Morgunblaðið - 23.09.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 23.09.2020, Síða 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 ÉG SÉ DJÚPA LÆGÐ NÁLGAST ÚR NORÐ- VESTRI, MEÐ STERKUM VINDHVIÐUM, ÚRHELLI, ELDINGUM OG MÖGULEGUM FLÓÐUM. „ÉG ER BÚINN AÐ FINNA LEYNIHERBERGI!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... koddahjal. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann EIRÍKUR, FRAMMISTAÐA ÞÍN Á VÍGVELLINUM HEFUR VERIÐ SKAMMARLEG! HÉRNA, TAKTU ÞESSA GULLPENINGA! BARA AÐ HREINSA PÍPURNAR OJ! VÁ… TIL AÐ HVETJA TIL DÁÐA?! NEI, ÞETTA ER STARFSLOKAGREIÐSLA! grunnskólakennari frá 1971. Faðir hans var Magnús Már Sigurjónsson, f. í Wynyard Sask í Kanada 21.10. 1916, d. 29.11. 2005. Hann vann alla tíð við Rafmagnsveitu Reykjavíkur og lék á túbu með Lúðrasveit Reykjavíkur í yfir 50 ár en einnig með Sinfóníuhljómsveit Íslands og í Þjóðleikhúsinu. Eiginkona hans var Ágústa Steingrímssdóttir húsmóðir, f. 15.6. 1918, d. 18.1. 2016. Börn Hólmfríðar og Magnúsar Péturs eru: 1) Magnús Eiður, f. 1.10. 1972, vinnur í byggingarvinnu og hefur verið í landsliðum Íslands í bridds frá unglingsaldri. 2) Ásta, f. 10.8. 1979, tónmenntakennari og kórstjóri á Húsavík. Hennar börn eru Atli Freyr, f. 2001, Ásdís María, f. 2006, og Thelma Björt, f. 2010. 3) Kristjana, f. 29.3. 1982, d. 3.5. 2008. Synir hennar eru Ásgeir Arnar, f. 1998, og Magnús Ingi, f. 2002. Systkini Hólmfríðar eru Pálmi, f. 4.6. 1952, búsettur í Danmörku; Jón- ína, íþróttafræðingur, f. 26.3. 1957, búsett í Hveragerði; Helga, f. 2.3. 1963, búsett í Reykjavík, og Ingi- björg Sara tannlæknir, f. 17.7. 1965, búsett í Noregi. Stjúpbræður Hólmfríðar, synir Önnu seinni konu föður hennar, eru Karl Hálfdánarson, f. 1951, búsettur í Garðabæ, og Hjalti Hálfdánarson, f. 1968, búsettur í Hafnafirði. Foreldrar Hólmfríðar voru Ásta Ottesen, f. 25.2. 1928, d. 15.6. 1980, húsmóðir og starfsmaður Sjúkra- hússins á Húsavík, og Benedikt Ingvar Helgason, f. 30.12. 1926, d. 12.1. 2012, deildarstjóri við KÞ í Hrunabúð og síðan tónlistarkennari við Tónlistarskóla Húsavíkur. Þau voru gift í 30 ár. Seinni kona Bene- dikts var Anna Stefanía Sigfúsdóttir húsmóðir, f. 3.10. 1933, d. 14.5. 2013. Hólmfríður Sigrún Benediktsdóttir Helga Sigríður Helgadóttir húsfreyja á Akureyri Jón Björn Kristjánsson útgerðarmaður á Akureyri Jónína Guðrún Jónsdóttir saumakona á Akureyri Þorkell Valdemar Þorkelsson Ottesen prentari á Akureyri Ásta Ottesen húsmóðir á Húsavík Elín Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavik Þorkell Valdemar Stefánsson Ottesen Reykjavík Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Breiðuvík, S-Þing. Benedikt Benediktsson bóndi í Breiðuvík, Húsavíkursókn, S-Þing. Hólmfríður Benediktsdóttir húsmóðir á Húsavík Helgi Ólafsson sjómaður á Húsavík Katrín Árnadóttir húsfreyja á Ísólfsstöðum á Tjörnesi Ólafur Jónas Magnússon bóndi á Ísólfsstöðum á Tjörnesi Úr frændgarði Hólmfríðar Sigrúnar Benediktsdóttur Benedikt Ingvar Helgason kaupmaður og kennari á Húsavík Áboðnarmiði segir Indriði áSkjaldfönn að heimsendaspá hafi sínar jákvæðu hliðar með vísan til limru eftir Ragnar Inga Aðal- steinsson: Þegar jörðin í sæinn er sokkin og sólin af standinum hrokkin - það er þó leið þungbær en greið til að losna við Framsóknarflokkinn. Helgi Zimsen skrifar: „Fésbók- arvinkona uppfærði mynd af sér nærri fimmtugri undir myllumerk- inu „enginnfilter“, flaug mér þá í hug“: Nótt og dag þótt tímans tönn taktviss verði ei stoppuð inni á Fésbók ertu sönn, - ekki fótósjoppuð. Ingólfur Ómar Ármannsson orti í síðustu viku „Áframhaldandi rign- ing“: Vætudögum fjölga fer flóir vatn um götu. Hellidemba úti er eins og hellt úr fötu. Það var nú þá. Enn yrkir Ingólfur Ómar: Forðum eins og fló á skinni funi svall í heitu blóði. Ungur var ég einu sinni eins og foli í merarstóði. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir svaraði: Flestir geta hjalað hjóm hjartasárin gráta. Fjörið dvínar, falla blóm flest mun undan láta. Nú er ekki nándin ný næðir kuldi um vetur. Folinn ekki fagnar því að frelsið horfið getur. Ármann Þorgrímsson yrkir og kallar „Tvöfalt siðgæði“: Þó að sjálf við segjumst góð sjálfsagt fáa blekkjum; við köllum okkur kristna þjóð en kærleik lítið þekkjum. Hallmundur Kristinsson orti um helgina: Ef myrkvast þinn hugur og missir þá sýn að munir þú lífsgleði hreppa, og neikvæð er verðandi núvitund þín, nefnist það tilvistarkreppa. Latínu-Bjarni var á vist í Rauðu- skriðu hjá Benedikt lögmanni Þor- steinssyni. Þóttist hann svelta á Skriðu og kvað: Heldur vildi ég hrings kvað baldur hundur vera þar á grundu en maður í hinni mögru Skriðu matarlaus yfir tómu fati. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Heimsendaspá og ekki fótósjoppuð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.