Morgunblaðið - 25.09.2020, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
„Flísarnar í forstofu og sjónvarpsholi eru frá
Birgisson og heita Amani Bronze, í eldhús og
stofu notuðum við sama parketið og var fyrir og
nýbúið að leggja á neðstu hæð hússins en það er
einnig frá Birgisson.“
Forstofan tók töluverðum breytingum en
Gríma lét fjarlægja stóran fataskáp í forstof-
unni til að létta á rýminu. Hún segir að það hafi
ekki þurft fataskáp því í forstofunni sé hurð inn
í geymslu þar sem hægt er að geyma útiföt og
slíkt.
„Þar rifum við út stóran fataskáp þar sem í
forstofunni er góð geymsla sem nýtt er undir
útiföt, skó og allt sem því fylgir og settum upp
fljótandi bekk úr reyktri eik og reyktan spegil
þar á bak við í opið þar sem fataskápurinn var.
Þessar breytingar gerðu mikið fyrir rýmið,
bæði stækkuðu það og lofthæðin fékk að njóta
sín mun betur.“
Í vinnu þinni sem innanhússhönnuður, finnst
þér fólk vilja mikið það sama eða er fólk til í að
taka áhættu?
„Heilt yfir er gaman að sjá hvað Íslendingar
fylgjast vel með nýjustu straumum og stefnum í
hönnun en á sama tíma virðumst við vita hvað
við viljum og erum í heild heldur klassísk í lita-
og húsgagnavali.“
Hvað ertu ánægðust með á heimilinu?
„Eldhúsið kom virkilega vel út og erum við
báðar mjög ánægðar með útkomuna.“
Finnst þér áherslur fólks vera að breytast
eftir að veiran fór að gera vart við sig og fólk ver
meiri tíma inni á heimilinu?
„Mín tilfinning er sú að fólk hafi verið í mikl-
um framkvæmdahug allt þetta ár og eru margir
að taka heimilið hjá sér í gegn, þá sérstaklega
eldhús og baðherbergi, eitthvað sem hefur setið
á hakanum en nú þegar við ferðumst minna
gefst loks tækifæri til þess að ráðast í verkið.“
Ertu með eitthvert gott ráð fyrir þá sem vilja
fá fallegra yfirbragð á heimilið?
„Góð, mjúk og stillanleg lýsing finnst mér
stór partur af fallegu heimili. Lýsing skapar
stemningu, jafnvægi og hlýju. Plöntur eru
skemmtileg og ódýr leið til þess að hressa heim-
ilið við. Það er ýmislegt hægt að gera og fer allt
eftir því hversu róttækur maður er tilbúinn að
vera. Allt frá því að endurraða, færa til og
breyta skipulagi þess sem fyrir er yfir í að mála
rými í nýjum lit, lakka/sprauta hurðir og inn-
réttingar, leika sér með gólf-, vegg- og loftalista,
svo gera speglar ótrúlega mikið fyrir nánast öll
rými og mér finnst alltaf gaman þegar þeir eru
notaðir á frumlegum stöðum. Svo getur breytt
gífurlega miklu að skipta út gardínum,
blöndunartækjum í eldhúsi og jafnvel borð-
plötu, en þá er maður vissulega kominn út í ör-
lítið stærri framkvæmdir.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Góð, mjúk og stillanleg lýs-
ing finnst mér stór partur af
fallegu heimili. Lýsing skap-
ar stemningu, jafnvægi og
hlýju. Plöntur eru skemmti-
leg og ódýr leið til þess að
hressa heimilið við.
Gríma og Jóna voru sammála
þegar kom að eldhúshönn-
uninni. Jóna vildi fá opið eld-
hús og alls ekki svart eða hvítt.
Egg Arne Jacob-
sens er einstaklega
fallegt og nýtur sín
vel í gráa litnum.
Borðstofustólarnir eru hannaðir
af Arne Jacobsen. Ljósið fyrir
ofan borðstofuborðið er hann-
að af Jehs & Laub fyrir Nemo.