkur glaðan dag saman. Gunnars verður sárt saknað á samkomum hópsins í framtíðinni. Strax á fyrsta ári náðum við Gunnar vel saman og fylgdumst oft að í hópvinnu og verklegum æfingum. Hvorugan okkar grun- aði þá að síðar ættum við báðir eftir að fara í skurðlækningar og starfa þar hlið við hlið árum sam- an innan hjarta- og lungnaskurð- lækninga. Gunnar var sérlega far- sæll skurðlæknir, enda handlaginn, lausnamiðaður og fljótur að hugsa. Hann var ham- hleypa til vinnu og verkkvíði var honum algjörlega framandi. Auk þess hafði hann gaman af stjórn- un og sótti sér menntun á því sviði og var lunkinn í mannlegum sam- skiptum. Honum var því falið að stýra hjarta- og lungnaskurð- deildinni á háskólasjúkrahúsinu í Uppsala og síðar deildinni á Landspítala sem yfirlæknir. Eftir kandidatsár og nokkur ár sem deildarlæknir hér heima hélt hann í sérnám í almennum skurð- lækningum til Västerås í Svíþjóð. Hjarta- og lungnaskurðlækningar toguðu sterkt í hann og því færði hann sig um set til Uppsala. Þar lauk hann sérfræðiprófi en náði samhliða klínísku sérnámi að stunda rannsóknir og verja dokt- orsritgerð um lungnakrabbamein við Uppsalaháskóla. Smám saman beindist áhugi hans að flóknum hjarta- og ósæðaraðgerðum en einnig noktun hjálparhjarta. Þessi dýrmæta reynsla átti eftir að koma sér vel þegar hann ákvað að snúa aftur heim til Íslands og bætast í hóp fimm hjarta- og lungnaskurðlækna á Landspítala. Sjálfur hafði ég flust heim nokkr- um árum áður og tókum við fljót- lega upp fyrri kynni úr lækna- deild. Aldrei bar skugga á samstarf okkar og ég minnist samstarfs okkar á síðastliðinn áratug með mikilli hlýju og eft- irsjá. Söknuður bekkjarfélaga okkar úr læknadeild er mikill en sömuleiðis samstarfsmanna á Landspítala, enda skilur Gunnar skilur eftir sig stórt og vandfyllt skarð í fámennu teymi hjarta- og lungnaskurðlækna á Landspítala. Missir fjölskyldu hans er þó lang- mestur, ekki síst Ingibjargar eig- inkonu hans og barnanna sjö, sem frá fyrsta degi hafa stutt Gunnar dyggilega í snörpum og illvígum veikindum hans. Minningin um góðan félaga og vin mun lifa. F.h. útskriftarárgangs 1991 úr læknadeild HÍ, Tómas Guðbjartsson. Gunnar Mýrdal, hjartaskurð- læknir, félagi okkar og samstarfs- maður, hefur kvatt þessa jarðvist eftir erfið veikindi. Veikindin hans voru óvænt, gangurinn hraður en kallið kom einfaldlega alltof snemma og við kveðjum hann með trega. Hans verður sárt saknað. Gunnar var gríðarlega öflugur fagmaður sem var lítið fyrir að berja sér á brjóst en lét frekar verkin tala. Hann hafði orð á sér fyrir að vera mjög fær skurðlækn- ir þegar hann kom til starfa á Landspítala eftir sérfræðinám í Uppsölum í Svíþjóð og það kom fljótt í ljós í öllum hans störfum. Hann var frábær samstarfsmað- ur, jákvæður, verkfús og afar lausnamiðaður. Gunnar hafði nýlega verið skip- aður yfirlæknir hjartaskurðlækn- inga á Landspítala og hafði metn- aðarfull áform um enn frekari eflingu sérgreinarinnar. Við höfð- um talsvert rætt saman um sam- starf hjartalækna og hjartaskurð- lækna og mér fannst hugmyndir hans í því tilliti mjög áhugaverðar. Hann hafði fyrir nokkrum árum lokið MBA-námi til viðbótar við læknanámið og var því kominn með breiðan og traustan grunn til að takast á við nýjar áskoranir í starfi. Því miður komu veikindi hans í veg fyrir að hann gæti al- mennilega hafið þessa vegferð. Fráfall hans skilur eftir sig risa- stórt og vandfyllt skarð innan hjartaskurðlækninga á Landspít- ala auk þess sem við höfum misst frábæran félaga. Takk fyrir samstarfið Gunnar og hvíl í friði. Við sendum Ingibjörgu okkar, börnum Gunnars og öðrum að- standendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd hjartalækna á Landspítala, Davíð O. Arnar. Við litum öll forvitnum augum á Gunnar þegar MBA-hópurinn okkar kom fyrst saman haustið 2014. Satt best að segja fannst okkur við lifa fremur fábreyttu lífi við hliðina á honum. Hann sem þá var sex barna faðir, svo sjö, og far- sæll hjartaskurðlæknir sem ferð- aðist á milli Svíþjóðar og Íslands. Hann breikkaði svo sannarlega reynsluheim hópsins okkar. Það er ekki oft á lífsleiðinni sem við fáum að kynnast svona áhuga- verðum og marglaga manneskj- um eins og Gunnari. Hógvær, yf- irvegaður og glaðlyndur hellti hann sér í hvert verkefnið af öðru með hæglátum og áreynslulaus- um hætti. Hann lagði sig fram í starfi, fjölskyldulífi, námi og félagslífi og alltaf gaf hann sér góðan tíma fyr- ir fólkið sitt. Við fengum að kynn- ast ólíkum hliðum hans, öllum góðum. Við nutum einlægra sam- tala við hann um lífið og tilgang- inn, samtala um heilbrigðiskerfið og tækifæri til úrbóta. Nokkrir úr hópnum kynntust honum enn betur þegar þeir þeystu um í spandexinu á sérút- búnu hjólunum með Velominati- reglurnar 95 að leiðarljósi. Af- slöppunin á Nauthóli á eftir gleymist ekki. Gunnar var ein- stakur maður, hjálpsamur og hlýr. Hópurinn sem stóð að loka- verkefninu með honum fékk djúpa innsýn í liðskiptaaðgerða- biðröð landsmanna og starfsað- stöðu hans í gámi við Landspítala. Þar hafði Nespresso-vélin vart undan. Við söknum góðs vinar og fé- laga og er nú í annað sinn höggvið skarð í hópinn okkar á stuttum tíma. Eftir sitjum við sorgmædd en þakklát fyrir góð kynni. Minn- ing um góðan dreng mun lifa áfram með okkur sem eftir sitjum. Elsku Ingibjörg, Hulda, Dag- mar, Erna, Valdís Jóna, Gunnar Breki, Rafn Alexander og Geir- laug María, missir ykkar er mikill og vottum við ykkur okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd MBA-bekkjar HR 2016, Pétur Ísfeld Jónsson. Þegar ég hugsa til baka til þeirra daga er við Gunnar kynnt- umst þá spurði einn skólafélagi minn hvort ég, aðkomudrengur- inn, hefði eignast einhvern nýjan vin á Akranesi. Ég neitaði því. Hann spurði mig hvort ég væri í íþróttum. Ég svaraði og gall þá í honum: „Þú þarft að kynnast Gunnari Mýrdal. Hann æfir líka badminton.“ Við Gunnar urðum mestu mátar og gátum talað sam- an tímunum samann. Hann var rólegur og yfirvegaður, öruggur í fasi og dagfarsprúður. Gunnar var stefnufastur og vissi alltaf hvað hann vildi. Lang- skólanám og læknisfræðin var draumurinn. Hann var eljusamur námsmaður og það var því oftar en ekki að við félagar hans kíktum til hans á Brekkubrautina í spjall og hlátur. Hörð vinna fyrri ára í fram- haldsskóla skilaði nú árangri og komst hann strax inn í læknis- fræði við Háskóla Íslands. Gunnar var á réttri hillu þarna. Námið sóttist vel og hafði hann metnað til að verða góður læknir. Gerð fræðigreina og rannsókn- arskýrslna fyrir doktorsnámið í Svíþjóð lá einnig vel fyrir honum. Hann gaf mér eitt sinn eintak af einu ritverki sínu. Það eina sem ég skildi úr þessu riti var setning sem hann setti inn í opnukápu verksins. „Vitur maður hefur ekki óbifanlegar skoðanir. Hann lagar sig eftir öðrum.“ Þessi orð Lao Tse áttu ágætlega við Gunnar sjálfan og lýsti honum ágætlega seinni árin. Gunnar flutti aftur heim. Hluti af ákvörðun heimferðar voru börnin hans. Þau voru honum meira virði en framabraut erlend- is. Það kom hins vegar ekki á óvart að hann yrði yfirlæknir hjarta- og lungnaskurðdeildar Landspítalans, sæti í stjórn Læknafélags Íslands o.fl. Honum var umhugað um að hafa gott starfsfólk í kringum sig á spítalanum. Svo ég vitni í hann sjálfan: Þótt hjartaskurðlæknir- inn fengi allt umtalið og hrósið fyrir að bjarga mannslífum væri það nú oft svo að skurðlæknar gerðu næstum út af við sjúkling- inn í erfiðum aðgerðum. Þá þyrfti allt hitt starfsfólkið í kringum þá að sjá til þess að halda sjúklingn- um á lífi á meðan og eftir aðgerð þegar þeir sjálfir færu heim eftir gott dagsverk. Gunnar eignaðist stóra fjöl- skyldu. Sjö eru börnin og eitt á leiðinni. Að sjálfsögðu var slíkt álag ekki lagt á eina nútímakonu. Um fimmtugt bætti hann við sig MBA-gráðu í rekstrarfræði sem hann kláraði með sóma sam- hliða vinnu og fjölskyldu. Eftir þær fréttir að ný barátta væri að hefjast sem tvísýn væri tók hann því með æðruleysi. Þótt leiðarlok væru nærri get ég enn minnst ljúfra minninga er ég leit inn hjá þeim hjónum. Sat ég hjá Gunnari og litla skottið hans fimm ára kom upp í rúm til að fara að sofa hjá pabba sínum. Bað hún mig að segja sér sögu fyrir svefn- inn. Það var auðsótt og sagði ég ævintýrasögu góða. Þegar ég var hálfnaður stoppaði hún mig af og sagði: „Ég þarf sko að fara í leik- skólann í fyrramálið.“ Ég skildi sneiðina og stytti góða sögu all- mikið. Það má líkja þessu við þá sögu vinar míns sem ég hélt í höndina á meðan ævintýrasagan var sögð. Hans góða ævintýra- saga fékk allsnöggan og ótíma- bæran endi. Þín verður sárt sakn- að Gunnar minn. Erling Bergþórsson. Við Gunni kynntumst frekar seint í lífinu. Fyrsta skiptið sem við hittumst var í Lundi 2004 þegar við vorum báðir á nám- skeiði um innsetningu gervi- hjarta. Það var strax augljóst að Gunni var fullur af eldmóði yfir þessu verkefni, en einnig fann maður að það var ekki bara áhug- inn, ég hreifst strax af færninni og hæfileikunum sem Gunni bjó yfir. Þetta var mjög skemmtileg- ur tími í Lundi og við náðum vel saman og á kvöldin ræddum við um framtíð hjartaskurðlækninga á Íslandi. Næst þegar við hittumst 2007 var Gunni fluttur heim og kom- inn til starfa sem sérfræðingur í okkar litla hjartateymi á Land- spítalanum. Það var gríðarlegur fengur að fá svona frábæran skurðlækni heim. Á þessum tíma þróaðist okkar góða og sterka vinátta. Við vorum báðir að ganga í gegnum erfiðleika í okk- ar persónulega lífi og sátum oft á vöktum og spjölluðum saman. Það sem einkenndi Gunna var mikið hispursleysi, hann talaði hreint út en af miklu innsæi og virðingu fyrir öllum sem um var rætt. Minningar mínar um Gunna eru svo bjartar og fullar af gleði þótt ýmislegt hafi gengið á. Ég man eftir veiðiferðunum sem við fórum saman í og mótorhjóla- ferðunum sem enduðu oft á ein- hverju kaffihúsi. Sérstaklega er mér kært þegar Gunni hringdi í mig eitt sinn rétt fyrir jól og bauð mér í skötu á Þorláksmessu á Þremur frökkum með tveimur uppeldisvinum sínum af Skagan- um, þetta varð síðan að hefð sem við héldum í nokkur ár. En sterk- ustu minningarnar eru af spítal- anum, venjulegur dagur eða erfið aðgerð, eða erfiðar ákvarðana- tökur. Ég hef ekki kynnst koll- ega sem naut slíkrar virðingar sem Gunni, hann var alltaf hreinn og beinn og gríðarlega fær í sínu starfi bæði sem skurð- læknir og stjórnandi. Hann skoð- aði málin frá öllum hliðum og al- gerlega laus við hlutdrægni tók hann sínar ákvarðanir. Síðasta skiptið sem við Gunni unnum saman er mér mjög minn- isstætt. Ég fékk tilkynningu um að þrír drengir hefðu keyrt fram af bryggjunni við höfnina í Hafn- arfirði og tveir þeirra væru enn í endurlífgun. Ég hringdi í hjarta- skurðlækni á vakt sem var mjög fær ungur maður frá Lundi, við urðum strax sammála um að hringja í Gunna til að fá hans hjálp og reynslu. Þrátt fyrir veik- indin var Gunni kominn innan mínútna á spítalann og í stuttu máli gekk allt eins og í sögu með frábærri samvinnu alls teymisins og ekki síst fyrir tilstilli Gunna að koma drengjunum úr hjarta- stoppi á hjartalungnavél. Dreng- irnir lifðu báðir af. Þessu föstu- dagskvöldi í janúar og samvinnu okkar mun ég aldrei gleyma og ég veit að drengirnir og fjöl- skyldur þeirra verða Gunna eilíf- lega þakklát. Missir okkar vina og sam- starfsmanna Gunna er mikill en hugur okkar er hjá Ingibjörgu og börnunum og votta ég þeim mína dýpstu samúð. Gunni var ein- stakur maður, hann barði sér ekki á brjóst fyrir eigin ágæti en hann var hetja. Ég hugga mig við þá fallegu hugsun að þú og vinur okkar heitinn Gummi Klem sitjið saman og skipuleggið einhver prakkarastrik. Far í friði elsku vinur. Felix Valsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, THEODÓR S. ÓLAFSSON vélstjóri og fyrrverandi útgerðarmaður, Bessahrauni 6 í Vestmannaeyjum, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum 16. september. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 2. október klukkan 13. Margrét Sigurbjörnsdóttir Þorbjörg Theodórsdóttir Haukur Logi Michelsen Hafþór Theodórsson Hanna Ragnheiður Björnsd. Júlíanna Theodórsdóttir Ingólfur Ingólfsson Bára Theodórsdóttir Tommy Westman Björk Theodórsdóttir Harpa Theodórsdóttir Örvar Guðni Arnarson og fjölskyldur Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, DÓRU DRAFNAR BÖÐVARSDÓTTUR. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Björgvin Stefánsson Hrefna Guðmundsdóttir Hákon Hallgrímsson Björg Guðmundsdóttir Friðrik Árnason Sigríður Guðmundsdóttir Einar Sveinn Jónsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN BENEDIKTSSON, fyrrverandi bóndi Krossi, Austur-Landeyjum, lést þriðjudaginn 15. september á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Útför hans fer fram frá Krosskirkju laugadaginn 26. september klukkan 14. Vegna samkomutakmarkana verða fjöldatak- markanir í kirkjunni en útvarpað verður fyrir þá sem verða í bílum á staðnum. Noelinie Lina Cynthia Anne Guðfinna Sif Sveinbjörnsd. Kjartan Kjartansson Agnes Ólöf Thorarensen Þórhallur Svavarsson Benedikt Sveinbjörnsson Sigríður Linda Ólafsdóttir Margrét Sveinbjörnsdóttir Gylfi Freyr Albertsson Axel Þór Sveinbjörnsson Silja Ágústsdóttir Sigurður Óli Sveinbjörnsson Esther Sigurpálsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR ELÍSABET GRÖNDAL, lést á Dalbæ, heimili aldraðra, 10. september. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 2. október klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verður útförinni jafnframt streymt á https://ww w.youtube.com/watch?v=pFQyS9IfejY&feature;=youtu.be Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík. Benedikt Björnsson Bjarman Halldóra Gísladóttir Sigurður Ragnar Sverrisson Gísli Sigurður Gíslason Karólína Gunnarsdóttir Hólmfríður Amalía Gíslad. Júlíus Baldursson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ODDGEIRS ÍSAKSSONAR, Hagamel, Grenivík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á dvalarheimilinu Grenilundi, Grenivík, og einnig allir þeir er sendu blóm, bakkelsi, kort og kærleikskveðjur. Guð blessi ykkur öll. Margrét Sigríður Jóhannsdóttir Jóhann Oddgeirsson Herdís Anna Friðfinnsdóttir Alma Oddgeirsdóttir Ísak Oddgeirsson Svanhildur Bragadóttir Gísli Gunnar Oddgeirsson Margrét Ósk Hermannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.