Morgunblaðið - 25.09.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.09.2020, Qupperneq 28
heimsóknir frá vinkonum þar sem við fórum yfir málin og ég snerist bara í enn fleiri hringi rakst ég á auglýsingu frá Sólveigu Andreu innanhúss- arkitekt á Facebook sem var nýbúin að hanna svona flutning á eldhúsi og leist svo vel á. Ég lenti svo í sóttkví í byrjun framkvæmda og þá var algjörlega frábært að hafa hana. Hún lagði til hugmyndir að lit á veggjum, eina sem ég bað um var ekkert grátt. Mér leist svo vel á tillög- urnar að ég ákvað að treysta henni bara alfarið fyrir þessu. Það var góð ákvörðun því ég er al- veg rosalega ánægð með litavalið.“ Hvernig breytir það stemningunni á heim- ilinu að þið færðuð allt til? „Það breytir fjölskyldulífinu þónokkuð mikið að sá sem er að stússa í eldhúsinu er ekki einn í einhverju herbergi frammi heldur eru allir í sama rýminu. Það er miklu notalegra, hvort sem verið er að hjálpast að við eldamennsku eða fjölskyldumeðlimir að sinna mismunandi verk- efnum. Það kemur mér líka á óvart hversu mik- ið það breytti að fá sérherbergi fyrir dótturina. Hún nýtur þess svakalega vel að vera með sitt dót í sínu herbergi, fram að breytingum hafði það að mestu verið í stofunni svo það er gott að losna við það þaðan. Hún fær oft vinkonur í heimsókn og það er æðislegt hvað þær eru dug- legar að vera inni í herbergi og leika sér með dót í lengri tíma.“ Þurftuð þið að fjárfesta í nýjum húsgögnum við þessa breytingu? „Við þurftum að kaupa nýtt borðstofuborð og -stóla en það sem við áttum passaði ekki lengur. Við gerðum mjög góð kaup í notuðu borði sem hafði verið nýtt sem fundarborð í Hrím á Laugavegi. Svo keyptum við nýjar hillur sem pössuðu betur inn, eina sem vantar núna er góð- ur kústaskápur.“ Eru einhverjar breytingar í kortunum á heimilinu eða er þetta komið? „Eina sem vantar núna er fyrrnefndur kústa- skápur og svo er á planinu að teppaleggja stiga- ganginn. Við erum annars alveg ótrúlega lukku- leg hér með það sem okkur finnst vera nýja íbúðin okkar.“ Þegar Katrín er spurð út í hverfið sitt, Laug- ardalinn, segir hún að það hverfi búi yfir fjöl- mörgum kostum. „Laugardalurinn er yndislegur. Ég er alin upp Langholtsmegin en bý nú í Laugarnesinu. Hér er skjólsælt og upplifunin smá þannig að hér sé alltaf gott veður. Það er hægt að sækja nánast alla þjónustu innan hverfis og börn geta stundað nánast allar íþróttir sem eru í boði hér í nágrenninu. Það er stutt í græn svæði og nátt- úru og stemningin er bara almennt notaleg. Börnin eiga marga vini í hverfinu og sonur minn fer allra sinna ferða áhyggjulaus á hjólinu sínu.  SJÁ SÍÐU 30 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í stofunni er hægt að hafa það afar huggulegt fyrir framan sjónvarpið. Grængrái litur- inn á veggjunum passar vel við skrautmuni heimilisins. Á ganginum er hillum komið fyrir til að nýta plássið sem best. „Það breytir fjöl- skyldulífinu þónokk- uð mikið að sá sem er að stússa í eldhúsinu er ekki einn í ein- hverju herbergi frammi heldur eru allir í sama rýminu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.