Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 23

Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020 Í LAUGARDAL Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Hversu mikilvægt verður stigið sem Ísland fékk gegn HM-bronsliði Svía á Laugardalsvellinum í gærkvöld? Við komumst ekki endanlega að því fyrr en undankeppni EM lýkur í byrjun desember en úrslitin í leikn- um, 1:1, gefa íslenska kvennalands- liðinu byr undir báða vængi og auka möguleika þess á því að komast beint í lokakeppnina sem fram fer á Englandi sumarið 2022. Og ekki bara úrslitin. Frammi- staða liðsins í seinni hálfleiknum er líklega sú besta síðan það vann sig- urinn óvænta í Þýskalandi haustið 2017. Þar tók íslenska liðið frum- kvæðið í leiknum, jafnaði verð- skuldað og þegar upp var staðið var það stjörnum prýtt lið Svía sem gat verið sáttara með niðurstöðuna. Eitt stig á erfiðum útivelli. Jón Þór Hauksson setti þrjá unga leikmenn í byrjunarliðið fyrir leik- inn gegn Lettum og eftir góða frammistöðu þar voru þær Sveindís Jane Jónsdóttir, Karólína Vil- hjálmsdóttir og Alexandra Jóhanns- dóttir verðlaunaðar með því að halda sætum sínum gegn margfalt sterkari andstæðingi. Þær reyndust vandanum vaxnar, eins og liðið allt, og sjaldan hefur íslenskt landslið teflt fram jafn spennandi nýliða og Sveindísi Jane. Þar er á ferðinni ós- lípaður demantur sem getur náð virkilega langt ef rétt er haldið á málum. Þessi grannvaxna og eld- fljóta stúlka frá Keflavík kom Svíum hvað eftir annað í vandræði með hraða, leikni og áræði, og svo eru löngu innköstin hennar gríðarlega beitt vopn. Enda kom jöfnunar- markið eftir eitt slíkt þegar Elín Metta Jensen stakk sér á milli varn- armannanna og skallaði boltann í mark Svía á 61. mínútu eftir að Sveindís grýtti boltanum inn að markteignum frá hægri. Íslenska liðið fær líka hrós í heild Morgunblaðið/Eggert Návígi Kosovare Asllani, leikmaður Svía og Real Madrid, og Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður Íslands, í hörðum slag um boltann. sinni fyrir að láta ekki mótlætið í fyrri hálfleik hafa áhrif á sig. Svíar komust yfir eftir hálftíma, mark sem virtist löglegt var dæmt af Söru Björk Gunnarsdóttur undir lok fyrri hálfleiks og Dagný Brynjarsdóttir skallaði yfir mark Svía úr fyrsta opna færi Íslands í blálok hálfleiks- ins. Íslenska liðið með Söru Björk í aðalhlutverki á miðjunni tók völdin á löngum köflum í seinni hálfleik og Svíar þurftu eflaust að eyða mun lengri tíma í að verjast á seinni 45 mínútunum en þeir reiknuðu með. Íslenska liðið hélt boltanum vel og þar má sjá augljósar framfarir frá síðustu árum, enda er það lykillinn að því að taka næsta skref í átt að bestu liðum álfunnar. Sandra Sigurðardóttir var gríðar- lega örugg í markinu. Hún hefur lengi verið þriðji markvörður Ís- lands en nú er sviðið hennar og það virðist hún ætla að nýta sér. Glódís Perla Viggósdóttir og Ingibjörg Sig- urðardóttir mynda öflugt miðvarða- par fyrir framan hana, þær spila með tveimur af bestu liðum Norð- urlanda og eru í háum gæðaflokki. Ingibjörg þarf að bæta sending- arnar út úr vörninni en hitt hefur hún allt saman. Elín Metta er búin að stimpla sig endanlega inn sem framherji númer eitt í þessari keppni. Hún er búin að skora í öllum fimm leikjum Íslands og virðist líkleg til að koma bolt- anum í markið í hverjum einasta leik sem hún spilar. Seinni leikurinn við Svía er eftir og það er alls ekki útilokað að ná í eitt eða þrjú stig þar þó það verði enn erfiðara verkefni. En þar sem þrjú bestu lið í öðru sæti undanriðl- anna komast beint á EM getur stig- ið í gærkvöld vegið gríðarlega þungt þegar upp verður staðið í vetur. Eftir það lýkur undankeppninni á útileikjunum í Slóvakíu og Ung- verjalandi og þar mun þetta að sjálf- sögðu allt ráðast endanlega. En leikurinn í gærkvöld og frammi- staðan eru stórt skref í rétta átt. Stórt skref í rétta átt  Mótlætið efldi íslenska liðið og Elín Metta jafnaði metin gegn HM-bronsliði Svía  Úrslit sem geta reynst afar mikilvæg í lokin  Sveindís spennandi nýliði Guðmundur Ágúst Kristjánsson, kylfingur úr GR, fór upp um þrjátíu og tvö sæti á heimslistanum í golfi eftir að hafa hafnað í 18.-23. sæti á Opna portúgalska mótinu. Guð- mundur er nú í 508. sæti á listanum en var númer 540 fyrir mótið. Guðmundur lék á níu höggum undir pari á mótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Guðmundur Ágúst er með keppnisrétt á Áskor- endamótaröð Evrópu en fékk tæki- færi í Portúgal þar sem margir sterkir kylfingar léku á Opna bandaríska mótinu í síðustu viku. Upp um 32 sæti á heimslista Ljósmynd/seth@golf.is Golf Guðmundur Ágúst Krist- jánsson var ofarlega í Portúgal. Íslendingaliðin Kristianstad frá Svíþjóð, GOG frá Danmörku og Rhein-Neckar Löwen frá Þýska- landi standa vel að vígi með að komast í riðlakeppni Evrópudeild- arinnar í handbolta eftir góð úrslit í fyrri leikjum 2. umferðar í gær- kvöld. Viktor Gísli Hallgrímsson landsliðsmarkvörður átti þar frá- bæran leik í níu marka sigri GOG á Winterthur frá Sviss þar sem hann var með 44 prósenta markvörslu. Þá vann Skjern góðan heimasigur á Montpellier. Tölur Íslendinganna í leikjunum má sjá á bls. 22. Íslendingaliðin í góðri stöðu Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson GOG Viktor Gísli Hallgrímsson átti stórleik í markinu í gærkvöld. ÍSLAND – SVÍÞJÓÐ 1:1 0:1 Anna Avnegård 33. 1:1 Elín Metta Jensen 61. Ísland: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurðar- dóttir. Vörn: Gunnhildur Yrsa Jónsdótt- ir, Glódís Perla Viggósdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Hallbera Guðný Gísla- dóttir. Miðja: Dagný Brynjarsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir. Sókn: Karólína Lea Vil- hjálmsdóttir (Hlín Eiríksdóttir 81), Elín Metta Jensen (Berglind Björg Þor- valdsdóttir 86), Sveindís Jane Jónsdótt- ir. Svíþjóð: (4-3-3) Mark: Zecira Musovic. Vörn: Amanda Ilestedt, Linda Sem- brant, Magdalena Eriksson, Jonna And- ersson. Miðja: Nathalie Björn (Julia Zi- giotti Olme 78), Caroline Seger, Lina Hurtig. Sókn: Sofia Jakobsson (Olivia Schough 89), Kosovare Asllani, Anna Anvegård (Mimmi Larsson 78). MM Sveindís Jane Jónsdóttir M Sandra Sigurðardóttir Glódís Perla Viggósdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Hallbera Guðný Gísladóttir Sara Björk Gunnarsdóttir Elín Metta Jensen Dómari: Ivana Martincic, Króatíu. Áhorfendur: Engir.  Jón Guðni Fjóluson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Brann frá Bergen en hann samdi um að leika með liðinu út þetta tímabil. Hann var laus undan samningi sínum við Krasnodar í Rússlandi þar sem hann lék tvö síðustu tímabil. Jón Guðni er 31 árs miðvörður og lék sinn 17. A-landsleik gegn Belgíu í Brussel fyrr í þessum mánuði. Hann lék áður með Norrköping og Sundsvall í Svíþjóð og Beerschot í Belgíu en hóf meistaraflokksferilinn með Fram. Jón Guðni verður fimmtándi Íslendingurinn til að spila með Brann auk þess sem Teitur Þórðarson þjálfaði liðið í samtals sex ár.  Njarðvíkingar hafa fengið til liðs við sig reyndan króatískan körfuknattleiks- mann, Zvonko Buljan, sem er 33 ára gamall og 206 cm hár miðherji eða framherji. Hann lék síðast með liði Al Dhafra í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum en hefur komið víða við og m.a. spilað með liðum í Rúmeníu, Belg- íu, Sviss og Argentínu á undanförnum árum.  Þórsarar frá Akureyri sem eru nýlið- ar í Olísdeild karla í handbolta hafa samið við Viorel Bosca, sem er 22 ára örvhent skytta frá Rúmeníu. Hann kem- ur frá Hasselt í Belgíu en lék áður með Baia Mare í heimalandi sínu og hefur spilað með yngri landsliðum Rúmeníu.  Tottenham komst í gær án fyrir- hafnar í sextán liða úrslit enska deilda- bikarsins í knattspyrnu. Liðið átti að mæta Leyton Orient í grannaslag í London en stór hluti liðs Orient hafði greinst með kórónuveiruna og því var Tottenham úrskurðaður sigur í leikn- um.  Manchester United komst í sextán liða úrslit enska deildabikarsins í knatt- spyrnu í gærkvöld með því að sigra B- deildarlið Luton 2:0 á úti- velli. Juan Mata skor- aði úr víta- spyrnu undir lok fyrri hálfleiks og þeir Marcus Rashford og Mason Greenwood inn- sigluðu sigurinn með tveimur mörkum rétt fyrir leikslok. Eitt ogannað KNATTSPYRNA 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Húsavík: Völsungur – Tindastóll ........ 16.15 Víkingsv.: Víkingur R. – Fjölnir.......... 19.15 Akraneshöll: ÍA – Afturelding ................. 20 Kópavogsv.: Augnablik – Grótta.............. 20 2. deild karla: Fjarðab.höll: Fjarðabyggð – Þróttur V .. 15 Ólafsfjarðarvöllur: KF – Völsungur ........ 16 Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir – Kári ............ 16 Nesfiskvöllur: Víðir – Njarðvík........... 16.15 Framvöllur: Kórdrengir – Selfoss ...... 19.15 4. deild karla, 8-liða úrslit, seinni leikir: Blönduós: Kormákur/Hvöt – KÁ (2:2)..... 16 Týsvöllur: KFS – KFR (1:2)..................... 16 Grýluvöllur: Hamar – KH (2:0) ................ 16 Vivaldi-völlur: Kría – ÍH (0:3) .................. 19 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Dalhús: Fjölnir – Snæfell..................... 18.30 Smárinn: Breiðablik – Valur ............... 19.15 Ásvellir: Haukar – Skallagrímur ........ 19.15 Blue-höllin: Keflavík – KR .................. 19.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.