Morgunblaðið - 23.09.2020, Síða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það þarf ekki alltaf einhver ósköp
til þess að lífga upp á tilveruna. Hvað sem
þú tekur þér fyrir hendur mun ganga upp.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kannt að meta góða sögur. Ef þú
stendur þig að því að vera hvass eða óþol-
inmóð/ur við fólk bendir það til einhver
kvíði kraumi undir. Taktu þér tak.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú færð ógrynni hugmynda til
þess að auka tekjur þínar. Gætið ykkar á
að ofmetnast ekki því dramb er falli næst.
Makinn kemur þér á óvart í kvöld.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert undir miklu álagi og þarft
nauðsynlega að draga úr því, því annars
áttu á hættu að það komi fram í lík-
amlegum kvillum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sá sem svarar kalli og réttir út hjálp-
arhönd er ekki sá sem þú bjóst við. Þér
leiðist nöldur meira en allt annað. Reyndu
að loka eyrunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu aðra vita af því, hvað þér þyk-
ir vænt um þá. Ekki er allt gull sem glóir.
Börn reyna á þolrifin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Settu þér ákveðin markmið til að
keppa að bæði í leik og starfi. Þú hefuralla
þræði í hendi þér. Láttu reyna á hæfni þína
í vissu máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er rétti tíminn til að taka
hendinni heima fyrir og losa sig við það
sem þú hefur ekki þörf fyrir lengur. Leit-
aðu inn á við næstu vikur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fólk kann að meta frásagn-
arhæfileika þína. Mundu að þú þarft að
hugsa um sjálfa/n þig; annars hefur þú
ekkert að gefa öðrum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það væri óviturlegt að taka þátt
í veðmálum í dag. Svaraðu skilaboðum
strax. Láttu það ekki fara í skapið á þér þó
allt gangi ekki eins og þú óskir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert upp á þitt besta og get-
ur nánast samið um hvað sem er því þú
færð fólk svo auðveldlega á þitt band. Hik-
aðu ekki við að láta í þér heyra ef þér er
misboðið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú leggur grunninn að vinskap
núna og hann mun reynast traustur. Leit-
aðu að gleðinni í þér og hleyptu henni út.
Kaupmannahafnar í lotunám og
lærði að kenna rytmískan söng og
fannst það mjög skemmtilegt og
kynntist fullt af skemmtilegu fólki,“
segir Hólmfríður sem lauk diplómu-
námi frá Complete Vocal Institute í
Kaupmannahöfn árið 2007.
útskrifaðist með mastersgráðu frá
Indiana University árið 1990. Ekki
var þó öllu námi lokið því enn átti
hún eftir að bæta við sig. „Klass-
ískur söngur á undir högg að sækja
og ásóknin í rytmískt söngnám
miklu meiri. Ég fór fimm sinnum til
H
ólmfríður Sigrún
fæddist 23.9. 1950 og
er uppalin á Húsavík
hjá foreldrum sínum
en eyddi mörgum
stundum hjá móðurömmu sinni í
Gamla Spítalanum á Akureyri. „Ég
man eftir mér sex ára í rútu á leið-
inni til Akureyrar að heimsækja
ömmu, sem saumaði á mig falleg föt
og mér þótti afskaplega vænt um
hana.“
Hólmfríður ólst upp við tónlist á
heimilinu og sjö ára byrjaði hún að
læra á píanó sem hefur aldeilis nýst
henni í starfi hennar sem söngkenn-
ari og kórstjóri. Að loknu gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Húsavíkur lá leiðin í Kennaraskóla
Íslands í Reykjavík. Þaðan lauk hún
prófi 1971. Tónmenntakennaraprófi
lauk hún frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1974 og einsöngvaraprófi
undir handleiðslu Elísabetar
Erlingsdóttur og Guðrúnar A. Krist-
insdóttur úr Tónlistarskóla Kópa-
vogs árið 1980.
„Við Magnús Pétur vorum byrjuð
saman í Kennaraskólanum og gift-
um okkur 1972 og eignuðumst svo
Magnús Eið og svo flutti ég hann
með mér til Húsavíkur.“ Tengda-
fjölskyldan tók Hólmfríði afskaplega
vel og hjálpaði henni á alla lund með-
an á náminu stóð.
Hólmfríður hefur kennt við ýmsa
skóla víðs vegar um landið, þar má
nefna á Akranesi, á Akureyri, í
Kópavogi og í Reykjavík en lengst af
í heimabæ sínum Húsavík. Hún
kenndi aðallega einsöng og tón-
mennt, en auk þess ensku. Hún hafði
einnig umsjón með bekkjum og vann
ýmis önnur störf innan tónlistarskól-
ans.
Frá árinu 1975 og allt til 1981 var
Hólmfríður skólastjóri Tónlistar-
skóla Húsavíkur og hún hefur lifað
og hrærst í tónlistarlífi Húsavíkur
alla tíð. Árið 1986 fluttist fjölskyldan
til Bandaríkjana þar sem Hólm-
fríður var í mastersnámi í einsöng en
Magnús Pétur stundaði nám í kenn-
aradeild háskólans. „Þetta var alveg
frábær tími fyrir okkur fjölskylduna
og Ásta mín á enn vini sem hún eign-
aðist þarna sem barn.“ Hólmfríður
Þá hefur hún stjórnað mörgum
kórum um ævina, s.s. Kvennakórn-
um Lissý og Stúlknakór Húsavíkur,
sem dóttir hennar Ásta Magnús-
dóttir, hefur nú tekið við. Núna stýr-
ir hún Sólseturskórnum, kór aldr-
aðra í Norðurþingi, sem faðir hennar
stjórnaði á árum áður. „Þetta er al-
vörukór en það er ekkert aldurs-
takmark í honum. Það er hollt að
syngja og endorfínið fer út í líkam-
ann alveg eins og þegar fólk hlær.“
Hólmfríður keyrir oft upp í Skóg-
arbrekku á Húsavík þar sem hjúkr-
unardeild aldraðra er til húsa. Þar er
m.a. fólk með alzheimersjúkdóminn
og það er hennar hjartans mál að
láta það syngja. „Amma á Akureyri
fékk alzheimer og eftir það var eina
leiðin til að tengjast henni að syngja
því þá tók hún undir.“
Árið 2015 hætti Hólmfríður störf-
um við Tónlistarskóla Húsavíkur og
var um leið gerð að heiðursfélaga
Heiltóns, hollvinasamtaka skólans.
Fjölskylda
Eiginmaður Hólmfríðar er Magn-
ús Pétur Magnússon, f. 27.12. 1950,
Hólmfríður Sigrún Benediktsdóttir söngkona – 70 ára
Kórstjórinn Hér sést Hólmfríður stjórna Sólseturskórnum á hinni árlegu tónlistarhátíð Skjálfanda.
Hollt fyrir fólk að syngja
Fjölskyldan Myndin var tekin á fermingardegi Kristjönu. F.v.: Magnús Eið-
ur, Magnús Pétur, Ásta, Kristjana og Hólmfríður situr fremst fyrir miðju.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Til hamingju með daginn
Seltjarnarnes Birna
Margrét Stefánsdóttir
fæddist 20. nóvember
2019 kl. 17.32. Hún vó
3.574 g og var 49 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Guðbjörg Gutt-
ormsdóttir og Stefán
Ólafur Stefánsson.
Nýr borgari
50 ára Bjarki fædd-
ist á Sauðárkróki og
er Skagfirðingur í húð
og hár. Hann býr á
Akranesi og er verk-
stjóri hjá Vigni G.
Jónssyni, sem fram-
leiðir kavíar.
Maki: Kristín Mjöll Guðjónsson, f. 1973,
leikskólakennari.
Börn: Kristófer Már Maronsson, f.
1993, Júlía Ósk Baldvinsd., f. 1996, Hin-
rik Freyr Baldvinsson, f. 1998, Laufey
Dís Baldvinsd., f. 2000, Helena Hrönn
Baldvinsdóttir, f. 2008, og Brynja María
Baldvinsdóttir, f. 2011.
Foreldrar: Baldvin Jónsson, f. 1934, d.
2018, verkamaður og Guðfinna Gunn-
arsdóttir, f. 1942, d. 2012.
Baldvin Bjarki
Baldvinsson
50 ára Guðmundur
ólst upp í Reykjavík í
Neðra-Breiðholti en
býr nú á Akureyri.
Hann er íþróttakennari
og er í námi meðfram
vinnu hjá Skrifstofu-
skólanum auk þess að
stunda mannrækt innan Frímúrara-
reglunnar.
Maki: Therése Möller, f. 1978.
Börn: Ragnhildur Sól, f. 2003, og
Brynhildur Sól, f. 2006. Börn Theresu
eru Hreinn, f. 1999, Alexander Rolf, f.
2002, og Jón Bjarni, f. 2005, Magn-
úsarbörn.
Foreldrar:
Helgi Helgason, f. 1926, d. 1982, og
Anna Guðmundsdóttir, f. 1929, d. 2010.
Guðmundur Rúnar
Helgason