Morgunblaðið - 25.09.2020, Page 8

Morgunblaðið - 25.09.2020, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 V ið réðumst í heilmiklar breytingar, bæði utan og innan. Inni færðum við veggi, settum gólfhita, tókum burðarvegg í stofu. Breyttum inn- réttingum, fengum nýjan stein, máluðum og fleira og fleira. Að utan settum við nýja glugga í allt ásamt því að síkka nokkra og setja hurð úr hjónaherbergi út í pott. Steyptum bílaplan og pall ásamt niður- gröfnum „pytti“ með heitum potti og eld- stæði, steyptum veggi og settum skjólveggi úr timbri á móti, máluðum húsið og klædd- um að hluta til, gerðum ný beð, færðum tré og svo mætti lengi telja. Ég hef reyndar breyst í mikinn blómálf eftir þessi ævintýri úti og elska að dúllast í blómapottunum og spúla pallinn,“ segir Sæja. Er öðruvísi að hanna eigið heimili en að hanna fyrir annað fólk? „Já, að vissu leyti, hér heima fæ ég auð- vitað að ráða þessu sjálf en nálgunin er allt- af sú sama, að ná því besta úr hverju rými fyrir sig sem hentar heimilisfólkinu.“ Í vor neyddist Sæja til að fara í fram- kvæmdir þegar upp kom leki í eldhúsinu. „Í vor vöknuðum við upp við hálfgert gufubað og þegar fram var komið var allt á floti í sjóðandi vatni með tilheyrandi skemmdum og veseni. Lagnir í krananum í eyjunni gáfu sig og þurftum við því að fjar- lægja eyjuna þar sem hún var ónýt en sem betur fer slapp flest annað. Þar sem við ákváðum að fjarlægja burðarvegginn í stof- unni í samráði við verkfræðing gafst tæki- færi til að minnka eyjuna og koma fyrir borðstofu þar fyrir aftan en það var ógerlegt þegar veggurinn var til staðar. Við þessar breytingar breyttist rýmið svakalega og ég gat hugsað það alveg upp á nýtt. Ég hélt háu einingunni, enda þykir mér hún alltaf mjög falleg, en ákvað að dekkja nýju eyjuna í brúngráan tón og valdi stórkostlegan marmara sem heitir Kenya og er frá Gran- ítsmiðjunni. Hann er til dæmis eitthvað sem kúnnar gætu hræðst en eftir að ég valdi hann heim hef ég fengið að nota hann til dæmis sem „feature“-vegg bakvið svart bað- kar í æðislegu húsi sem er í vinnslu. Þannig getur verið öðruvísi að hanna fyrir mig frek- ar en kúnna þar sem ég get gert tilraunir heima sem þeir svo eru frekar til í eftir að hafa séð hjá mér. Ég hannaði svo einnig barskáp í stíl við eyjuna sem setur punktinn yfir i-ið.“ Inni í stofu er einstaklega fallegur skenk- ur úr marmara. „Steinninn er svo fallegur að ég ákvað að útbúa „pall“ undir hillu og þar fyrir ofan er sjónvarp. Sjónvörp eru þó sjaldan næs á mest áberandi staðnum í húsinu og því feng- um við okkur Samsung Frame, algjör snilld, og ekki skemmir fyrir þetta fallega „mál- verk“ sem ég fékk í bónus.“ Hvað ertu búin að búa lengi í húsinu? „Við keyptum húsið 2013 og höfum búið hér síðan. Vorum að hugsa um að flytja en staðsetningin er bara svo æðisleg að ég gat ekki hugsað mér það. Því ákváðum við að fara heldur í breytingar svo húsið hentaði okkur betur. Hér verðum við því vonandi alltaf.“ Þegar fjölskyldan festi kaup á húsinu var það í upprunalegu ástandi. „Planið var að taka gólfefnin og bíða og sjá til svo með framhaldið og taka tíma í að hanna það. Það endaði þó með fokheldu húsi eftir þrjá daga en það er önnur saga. Við Ljósmyndir/Guðfinna Magnúsdóttir Getur loksins haldið matar- boð fyrir fleiri en sex Sæbjörg Guðjónsdóttir eða Sæja eins og hún er kölluð á einstaklega fallegt heimili. Í vor neyddust hún og maður hennar til þess að fara í framkvæmdir þegar vatnsrör sprakk í eldhúsinu og það þurfti að setja nýja eyju og ýmislegt fleira. Marta María | mm@mbl.is  SJÁ SÍÐU 10 Sæja neyddist til að setja nýja eyju í eldhúsið þegar það kom upp vatnsleki í gamla eldhúsinu. Hún reif niður vegg sem gerði það að verkum að nú andar vel á milli eldhúss og stofu. Sófinn í stofunni er frá Minotti en Sæja lét yfirdekkja hann. Í bakgrunni má sjá nýju eyjuna en ekki þurfti að skipta um skápavegginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.