Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 28

Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 28
Sinfóníuhljómsveit Ís- lands flytur tvö verk í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20 í Eldborgarsal Hörpu. Á efnisskrá er Fimmta sinfónía Beethovens og Eva Olli- kainen, nýskipaður aðal- stjórnandi hljómsveit- arinnar, stjórnar verkinu. Einnig flytur hljómsveitin Aeriality, eitt mest flutta verk Önnu Þorvaldsdóttur, staðartónskálds Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands. Tónleikarnir verða í beinni sjónvarps- útsendingu á RÚV og útvarpað á Rás 1. Miðar fást á sin- fonia.is og harpa.is en sætaframboð er takmarkað og tónleikarnir standa í klukkustund og eru án hlés. Örlagasinfónía Beethovens í beinni útsendingu á RÚV og Rás 1 í kvöld „Það er svolítið skrítið að eiga eftir báða leikina gegn Val þegar við erum búnir að spila fjórtán leiki. Ef þeir vinna leikinn þá eru þeir nokkurn veginn stungnir af. Við höfum nánast sett alla leiki upp eins og hver og einn sé mikilvægasti leikur sumarsins en það er alveg hægt að segja að þessi sé töluvert mikilvægari en aðrir leikir. Ekki síst vegna þess að við höfum náð góðum úr- slitum upp á síðkastið,“ segir Björn Daníel Sverrisson, fyrirliði FH, í samtali við Morgunblaðið en efstu lið Pepsi Max-deildar karla mætast annað kvöld. » 23 Leikur FH og Vals er töluvert mikil- vægari en aðrir í ljósi stöðunnar Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ársþing Héraðssambandsins Skarp- héðins, HSK, var haldið á Hvolsvelli fyrir helgi og við það tækifæri var Jason Ívarsson útnefndur Öðlingur ársins 2019. „Ég hélt að allir væru búnir að gleyma mér fyrir austan, því langt er síðan ég keppti þar, en viðurkenningin er ánægjulegri fyrir vikið,“ segir Jason, sem er kennari í 50% starfi við unglingadeild Austur- bæjarskóla í Reykjavík. Viðurkenningin er veitt fyrir ástundun og árangur í keppni á ár- um árum og félagsstörf og alúð við íþróttir fram eftir aldri eins og til dæmis þátttöku í mótum fyrir eldri keppendur. Jason fellur vel að þeirri skilgreiningu, var virkur í frjálsum og blaki í áratugi, meðal annars landsliðsmaður, hefur sinnt félags- störfum í héraði og á landsvísu í um hálfa öld og heldur sér við í ringói. Jason keppti fyrst í frjálsum fyrir Ungmennafélagið Samhygð 1968 og tók þátt í héraðsmótum HSK og landsmótum um árabil. „Ég byrjaði að keppa í blaki fyrir mitt gamla fé- lag og endaði blakferilinn með því á héraðsmóti, en var í Þrótti í millitíð- inni,“ segir hann lítillátur. Hann kynntist blaki þegar hann var í Hér- aðsskólanum á Laugarvatni og keppti á fyrsta héraðsmótinu 1974. Hann var HSK-meistari með Sam- hygð í mörg ár og var í liðinu 1982 sem var hársbreidd frá því að leika til úrslita í bikarkeppni Blak- sambandsins. Hann er margfaldur Íslands- og bikarmeistari með Þrótti í Reykjavík og lék 15 landsleiki. Enginn bolti í sveitinni Jason er frá Vorsabæjarhóli í Flóa og keppti í frjálsum fyrir Samhygð nær óslitið frá 1968 til 2016. „Í sveitinni var enginn bolti, ekki nógu margir til að ná í lið í fótbolta og handbolta og körfubolta þekkti enginn. Það voru bara frjálsar og beinast lá við að fara í þær. Við systkinin útbjuggum sandgryfju í túnfætinum og bræður mínir stukku stöng á hrífuskafti,“ rifjar hann upp. Sjálfur keppti hann einkum í grind og þrístökki, meðal annars fyrir unglingalandsliðið í landskeppni við Dani í Danmörku fyrir tæplega 50 árum. „Þá keppti ég líka í boð- hlaupi,“ minnir hann á, en Jason keppti fyrir HSK í frjálsum íþrótt- um, blaki og körfubolta á lands- mótum UMFÍ 1975 til 1994. Á ný- liðnum árum hefur hann svo tekið þátt í nokkrum landsmótum UMFÍ 50+ og keppt í frjálsum og ringói. „Ringó er ágætis tilbreyting frá blakinu, fín eldriborgaraíþrótt,“ seg- ir hann. „Félagsmálin hafa líka tekið sinn tíma,“ segir Jason, en hann hefur verið formaður blaknefndar HSK, stjórnarmaður í blakdeild Þróttar, í stjórn Blaksambandsins í 20 ár og þar af formaður í 14 ár, en hann hætti á liðnu ári og var þá útnefndur heiðursformaður BLÍ. „Tíminn flaug og starfið gekk vel enda var ég með mjög gott fólk með mér. En allt tekur enda. Ég ætlaði mér aldrei að vera lengur en sex til átta ár.“ Auk þess hefur hann verið formaður dómaranefndar BLÍ og er enn virk- ur dómari. „Ef leitað er til mín og ég get aðstoðað geri ég það.“ Útnefning Jason Ívarsson, íþróttakappi og félagsmálatröll úr Flóanum, er Öðlingur ársins 2019 hjá HSK. Alltaf í viðbragðsstöðu  Jason Ívarsson útnefndur Öðlingur ársins 2019 hjá HSK Ljósmynd/Engilbert Olgeirsson MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 267. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.