Morgunblaðið - 25.09.2020, Page 42

Morgunblaðið - 25.09.2020, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 Vitamix blandararnir eiga sér engan jafningja. Mylja nánast hvað sem er. Búa til heita súpu og ís. Hraðastillir, prógrömm og pulse rofi sjá til þess að blandan verður ávallt fullkomin og fersk! Heitasta tækið í eldhúsinu Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Ascent serían frá Vitamix V algerður var á leigumarkaðnum þeg- ar hún var í myndlistarnámi fyrir norðan en flutti svo aftur heim til móður sinnar þegar hún flutti aftur suður. Hún segir að það hafi verið orðið ágætlega tímabært fyrir sig að kaupa sér íbúð núna en Valgerður er 27 ára gömul. „Eins mikið og ég elska foreldra mína fannst mér þreytandi að geta ekki bara sest við píanó- ið og sungið eins hátt og mig langaði, eða gengið um berrössuð eftir sturtu. Þetta var svona mitt skref í átt að því að fullorðnast, og það gengur bara alveg ágætlega,“ segir Val- gerður. „Áður en ég fann mína íbúð hafði ég þannig séð engar ákveðnar hugmyndir, ég trúi því að lífið taki mann þangað sem maður á að vera hverju sinni. Ég var að heimsækja fjölskylduna mína á Akureyri þegar mamma sendi á mig hlekk af íbúðinni á Hringbraut og spurði hvort ég hefði áhuga á að skoða, það væri opið hús daginn eftir og ég þyrfti þá að drífa mig suður. Ég ákvað að láta vaða og hugsaði: „Ef þessu er ætlað að verða, þá verður það.“ Ég var síðan mætt á opið hús daginn eftir og féll algjörlega fyrir íbúðinni, gerði tilboð og það var sam- þykkt sólarhring síðar. Íbúðin var björt og fal- leg, á fullkomnum stað, með rúmgóðum svöl- um og bókstaflega í næstu götu við foreldra mína svo ég fór nú ekki of langt frá mömmu. Ég keypti af yndislegu pari, þau voru búin að gera íbúðina mikið upp og þetta var í rauninni bara algjör draumur fyrir mig og ég gæti ekki verið sáttari,“ segir Valgerður. Leyfði hjartanu að ráða för Valgerður hefur síðustu vikur verið að gera íbúðina að sinni og segist algjörlega hafa leyft hjartanu að ráða för. „Ég myndi segja að íbúð- in endurspeglaði mig og minn karakter mikið. Ég hef sterkar skoðanir og veit yfirleitt alveg hvað ég vil og vil ekki. Mig langaði til dæmis alls ekki að fá mér sjónvarp, ég horfi aldrei á sjónvarp og frekar en að koma heim eftir lang- an dag og kveikja á sjónvarpinu set ég plötu á fóninn og dúlla mér. Það að hafa ekki sjónvarp verður líka til þess að fólk talar meira saman þegar það kem- ur í heimsókn til mín, og spjallar við mig á meðan ég elda og er með gesti. Þá er ekki þetta utanaðkomandi áreiti að trufla, og stund- in verður verðmætari fyrir vikið. Hver einasta ákvörðun sem ég tók varðandi íbúðina kom mjög eðlilega til mín, ég hugsa að þetta snúist að miklu leyti um að treysta eigin innsæi,“ seg- ir Valgerður. „Öryggi og hlýja skipta mig miklu máli, mig langaði að skapa heimili með karakter og sál. Ég lít á heimili mitt sem minn griðastað og þar á manni að líða vel. Ég er kertasjúk og er með kerti um alla íbúð, hljóðfærin mín eiga stóran sess í mínu lífi og mér finnst dásamlegt að vera umvafin hljóðfærum, bókum, vínilplötum, fal- legum húsgögnum og huggulegri birtu,“ segir Valgerður þegar hún er spurð um hvers konar andrúmsloft hana langaði til að skapa á heim- ilinu. Valgerður er í söng- og píanónámi við MÍT og stefnir á hljóðfæratónsmíðar í Listaháskóla Íslands á næsta ári. Þess á milli vinnur hún sem sundlaugarvörður í Sundlaug Seltjarn- arness. „Ég fer í sund á hverjum degi, vatnið „Mitt skref í átt að því að fullorðnast“ Tónlistarkonan Valgerður Þorsteinsdóttir keypti sína fyrstu íbúð í sumar. Um er að ræða litla íbúð í Vesturbænum og hefur hún notað síðustu misseri til að gera hana að sinni. Sonja Sif Þórólfsdóttir | sonjasif@mbl.is „Öryggi og hlýja skipta mig miklu máli, mig lang- aði að skapa heimili með karakter og sál.“ Hún elskar að hafa kertaljós logandi heima hjá sér. Það sést vel á heimili Valgerðar hversu listræn hún er. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Valgerður Þor- steinsdóttir hefur búið sér fallegt heimili í vest- urbænum.  SJÁ SÍÐU 44

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.