Morgunblaðið - 25.09.2020, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
Á rmú l a 1 9 | 5 5 3 - 9 5 9 5 | g a h u s g o g n@g a h u s g o g n . i s | www. g a h u s g o g n . i s
instagram.com/gahusgogn
F U L L K O M N A Ð U
S V E F N H E R B E R G I Ð
með sérsniðnum rúmgaf l
H
erdís Hallmarsdóttir lögmaður
starfar hjá Húsnæðis- og mann-
virkjastofnun. Hún hefur áhuga á
flestu því sem viðkemur húsum
og hönnun eins og sjá má á henn-
ar heimili.
Hún segir eitt það mikilvægasta við heimilið
að það haldi vel utan um fjölskylduna. Fegurð
og notagildi skiptir hana einnig máli.
„Þegar ég var að leita að húsi var mér bent á
lóð á einstökum stað sem hafði verið skilað. Ég
sótti um og var víst ekki ein um það, en dregið
var milli umsækjenda og hafði ég heppnina
með mér. Þannig kom þetta upp í hendurnar á
mér, þetta einstaka tækifæri til að byggja mitt
eigið draumahús – hannað af arkitektinum
henni mömmu.“
Þess má geta að móðir Herdísar er arki-
tektinn Sigríður Sigþórsdóttir, stofnandi
Basalt-arkitektastofunnar. Húsið, sem
stendur í náttúruparadísinni við Elliðavatn,
er einstaklega vel hannað og er náttúran eins
og listaverk inn um glugga heimilisins.
„Ég verð að hrósa mömmu og félögum
hennar á Basalt fyrir að gera okkur kleift að
njóta náttúrunnar til hins ítrasta. Húsið er á
þremur hæðum, það lagar sig vel að landinu og
við njótum útsýnisins alls staðar í húsinu en
fáum líka skjólsælan garð sem er mjög „prí-
vat“ og snýr í suðurátt. Þrátt fyrir stóra
glugga eru þeir þannig staðsettir að ég þarf
varla á gardínum að halda. Ég nýt útsýnisins
en horfi aldrei inn til nágrannana. Einfaldleiki
í efnisvali er gegnumgangandi í hönnuninni.
Sjónsteypa að utan sem tekur á móti manni og
leiðir mann í gegn, í bland við hlýleika frá
hnotu sem er í hurðum og innréttingum sem
gefur sterkan blæ. Stórar grábrúnar flísar
tengja það svo saman á hlutlausun hátt. Guð-
jón L. Sigurðsson í Lisku sá um lýsinguna og
það skiptir verulegu máli að hún sé góð. Húsið
er líka hannað með það í huga að geta tekið
breytingum eftir aðstæðum og fjölskyldu-
stærð.“
„Þakklát
mömmu fyrir að
hanna drauma-
húsið mitt“
Herdís Hallmarsdóttir lögmaður býr í fallegu húsi sem stendur í
mikilli náttúruperlu við Elliðavatn. Hún býr í draumahúsinu sínu sem
móðir hennar, arkitektinn Sigríður Sigþórsdóttir, hannaði. Hugmyndin
um að mæður viti best fær byr undir báða vængi í þessu viðtali.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Útsýnið úr svefnher-
berginu er engu líkt en
náttúran fær að flæða
óhikað inn í rýmið.
Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt hjá
Basalt er móðir Herdísar og sá hún
um að teikna húsið fyrir dóttur sína.
Steyptu veggirnir fara
vel við hnotuna sem
prýðir innréttinguna.
Hátt er til lofts og vítt
til veggja og fallegt út-
sýni til suðurs.