Morgunblaðið - 25.09.2020, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
viðkemur rafhitun.
Hvað eruð þið mörg sem búið í húsinu?
„Ég bý með kærastanum mínum Hinriki
Gunnarssyni, Hallmari syni mínum og kærust-
unni hans og Birtu dóttur Hinriks. Þá er hér
alltaf athvarf fyrir stelpurnar okkar þær Sig-
ríði Maríu dóttur mína og Sóleyju dóttur hans.
Við erum öll „fullorðin“ og það fer mjög vel um
okkur. Ég má auðvitað ekki gleyma sjálfri
drottningunni á heimilinu, Míu, sem er fjög-
urra ára gömul aussie-tík sem hefur mjög
ákveðnar skoðanir um hver megi fara með
hana út að ganga og hvenær er kominn tími á
að segja dagsverkið gott og hörfa upp í svefn-
herbergi.“
Eldhúsið er hjarta heimilisins
Hvað getur þú sagt mér frá svefnherberg-
inu þínu og útsýninu þaðan?
„Útsýnið heima er engu líkt og það er síður
en svo leiðinlegt að vakna á morgnana og fylgj-
ast með sólinni rísa yfir Elliðavatninu. Um-
hverfið er mjög friðsælt og það á vel við mig að
njóta kyrrðarinnar sem fylgir því að búa í sveit
í borg. Svefnherbergið er ekki bara svefn-
herbergi og við hönnun hússins var sérstak-
lega tekið mið af því að ég elska næði og þæg-
indi. Þannig er herbergið eina svefnherbergið
á hæðinni og deilir í raun litlu sem engu plássi
með öðrum rýmum hússins. Mömmu tókst
ótrúlega vel upp enda eyði ég miklum tíma í
rýminu. Það er fátt notalegra en að setja á
góða tónlist, fara í heitt bað og setjast svo með
góða bók með alveg ótruflað útsýni yfir ís-
lenska náttúru.
Fyrir neðan húsið er malarvegur, með tölu-
verðri umferð útivistarfólks og hestamanna,
en hæð glugga er hönnuð þannig að ekki sést
inn í rýmið utan frá.“
Hvað er hjarta heimilisins?
„Eldhúsið og borðstofan eru hjarta heimilis-
ins. Við eigum öll okkar persónulegu athvörf í
húsinu þar sem allir geta haft næði en svo er
það í eldhúsinu og borðstofunni þar sem heim-
ilisfólkið kemur saman. Rýmið býður fólk vel-
komið heim, það er opið, hátt til lofts en um
leið vandað til hljóðvistarinnar. Stórir glugga-
Í svefnherbergi Herdísar
er hugsað fyrir öllu. Hér
er góð aðstaða að taka
sig til fyrir daginn.
fletir gefa mikla náttúrulega birtu, þar sem út-
sýnið er nýtt til hins ítrasta. Bein tenging við
suðurhluta garðsins gerir að verkum að við
njótum hans þegar veður leyfir.
Ég verð að viðurkenna að ég er ekki mikill
kokkur sjálf, þótt ég njóti þess vissulega að
borða góðan mat. Ég er meira fyrir það að elda
á hátíðisdögum þar sem maður getur staðið í
nokkra klukkutíma í eldhúsinu, en minna fyrir
hversdagslegri máltíðirnar. En svei mér þá
ætli ég sé ekki duglegri núna, enda er þetta
eins og félagsmiðstöðin okkar heima og hún
togar í mann.“
Hver er uppáhaldsliturinn þinn?
„Ég er náttúrubarn og elska jarðliti. Hinrik
fær mig svo annað slagið út fyrir boxið í lita-
vali, hann kallar það að brjóta upp. Við höfum
gaman af því að nostra heima og gera fallegt
og í raun er í mestu uppáhaldi hjá mér þegar
við blöndum saman litum og það heppnast að
skapa vissa stemningu.“
Hefur alltaf tekið sér góðan tíma í
að kaupa húsgögn
Hvað keyptir þú þér af húsgögnum fyrir
heimilið?
„Ég hef sankað ýmsu að mér í gegnum tíðina
en skandinavísk og ítölsk hönnun er í uppáhaldi.
Þegar ég var ung sleppti ég því frekar að kaupa
húsgagn þrátt fyrir að vanta það af því ég var að
safna mér fyrir því sem mig raunverulega lang-
aði í og ég sé ekki eftir því í dag. Þá velti ég hlut-
unum fyrir mér lengi og er ekkert að flýta mér.
Þannig hef ég ekki átt sófaborð síðan Hinrik
flutti inn, enda er ég enn að sverma fyrir
ákveðnu borði. Ég tek samt annað slagið rúnt-
inn og heimsæki það í búðinni. Einn daginn
kemur það kannski heim með mér – hver veit?“
Hvað er gott heimili í þínum huga?
„Ég er mjög lukkuleg með húsið og þakklát
mömmu fyrir að hanna draumahúsið mitt.
Heimili er griðastaður sem manni þykir vænt
um og líður vel í. Staður sem maður hefur lagt
alúð í að stilla upp eftir eigin lífi og í kringum
fólkið sitt og endurspeglar fólkið sem þar býr.“
Sófarnir eru úr Epal
ásamt PH-lampanum.
Þetta spilar vel saman
við svörtu bast-stólana.
Leðurstóllinn fer
vel við arininn
og eldiviðinn.
Á þessari mynd sést
hvernig baðherbergið
flæðir inn í hjónaherbergi
á áreynslulausan hátt.
Hér má sjá
baðkarið sem
er inni í hjóna-
herberginu. Inn
í rýmið flæðir
birta og því
hægt að hafa
það náðugt.