Morgunblaðið - 23.09.2020, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020
Sverrir Ingi Ingason og Mikael
Anderson, landsliðsmenn í knatt-
spyrnu, eiga báðir ágæta mögu-
leika á að leika með liðum sínum í
riðlakeppni Meistaradeildar Evr-
ópu í vetur. Lið þeirra léku fyrri
leiki sína í umspili í gærkvöld.
Sverrir lék allan leikinn í vörn PA-
OK frá Grikklandi sem tapaði
naumlega 2:1 fyrir Krasnodar í
Rússlandi og Mikael kom inn á hjá
dönsku meisturunum Midtjylland
sem gerðu 0:0 jafntefli gegn Slavia í
Prag. Seinni leikir liðanna fara
fram í næstu viku.
Meistaradeildin
er í sigtinu
Morgunblaðið/Eggert
PAOK Sverrir Ingi Ingason gæti
leikið í Meistaradeildinni.
Andrea Jacobsen, landsliðskona í
handknattleik, reiknar með því að
verða leikfær með sænska félaginu
Kristianstad á ný eftir fjóra til
fimm mánuði en hún sleit kross-
band í hné í febrúar. Andrea segist
sjá framhaldið fyrir sér með þeim
hætti í samtali við netmiðilinn
handbolti.is. Fari svo þá mun líða
um það bil ár þar sem hún er frá
keppni en það getur verið nokkuð
misjafnt hversu lengi fólk er að
jafna sig eftir krossbandslit. Kristi-
anstad vann sig upp í úrvalsdeild-
ina í vor eftir árs fjarveru þaðan.
Andrea tilbúin
eftir áramót
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Svíþjóð Andrea Jacobsen er leik-
maður Kristianstad.
17. UMFERÐ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Björn Daníel Sverrisson var áber-
andi þegar FH vann góðan útisigur á
Fylki í 17. umferð Pepsi Max-deildar
karla í knattspyrnu á mánudags-
kvöldið. Björn skoraði tvívegis í 4:1-
sigri FH sem vann sinn fjórða leik í
röð í deildinni og sjötta af síðustu sjö.
„Þetta var bara fínt. Leikurinn var
svolítið opinn í fyrri hálfleik. Þeir
fengu færi til að skora en við fengum
betri færi fannst mér. Í seinni hálf-
leik fannst mér sigur okkar ekki vera
í hættu. Sérstaklega ekki eftir að við
náðum að skora þessi þrjú mörk á
stuttum tíma. En góður sigur og
mikilvægur,“ sagði Björn Daníel
þegar Morgunblaðið hafði samband
við hann í gær. Björn þandi net-
möskvana þegar hann skoraði með
hörkuskoti af löngu færi í síðari hálf-
leik og kom FH í 2:0. Hann skoraði
raunar fyrstu tvö mörk leiksins og
um leið fyrstu mörk sín í deildinni í
sumar.
„Ég hef fengið nokkur góð færi til
að skora í síðustu leikjum. Ég fékk
einnig gott færi í fyrri hálfleik gegn
Fylki áður en ég skoraði skallamark-
ið. Í öðru markinu sá ég boltann
koma skoppandi og þá kom ekki ann-
að til greina en að láta vaða á markið.
Ég var spurður á æfingu í dag hvort
þetta væri flottasta mark sem ég hef
skorað en ég er ekki viss um það en
gott var það samt.“
Spurður um hvað hafi orðið þess
valdandi að FH-ingar hafa náð stöð-
ugleika í leik sínum segir Björn
Daníel menn vera samstillta hjá FH
og sjálfstraustið fari vaxandi.
„Ég geri mér grein fyrir því að
þetta er kliskjukennt svar en þetta
er fyrst og fremst liðsheildinni að
þakka. Það er kominn góður andi í
þetta hjá okkur og maður finnur á
æfingum og í leikjum að samstaðan
er mikil. Manni finnst sjálfstraustið
vera mikið í liðinu og menn hafa ekki
mikla trú á því að við munum tapa.
Mér finnst ég sjá það á mönnum að
þeim líður betur með hverjum leikn-
um sem við spilum. Einnig hefur
hjálpað að við fengum góða leikmenn
til okkar. Ég er gríðarlega ánægður
með að við skyldum fá Eggert
[Gunnþór Jónsson] og hann hefði
styrkt hvaða lið sem er í deildinni.
Auk þess síast smám saman betur
inn þær áherslur sem þjálfararnir
Logi [Ólafsson] og Eiður [Smári
Guðjohnsen] leggja.“
Mikill hugur í mönnum
FH er í 2. sæti með 29 stig eftir 14
leiki en Valur er á toppnum með 37
stig eftir 15 leiki. Liðin eiga eftir að
mætast tvívegis og FH á því mögu-
leika að elta Val uppi. Ljóst er orðið
að kapphlaupið um titilinn mun
standa á milli þessara tveggja liða
nema Valsmönnum takist að hrista
FH af sér einnig. Nú vill svo til að lið-
in mætast annað kvöld í Kaplakrika
og FH gæti hleypt spennu í mótið
með sigri
„Það er svolítið skrítið að eiga eftir
báða leikina gegn Val þegar við erum
búnir að spila fjórtán leiki. Ef þeir
vinna leikinn þá eru þeir nokkurn
veginn stungnir af. Við höfum nánast
sett alla leiki upp eins og hver og
einn sé mikilvægasti leikur sumars-
ins en það er alveg hægt að segja að
þessi sé töluvert mikilvægari en aðr-
ir leikir. Ekki síst vegna þess að við
höfum náð góðum úrslitum upp á síð-
kastið. Heimir Guðjónsson [þjálfari
Vals] hefur sýnt í gegnum árin að
hann veit hvernig á að vinna leiki og
titla á Íslandi. Það getur ekki hvaða
lið sem er farið í Garðabæinn og
skorað fimm mörk í einum hálfleik
gegn Stjörnunni.
Bæði lið eru á siglingu og því held
ég að þetta verði geggjaður leikur.
Ég fann í klefanum í dag að það er
mikill hugur í mönnum fyrir leikinn á
fimmtudaginn og býst við því að það
sé ekki minna hjá Völsurunum.
Framan af sumri var visst vandamál
hjá okkur að halda markinu hreinu
en það hefur gengið nokkuð vel í
undanförnum leikjum. Í síðustu
leikjum höfum við einnig náð að
skora slatta af mörkum fyrir utan
leikinn gegn Víkingi. Okkur tekst því
að nýta okkar styrkleika á báðum
endum vallarins. Menn fara örugg-
lega varkárir inn í leikinn en þetta
gæti orðið veisla,“ sagði Björn Daní-
el Sverrisson, fyrirliði FH.
„Kom ekki annað til
greina en að láta vaða“
Leikur FH og Vals gæti orðið geggjaður, að mati Björns Daníels
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliðinn Björn Daníel Sverrisson var á skotskónum gegn Fylki í Árbænum en skoraði einnig með höfðinu.
Þótt Valdimar Þór Ingimundarson sé farinn frá Fylki til Strömsgodset og
hafi ekki leikið með gegn FH í 17. umferðinni í fyrradag er hann enn efstur
í M-einkunnagjöf Morgunblaðsins. Valdimar er með 13 M samanlagt en
hópurinn fyrir neðan hann þéttist.
Patrick Pedersen, sem fékk 2 M fyrir frammistöðuna með Val gegn
Stjörnunni og er í liði umferðarinnar hér að ofan, er kominn með 12 M eins
og Atli Sigurjónsson úr KR, Steven Lennon úr FH, Ágúst Eðvald Hlynsson
úr Víkingi og Stefán Teitur Þórðarson úr ÍA. Næstir með 11 M eru Kennie
Chopart úr KR og Þórir Jóhann Helgason úr FH og svo þeir Aron Bjarna-
son úr Val og Tryggvi Hrafn Haraldsson úr ÍA með 10 M hvor.
17. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Gunnar Nielsen
FH
Björn Daníel
Sverrisson
FH
Bjarni Gunnarsson
HK
Ísak Snær
Þorvaldsson
ÍA
Aron Bjarnason
Val
Ægir Jarl Jónasson
KR
Patrick Pedersen
Val
Hrannar Björn Bergmann
KA
Kári Árnason
Víkingi
Tryggvi Hrafn Haraldsson
ÍA
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
KR
2
4
2
2
4
2
Pedersen nálgast toppsætið
Undankeppni EM kvenna
F-RIÐILL:
Ísland – Svíþjóð ........................................ 1:1
Lettland – Ungverjaland......................... 0:5
Staðan:
Svíþjóð 5 4 1 0 25:2 13
Ísland 5 4 1 0 21:2 13
Ungverjaland 6 2 1 3 10:17 7
Slóvakía 4 1 1 2 2:9 4
Lettland 6 0 0 5 2:30 0
Leikir sem eftir eru:
27.10. Svíþjóð – Ísland
26.11. Slóvakía – Ísland
1.12. Ungverjaland – Ísland
A-RIÐILL:
Eistland – Rússland ................................. 0:3
Holland 21, Rússland 12, Slóvenía 12,
Kósóvó 9, Eistland 1, Tyrkland 1.
B-RIÐILL:
Bosnía – Ítalía........................................... 0:5
Malta – Danmörk ..................................... 0:8
Danmörk 21, Ítalía 21, Bosnía 15, Ísrael
4, Malta 4, Georgía 0.
C-RIÐILL:
Færeyjar – Hvíta-Rússland .................... 0:2
Noregur – Wales ...................................... 1:0
Noregur 15, Wales 8, Hvíta-Rússland 6,
Norður-Írland 5, Færeyjar 0.
D-RIÐILL:
Pólland – Tékkland .................................. 0:2
Spánn 10, Tékkland 10, Pólland 8, Mol-
dóva 3, Aserbaídsjan 0.
E-RIÐILL:
Finnland 10, Skotland 6, Portúgal 4, Alb-
anía 3, Kýpur 0.
G-RIÐILL:
Kasakstan – Austurríki ........................... 0:5
Norður-Makedónía – Frakkland ............ 0:6
Austurríki 15, Frakkland 12, Serbía 9,
Norður-Makedónía 3, Kasakstan 0.
H-RIÐILL
Rúmenía – Króatía ................................... 4:1
Sviss – Belgía............................................ 2:1
Sviss 15, Belgía 12, Rúmenía 6, Króatía 3,
Litháen 0.
I-RIÐILL:
Svartfjallaland – Þýskaland .................... 0:3
Úkraína – Grikkland ................................ 4:0
Þýskaland 18, Írland 13, Úkraína 6,
Grikkland 4, Svartfjallaland 0.
Meistaradeild karla
Umspil, fyrri leikir:
Krasnodar – PAOK ................................. 2:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Slavia Prag – Midtjylland....................... 0:0
Mikael Anderson kom inn á hjá Midt-
jylland á 76. mínútu.
Maccabi Tel Aviv – Salzburg................... 1:2
Holland
B-deild:
Excelsior – Telstar .................................. 1:2
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior.
England
Deildabikarinn, 3. umferð:
WBA – Brentford ............................ (2:2) 6:7
Newport – Watford .................................. 3:1
West Ham – Hull ...................................... 5:1
Luton – Manchester United.................... 0:3
2. deild karla
ÍR – Haukar.............................................. 2:1
Staðan:
Kórdrengir 17 12 4 1 36:10 40
Selfoss 17 12 1 4 30:19 37
Þróttur V. 17 10 4 3 34:17 34
Njarðvík 17 10 3 4 33:22 33
Haukar 18 10 0 8 34:25 30
KF 17 8 1 8 29:33 25
Fjarðabyggð 17 7 3 7 26:22 24
Kári 16 5 4 7 23:22 19
ÍR 18 6 1 11 30:36 19
Víðir 16 4 1 11 19:41 13
Dalvík/Reynir 17 2 4 11 21:40 10
Völsungur 17 2 2 13 20:48 8
Evrópudeild karla
2. umferð, fyrri leikir:
Azoty-Pulawy – Kristianstad ............ 24:25
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 2
mörk fyrir Kristianstad en Teitur Örn Ein-
arsson ekkert.
GOG – Pfadi Winterthur .................... 33:24
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 14 skot í
marki GOG.
Tvis Holstebro – RN Löwen............... 22:28
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki fyr-
ir Tvis Holstebro.
Ýmir Örn Gíslason skoraði 3 mörk fyrir
Löwen en Alexander Petersson var ekki
með.
Skjern – Montpellier ........................... 31:30
Elvar Örn Jónsson skoraði ekki fyrir
Skjern.
Danmörk
Köbenhavn – Aarhus United ............. 32.24
Thea Imani Sturludóttir skoraði ekki
fyrir Aarhus United sem er í 6. sæti með 7
stig úr sex leikjum.
Vendsyssel – Silkeborg-Voel ............. 26:29
Steinunn Hansdóttir skoraði 3 mörk fyr-
ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 5 skot í marki liðsins sem er neðst
með eitt stig úr sex leikjum.