Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
því það síðarnefnda þolir miklu meira og svo
finnst mér fallegt að brjóta þetta upp. Svo er-
um við með stóra SMEG-eldavél og við vildum
að hún fengi að njóta sín,“ segir Guðrún. Gard-
ínurnar í eldhúsinu eru svipmiklar en þær
keypti Guðrún í Rúmfatalagernum.
Þegar Guðrún er spurð út í eigin stíl segir
hún að það sé enginn sérstakur stíll hjá sér.
Hún velur það sem henni finnst fallegt og
minnist á að það þurfi ekki allt að kosta mikla
peninga, samanber eldhúsgardínurnar úr
Rúmfatalagernum.
Innbúið samanstendur af allskonar fallegum
hlutum sem hún og maður hennar eru búin að
eiga lengi og hafa sankað að sér í gegnum tíð-
ina.
„Borðstofuborðið er til dæmis orðið 15 ára
gamalt en það var keypt í Tekk-vöruhúsi á sín-
um tíma. Svo er ég með gamla Philippe
Starck-stóla sem ég nota á móti Ton-stólunum
sem ég keypti nýlega,“ segir hún.
Fyrir ofan 15 ára gamla borðstofuborðið
hanga ljós sem keypt voru í Heimili og hug-
myndum.
„Þau eru ekki mjög bein, heldur klunnaleg
og þung og passa vel við borðið,“ segir hún.
Langaði að verða arkitekt
Við ræðum um heimilisfegurð og þrána að
vilja hafa fallegt í kringum sig. Guðrún segir
að hún hafi alla tíð kunnað að meta fagurt um-
hverfi og á tímabili langaði hana að læra meira
í þeim efnum.
„Ég ætlaði mér alltaf að læra arkitektúr en
svo hafði ég ekki möguleika á því á ákveðnu
tímabili,“ segir hún. Fjölskylda og vinir hafa
þó notið góðs af hæfileikum hennar á þessu
sviði og hefur hún margoft aðstoðað sitt fólk
við að fegra í kringum sig. Hún játar að hún fái
mjög mikið út úr því og finnist það gaman.
Mjög samstiga
Guðrún er mikill raðari og hefur alltaf jafn-
gaman af því að færa til hluti. Stundum leggur
hún hluti til hliðar og hvílir þá og dregur svo
fram aftur. Þegar Guðrún er spurð að því
hvort þau maðurinn hennar séu alltaf sammála
segir hún að þau vinni vel saman.
„Við erum rosalega samstiga í þessu. Hann
er mjög handlaginn og þúsundþjalasmiður,“
segir hún.
„Það var aldrei vesen þegar við vorum að
gera þetta hús. Við unnum ofboðslega vel sam-
an í þessu. Þegar ég hugsa til baka þá gekk
þetta svo vel. Ég ræð svona hvernig hlutirnir
enda en hann er meira í þessu faglega en við
unnum þetta mestallt sjálf,“ segir hún.
Þeir sem hafa gert upp húsnæði vita að það
getur tekið á. Það er í mörg horn að líta svo
ekki sé minnst á allar ferðirnar í byggingar-
vöruverslanir sem eru kostnaðarsamar og tíma-
frekar. Þegar ég spyr Guðrúnu út í þetta játar
hún að hafa orðið svolítið þreytt í byrjun ársins.
„Ég krassaði í janúar eða febrúar en svo
hristi ég það af mér og hélt áfram,“ segir hún.
Hafið þið ekkert pælt í því að stofna fyrir-
tæki sem aðstoðar fólk í framkvæmdahug?
„Ég hef oft fengið þá spurningu. Við gætum
verið með fyrirtæki til að sjá um svona fyrir
fólk, en höfum ekkert tekið það lengra,“ segir
hún.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Guðrún safnar fallegum bókum.
„Við erum rosalega
samstiga í þessu.
Hann er mjög hand-
laginn og þúsund-
þjalasmiður.
SJÁ SÍÐU 20
Borðstofuborðið var keypt
í Tekkhúsinu fyrir um 15 ár-
um. Stólarnir eru frá
Philippe Starck og frá Ton.
Á heimilinu eru mörg falleg listaverk.
Í eldhúsinu er stór
eldavél frá SMEG.
Gardínurnar eru úr
Rúmfatalagernum.